Morgunblaðið - 13.10.1973, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1973
Þessi mynd var tekin þegar Ingi Ingvarsson, ambassador og fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, afhenti Kurt Waldheim trúnaðarbréf sitt, en það var 14. september síðastliðinn.
Tony Curtis hefur nú fallið frá
kröfu sinni um forráðaréttinn
yfir fimmtán ára dóttur sinni,
Jamie Lee, en móðir hennar er
Janet Leigh. Þau áttu saman aðra
dóttur, Kelly, sem nú er sautján
ára, en föður hennar var dæmdur
forráðaréttur yfir henni í
febrúarmánuði siðastliðnum að
undangengnu miklu stappi.
*
Fjórír heimsfrægir kvikmynda-
stjórar hafa gert samning við
kvikmyndafélag eitt i Los
Angeles. Þeir eru Antonioni,
Fellini, Ken Russel og Terence
Young, en þeir munu allir íslenzk-
um kvikmyndahúsgestum að góðu
kunnir. í samningnum er gert ráð
fyrir, að hver þeirra taki þrjár
kvikmyndir á næstu fimm árum,
nema Fellini, sem þarf ekki að
skila nema einni. Kvikmynda-
stjórarnir eru allir meðeigendur i
fyrirtækinu.
*
Ast er. . .
Guy de Rothschild heitir
franskur bankajöfur. Hann á
konu sem heitir Helene, og eru
þau hjónin alldjarftæk í sam-
kvæmislífi Parísarborgar. Þau
eru iðin við að bjóða fólki heim til
sín, og fá vonandi borgað aftur í
sömu mynt. Eitthvað virðist þeim
vaxa í augum kostnaðurinn við
alla risnuna, þvf að nýlega buðu
þau til sín 100 manns í mat, og svo
öðrum 300 að koma eftir matinn
til að fá sér kaffisopa og dansa.
Merkilegt nokk móðgaðist eng-
inn, nema einn „eldri herra“, sem
afþakkaði boðið með þeirra at-
hugasemd, að hann væri vanur að
drekka kaffi á sama stað og hann
mataðist.
*
Danir eiga sinn „Silfurlampa“,
eins og við. Reyndar er það nú
ekki lampi, heldur f eiginlegri
merkingu, heldur köttur úr gleri,
sem er einfaldlega kallaður
„leikhúskötturinn“. Nú hafa
danskir leikhúsgagnrýnendur
ákveðið, að leikstjórinn Svend-
Aage Larsen skuli hljóta
„leikhúsköttinn" í -ár, en það er í
sextánda sinn, sem „kötturinn"
fær samastað hjá einhverjum,
sem þótt hefur skara fram úr á
sviði leiklistar. 1 fyrra hlaut
ballettmeistarinn Fleming Flint
„Leikhúsköttinn“. Svend-Aage
Larsen hlýtur hnossið fynr upp-
færslur sínar á „My Fair Lady“,
en þær eru nú orðnar 25 talsins,
og hafa alls staðar hlotið einróma
lof gagnrýnenda, sem og áhorf-
enda ef marka má af aðsókn
þeirri, sem söngleikurinn hefur
hlotið.
Eins og íslenzka leikhúsgesti
mun reka minni til, var það ein-
mitt Svend-Aage Larsen, sem sá
um uppfærsluna hér í Þjóðleik-
húsinu á sínum tíma.
*
Dietrich Fischer-Dieskau ætlar
nú að freista gæfunnar við hljóm-
sveitarstjórn, en ákveðið er að
hann stjórni Mozarthljómsveit-
inni í Salzburg siðar í þessum
mánuði. Einleikari verður
Jaqueline de Pré, en á efnis-
skránni verða eingöngu verk eftir
Haydn.
Við birtum hér mynd af Tínu
Önassis og nýja kærastanum
hennar. Nýlega sagði Tina, að
hún ætlaði að láta það eftir sér, að
giftast manninum, sem hún
elskar, hvort sem hann passar inn
í fjárhagsáætlanir föður hennar
eðaekki.
En Aristóteles Onassis þarf
ekki að hafa neinar áhyggjur af
því, að tengdasonurinn tilvonandi
sé einhver þurfaling-
ur. Hann heitir Thierry
Roussel, og er ríkismannssonur
frá París. Faðir hans á eina
stærstu lyfjaverksmiðju í Frakk-
landi.
Tína og Thierry opinberuðu
trúlofun sína um borð í lysti-
snekkju Rousselfjölskyldunnar,
bar sem hún lá við festar í Mar-
bella á Spáni. Onassis-hjónin
voru ekki boðin í trúlof-
unargillið, og Tína hafði
ekki einu sinni varað föð-
ur sinn við. Sagt er, að hann
hbnum barst fréttin. Tína er
enginn græningi í giftingarmál-
unum. Hún var áður gift Jósepi
Bolker, sem er Amerikani, en
talsverður aldursmunur var á
þeim hjónum, þar sem hann var
þrjátíu árum eldri en Txna.
Það er ljóta þrasið, sem Mick
Jagger stendur f sí og æ. Nú hefur
söngkonan Marsha Hunt (sjá
mynd hér að ofan) kennt honum
telpu, sem hún átti einmitt um
sama leyti og Bianca kona hans
fæddi honum dóttur, en sfðan eru
tvö ár. Mick er ekkert á því að
gangast við barninu, og hefur
Marsha þessi nú höfðað barnsfað-
ernismál gegn honum. Heyrzt
hefur, að aðsókn að dómssalnum
þar sem réttarhöldin fara fram sé
eins mikil og tónleikum RoIIing
Stones.
Hvernig sem þessu máli lyktar
getur Marsha Hunt allavega verið
ánægð með þá athygli, sem hún
hefur vakið með þessu umstangi
sínu, — og kannski hefur það líka
verið tilgangurinn.
Sýslan er að síga
undir Þingeyingum!
Lfm og bætur f hvelli.
. . . smáskammtur
af himnaríki
á jörðu.
ÍM R*g. U.S. Foi. Off—All righu reterved
'C 1973 by Lot Angelet Timet
HÆTTA A NÆSTA LEITI — Eftir John Saunders og Alan McWilIiams
... ///; ’.ý';
A5 THE PLANE.TOUCHES THE
RUNV/A'ý THE 'S'-OW" LA.NO:!'
13 INSTANTL/CON7ERTED IN'.^ / - . -
FSISHTENINS CRCUNO SPEEO/ //TÁ | /
ANO THROLiSH A COMBINATION
OFPANICAUD INEXPERENCE,
IE »'.•'/ •V/- ,y/ HEIOI APPLIES UNE7EN PRESSURE V¥\l
ING JÁ’' // TO THE WHEELSRAKES/ ,-JT X ”
nto \\ ' / .' —-—-v ________' C ,'v x
Þegar fiugvélin snertir brautina, breytist
hæg lending f skelfilegan hraðan akstur á
j örðu.
Vegna hugaræsings og reynsluleysis
gefur Heidi hjólhemlunum ójafnan
þrýsting.