Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 7
Leiknum milli ísraels og Hol-
lands i Evrópumótinu 1973 lauk
meS jafntefli 10-10. Hér fer á eftir
spil frá þessum leik, þar sem hol-
lensku spilararnir voru heppnir
að vinna 7 stig.
Norður:
S Á-K-G-10-6-4
H 9-3
T G-9-8
L D-6
Vestur:
S D-8-2
H K-10-4
T Á-10-4
L G-8-7-4
Áustur:
S 9-7-5-3
H G-5-2
T 2
L K-10-9-5-3
Suður:
> S —
H A-D-7-6-5
T K-D-7-6-5-3
L Á-2
Við annað borðið sátu hol-
lensku spilararnir N—S og þar
opnaði suður á 1 laufi, norður
sagði 1 spaða, sem eftir sagnkerfi
þeirra segir frá góðum spilum.
Félagi norðurs heyrði ekki sögn-
ina, hélt að norður hefði sagt 3
spaða, sem er veik sögn, og sagði
því pass!! Sagnhafi fékk 11 slagi
og 200 fyrir spilið.
Við hitt borðið gengu sagnir
þannig:
Suður Norður
1 H 1 S
3 T 3 S
4 H 5 T
Vestur lét út tígul ás og síðan
lauf. Sagnhafi drap heima, lét út
tígul 5, drap í borði með gosa, tók
ás og kóng i spaða, kastaði heima
laufi og hjarta, en varð síðar að
gefa 2 slagi í hjarta og tapaði 100.
Hollensku spilararnir græddu
þannig 7 stig á þvi að misskiln-
ingur varð milli þeirra við annað
borðið.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur fyrsta fundinn í nýya
félagsheimilinu að Baldurgötu 9.
miðvikudaginn 24. október kl.
20.30. Handavinnukynning, kaffi
o.fl.
TILKYNNING
Af óviðráðanlegum orsökum er
drætti í Vestmannaeyjahapp-
drættinu frestaðtil 16. nóvember.
Slysavarnadeildin Eykyndill,
Björgunarfélag Vestmannaeyja,
Akóges-félögin á íslandi.
NÝIR BORGARAR
t Fæðingarheimili Reykjavfkur-
borgar fæddist:
Fanneyju Gestsdóttur og Páli
Pálmasyni, Leirubakka 20,
Reykjavík, sonur þann 14. 10. kl.
04.55. Hann vó rúmar 15 merkur
og var 52 sm að lengd.
Geirrúnu Marsveinsdóttur og
Gunnari Kr. Gunnarssyni, Lindar-
braut 6, Seltjarnarnesi, sonur
þann 13.10. kl 04.00. Hann vó
rúmar 14 merkur og var 53 sm að
lengd.
Ásdísi Jónsdóttur og Birni Sæv-
ari Baldurssyni, Völvufelli 46,
Reykjavík, sonur þann 13.10. kl.
20.15. Hann vó tæpar 16 merkur
og var 52 sm að lengd.
Ingibjörgu Jónes og Ólafi E.
Gunnarssyni, Vesturgötu 26, A,
Reykjavfk, sonur þann 18.10. kl.
~*04.30. Hann vó rúmar 13 merkur
og var 51 sm að lengd.
Lárettu Bjarnardóttur og
Guðmundi Jónssyni, Gufunesvegi
4, Reykjavík, -sonur 15. 10. kl.
04.00. Hann vó rúmar 9 merkur og
var 45 sm að lengd.
Þórunn Sigurðardóttur og
Gunnari Gunnarssyni, Unnar-
braut 28, Seltjarnarnesi, somur
14. 10. kl. 14. 40. Hann vó rúmar
12 merkur og var 50 cm að lengd.
Tapað — Fundið
Bröndóttur kettlingur með
hvitar lappir og brúnt nef er í
öskilum. Upplýsingar í_ síma
30819.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
7
DAGBÓK
BARWWA..
Þýtur í skóginum
— Eftir Kenneth Grahame
3. kafli — STÓRISKÓGUR
Moldvörpuna hafði lengi langað til að kynnast
greifingjanum. Ef dæma átti eftir ummælum ann-
arra, þá hlaut hann að vera töluvert mikilvæg per-
sóna. Enda þótt hann léti sjaldan sjá sig, þá gætti
áhrifa hans víða. En í hvert sinn sem moldvarpan
minntist á þessa löngun sína, þá eyddi vatnsrottan
talinu. „Já, já,“ sagði hún bara. „Greifinginn birtist
áreiðanlega einhvern daginn . . . hann kemur alltaf
við og við . . . og þá skal ég kynna ykkur. Hann er
prýðisnáungi. En hér er ekki aðeins um það að ræða,
að taka honum eins og hann er, heldur líka að taka
honum, þegar honum þóknast að láta ljós sitt skína.“
Gætir þú ekki boðið honum hingað . . . til kvöld-
verðar. . . eða . . .“
„Hann mundi ekki koma,“ sagði rottan, eins og það
væri sjálfsagður hlutur. „Greifingjanum er mjög illa
við veizluhöld og þess háttar."
„Jæja, en hvernig væri að við færum og heim-
sæktum hann?“ spurði moldvarpan.
„Nei, honum mundi ekki falla það í geð,“ sagði
rottan skelfd. „Hann er svo afskaplega feiminn.
Hann tæki það áreiðanlega illa upp. Ég hef aldrei
þorað að heimsækja hann og þó þekki ég hann vel.
Auk þess getum við það ekki af öðrum ástæðum. Það
FRAMHALIDSSAGAN
kemur ekki til mála, að við förum tii hans, vegna
þess að hann á heima inni í miðjum Stóraskógi.“
„Og þó svo sé,“ sagði moldvarpan. „Þú hefur sagt
mér það sjálf, að ekkert sé að óttast í Stóraskógi.
Manstu þaðekki?“
„Jú, jú,“ sagði rottan dræmt. „En ég held, að ekki
sé tímabært, að við förum þangað núna. Ekki einmitt
núna. Þetta er löng leið og hann er áreiðanlega ekki
heima á þessum tíma árs. Hann kemur einhvern
daginn. Bíddu bara róleg.“
Moldvarpan varð að sætta sig við þessi málalok. En
aldrei kom greifinginn og hver dagur var öðrum
skemmtilegri. Það var ekki fyrr en sumarið var
löngu liðið og þær urðu að vera mest innandyra
vegna kulda og frosta og ófærðar og áin beljaði með
ógurlegum straumþunga fram hjá glugganum þeirra
svo allar siglingar voru útilokaðar, að moldvörpunni
varð tíðhugsað til greifingjans, sem var einbúi í holu
sinni í miðjum Stóraskógi.
Á veturna svaf vatnsrottan mikið, fór snemma í
háttinn og seint á fætur. Dagurinn varð því stuttur
hjá henni. Stundum vann hún við einhver heimilis-
störf og auðvitað komu stundum kunningjar til að
rabba við hana.
Margir urðu til að segja skemmtilegar sögur frá
sumrinu og því sem þá hafði gerzt. Sumarið var
alltaf svo dásamlegt, þegar litið var til baka. Þá var
líf og fjör og litskrúð í náttúrunni. Myndirnar runnu
upp fyrir hugskotssjónum, litríkar og heillandi.
Hver blómategundin af annarri kepptist við að
skreyta umhverfið. Þær spegluðu sig í yfirborði
árinnar og kinkuðu kolli. Þá var tími anna og leikja.
DRÁTTHAGI BLYANTURINN
Smáfólk
PEANUTS
( WHATDO.HUI
D0AR0UND HEKE
AFTER DINNER,
CHUCK?
/WE U5UALLV
luatchtv
T0U MEAN V0U DON'T TALK?
HOOJ A60UT PLAtfNG CHECKER5
0R S0METHING?0R MAKIN6 FUD6E?
ORCATCHING FIREFUE5?
OR HOO) AB0UT PUTTING
T06ETHER A PUZZLE- OR
P0PP1N6 50ME CORN ? D0
T0U HAVE a stamp COLLECTlON ?
HOU) AFöUT PAINT5, CHUCK ?ÁLAK0£
OOE C0ULP D0 50ME UATER C0L0R5 ?
1) Hvað gerið þið hér á
kvÖIdin, Kalli? — Við horfum
venjulega á sjónvarpið.
2) Áttu við, að þið talið ekki
saman? Hvað um að tefla skák
eða eitthvað? Eða að búa til
karamellur? Eða að veiða eld-
flugur?
3) Hvað með púsluspil eða
poppa? Attu frfmerkjasafn?
Hvernig væri að lita, Kalli?
Kannski gætum við vatnslitað?
4) (Andvarp)