Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
Gæslan verður efld
fyrir Vestfjörðum
A FUNDI í sameinuðu Alþingi I
gær kvöddu tveir þingmenn Vest-
f jarðakjördæmis, þeir Karvel
Pálmason(SFV) og Matthías
Bjarnason (S), sér hljóðs utan
dagskrár til að spyrja dómsmála-
ráðherra, hvað hæft væri f frétt-
um um, að breskir togarar fengju
óáreittir að stunda veiðar fyrir
Vestfjörðum og það jafnvel á
friðaða svæðinu. Væru háværar
raddir um þetta meðal skip-
stjórnarmanna á vestfirskum
fiskiskipum, sem veiðar stunduðu
á þessum slóðum.
Sagðist Ölafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra hafa aflað sér
upplýsinga frá Landhelgis-
gæslunni um þetta, og hefði
gæslan á þessum stað verið með
eðlilegum hætti. Þó væri nú fyrir-
hugað að efla gæsluna þarna, þar
sem það hefði sýnt sig, að mikill
fjöldi erlendra togara væri þarna
á veiðum. Þá komu þær upp-
lýsingar einnig fram hjá ráð-
herranum, að annað hvalveiði-
skipið, sem Landhelgisgæslan
fær til gæslustarfsins skv. samn-
ingum við Hval h/f, væri nú að
verða tilbúið til þeirra starfa.
Karvel Pálmason vitnaði til við-
tals i Morgunblaðinu s.l. sunnu-
dag, þar sem vestfirskur skip-
stjórnarmaður lét hafa eftir sér
þungar ásakanir á hendur Land-
helgisgæslunni vegna slælegrar
gæslu á miðunum fyrir Vest-
fjörðum. Spurði hann dómsmála-
ráðherra, hvort Landhelgis-
gæslunni hefðu verið gefin fyrir-
mæli um að hafast ekki að, og ef
svo væri, hverjar væru þá
ástæðurnar.
Matthfas Bjamason sagðist
kveðja sér hljóðs af sama tiiefni
og Karvel. Sér væri Ijóst, að land
helgismálið væru nú á mjög við-
kvæmu stigi og áríðandi, að ekki
kæmi til alvarlegra árekstra á
miðunum nú. Það hlyti þó að vera
AlÞlflGI
ALLIR þingmenn Suðurlands-
kjördæmis hafa flutt tillögu til
þingsályktunar um byggingu
skips til Vestmannaeyjaferða.
Fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar er Guðlaugur Gfslason
(S), og mun hann því mæla fyrir
henni í þinginu. Tillagan er svo-
hljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á rfk
isstjórnina að ákveða nú þegar
að láta byggja nýtt skip til Vest-
mannaeyjaferða og leita tilboða f
smfði þess á grundvelli tillögu
stjórnskipaðrar nefndar um sam-
göngumál Vestmannaeyinga, sem
fram kemur í álitsgjörð
nefndarinnar til samgönguráðu-
neytisins.“
Aðrir þingmenn Suðurlands-
kjördæmis, sem flytja tillögu
þessa með Guðlaugi, eru: Garðar
Sigurðsson (Ab), Björn Fr.
Björnsson (F), Steinþór Gestsson
(S), Ágúst Þorvaldsson (F) og
Ingólfur Jónsson (S).
Um aðdraganda þessa máls
segir svo í greinargerð:
„Þingmenn Suðurlandskjör-
dæmis fluttu á Alþingi 1972 til-
lögu til þingsályktunar um sam-
göngumál Vestmannaeyinga. Til-
lögunni var vísað til fjárveitinga-
lágmarkskrafa, að Bretarnir
stunduðu ekki veiðar á þeim
veiðisvæðum, sem friðlýst hafa
verið fyrir öllum veiðum, svo sem
svæðið undan Kögri. Kvaðst þing-
maðurinn hafa orðið var við
mikla gremju meðal vestfirskra
sjómanna vegna þess, að Bret-
amir hefðu ekki virt friðunina á
þessu svæði að undanförnu.
Einnig hefðu verið þarna v-
þýskir togarar og einstaka fær-
eyskur togari.
Olafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra sagðist hafa aflað sér
skýrslu frá Landhelgisgæslunni
vegna þeirra ásakana, sem fram
hefðu komið í Morgunblaðsvið-
talinu. Lýsti ráðherra því,
hvernig gæslunni hefur verið
háttað á þessum slóðum að undan-
förnu og taldi hana hafa verið
með venjulegum hætti.
Ólafur Jóhannesson.
Einu sinni hefði verið komið að
6 breskum togurum að veiðum á
friðaða svæðinu eða þann 16.
október s.l. Þeir hefðu þá allir
híft inn veiðarfærin, þó að einn
hefði gert það með semingi.
öllum kvörtunum hefði verið
sinnt.
Ráðherra sagði, að engir
breskir togarar hefðu verið á
þessu svæði fyrr en 12. október
s.l., og síðan þá hefði stöðugt
verið eitt stórt varðskip á þessum
slóðum, og núna sfðustu dagana;
hefði einnig verið þar eitt lítið
Gat hann þess i þessu sambandi,.
að nú væri fyrra hvalveiðiskipið,
sem fengist frá Hval h/f, að verða
tilbúið til gæslustarfanna.
Að lokum sagði ráðherra, að
fyrirmæli sin til Landhelgisgæsl-
unnar væru nú þau sömu og verið
nefndar til fyrirgreiðslu, og
skilaði nefndin eftirfarandi áliti,
sem dagsett er 22. mars það ár:
„Alþingi ályktar að fela sam-
gönguráðherra að skipa 5 manna
nefnd, er gera skal tillögu um
það, með hverjum hætti sam-
göngur við Vestmannaeyjar verði
best tryggðar. Skulu tveir
nefndarmenn tilnefndir af bæjar-
stjórn Vestmannaeyja, einn af
Skipaútgerð rikisins, einn af flug-
málastjóra og einn af samgöngu-
ráðuneytinu, og skal hann vera
formaður nefndarinnar."
Tillagan var samþykkt með
samhljóða atkvæðum á fundi
sameinaðs Alþingis hinn 18. april
1972, og skipaði samgönguráð-
herra nefndina í samræmi við
ályktun Alþingis með bréfi dags.
24. maf sama ár.“
Nefnd þessi starfaði þá um
sumarið og lagði til, að nýtt skip
yrði byggt fyrir Vestmannaeyja-
ferðir, til farþega- og vöru-
flutninga og jafnframt sérhæft til
bifreiðaflutninga. Segir í greinar-
gerðinni, að málið sé nú komið á
lokastig, hvað undirbúning
varðar, og eigi nú aðeins eftir að
taka ákvörðun um byggingu
skipsins og leita tilboða í smfði
þess.
hefði. Að undanförnu hefði verið
reynt að reka togarana út fyrir, og
hefði það heppnast f flestum til-
vikum. Flestir skildu, að það værí
forðast að efna til stórátaka á
miðunum þessa dagana, þegar
verið væri að ræða bráðabirgða-
samkomulag við Breta.
Matthfas Bjarnason þakkaði
upplýsingar ráðherra og kvaðst
fagna því, að gæsla á miðunum
yrði nú aukin, svo og skýlausri
yfirlýsingu Olafs Jóhannessonar
um, að friðaða svæðið yrði varið.
Þegar Landhelgisgæslan værí
borin svo þungum sökum sem í
umræddri blaðagrein, yrði að
safna gögnum og athuga, hvað
hæft reyndist í þvílíkum ásökun-
um. Kvaðst þingmaðurinn mundu
gangast fyrir því, að þeir, sem
hefðu haft slíkar ásakanir í
frammi, sendu dómsmálaráðu-
neytinu skýrslu um málið.
Karvel Pálmason tók einnig
! GÆR kaus Alþingi fulltrúa á
þing Norðurlandaráðs f stað
Björns Jónssonar. Var Hannibal
Valdimarsson kjörinn.
Þá tóku Bragi Sigurjónsson
Karvel Pálmason
Matthías Bjamason
aftur til máls og tók mjög í sama
streng og Matthfas um að afla
þyrfti upplýsinga um málið.
sæti á Alþingi i forföllum Péturs
Péturssonar (A). Bragi er fyrsti
varamaður landskjörinna Alþýðu-
flokksmanna og hefur hann átt
sæti á þinginu áður á þessu kjör-
tímabili.
Ný þingmál
K aupstaðarréttin di
fyrir Seltjarnar-
neshrepp
Matthías A. Mathiesen (S) og
fjórir aðrir þingmenn hafa flutt
frumvarp til laga um kaupstaðar-
réttindi til handa Seltjarnar-
neshreppi. Er þar gert
ráð fyrir, að vúver-
andi Seltjamameshreppur
verði kaupstaöur og sérstakt lög-
sagnarumdæmi, sem heyri undir
Reykjaneskjördæmi. Aðrir flutn-
ingsmenn eru Jón Skaftason (F),
Gils Guðmundsson (Ab), Stefán
Gunnlaugsson (A) og Ólafur G.
Einarsson (S).
Breyting á frum-
varpi til orkulaga
Stefán Gunnlaugsson (A) legg-
ur til að breyting verði gerð á
áður framlögðu frumvarpi um
breytingu á orkulögum, þannig að
sveitarfélög skuli eiga allan rétt
til umráða og hagnýtingar jarð-
hita á háhitasvæðum, þar sem
landareign er í eign sveitarfélags-
ins. í frumvarpinu er aðeins gert
ráð fyrir að sveitarfélögin eigi
forgangsrétt til vinnsluleyfis.
Ábúðarlög
Ríkisstjórnin leggur fram frum-
varp til ábúðarlaga, sem einnig
var flutt á síðasta þingi en hlaut
þá ekki afgreiðslu.
Upplýsingarskylda
stjórnvalda
Frumvarpið er endurflutt frá
síðasta þingi óbreytt. Er það flutt
af ríkisstjórninni.
Breyting
á skiptalögum
Stjórnarfrumvarp um breyting-
ar á skiptalögunum frá 1878. Er
hér um að ræða breytingar á
ákvæðunum um niðurröðun
skulda í forgangsflokka við opin-
ber skipti. Frumvarpið var einnig
flutt á síðasta þingi en fékk þá
ekki afgreiðslu.
Fyrirspurnir
Nemendur landsbyggðarinnar
Lárus Jónsson (S) spyr
menntamálaráðherra, hvað líði
framkvæmd þingsályktunar frá 3.
apríl s.l. um bætta aðstöðu nem-
enda landsbyggðarinnar, sem
sækja vilja sérskóla á höfuð-
borgarsvæðinu.
Vegagerð f Mánárskriðum
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
spyr samgönguráðherra, hvað líði
gerð kostnaðaráætlunar við vega-
gerð í Mánárskriðum á Siglu-
fjarðarvegi, sem rlkisstjórninni
var með þingsályktun á síðasta
þingi falið að láta gera.
Brúarstæði yfir Dýraf jörð
og Önundarfjörð
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S) spyr samgönguráðherra eftir-
farandi spurninga:
1. Er lokið rannsókn á brúarstæð-
um yfir Dýrafjörð og önundar-
f jörð, sem veitt var fjármagn tií á
árunum 1972 og 1973 samkvæmt
vegaáætlun fyrir árin 1972—75?
2. Ef rannsókn er lokið, hver er
niðurstaða hennar?
3. Ef rannsókn er ekki lokið, hvar
er hún á vegi stödd?
Guðlaugur Gíslason o.fl.
Byggt verði skip til
V estmannaey j afer ða
„Landlægur
kotungsháttur”
A FUNDI sameinaðs þings í
gær var á dagskrá fyrirspurn
frá Bjarna Guðnasyni (utan
f L) til forsætisráðherra um
Seðlabanka fslands og hvaða
vald viðskiptaráðherra hefði
yfir málefnum hans.
Ólafur Jóhannesson taldi f
svari sfnu, að heimildir ráð-
herra tíl beinna afskipta af
þeim málum, sem skv. lögum
heyrðu undir bankastjórn,
væru mjögtakmarkaðar.
Fyrirspurn Bjarna var svo-
hljóðandi:
1. Hver er stjórnarfarsleg
staða Seðlabankans gagnvart
ráðherra?
2. Þar sem ráðherra fer með
„yfirstjórn" bankans, verður
þá ekki að telja það í samræmi
við lög, að bakinn þurfi að fá
heimild ráðherra, þegar hann
ræðst f byggingarframkvæmd-
ir, sem munu að öllum líkind-
um kosta um 500 milljónir
króna?
3. Hefði ráðherra bankamála
ekki tök á þvf, sbr. 24. gr. 1. nr.
10/1961, að stöðva byggingar-
framkvæmdir Seðlabankans
við Arnarhól, ef honum byði
svo við að horfa?
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði í svari sínu, að
yfirstjórn bankans væri í hönd-
um tveggja aðila, ráðherra og
þingkjörinnar stjórnar hans. I
lögum um bankann væri kveðið
á um skiptingu starfa milli
þessara aðila. I þeim málum,
sem ekki væri kveðið sérstak-
lega á um, hver fara skyldi með
ákvörðunarvald, væri það í
höndum bankastjórnar. Heim-
ildir ráðherra til afskipta á
þeim sviðum, sem honum væri í
lögunum ekki beinlínis ætlað
að hafa áhrif á, væru mjög tak-
markaðar. Sjálfstæði hlið-
stæðra banka og Seðlabankans
væri víða erlendis miklu meira
en hér.
Um 2. tl. fyrirspurnarinnar
sagði Ölafur, að ráðherra
bankamála hefði hvorki að
óbreyttum lögúm né skv. venj-
um, heimild til að stöðva bygg-
ingarframkvæpidir ríkisbank-
anna.
3. tl. fyrirspurnarinnar
kvaðst forsætisráðherra ekki
treysta sér til að svara, en tók
fram, að hann hefði mikla trú á
áhrifagetu viðskiptaráðherrans
(Lúðvíks), þegar um væri að
ræða svið, sem hvorki lög né
venjur veittu honum rétt til af-
skipta.
Ölafur Jóhannesson sagði, að
mikilvægt væri að taka bygg-
ingarmál hins opinbera til um-
ræðu heildstæðara en þessi
fyrirspurn gæfi tilefni til. Um
það efni sagði ráðherra: „Hér á
landi hefur á undanförnum
áratugum verið landlægur kot-
ungsháttur, sem er opinberum
aðilum til skammar."
Bjarni Guðnason tók afturtil
máls og sagði það sýnilegt, að
fengnum þessum svörum ráð-
herrans, að endurskoða þyrfti
skipan þessara mála, svo að ráð
herra bankamála fengi hér
meiri áhrif. Taldi Bjarni banka-
valdið leika lausum hala.
Hannibal í Norðurlanda-
ráð - Bragi tekur sæti