Morgunblaðið - 13.10.1973, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1973
7
NÝIR BORGARAR
A Fæðingarheimili Reykjavíkur
fæddist:
Erlu Jónsdóttur og Hjörleifi
Þórlindssyni, Hraunbæ 156, R.,
sonur 29.9. kl. 23.50. Hann vó 15
merkur og var 52 sm að lengd.
Auði Höskuldsdóttur og Jóni
Magnússyni, Drangsnesi,
Strandasýslu, sonur 29.9. kl.
13.40. Hann vó 16 merkur og var
52 sm að lengd.
Ástu Leifsdóttur og Vilhjálmi
Þór Vilhjálmssyni, Hofteigi 14,
R., sonur 29.9. kl. 16.40. Hann vó
17 merkur og var 53 sm að lengd.
Karen Margréti Mogensen og
Þórleifi Friðrikssyni, Laugateigi
22, R„ dóttir 1.10. kl. 02.25. Hún
vó 14 merkur og var 50 sm að
lengd.
Þorbjörgu Björnsdóttur og
Sigurði Ingólfssyni, Mímisvegi 8,
R„ sonur 28.9. kl. 15.15. Hann vó
13 merkur og var 50 sm að lengd
Sigríði Emilsdóttur og Ragnari
Harðarsyni, Vesturbergi 102, R.,
dóttir 28.9. kl. 17.30. Hún vó 15
merkur og var 52 sm að lengd.
Júlíönu Olafsdóttur og Jóni
Hjálmari Haukssyni, Fellsmúla 2,
R„ dóttir 30.9. kl. 18.37. Hún vó 13
merkur og var 50 sm að lengd.
PENNAVINIR
Bandarfkin
Mrs. Alice Osterbaan,
8911, N. Verch Way,
Tucson, Arizona 85704,
U.S.A.
Hún er 47 ára, og óskar eftir að
komast í bréfasamband við frí-
merkjasafnara.
Tékkóslóvakía
Ing. Frantisek Komers,
Plzenska 34,
150 00 Prague 5,
Czechoslovakia.
Hann er 30 ára, og áhugamál hans
eru ferðalög og frímerkjasöfnun.
Árið 1970 dvaldist hann hér á
landi um þriggja vikna skeið, og
langar nú til að skrifast á við
Islending, sem einnig safnar frí-
merkjum með skipti fyrir augum.
Trinidad
Everette E. John,
P.O. Box 225,
Scarborough, Tobago,
Trinidad & Tobago
West Indies.
40 ára, hefur áhuga á lestri bóka,
íþróttum, frímerkjasöfnun og
bréfaskriftum.
Carol Moonilal,
3/4 ml. Penal Rock Road,
Penal,
Trinidad W.9.
ÁHEIT OG GJAFIR
Haukur Birgir Hauksson,
knattsp.maður. Áfh.Mbl.
María 1.000. Ómerkt 1.000.
Áheit á Guðmund góða
NN 1.000. S.M. 700.
Slasaði maðurinn, v/Hilmar
Þ.H. 1.000. H.V. 100.
DAGBOK
BVRWWA..
Þýtur í skóginum
FRAMWALOS&AGAN
staðinn. Komdu, við skulum leita hann uppi. Þá
fáum við áréiðanlega að heyra alla söguna.“
Þær stigu upp úr bátnum og gengu yfir blóm-
skrýdda grasflötina og rákust von bráðar á frosk,
þar sem hann sat makindalega í körfustól úti fyrir
húsinu mjög
— Eftir Kenneth Grahame
2. kafli — Þjóðvegurinn
„Hreinlyndur er hann, skapgóður og einlægur.
Hann er ef til vill ekki sérlega greindur, en það er
ekki hægt að ætlast til að allir hafi afbragðsgáfur til
að bera. Og vel getur verið, að hann sé grobbinn og
hégómlegur. En hann hefur sína miklu kosti fyrir
það.“
Báturinn rann eftir beygjunni á ánni og þá kom í
ljós gamalt og virðulegt hús úr rauðum múrsteini
og frá húsinu og niður að ánni var rennislétt og vel
hirt grasflöt.
„Þarna er Glæsihöll, þar sem froskur býr,“ sagði
rottan. „Og þama við víkina til vinstri er skilti, þar
sem á stendur: Einkaeign. Allar lendingar bann-
aðar. Þar er bátahúsið hans og þar skiljum við
okkar bát eftir. Hesthúsin hans eru hægra megin.
Þetta sem þú horfir á núna eru salarkynni, sem
hann notar til veizluhalda.
Það er mjög gamalt hús. Froskur er nefnilega
allvel efnaður og húsið hans er eiginlega það fin-
asta á þessum slóðum. En við viðurkennum það
aldrei fyrir froski.“
Þær renndu bátnum upp í víkina og moldvarpan
lagði inn árarnar um leið og skugga bar yfir þær af
stóru bátahúsi. í húsinu gat að líta marga glæsilega
báta, sem dregnir voru þar upp I slipp. Enginn
bátanna var á ánni og kyrrð hvíldi yfir öllu . . .
kyrrð, sem gaf til kynna, að staðurinn hefði lengi
verið yfirgefinn.
Rottan leit I kring um sig. „Ég skil,“ sagði hún.
„Nú eru siglingar ekki efstar á baugi hjá honum
lengur. Hann er orðinn leiður á þeim. Gaman þætti
mér að vita, hvaða flugu hann hefur fengið I
SMÁFÓLK
l'M 5UPE THEV HAVE A 6UE5T R00M...CHUCK'ð DAD 15 A PARBER... BAR5EK5 ARE KlCH..
[T*
Létt krossgáta
■ 1 2 3 4 5
6
7
8
9
Nu skulum við reyna hæfni okkar í krossgátu.*Hér er
ein létt. Og það er allt í lagi að biðja einhvern fullorðinn
um hjálp svona í fyrsta skipti. Leikurinn er í því fólginn
að finna annað orð sömu merkingar og skýringin og það
verður að passa í reitafjöldann við tölurnar sem upp er
gefin og orðin sem „krossa,,. Skýringarnar eru:
LÓÐRÉTT: 1 lof — 2 kvenmannsnafn — 3 beltið — 4
veit — 5 geta gert.
LÁRÉTT: 6 taflmenn — 7 leiktækið — 8 mynnið — 9
rétta.
BUUBS
6 UUISQ 8 'UBI9H l bhojh 9 Buuy
S 'UUBH ^ uno 0 bsoh z S9JH I
pu.req n;pS
-ssojq n usnnq
0NCE VOUR 5CÍ650RS AND
‘COUR C0M& ARE PAIP F0R,THE
RE5T IS ALL PKOFlT í
IDON'TTHIMK \f £T0P
WKMOIi)Ml/CH CALLIN6
ABOOT BARPEf&JÍME
6IR...
ώfiWte
1) Hvar sefurðu, á meðan þú 2) Ég er viss um að það er 3) Þegar búið er að borga 4) Ég held, að þú vitir ekki
gistir hjá Kalla, herra? — 1 . gestaherbergi þar... Pabbi skærin og greiðuna er af- niikið um rakara, herra.
g^staherberginu, auðvitað! Kalla er rakari.... Rakarar eru gangurinn hreinn gróði! —Hættu að kalla mig
ríkir! „Herra“!
Aheit á Strandarkirkju
NN 500, JA 100, GG 100, NN 100,
Áheit 100, Ebbi 300, Þórður Ragn-
arsson 400, Hólmar20, AÓ 300, FJ
150, Kona 200, JSS 200, SÓ 200,
Ómerkt 500, MÞ 400, Sigrún 200,
AH 1000, KHBH 200, SK 200, GS
1000, GE 1000, ESE 500, ÞN 500,
GA 600, DÞ 400, Ómerkt 500, ÞS
1000, HV 100, K-K 2000, AG 500,
x2 500, NN 500, NN 100, GS 100,
Svana 500, T - Ó 1000, Anna 2000.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar.
Aðalfundur verður í Safnaðar-
heimilinu mánudagskvöld kl.
20.30.