Morgunblaðið - 13.10.1973, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1973
15
Vonbrigði
í Japan
— vegna dráttar
á friðarsamningum
Tokyo, 12. okt. AP
Sýnilegt er, að Japanir hafa
orðið fyrir vonbrigðum yfir því,
hve árangurslftil Moskvuheim-
sókn forsætisráðherra þeirra,
Kakuei Tanaka, varð. Hafði þess
verið vænzt, að Tanaka fengi
Sovétmenn til að hefja viðræður
um friðarsamninga og standa við
þau orð, sem þeir hafa haft um að
láta af hendi a.m.k. tvær minni
eyjarnar f Kurileyjaklasanum,
Habomai og Shikotan.
Sovétmenn hafa heitið að láta
þær af hendi, þegar friðarsamn-
ingar milli ríkjanna hafa verið
gerðir, en Japanir vilja að af-
hending eyjanna komi á undan
friðarsamningunum.
Þá segjast Sovétmenn ekki þora
að láta stærri eyjarnar tvær í
klasanum, Etorofu og Kunashiri,
vegna ótta um landakröfur af
hálfu Kínverja.
Á stærri eyjunum eru íbúar
samtals um 30.000. Þar hefur
margsinnis komið til ágreinings
vegna fiskveiða Japana á miðun-
um við þær. Rússar hafa á liðnum
árum tekið þar að veiðum um
1400 japanska fiskibáta og sam-
tals um 12.000 fiskimenn. Flestir
hafa fengið að snúa heim aftur,
en þetta hefur valdið beizkju í
garð RUssa.
Tanaka hafði stuðning allra
stjórnmálaflokka landsins, þegar
hann hóf viðræðurnar í Moskvu
— fyrsti japanski forsætisráð-
herrann, sem þangað kemur í 17
ár — en sovézku leiðtogarnir voru
ekki til viðtals um þetta mál. Þó
buðu þeir Tanaka, að samninga-
viðræður gætu hafizt á næsta ári,
og tók hann því. Sömuleiðis var
samið um verndun sérstakrar
Framhald á bls. 18
Gistihús
á Everest
Tyangboche, Nepal, 12. okt.
AP
1 suðurhlíð fjallsins Everest
hefur nU verið opnað gistihús
og liggur það hæst allra gisti-
hUsa í heimi, eða í rúmlega
4.000 metra hæð. Loft er þar
enda svo þunnt, að herbergin
þar eru UtbUin með sUrefnis-
grímur fyrirgesti.
Að hótelbyggingunni sem
kostaði um 350.000 dali standa
aðilar frá Japan og Nepal og er
haft eftir upphafsmanni
þessarar framkvæmdar,
Japananum Takashi Miyahare,
sem er 38 ára að aldri, að
þarna bjóðist mönnum
hreinasta loft í víðri veröld.
Forsætisráðherra Nepals,
Nagendra Prashad Rijal, vígði
gistihUsið á miðvikudag, og var
farið með þyrlu frá Katmandu
til Tyangboche.
Olíusvæðin á Norðursjó:
ÁRSFRAMLEIÐSLA UM
7« MILUÓMR LESTA?
* f *
* StJ
London, 12. okt. NTB.
Brezka ríkisstjórnin skýrði frá
þvf 1 dag, að unnt væri að fram-
leiða árlega a.m.k. 70 milljónir
lesta af olfu á brezka olfusvæðinu
í Norðursjó. Sömuleiðis var sagt,
að á olíusvæðinu Argyll, sem er
um 200 sjómílur frá Edinburgh,
mætti vimja þrjár milljónir lesta
á ári og framleiðsla gæti hafizt
þar á næsta ári.
PERON
ISABELITA
SVERJA EMBÆTTISEIÐ
Buenos Aires, 12. okt. AP.
JUAN D. Peron sór í dag
embættiseið sinn sem forseti
Argentlnu og tók þar með við
embætti því, sem herstjórn lands-
ins svipti hann fyrir átján árum.
Samtímis sór eiginkona hans,
Maria Estela Martinez — kölluð
Isabelita — eið sem varaforseti,
og er hún fyrsta konan, sem tekur
við þvf embætti vestan hafs.
Peron, sem orðinn er 78 ára að
aldri, var sýnilega hrærður, þegar
hann fór með embættiseiðinn og
á eftir þerraði hann augu sin með
vasaklUt. Konu hans mælti eiðstaf
sinn hárri röddu, en ekki var
laust við, að einnig hUn sýndi
merki geðshræringar.
Uti fyrir stjórnarhUsinu beið
gífurlegur mannfjöldi, að því er
virtist hálf ær af fögnuði. Fólkið
hoppaði og æpti og söng hinn
kunna söng peronista og yfir öllu
blakti f ánahaf.
Landhelgismálið í Blackpool:
Vonir bundnar við fund
forsætisráðherranna
A fjórum stærstu svæðunum,
Forties, 3rent, Thrisle og Piper,
má gera ráð fyrir, að framleiðsla
geti hafizt síðla árs 1975 eða i
ársbyrjun 1976. Olíufélagið BP
gerir ráð fyrir, að á Forties-svæð
inu muni fást 12,5 milljónir lesta
á ári til að byrja með og fram-
leiðslan verði komin upp í u.þ.b.
20 milljónir lesta árið 1980.
Shell og ESSO, sem nýta eiga
Brent-svæðið, hefja framleiðslu
1976. Olíusvæðið þar er talið eitt
hið stærsta í heimi, og er gert ráð
fyrir, að það gefi um 15 milljónir
lesta á ári.
Signal- Oil og Occidental vænta
þess að fá um 10 milljónir lesta á
ári frá olíusvæðunum Thisle og
F’iper. Gert er ráð fyrir, að tvö
önnur svæði gefi af sér um fimm
milljónir lesta og það þriðja um
þrjár milljónir lesta.
Þá munu Bretar fá talsvert af
gasframleiðslunni á Friggsvæð-
inu, sem er á norsku yfirráða-
svæði í Norðursjó. Þar hefst fram-
leiðsla árið 1976, og er gert ráð
fyrir, að framleiðslan verði komin
upp í 1,4 milljarða kUbikfeta á
dag eftir tvö ár, en það magn er
um 40% af heildargasneyzlu á
dag í Bretlandi.
Frá fréttaritara Mbl. Davíð
Oddssyni, Blackpool, 12. okt.
„tsland hefur kynnzt aðferðum
okkar og þrautseigju.“ Við von-
um, að viðunandi ástand („modus
vivendi“) fylgi f kjölfar komu
fslenzka forsætisráðherran hing-
að á mánudaginn." Svo mælti Sir
Alec Douglas-Home, utanrfkis-
ráðherra Bretlands, f umræðun-
um hér í dag um utanríkismál á
flokksþingi Ihaldsflokksins f
Blackpool. Einn ræðumanna,
Gwilyn nokkur Richards, hafði
látið f ljós miklar áhyggjur yfir
þvf, hvaða áhrif fiskveiðideilan
kynni að hafa á aðstöðu NATO f
Keflavfk, og var þetta svar ráð-
herra við fyrirspurn hans.
Richards sagði varnarstöðina
vera lffshagsmunamál fyrir NAT-
O og þvf yrði brezka stjórnin að
gefa eftir f fiskveiðideilunni, þótt
Bretar væru þar vissulega í full-
um rétti.
Landhelgismálið var ekki rætt
frekar, ef frá er talið, að
varnaráðherrann, Carrington
frekar, ef frá er talið, að land-
hátignar hefði unnið gott starf að
undanförnu við Island sem ann-
ars staðar.
Fréttaritari Morgunbl. átti
f gær á þinginu stutt samtal við
Laurance Reed, þingmann Ihalds-
flokksins, sem þekktur er fyrir
samúð með málstað Islendinga og
kom nýlega til Islands. Reed
sagðist heldur vongóður um, að
árangur yrði af fundi forsætisráð-
herranna í London á mánudag-
inn. Aðspurður um, hvort hann
teldi, að um stefnubreytingu í
fiskveiðideilunni yrði að ræða af
hálfu brezku stjórnarinnar, í sam-
bandi við fund Edwards Heaths
og Ólafs Jóhannessonar, sagðist
Reed gera ráð fyrir því. I fyrsta
lagi væri deilan nU komin á það
stig, að forsætisráðherrarnir fjöll-
uðu um hana, sem hlyti að þýða,
að stjórnir landanna veittu meira
svigrUm til samninga en ella. I
öðru lagi væri þess að gæta, að
þeir, sem berðust fyrir stækkun
landhelgi Breta sjálfra, væru
orðnir mun sterkari en áður og
því myndi brezka stjórnin senni-
lega verða víðsýnni og sveigjan-
legri en áður í sanmingatilraun-
um sínum.
Reed kvaðst hafa skrifað utan-
rikisráðuneytinu brezka ítarlega
skýrslu um ferð sina til íslands og
sagðist hann trUa þvf, að skýrsla
sín hefði með öðru haft áhrif á
brezku stjórnina, svo að hUn að
lokum kallaði herskipin Ut fyrir
50 mílna mörkin.
Þingmaðurinn vildi ekkert tjá
sig um, í hverja tillögur Breta
myndu felast, en benti á, að á
nUverandi stigi umræðnanna
myndu fleiri þættir en áður koma
til greina til að stuðla að samning-
um.
Sfðan sagði Reed:
„Náist ekki samkomulags-
grundvöllur nU, hlýtur svo að
fara, að fslenzka landhelgisgæzl-
an fari að kljást við togara okkar
á nýjan leik og þá gæti brezka
stjórnin hæglega þurft að senda
herskip inn fyrir 50 mílur á ný.
Þessi stáðreynd hlýtur að knýja
forsætisráðherrana til að gera sitt
ýtrasta til að finna samkomulags-
grundvöll.“
Mosaikmynd
af Virgli
Washington, 12 okt. AP
SENDIHERRA TUnis f
Washington, Slaheddine E1
Goulli, hefur afhent Kennedy
Center í Washington veglega gjöf
frá þjóð sinni. Er það eftirmynd
af óvenjulegri mosaikmynd, 1700
ára gamalli, sem sýnir rómverska
skáldið Virgil með tvær af Iista-
gyðjunum.
Frummynd þessarar mósaik-
myndar, sem er um það bil fer-
metri að stærð, fannst árið 1886 í
Sousse, borg suður af TUnis. HUn
er talin frá því um 200 fyrir Krist
og er nU í Bardosafninu í TUnis.
Charles Hudson
WILLIAM Suddaby, fram-
kvæmdastjóri fyrir Boston Deep
Sea Fisheries, hefur verið
kjörinn formaður Sambands
brezkra togaraeigenda. Tekur
hann við af Charles Hudson, sem
gegnt hefur formannsstörfum I
sarubandinu frá árinu 1971.
Fjöldi sjálfboða-
liði til ísraels
London, 12. okt. AP.
MIKILL fjöldi Gyðinga hefur
undanfarna daga haft viðdvöl á
Heathrow flugvelli I London á
leið sinni til Israels, þar sem þeir
ætla að gefa sig fram til starfa
sem sjálfboðaliðar. f gær upp-
lýstu flugvallarstarfsmenn, að
um fimm hundruð manns frá
Bandaríkjunum og Kanada hefðu
farið um flugvöllinn þann dag-
inn.
Fólk þetta kom frá New York,
Chicago, Philadelphiu og
Montreal en einnig hefur fjöldi
Gyðinga i Bretlandi farið til
ísraels i sömu erindum. Tals-
maður ísraelska flugfélagsins EL
AL í London sagði, að 500 manns
væru bókaðir með vélum félags-
ins til Tel Aviv I dag, föstudag og
enn væri von á fleirum frá Banda-
ríkjunum og Kanada.
Fólk þetta gengur gjarnan inn í
störf þeirra, sem kallaðir hafa
verið á víðstöðvarnar.
KISSINGER FAGNAR
TILLÖGUM FRAKKA
— um framtíðarstarf Atlantshafsríkjanna
Washington, 12. okt. AP.
Henry Kissinger, utanrfkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hélt
fund með fréttamönnum í dag,
þar sem hann lofaði sérstak-
lega nýjar tillögur, sem
Frakkar hafa borið fram um
nýja yfirlýsingu um grundvöll
samstarfs Atlantshafsrfkjanna.
Kissinger kvaðs hafa rætt við
Michel Jobert, utanríkisráð-
herra Frakklands, í gær og
sagði, að tillögur Frakka væru
mjög jákvæðar og stórt skref
fram á við í umræðum aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins.
Lagði hann áherzlu á gildi þess,
að svo jákvæðar tillögur skyldu
koma frá Frakklandi, er hefði
dregið sig Ut Ur hernaðarsam-
vinnu NATO-ríkjanna. „Ég tel,
sagði Kissinger, „að við séum
komnir á braut, er leiða muni
til árangurs áður en ýkja langt
um líður.“
Fundurinn með Kissinger
var haldinn í tilefni þess, að
tilkynnt hafði verið að vegna
styrjaldar Israela og Arabayrði
að fresta Evrópuför hans, sem
hefjast átti um næstu helgi.
Kissinger sagði, að það yrði
ekki til að draga neitt verulega
Ur umræðunum um framtíðar-
samskipti Evrópuríkjanna og
Bandarikjanna; sérfræðingar
Bandarikjanna og aðildarríkja
Efnahagsbandalags Evrópu
myndu hittast aftur að máli 18.
okt. nk. í Kaupmannahöfn og
halda þar áfram að fjalla um
þau vandamál, sem ágreiningi
hefðu valdið. Walter Stössel sit-
ur fundinn sem fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar.
Að sögn AP gerir Bandaríkja-
stjórn sér nU vonir um, að sam-
komulag náist um gerð þriggja
grundvallaryfirlýsinga. Ein
þeirra muni fjalla um varnar-
mál Atlantshafsbandalagsins
og skyld efni, önnur um efna-
hagstengsli Bandaríkjanna og
Efnahagsbandalags Evrópu og
hin þriðja verði almennara eðl-
is og dragi Japan inn í mynd-
ina.
Kissinger kvaðst hæfilega
bjartsýnn um fyrri yfirlýsing-
arnar tvær, en gaf lítið Ut á
vonir sinar um þá þriðju. Er
haft eftir góðum heimildum í
Washington, að Jobert hafi gert
Kissinger það Ijóst, að Frakkar
væru algerlega andvígir því að
draga Japani inn í mál, sem
þeir teldu einungis varða þjóð-
irnarvið Atlantshaf.