Morgunblaðið - 23.10.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
31
Ölvaður skaut
á hópferðabíl
ÖLVAÐUR maður, tvítugur að
aldri, skaut af riffli á hópferða-
bifreið, sem var að leggja af stað,
full af fólki, af stæði á Laugarnes-
tanga um kl. 20 á laugardags-
kvöldið. Kúlan lenti á milli
tveggja glugga á hlið bifreiðar-
innar, en fór ekki í gegn, heldur
sat föst f klæðningunni. Sakaði
þvf engan. Bifreiðin hélt áfram
ferð sinni og skaut maðurinn ekki
öðru skoti að henni. Var lögregl-
unni tilkynnt um athæfi hans, og
var hann handtekinn f fjörunni
skammt frá litlu sfðar og sýndi
engan mótþróa.
Við yfirheyrslur hjá rann-
sóknarlögreglunni kom fram, að
hann hafði verið að ræða við
nokkra farþega bifreiðarinnar,
áður en hún fór af stað. Gaf hann
enga skýringu á athæfinu og kom
ekki fram við yfirheyrslurnar, að
hann hefði fremur ætlað að hæfa
hjólbarðana en annað. Hann
hafði haft meðferðis talsvert
magn skota I riffilinn. — Honum
var sleppt sfðdegis á sunnudag,
enda þá af honum runnið, en lög-
reglan hélt vopninu eftir. — Á
myndinni er ökumaður bifreiðar-
innar, Ragnar Bjarnason, við
kúlugatið. (Ljósm. Mbl. Sv.
Þorm.)
Fara síldveiðiskip-
in yfir milljarðinn ?
Hafa selt
fyrir 930
milljónir
— ISLENZKU sfldveiðiskipin f
Norðursjó eiga nú aðeins eftir að
selja fyrir um 80 milljónir til að
komast yfir milljarðinn. Á
laugardaginn voru þau búin að
selja fyrir 910 milljónir, og í gær
seldu sex skip fyrir 12,4
milljónir. A sama tfma f fyrra
Mótmæla breytt-
um fréttatíma
útvarpsins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
61 starfsmanni við brúagerðina á
Skeiðarársandi:
Við brúagerðarmenn á Skeiðar-
ársandi samkvæmt meðfylgjandi
undirskriftalista mótmælum
harðlega breyttum kvöldfrétta-
tíma hljóðvarps.
Vinnutíma okkar, sem svo
margra annarra, er þannig háttað,
að við komum ekki til kvöld-
verðar fyrr en kl. 19. Missum við
þvf alltaf af aðalfréttatíma hljóð-
varpsins. Slíkt álítum við alger-
lega óviðunandi ástand. Það eru
því eindregin tilmæli okkar til
útvarpsráðs, að fréttatíminn verði
aftur fluttur á sinn gamla góða
stað í dagskránni, og það sem
fyrst.
höfðu skipin selt fyrir 424.6
milljónir og er þvf aflaverðmætið
úr Norðursjónum orðið tæpum
500 milljónum kr. meira en i
fyrra.
Þrjú aflahæstu síldveiðiskipin
eru sem fyrr Loftur Baldvinsson
EA, sem hefur selt fyrir 56.8
milljónir, Guðmundur RE, sem
hefur selt fyrir 43.4 milljónir og
Súlan EA, sem hefur selt fyrir
40.9 milljónir.
I síðustu viku seldu skipin alls
2.619 lestir fyrir 77 milljónir kr.
og var meðalverðið gott sem fyrr,
eða kr. 29.41. Alls hafa skipin nú
landað 37 þúsund lestum af síld,
en í fyrra hafði verið landað 30
þús. lestum. Þá var meðalverð
fyrir hvert kíló kr. 13.93 en er
núna 24.57 krónur.
Góð veiði hefur verið hjá bátun-
um að undanförnu, þegar gefið
hefur, en brælur hafa verið
nokkuð tíðar síðustu dagana.
Skipin halda sig nú mest austan
við Hjaltland og hafa farið allt
norður á Víkingabanka, en þar
heldur síldin sig oft á haustin.
1 gær seldu fjögur skip í Hirts-
hals og tvö í Skagen. I Hirtshals
seldu Jón Garðar GK 1732 kassa
fyrir 2.1 milljón, Rauðsey AK
2103 kassa fyrir2.6 milljónir, Þor-
steinn RE 1785 kassa fyrir 2.1
milljón og Víðir NK 1335 kassa
fyrir 930 þúsund kr. I Skagen
Stolið úr rútu
AÐFARARNÖTTsl. mánudags var
brotizt inn í hópferðabifreið á
stæði við Umferðarmiðstöðina í
Reykjavík og stolið úr henni út-
varpstæki og einnig útvarpsloft-
netinu af bifreiðinni.
seldi Heimir SU 2497 kassa fyrir
2.8 milljónir og Börkur NK 1540
kassa fyrir 1.9 milljónir.
Stjórnarfundir
Norræna hússins
og eldfjallarann-
sóknastöðvarinnar
STJÓRNARFUNDUR Norræna
hússins hefst I dag og stendur í
tvo daga. Að sögn Maj-Britt Imn-
ander, forstjóra hússins, verður á
fundinum gengið frá fjárhags-
áætl. fyrir næsta fjárhagsár, sem
hefst 1. nóv. nk., og einnig verður
fjallað um dagskrá hússins
undanfarið og á næstunni. I
stjórninni eiga sæti sjö manns,
einn frá hverju hinna Norður-
landanna og þrír íslendingar.
I gær var haldinn fundur 27
manna ráðs Norræna hússins,
sem er að mestu skipað fulítrúum
íslenzkra félaga og stofnana.
A fimmtudag hefst svo i Norr-
æna húsinu tveggja daga stjórnar-
fundur Norrænu eldfjallarann-
sóknastöðvarinnar, sem komið
hefur verið á fót á Islandi.
Toll- og lög-
gæzla í ís-
lenzkar hendur
UNDIRRITUN samkomulags um
að toll- og löggæsla f aðalhliði
Keflavfkurflugvallar verði
eingöngu í höndum tslendinga.
Frá vinstri standandi: hr.
Frederiek Irving, sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi og Einar
Ágústsson utanríkisráðherra.
Sitjandi talið frá vinstri:
Captain Jack H. McDonald í
varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli og Hannes Guðmundsson,
fulltrúi í varnarmáladeild utan-
ríkisráðuneytisins.
SAMKVÆMT niðurstöðum af við-
Viðgerðarkostnaður 30 milljónir
BIRGIR Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri greindi frá þvf á
fundi borgarstjórnar nýlega, að
viðgerðin á skuttogara B(JR,
Bjarna Benediktssyni, hefði
kostað 30 milljónir og hefði
Bæjarútgerðin þurft að leggja
það fé fram, að undanskildum 3
milljónum, sem rfkissjóður
hefði greitt. Hins vegar er nú
unnið að gerð skaðabótakröfu á
hendur seljanda skipsins, þ.e.
ríkissjóði, og vonazt er til, að
borgin fái tjón sitt bætt. Þessar
upplýsingar komu fram í til-
efni af fyrirspurn Kristjáns
Benediktssonar (F).
Borgarstjórn:
Hitaveitusamnjng-
samþykktur
ur við HafnarQörð
ÓLAFUR B. Thors borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins gerði samn-
inga þá, er gerðir hafa verið milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
um að Hitaveita Reykjavfkur
leggi hitaveitu f Hafnarfjörð, að
umtalsefni á fundi borgarstjórn-
ar Reykjavfkur á fimmtudaginn
var.
Ólafur B. Thors (S): Ég kveð mér
hér hljóðs til þess að ræða um 14.
lið í fundargerð borgarráðs frá 9.
þ.m., þar sem greint er frá, að
lagðir hafi verið fram samningar
milli borgarinnar og Hafnarfjarð-
ar um lagningu og rekstur hita-
veitu í Hafnarfirði.
Tæknilega séð er hér um að
ræða mjög svipaða saíúninga og
gerðir voru við Kópavog á sínum
tíma. Hins vegar er ekki gert ráð
fyrir eignaraðild Hafnarfjarðar
að Hitaveitu Reykjavíkur heldur
ágóðahluta hans í réttu hlutfalli
við vatnssölu, sem komi til fram-
kvæmda eftir 15 ár og þá því
aðeins, að arður af endurmetnum
eignum Hitaveitu Reykjavíkur
verði 7% enþað ereinnig skilyrði
þess að framkvæmdahraðinn
haldist, en gert er ráð fyrir að
lögninni verði lokið 1976 — 1977.
Sérstakt samkomulag var gert um
réttindi Hafnarfjarðar yfir hita-
svæðunum í Krýsuvík. Þar hefur
Hitaveita Reykjavfkur rétt til
vatnsöflunar til húsahitunar og
annarrar vanalegrar notkunar
hennar á heitu vatni en Hafnar-
firði skal endurgreiddur sá kostn-
aður, sem hann hefur lagt f könn-
un og starf á svæðinu í sama
hlutfalli og er notað til þess að
finna verðgildi endurmetinna
eigna Hitaveitunnar.
Hagur Reykjavíkur af þessum
samningum er augljös. Reykjavík
er nú að leggja í mikinn kostnað
við vatnsöflun og það er því
ómetanlegt að fá söluna til
Hafnarf jarðar inn i dæmið. Þann-
ig dreifist stofnkostnaður allur á
miklu fleiri notendur og kemur
því minna í hlut hvers og eins en
verið hefði að óbreyttu.
Reykjavík tekur hins vegar á
sig á gengisáhættuna af erlendum
lánum, sem taka verður til þess-
ara framkvæmda en giskað er á,
að taka þurfi að láni allt að 400
milljónir króna. Þessi áhætta veg-
ur þó alls ekki upp á móti því
hagræði, sem það mun verða Hita-
veitu Reykjavíkur að hafa einka-
leyfi til sölu á heitu vatni I
Hafnarfirði en samningurinn er
óuppsegjanlegur nema með sam-
þykki beggja aðila.
Bókun borgarráðs var sam-
þykkt samhljóða í borgarstjórn.
Nýr Kyndill
til landsins
NVR Kyndill kemur til landsins I
dag f stað gamla olíuflutninga
skipsins Kyndils, sem selt var úi
landi fyrir skömmu.
Nýja skipið er 1220 lestir, en
gamli Kyndill var 980 tonn og var
seldur til brezks fyrirtækis, sem
hefur aðsetur í Panama. Eigend-
ur Kyndils eru Olíuverzlun Is-
lands og Skeljungur h.f.
Fundur um frjáls-
ar fóstureyðingar
ORATOR, félag laganema við
Háskóla Islands, efnir til fundar
n.k. miðvikudag um FRJÁLSAR
FÓSTUREYÐINGAR. Fjallað
verður um efnið frá sjónarhóli
þriggja fræðigreina: Lögfræði,
guðfræði og læknisfræði.
Fundurinn verður haldinn í
Norræna húsinu miðvikudaginn
24. október og hefst kl. 20.30. Öll-
um er heimill aðgangur.
Frummælendur verða:
Prófessor Jónatan Þórmundsson,
prófessor Björn Björnsson og
Gunnlaugur Snædal læknir. Að
framsöguerindum loknum verða
frjálsar umræður, og frum-
mælendur munu svara fyrir-
spurnum fundargesta.
Fyrirlestur
um Evrópurétt
PRÓFESSOR H. G. Schermers,
forstöðumaður Evrópustofnunar
háskólans i Amsterdam, er
staddur hér á landi f boði Háskóla
Islands. Stendur hann fyrir nám-
skeiði um Evrópurétt I lagadeild.
N.k. föstudag hinn 26. október
mun hann halda opinberan fyrir-
lestur, sem nefnist: Legal
Problems within the EEC. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku
oe hefst kl. 17 í Lögbergi, 1. hæð.
ræðum utanríkisráðherra við
ráðamenn í Washington, D.C.,
fyrr i þessum mánuði, var I gær
undirritað i utanríkisráðuneytinu
samkomulag milli ráðuneytisins
og varnarliðsins á Kef lavíkurflug-
velli, þess efnis, að öll toll- og
löggæsla í aðalhliði Keflavíkur-
flugvallar verði framvegis ein-
göngu í höndum Islendinga.
Samkomulagið, sem tekur gildi
frá 1. nóvember n.k. að telja,
undirritaði Hannes Guðmundsson
fulltrúi, fyrir hönd ráðuneytisins,
og Captain Jack H. McDonald af
hálfu varnarliðsins.