Morgunblaðið - 23.10.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÖBER 1973
19
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi:
Hávaði á skemmtistöðum
veldur heyrnarskemmdum
AIRWICK
LyktareydTandi
A FUNDI borgarstjórnar Reykja-
vfkur á fimmtudaginn var urðu
nokkrar umræður um þær hætt-
ur, sem stafa af hávaða f um-
hverfi mannsins. Kristján
Benediktsson (F) hafði lagt fram
tillögu um að sett yrði ákvæði um
hámarkshávaða á vinnustöðum og
á skemmtistöðum til þess að
draga úr heyrnarskemmdum
þeirra, sem þar starfa og eru gest-
komandi.
Kristján Benediktsson (F):
Engar reglur eru settar í heil-
brigðissamþykkt borgarinnar um
hámarkshávaða á vinnu- eða
skemmtistöðum. öllum er þó lik-
lega kunnugt um, hversu mikið
alvörumál er hér á ferðinni.
Rannsóknir sýna, svo ekki verður
um villst, að mjög margir hafa
skerta heyrn vegna þess að þeir
hafa unnið lengi I of miklum
hávaða. Það er einnig vitað, að
hávaði dregur stórlega úr afköst-
um manna við vinnu og er þeim á
flestan hátt til tjóns og það án
þess að menn geri sér alltaf sjálfir
grein fyrir því. Ég vona þvf að
borgarfulltrúar sýni máli þessu
skilning og samþykki tillögu mína
um að sett veröi reglugerð um
þessi efni og eftirlit aukið.
Markús Öm Antonsson (S):
Samkvæmt 202. grein þeirrar
heilbrigðisreglugerðar, sem gildir
fyrir landið allt ber að líta svo á,
að 85 decibel séu hámark leyfi-
legs hávaða á vinnustöðum
samanber þó 201. gr. reglugerðar,
liði 2-5.
Þar eru talin upp atriði, sem til
hliðsjónar skuli nöfð, þegar dóm-
ur er kveðinn upp um skaðsemi
hávaða, sem sé, hvort hann sé
stöðugur eða breytilegur, hver
dagleg tímalengd hans er og hver
heildartími sé, sem ætla má að
hávaði vari.
Af þessu má ráða, að forystu-
menn i heilbrigðismálum hafa
ekki viljað binda úrskurð um
hvað sé hættulegt i þessum efnum
og hvað ekki, við ákveðna mæli-
einingu án þess jafnframt að taka
tillit til margra annarra aðstæðna.
Af hálfu heilbrigðiseftirlitsins
hefur núna um nokkurra ára
skeið verið hljóðmælt á háværum
vinnustöðum og sérstök áhersla
lögð á hljóðmælingar í skipum,
smiðjum, bókbandsstofum, prent-
smiðjum og samkomuhúsum.
Hefur í öllum tilfellum, sem
ástæða þótti til, verið vísað til
atvinnusjúkdómadeildar, leið-
beiningar gefnar og bréf send
til þess að aðvara eða leiðbeina
atvinnurekendum og starfsmönn-
um þeirra. Á árinu 1971 sá vinnu-
staðaeftirlit í samvinnu við
heyrnardeild um kynningarþátt I
sjínvarpi og fjallaði hann um
hpyrnarskemmdir. Þá hefur verið
h. i 'ið áfram fræðslustarfsemi á
vini.ustöðum og nú nýlega er
kominn út bæklingurinn „Hávaði
á vinnustað" ásamt mjög
áberandi veggspjaldi, sem hengt
hefur verið upp á hávaðasama
vinnustaði til viðvörunar. Er þar
tekið frar , hver mæling hafi
reynzt vera á vinnustaðnum
ákveðinn d. f og ef hávaði er ofan
við hættumsrk er sérstaklega
varað við honum.
Samkvæmt upplýsingum eftir-
litsmanna Hci'brigðiseftirlitsins
hefur í lang'iestum tilfellum
verið farið a' ráðleggingum
þeirra af hálfu forstöðumanna
fyrirtækja, þar sern sérstakra ráð-
stafana hefur veri* þörf vegna
hávaða, t.d. með því að keyptar
hafa verið eyrnarhlffar handa
starfsmönnum. Him vegar eru
talsverð brögð að þvi að starfs-
mennirnir, sem dagk.ca eru í
mikilli hættu á að bfc s varan-
legan skaða á heyrn si ” i, láti
ekki segjast af viðvöru um og
góðum ráðum eftirlistsmanna
Heilsuverndarstöðvarinnai.
Það er augljóst, að mjög mikil
vandkvæði verða á því að srtja
hærri mörk um leyfilegan há' vða
á vinnustöðum í Reykjavík en
reglugerðin fyrir allt landið st.ir
til um. Sérstaklega ber lika að li e
á þær mismunandi aðstæður, sen
upp eru taldar í reglugerðinni, og
takmarka 1 raun gildi 85 decibela
marksins, sem reglugerðin kveð-
ur annars á um. Hins vegar verða
f þessum efnum sem öðrum
tæknimálum, örar framfarir.
Menn eru orðnir sér meðvitandi
um hægfara en stórskaðlegar
verkanir hávaða á vinnustöðum
og hönnuðir bygginga og tækja-
búnaðar hafa hagað gerðum sín-
um í samræmi við fyrirliggjandi
staðreyndir.
Þannig segja tækninýjungar
smám saman til sín á þessu sviði
en þær leysa því miður ekki allan
aðsteðjandi vanda og þar af
leiðandi verðum við að búast vel
til varnar með þeim hætti, sem
gert hefur verið hér í Reykjavík.
„Ný aðferð” við könn-
un umferðarlagabrota
UMFERÐARLÖGREGLAN í
Reykjavfk hefur undanfarnar
vikur gert könnun á því, hvernig
ökumenn virða reglur um
stöðvunarskyldu, umferðarljós og
gangbrautir. Hafa tveir ein-
kennisklæddir lögregluþjónar
setið i bilaleigubíl við gatnamót
eða nálægt gangbrautum og að
sögn Óskars Ólasonar, yfir-
lögregluþjóns, hafa þeir orðið
vitni að talsvert mörgum um-
ferðarbrotum á þessum stöðum.
Hafa lögregluþjónarnir stöðvað
bifreiðar, sem brotin frömdu, og
talað við ökumenn þeirra og gefið
út kæru, ef ástæða hefur verið
til.
„Við höfum sífellt verið að fá
kvartanir frá fólki um að mikið
væri um brot sem bessi, en ef við
Einn flokkur vinnustaða er sér-
staklega varhugaverður í þessu
tilliti en það eru skemmtistaðir.
Athuganir sem gerðar hafa verið
á heyrn hljómlistarmanna á
aldrinum 20-28 ára sérstaklega,
benda greinilega til þess, að þeir,
sem að einhverju marki þurfa að
búa við hávaða á skemfntistöðum,
bæði hljómlistarfólk, þjónustulið
og aðrir starfsmenn, bíði varan-
legt heilsutjón af. I Gautaborg
hafa nú verið settar reglur um
takmarkanir á hávaða á skemmti-
stöðum og hafa eigendur
staðanna fengið í hendur lítil og
ódýr tæki til að mæla hávaðann
jafnóðum, og bera þeir ábyrgð á
að hann fari ekki yfir leyfileg
mörk.
1 tillögu Kristjáns Benediktsson
ar, sem hér liggur frammi, er
vissulega hreyft mikilvægum
þætti í heilsuverndarmálum. Þó
tel ég þörf á að orðalagi tillögunn-
ar verði breytt vegna þess, að í
fyrstu málsgrein felst sterkari
ályktun en svo, að búast megi við
neínum viðhlítandi ráðstöfunum
til að ná þeim árangri, sem þar er
stefnt að með því að takmarka
hávaða, t.d. á vinnustöðum. 1
þetta orðalag má leggja þann
skilning, að forráðamönnum
þeirra tækja, sem hávaða valda,
verði uppálagt að sjá til þess að
hávaðinn takmarkist við ákveðið
höfum sett lögreglubíla eða
lögregluþjóna á áberandi stað við
gatnamótin og gangbrautirnar,
hafa ökumenn ekið af gætni og
virt allar reglur,“ sagði Óskar Óla-
son. „ökumenn eru slíkir augna-
þjónar, að við höfum ekki getað
séð sjálfir það, sem aðrir hafa
stöðugt verið að segja okkur um
þessi brot. En nú hafa lögreglu-
þjónarnir í bílaleigubílunum hins
vegar séð mörg slík brot og fengið
fyllilega staðfest, það sem aðrir
hafa sagt okkur. Það hafa ekki
endilega komið svo margar kærur
út úr þessu, en niðurstaðan hefur
eigi að síður verið mjög athyglis-
verð. Og við munum halda þessu
áfram og það gerir ekkert til, þótt
ökumenn viti af því, ef sú vitn-
eskja kynni að fækka brotunum."
Falleqt útlit
í eitt /kipti fyrir öll
ESSEM þakál
ESSEM Lakkpanel
veggklæðning úr áli.
Veðrast ekki, ryðgar ekki,
trausí, hagkvæmt
og auðvelt í uppsetningu.
Fáanlegt i tízkulitum.
Aðalumboð EVRÖPUVIÐSKIPTI H.F.
SÖLUSTAÐUR:
VERZLANASAMBANDIÐ h.f.
SKIPHOLT 37 - SÍMI 38560
mark. Ég held að engin von sé til
þess að slfkt sé raunhæf krafa.
Þeim mun frekar vil ég leggja
áherslu á, að hávaði verði tak-
markaður áður en hann berst að
eyrum manna á vinnustöðum.
Til þess að tillaga okkar verði
örugglega skilin þannig legg égtil
að í stað orðanna: „til þess að
takmarka hávaða" komi: „til að
tryggja fólki vernd gegn hávaða."
Að öðru leyti legg ég til, að tillaga
Kristjáns verði samþykkt óbreytt.
Kristján Benediktsson kvaðst
fallast á breytingartillögu
Markúsar og var tillaga hans
síðan samþykkt með 15 samhljóða
atkvæðum.
fyrirliggjandi
Heildsala
AMANTI HF
pósthólf 544 — sími
25385.
Viljum selja
WAGONER bifreicf
Til sölu er hjá okkur WAGONER bifreið, 6 cyl. model
1 970 lítið keyrð og vel með farin.
Bíllinn er til sýnis við vörugeymslu okkar Laugavegi 1 64
og allar upplýsingar á skrifstofunni.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Sími 1-1 1 -25
Dauf Ijós skapa hættu
í vetrarmyrkrinu eru ökuljósin augu bílstjórans.
Þessir hlutir ráða mestu um Ijósmagnið.
Skiptið um peru og spegil- og Ijósin verða björt á ný.
VOLKSWAGEN EIGENDUR
Nú er tími ljósastil!inga.
Of dauf ökuljós skapa óþarfa hættu.
Látið mæla Ijósmagnið um leið og
Ijósin eru stillt.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 —- Sírru 21240.