Morgunblaðið - 23.10.1973, Page 1
32 SIÐUR OG 8 SIÐUR IÞROTTIR
Vopnahlé eftir sautján
daga blóðuga styriöld
Hcnry Kissinger ræðir við Abba Eban utanrfkisráðherra í Tel Aviv f gær,
Tel Aviv, Kaíró,
22. október. AP. NTB.
VOPNAHLÉ gekk i gildi í
dag eftir sautján daga strfð
Araba og ísraela og ein-
hverjar hörðustu skrið-
drekaorrustur sögunnar og
í kvöld var tiltölulega kyrrt
á vígstöðvunum á Sinai.
Bæði Egyptar og Israelar
tilkynntu, að þeir mundu
hlíta áskorun Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um
að hætta bardögum kl. 16,-
52 að íslenzkum tíma. I
kvöld höfðu Sýrlendingar
enn ekki svarað vopnahlés-
áskoruninni opinberlega,
en allt benti til þess, að
þeir mundu samþykkja
hana.
Enn var barizt i kvöld á Sinai-
vígstöðvunum að sögn ísraelsks
stríðsfréttaritara þrátt fyrir
vopnahléð, þar sem báðir aðilar
reyndu að bæta vígstöðu sína.
Átökin voru hörðust á miðhluta
vígstöðvanna, en minni annars
staðar. A Golan-hæðum héldu
blóðugir bardagar áfram í kvöld,
og fréttaritarar sögðu, að þar væri
ástandið óbreytt.
Eftir síðustu tíðindi Watergatemálsins:
Kröfur um að þingið
kæri Nixon forseta
Þó berjast
þeir enn
I kvöld tilkynnti ísraelska her-
stjórnin að egypzkt herlið hefði
hafið skothríð á stöðvar Israela „á
o'tal stöðum'1 meðfram Súez-
skurði þrátt fyrir vopnahléð. Til-
kynningin var birt fjórum
klukkutímum eftir að vopnahléð
gekk í gildi.
Moshe Dayan, landvamaráð-
herra Israels, sagði að ef vopna-
hléð á suður vígstöðvunum yrði
tryggt gætu ísraelar dreift liði
sínu á vesturbakka Súez-skurðar,
þar sem þeir hefðu nú hálent
svæði á valdi sínu, og ráðið þaðan
allri sléttunni að Kaíró og stæðu
vel að vígi, ef bardagar hæfust
aftur.
Dayan sagði, að Israelar hefðu
ekki þurft vopnahlé og ekki beðið
um það, en nú yrðu allir
aðilar að virða það og vopnahléð
tæki til þeirra stöðva, sem strfðs-
aðilar höfðu á valdi sínu, þegar
það tók gildi. Mikilvægast væri,
að Israelar hefðu náð góðri víg-
stöðu á vesturbakkanum.
Herlið Jórdaníustjórnar hefur
fengið skipun um að virða vopna-
hléð samkvæmt áreiðanlegum
heimildum. Irak hafnaði hins
vegar vopnahlésáskoruninni og
tekur hvorki þátt í því né viðræð-
um við Israela að sögn frétta-
stofunnar í Bagdad. Frelsis-
samtök Palestínumanna höfnuðu
einnig vopnahlésáskoruninni.
Skömmu síðar gerðu skæruliðar
skotárás frá Líbanon á landa-
mæraþorpið Metalla.
Bandaríski utanríkisráð-
Framhald á bls. 18
Gíslum sleppt
Washington, 22. okt. AP.
0 HÁVÆRAR kröfur eru nú
uppi um það f Bandarfkjunum, að
þingið ákæri Richard Nixon for-
seta — og eru nú jafnvel ábyrg-
New York,22. október. AP.
ÞRJÁTlU og sex mönnum hefur
verið bjargað af grfska vöru-
flutningaskipinu Eurygenes, sem
stendur í ljósum logum á Norður-
Atlantshafi, og þeir voru í kvöld á
leið til Norfolk í Virginfu.
Fimm af áhöfninni biðu bana,
og þess sjötta er saknað. Eldur
ustu og rólegustu menn í báðum
deildum Bandarfkjaþings þeirrar
skoðunar að það komi vel til
greina.
0 1 dag bættust bandarfsku
kom upp í skipinu eftir tveggja
daga siglingu frá London áleiðis
til New York.
Hafrannsóknaskip Bandaríkja-
flota, Hayes, bjargaði mönnunum.
Sumir svömluðu í sjónum, aðrir
voru í björgunarbátum. Eldsupp
tök eru ókunn.
verkalýðssamtögin og samtök
frjálslyndra republikana, hið
svonefnda „Rippon félag“, í hóp
þeirra, sem krefjast aðgerða
þingsins gegn forsetanum, segi
hann ekki sjálfur af sér, áður en
málið er svo langt komið.
Hvaðanæva að, bæði ínnan
Bandaríkjanna og utan, berast
mótmæli vegna síðustu aðgerða
forsetans sl. laugardag, er hann
lét vísa Archibald Cox, hinum
sjálfstæða rannsóknardómara í
Watergatemálinu Ur embætti með
þeim afleiðingum, að bæði Elliott
Richardson dómsmálaráðherra
og William Ruckelshaus aðstoðar-
dómsmálaráðherra sögðu af sér
eftir að hafa neitað að verða við
skipun forsetans um að reka Cox
og lýst sig ósammála meðferð
hans á máli þessu. Forsetinn af-
nam jafnframt sjálfstæði 90
manna rannsóknarsveitar Cox og
lagði hana undir dómsmálaráðu-
neytið. Hefur hann skipað manni
þeim, sem hann setti dómsmála-
ráðherra til bráðabirgða, Robert
H. Bork, saksóknara — er var
þriðji hæsti maður í valdastiga
dómsmálaráðuneytisins — að láta
halda áfram rannsókn Watergate-
málsins undir hans eftirliti og
Henrys Petersons, sem var yfir-
maður afbrotadeildar ráðuneytis-
Richard Nixon
ins, en færðist sjálfkrafa upp í
stöðu aðstoðarráðherra.
SKRIFSTOFUR COX
INNSIGLAÐAR
Á blaðamannfundi á föstudags-
kvöld, sem sjónvarpið var um ger-
völl Bandaríkin, sagði Archibald
Cox, að hann gæti ekki sætt sig
við afstöðu fprsetans og kvaðst
e.t.v. bera fram kæru á hendur
honum fyrir að hlita ekki
Urskurði dómstóla. Hann sagði, að
ýmislegt benti til alvarlegs mis-
ferlis háttsettra embættismanna,
en vandamálið væri einstakt i
Framhald á bls. 18
La Paz, 22. október. NTB.
FJÓRIR unglingar, sem rændu
argentínskri farþegaflugvél, hafa
gefizt upp fyrir bólivískum yfir-
völdum samkvæmt óstaðfestum
fréttum. Fimm farþegar, sem
flugvélarræningjarnir héldu f
gfslingu, hafa verið látnir lausir
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í La Paz.
Pablo
Casals
látinn
San Juan, Puerto Rico,
22. október. AP,
PABLO CASALS, tónskáldið
fræga og fremsti sellóleikari
síns tíma, lézt í dag i sjúkra-
húsi í San Juan í Puerto Rico.
Ilann var 96 ára gamall.
Casals fékk hjartaáfall fyrir
þremur vikum cg var fluttur í
sjúkrahúsið f síðustu viku
vegna öndurnarerfiðleika.
Ráðist inn á heimili Sakharovs
Moskvu, 22. október, AP.
TVEIR Arabar, sem kváðust
tilheyra samtökunum Svarti
september, réðust á sunnudag
inn í fbúð rússneska vfsinda-
mannsins Andrei Sakharovs og
hótuðu honum lífláti, ef hann
hætti ekki að styðja tsrael. Þeir
skipuðu honum að setjast niður
og skrifa skjal, þar sem hann
lýsti stuðningi við málstað
Araba, en Sakharov neitaði.
Arabarnir voru f fbúð
Sakharovs f meira en klukku-
stund og lögðu fyrir hann
ýmsar spurningar, en þótt þeir
hefðu í hótunum við hann,
gerðu þeir honum ekki mein,
né heldur konu hans og fóstur-
syni, sem einnig voru þar
stödd. Þegar Arabarnir loks
fóru, tilkynnti Sakharov at-
burðinn til lögreglunnar, en af
opinberri hálfu hefur ekkert
verið sagt um málið. Sakharov
er f ónáð í Sovétrfkjunum
vegna gagnrýninnar afstöðu
sinnar til stjórnarinnar.
Skip brennur: Tugum bjargað