Morgunblaðið - 23.10.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.10.1973, Blaðsíða 23
„ Og svo kom rafmagnið allt í einu ” Svört kómedía frumsýnd í Iðnó Flestir hafa lent í þvl að þurfa að fikra sig áfram I myrkri og getur fólk því gert sér I hugarlund, hve spaugilegt það er. Hugmyndin að baki Svartrar kómedín I Iðnó er einmitt sú. Rafmagnið fer af. Þessi bráðskemmtilegi gamanleikur verður frumsýndur í Iðnó i kvöld. Vigdís Finnbogadóttir leikhússtjóri hefur þýtt verkið, og Pétur Einarsson er leikstjóri, en hann hefur m.a. leikstýrt Superstar og Hjálp. Það er margslunginn söguþráður í Svartri kómedíu, en allir þræðirnir fljóta yfirleitt ofarlega I mannlífinu svo allt fellur ljúflega saman í spennandi gaman- leik. Það voru snarar hláturrokur, sem fuku um á æfingunni, sem við fylgdumst með. Ekki er ástæða til að rekja sérstaklega söguþráðinn utan það, að talsvert mörg neikvæð atvik safnast að léttúðugum list- málara og eins og í góðum tragidíum er ekki langt í humorinn, sem skín í gegnum vandræðaskapinn. Höfundur Svartrar kómedíu, Peter Shaffer, hressti mjög upp á leikritun í Bretlandi ásamt fleiri leikritahöfundum á árunum 1950 — 1960. Sumarleikhúsið íslenzka hefur flutt verk eftir Shaffer. Undanfarin ár hefur Shaffer skrifað talsvert fyrir Brezka þjóðleikhúsið, og þar er nú verið að sýna leikrit hans, Equus, vinsælt leikrit, sem fjallar um dreng, sem blindar 5 hesta. Svört kómedfa var sýnd við miklar vinsældir á f jölum Brezka þjóð- leikhússins. I Svartri kómediu er m.a. notaður kín- verskur látbragðsleikur um einvígi f myrkri, en svo kemur rafmagnið allt í einu. Sigurjón Jóhannsson gerði leikmynd- irnar í Kómedíunni, en hann er nýkominn heim eftir 4 ára dvöl i Kaupmannahöfn, þar sem hann vann m.a. við leikmynda- gerð á Folketeatern. Leikarar í Svartri kómedíu eru: Hjalti Rögnvaldsson, Valgerður Dan, Þorsteinn Gunnarsson, Helgi Skúlason, Halla Guð- mundsdóttir, Guðrún Stephensen, Karl Guðmundsson og Kjartan Ragnarsson. — á.j. „Það, sem kallar á lifandi mann ” „ÞAÐ eru tvö ár síðan ég sýndi siðast og þá var það i Bogasaln- um,“ sagði Hringur Jóhannes- son þegar við röbbuðum við hann á sýningu hans í Norræna húsinu, en henni lýkur í kvöld kl. 22. „Þá,“ hélt Hringur áfram, „voru ljós umbrotin, sem hafa leitt til þessarar sýningar, en þessi stíll hjá mér hefst þó eiginlega með sýning- unni í Unuhúsi 1969.“ „Hvernig hefur aðsóknin verið?" „Hún hefur verið góð, um 1200 manns hafa komið og það er alveg prýðileg. Ég hef selt yfir 20 myndir, svo það er allt saman í blóma." „Hvert sækir þú fyrirmyndir þinar?“ „Motívin sæki ég í daglegt umhverfi f Reykjavík og norður í land og þau eru bæði séð og hugsuð. Ég er frá Haga í Aðal- dal, þar hef ég góða aðstöðu og er þar mikið á sumrin. Mér verður mest úr verki þar, þegar ég er kominn úr skarkalanum, en á veturna kenni ég í Mynd- listarskólanum f Ásmundarsal, þar sem ég hef kennt i II vetur." „Eru þessi verk allt frá 1969?“ „Flest eru máluð á síðustu tveimur árum, þótt nokkrar teikningar séu eldri. Ég hef málað um 20 myndir á ári og það finnast mér sjálfum mikil afköst.“ „Hvað finnst þér um stöðuna í islenzkri myndlist í dag?“ „Mér finnst staðan góð, sérstaklega hvað umburðar- lyndið er orðið mikið og for- dómar yfirleitt foknir út í veður og vind. Það var ekkert grín, hvað harkan var mikil áður, ef menn voru ekki á abstraktlínunni, vóru þeir rakkaðir niður af gagnrýn- endum, en nú er meira farið að dæma myndirnar sjálfar heldur en flokka þær niður í isma i heild. Þetta unga fólk, sem er að koma fram, ber mikla grósku með sér og ég segi allt gott- um það. Þetta eryfirleitt vel skólað Rabbað við Hring á sýningunni í Norræna húsinu fólk og það er spennandi að sjá, hvað kemur út úr því. pað hefur verið mikil gerjun um skeið og því eðlilegt, að stíl- brögð séu margvísleg, en það gefur bara von um að fjöl- breytnin aukist.“ „Hvað með gerjunina í þér sjálfum?" „Eg er hinn galvaskasti og mér hefur gengið vel. Ég held', að ég sé á réttri leið, þetta hefur komið svona af sjálfu sér, og .ég hef ekki þurft að gera nein hátiðleg plön. Þessi stíll minn gefur mikla möguleika og kallar á mikið hugmyndaflug. Annars yrði hann máttlaus. Ef ég er vel upplagður geri ég feikn af skissum með blýanti, birgi mig hreinlega upp og þannig hef ég safn til að ganga í og vinna úr. Stundum er það orðið úrelt, eftir að hafa legið hjá mér í ár, þvf ennþá er maður lifandi og sér alltaf eitthvað nýtt, sem kallar á mann.“ —á.j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.