Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
Sonur okkar
Halldór Vilberg Jóhannesson,
prentari
Norðurgötu 16, Akureyri
lézt af slysförum 21 okt
Þorgerður Halldórsdóttir
Jóhannes Halldórsson
Minning:
Einar Pálsson
skrifstofustjóri
F.5.4. 19X4
D. 16.10.1973
EINAR Pálsson er látinn, má
segja á besta aldri, tæplega
sextugur, þegar menn eru búnir
Eiginmaður minn og sonur okkar.
ÁSGRÍMUR SIGURÐSSON.
Nesvegi 47
andaðist í Borgarspítalanum.
Kristín Árnadóttir
Ragnheiður Ásgrímsdóttir Sigurður Sigurðsson.
Eiginmaður minn
HJÁLMAR GÍSLASON
lést i Landspítalanum 22 október
Fyrir hönd dætra og tengdasona,
Soffía Ásgeirsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
INGVAR ÞÓRÐARSON,
byggingameista ri,
Drafnarstíg 2
andaðist laugardaginn 20. október.
Sigríður Jónsdóttir,
Magnús Ingi Ingvarsson, Aðalheiður Alexandersdóttir,
Anna Ingvarsdóttir, Torfi Tómasson,
og barnabörn.
Jarðarför konunnar minnar
LOUISU TÓMASDÓTTUR
Öldugötu 54
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25 okt kl. 1 3.30.
Fyrir mina hönd, barna okkar, tengdabarna, barnabarna og annarra
aðstandenda
Ásgrímur Gíslason.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
KRISTÍN BENIDIKTSDÓTTIR
Rauðarárstíg 30.
sem andaðist 17 október, verður jarðsungín frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 25. október kl. 1 3.30
Kristján Valgeirsson
Egill Valgeirsson Er|a Sigurjónsdóttir
Þorbjörg Valgeirsdóttir Ólafur Hannesson
Guðný Valgeirsdóttir Jón Júlíusson
og barnabörn
Systir mín og móðursystir
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju, miðvíkudaginn 24. október
kl. 2 e h
Fyrir hönd aðstandenda
Marín Magnúsdóttir,
Júlíana Mathiesen.
VEGNA JARÐARFARAR
EINARS PÁLSSONAR, skrifstofustjóra verður stofnunin
lokuð frá kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 23, október 1 973.
Raunvísindastofnun Háskólans.
að öðlast svo mikinn lærdóm af
reynslu lífsins.
Einar var kominn af sterkum
stofni, faðir hans Páll Magnússon
járnsmiður var einn af þeim
mikilhæfu iðnaðarmönnum, sem
settu svip sinn á Reykjavík á
fyrstu tugum aldarinnar. Iðnaðar-
menn voru mjög áhrifaríkir i
bænum á þessu tímabili, við að
byggja upp bæinn og á ýmsum
verklegum sviðum og svo
menningarlegum. Þar var Páll
járnsmiður hlutgengur þátttak-
andi.
ISinar Pálsson settist í mennta-
skólann og lauk stúdentsprófi, las
Iög við háskólann í ár, en réð sig
síðan í opinbera þjónustu og
gerðist þar góður starf smaður.
Nú um árabil hef ég haft Einar
að samstarfsmanni og það mjög
nánum. Það samstarf reyndist
mér svo vel að ekki var betur
kosið.
öll mál, sem þurfti að ráða til
lykta voru borin undir Einar og
það brást ekki, að það var komist
að þeirri skynsamlegustu niður-
stöðu í hverju máli sem var, án
ági'einings.
Einar var margfróður maður og
vissi skil á mörgum hlutum, bæði
innlendum málum og alþjóðapóli-
tlk og hafði á þessum málum
ákveðnar skoðanir, sem mótaðar
voru af þekkingu hins reynda og
greinda manns. Hann kunni
vel að meta gott spaug og
það var kannski hans skemmti-
lega og sterkasta hlið en um leið
var hann mikill alvörumaður.
Hann var áhugamaður um fjar-
skipti og var á því sviði mjög
virkur, átti I gegnum radíóið mál-
kunningja víða um lönd, og var
félagi I samtökum áhugamanna
umfjarskipti (radíó amatör).
Einar kvæntist Guðlaugu Valdi-
mars, mikilhæfri ágætiskonu sem
stóð við hlið hans I bh'ðu og stríðu.
Þau áttu þrjú börn,
Pál og Hildi, öll gift.
Valdemar,
Við samstarfsmenn hans hér I
Sindra-fyrirtækjunum, sendum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til konu hans og barna og
annarra ættingja og þökkum for-
sjóninni fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að kynnast svo náið
slíkum afbragðsmanni.
Einar Ásmundsson.
EINAR Pálsson tók við starfi
skrifstofustjóra Raunvísindasofn
unar Háskólans I nóvembermán-
uði 1972 og hafði því aðeins gegnt
því starfi um ellefu mánaða skeið,
er hann lézt þriðjudaginn 16.
október s.l., snögglega og fyrir
aldur fram. Þrátt fyrir þennan
stutta starfstlma átti hann svo
mikinn þátt I allri starfsemi stofn-
unarinnar, að hún verður ekki sú
sama og áður. Stofnunin leitaði
eftir skrifstofustjóra, en fékk i
raun miklu meira. Einar hafði
m.a. mikla þekkingu á og
reynslu I fjarskiptatækni og gat á
því sviði veitt tæknilega aðstoð
við ýmis verkefni stofnunarinnar.
Víðtæk reynsla og þekking og si-
vaxandi áhugi og dugnaður
samfara sérstaklega aðlaðandi
skapgerð gerði allt samstarf við
hann einstaklega ánægjulegt.
Þessir eiginleikar komu vel fram
í sambandi við eldgosið á
Heimaey, en það féll I hlut Raun-
vísindast. að sjá um
skipulagningu ferða vísinda-
manna, innlendra og erlendra, til
Vestmannaeyja og um útvegun á
Minning:
Vilbergur Aðalgeirs-
son — Grindavík
F.3. júlf 1918.
D. 15. október 1973.
Við andlát Vilbergs Aðalgeirss.
eða Begga eins og hann var oftast
kallaður, kom I huga minn gamlar
Skinnaframboð
eykst í Noregi
OSLÓ — Um 250.000 minka-
skinn og 40.000 refaskinn
verða á fyrstu skinnaupp-
boðinu í Ósló á þessum vetri.
Uppboðið verður, haldið dag-
ana 1. til 5. desember.
Verð á skinnum hefur farið
hækkandi og skinnafram-
leiðslan I Noregi hefur því
aukizt á ný. Aætlað er, að
framleiðslan í vetur verði 1.5
milljón minnkaskinn og
180.000 refasinn.
og góðar minningar frá því ég var
lítil telpa, og kom á heimili hans
til að gæta barnanna. Þetta var
stór og myndarlegur hópur, fimm
drengir og ein telpa, allt efnis-
börn. Þau hjónin Eileen og Beggi
voru góðir húsbændur. Þau voru
mjög samhent og einhuga um
uppeldi barnanna, hann var sér-
lega barngóður og umhyggjusam-
ur faðir. Hjónaband þeirra var
farsælt, því þar ríkti einig og
samhugur og hafa þau komið
börnum slnum öllum vei til
manns, flest búin að stofna sín
heimili og eignast börn.
Barnabörnin munu ekki hafa
farið varhluta af gæðum afa síns,
öll munu þau hafa verið honum
kærkomin og til mikillar gleði og
ánægju, þvf svo vel naut hann sín
í glöðum bamahópi. Þau munu
halda uppi minningunni um góð-
an föður og afa.
Það er mikil gæfa að hitta fyrir
gott fólk, og ekki sfst þegar maður
er ungur ogóharðnaður það skilur
eftir góðar myndir, sem síðar er
oft gott að hugsa til.
VEGNA JARÐARFARAR
EINARS PÁLSSONAR, skrifstofustjóra, verða skrifstofur
okkar lokaðar eftir hádegi þriðjudaginn 23. okt.
SINDRA-STÁL H/F
SINDRA-SMIÐJAN H/F
EINAR ÁSMUNDSSON
útbúnaði, sem til þurfti. Starf
þetta hvfldi að langmestu leyti á
Einari, og leysti hann það af
hendi með miklum ágætum. Var
það þó hvorki auðvelt né alltaf
þakklátt starf.
Daglegur rekstur stofnunarinn
ar var að miklu leyti kominn f
traustar hendur Einars, og létti
það mikið starf forstöðumanna
stofnunarinnar. Hann naut
trausts og virðingar alls starfs-
fólks stofnunarinnar, og þegar ég
þurfti að tilkynna þvi lát hans,
fann ég, hve mikill var missir
þess og söknuður. Persónulega
hef ég misst vin og náinn sam-
starfsmann, en minningin um
þessa ellefu mánuði, sem við
unnum saman, er mér mikils
virði.
Undanfama mánuði ræddum
við oft um framtlð Ranvisinda-
stofnunarinnar, og hafði Einar
margar góðar hugmyndir, sem
sýndu einlægan áhuga á viðgangi
hennar. Ef honum hefði enzt ald-
ur, er ekki vafi á þvf, að hann
hefði unnið stofnunni og Háskóla
Islands mikiðgagn.
Fyrir hönd starfsfólks Raunvís-
indastofnunar Háskólans votta ég
eiginkonu og fjölskyldu Einars
Pálssonar mína dýpstu samúð.
Magnús Magnússon.
AÐ eignast góða vini er eitthvað
það dýrmætasta, sem fyrir menn
kemur á lífsleiðinni. Slíkt erorðið
fremur sjaldgæft í heiminum eins
og hann er í dag.
Einar Pálsson hitti ég fyrst ,J
loftinu“ eins og það er kallað á
máli radióamatöra. Hann varð
vinur minn, útlendingsins í
landinu hans. Hjálpsemi hans og
greiðvikni í smáu sem stóru var
slíkt að fáheyrt er.
Radióamatörar um heim allan
eiga vinar að sakna, en hann var
þekktur í öllum löndum þar sem
þeir starfa og var landi sfnu og
þjóð alls staðar til sóma vegna
þekkingar sinnar og fágaðrar
framkomu.
Ég og kona mín biðjum guð að
blessa frú Guðlaugu, börnunum
og þeirra fjölskyldum minning-
una um góðan mann og vin minn
kveð ég með alþjóðakveðju radio-
amatöra, 73’s
George Howser.
Nú þegar Beggi er fallinn frá,
þá verður mér hugsað til þín
Eileen og barnanna ykkar, ég veit
að missir ykkar er mikill, en
minningin um góðan mann lifir.
Góður Guð styrkirykkur öll.
Dfdf.