Morgunblaðið - 01.11.1973, Qupperneq 1
32 SIÐUR
246. tbl. 60. árg. FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tveir frægustu hershöfðingjar Israels, Moshe Dayan og Bar-Lev, liggja á
hnjánum í Sinai-eyðimörkinni, draga kort í sandinn og ræða hernaðaráætlanir.
Brey tingar gerðar
á sænsku stjóminni
Sadat setur kosti
fyrir vopnahlé
Stokkhólmi 31. okt., NTB.
OLOF Palme forsætisráðherra
Svíþjóðar tilkynnti í dag, að hann
hefði ákveðið miklar breytingar á
ríkisstjórn sinni. Meðal annars
verður innanríkisráðuneytinu
skipt í húsnæðismálaráðuneyti
og atvinnumálaráðuneyti. Þá
verður bætt við 4 nýjum ráð-
Reiðhjól
til leigu
Haag, 31. október, NTB
HOLLAND hefur sent stjórnar-
nefnd Efnahagsbandalagsins ein-
dregna beiðni um, að ef til neyð-
arástands komi vegna olíuskorts,
sjái hún til þess, að fáanlegri oliu
verði dreift jafnt og þétt til þeirra
landa, sem aðild eiga að Efna-
hagsbandalaginu.
Utanríkisráðh. Hollands sagði
í ræðu i þjóðþinginu í dag, að
stjórn landsins hefði farið fram á,
að olíumálið yrði á dagskrá ráð-
herraf., sem halda á í næstu
viku. Mörg arabísk lönd hafa
nú tekið fyrir alla olíusölu til Hol-
lands, á þeirri forsendu, að það
hafi tekið afstöðu með Israel.
Til að reyna að bæta eitthvað úr
ástandinu hefur stjórnin bannað
bifreiðaakstur á sunnudögum, frá
því kl. 03 og fram að miðnætti.
Einn af borgarstjórnarfulltrúum í
Rotterdam sagði i dag, að ef olíu-
bannið yrði langvinnt, væri mikil
hætta á að segja yrði upp 20 þús-
und starfsmönnum olíu-
hreinsunarstöðvar borgarinnar.
Hann sagði, að bærinn myndi ein-
nig tapa miklum hafnargjöldum.
Reiðhjólaframleiðendur í Hol-
landi hafa hins vegar nóg að gera
og geta ekki fullnægt eftirspurn
stórkaupmanna. Nokkrar reið-
hjólaverslanir eru þegar farnar
að leigja út reiðhjól á sunnu-
dögum.
herrum. Bertil Zachrirsson verð-
ur kennslumálaráðherra, Gertrud
Sigurdssen verður þróunarmála-
ráðherra, sveitarstjórnaráðherra
verður Hans Gustafssen og Anna
Greta Lejon aðstoðaratvinnu-
málaráðherra.
Sven Anderson verður utan-
ríkisráðherra, en hann hefur
gegnt starfi varnarmálaráðherra,
Ingvar Carlsson húsnæðismála-
ráðherra, tekur við störfum at-
vinnumálaráðherra, Eric Holm-
quist, sem var innanríkisráð-
herra, tekur við embætti varnar-
málaráðherra og Svante Lund-
kvist verður landbúnaðarráð-
herra.
Camilla Odhnoff, sem hefur
verið ráðherra án stjórnardeildar,
hverfur úr stÍÓKiinni og verður
landshöfðingií í Blekinge og þar
Framhald á bls. 18
Brandt reit Nixon
Bonn 31. október, AP.
OPINBER vestur-þýzkur talsinað-
ur staðfesti í dag, að Willy Brandt
kanslari hefði ritað Nixon Banda-
ríkjaforseta bréf nýlega um
ástandið í Miðausturlöndum og
Atlantshafsbandalagið. Mun
Brandt hafa látið f ljós ánægju
sína með þá aðstoð, sem Banda-
rfkjamenn lögðu fram til að
binda enda á styrjöldina.
— Segir Egypta
hafa í fullu
tré við Israela
Kairó, Beirut, Tel Aviv,
New York, Washington
31. okt. NTB. AP.
□ Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seti sagði í dag, að Egyptar
myndu þvf aðeins taka þátt í
samningaviðræðum, með það
fyrir augum að binda enda á átök-
in í Miðausturlöndum, að tsraelar
hyrfu á brott með herlið sitt til
þeirra stöðva, sem það var f fyrir
22. október.
□ Sadat tilkynnti og, að Kiss-
inger utanrfkisráðherra Banda-
ríkjanna kæmi til Kairó f næstu
viku, en sú frétt hefur ekki verið
staðfest f Washington. Egypzki
aðstoðarutanríkisráðherrann, Ies-
mail Ahmi, ræddi f dag við Nixon
forseta um ástand og horfur. Var
þar lögð áherzla á fyrri fullyrð-
ingar um, að Egyptar sættu sig
ekki við annað en Israelar hyrfu
með lið sitt frá vesturbakka Súez-
skurðarins.
□ Friðarsveitir Sameinuðu þjóð-
anna í Mið^usturlöndum starfa af
fullum krafti, að sögn Kurt Wald-
heims framkvæmdastjóra S.Þ., og
er kominn um þriðjungur þeirra
700, sem gæzlustörf eiga að
annast. Waldheim sagði, að sveit-
irnar störfuðu í samvinnu við AI-
þ jóða Rauða krossinn.
I kvöld virtist allt vera með
kyrrum kjörum á átakasvæð-
unum í Miðausturlöndum, og eng-
in frétt kom um, að vopnahlé
hefði verið rofið. Birgða- og lyfja-
flutningar halda áfram til 3. hers
Egypta í herkvínni, og fara þeir
fram án þess að til tíðinda dragi.
Sadat Egyptalandsforseti sagði í
dag, að hann væri sannfærður
um, að Egyptar gætu sigrað Isra-
ela í stríði, hvenær sem væri, en
þeir hefðu ákveðið að fallast á
vopnahlé, þar sem málin hefðu
verið að þróast i þá átt, að Egypt-
ar hefðu nánast verið farnir að
stríða við Bandarikjamenn og
slíkt vildu þeir ekki. Hann lét líka
í ljós von um, að Sovétríkin og
Bandaríkin myndu standa við þau
loforð sín, að vopnahléð yrði virt.
Hins vegar væri þvi ekki að leyna,
að ýmsir egypzkir herforingjar
vildu láta til skarar skríða gegn
tsrael og hefðu óbilandi trú á
yfirburðum egypzka hersins.
Golda Meir forsætisráðherra
Israels kemur sennilega til
Bandarikjanna í kvöld, og hún
mun síðan ræða við Nixon for-
seta, sem hún sagði „sannan vin
Israela", áður en hún lagði af
stað.
Þá hafa eftirlitssveitir Sam-
einuðu þjóðanna tekið til við að
vitja stríðsfanga, bæði hjá Egypt-
um og Israelum. Israelar hafa
gefið upp nöfn um 1600 egypzkra
stríðsfanga og hafa sagzt munu
leggja fram fleiri nöfn bráðlega.
Hins vegar hafa Egyptar aðeins
látið eftirlitssveitunum í té skrá
yfir rúmlega áttatiu stríðsfanga
frá Israel, enn sem komið er.
Chou En-lai forsætisráðherra
Kína sagði i dag, að stórveldin
tvö, Bandaríkin og Sovétríkin
Framhald á bls. 18
Munch-mál-
verki stolið
Osló 31. okt.
FRUMDRÖGUM að hinu fræga
málverki Edvards Munchs,
„Sagan“, var stolið frá veitinga-
stað í stúdentabænum að Sogni.
Málverkinu hefur sennilega verið
stolið aðfaranðtt miðvikudagsins,
þvf þegar starfsfólk veitingastof-
unnar kom til vinnu, tók það
eftir, að málverkið var horfið. Er
það metið á aðra milljón króna.
Það hafði verið skorið úr ramm-
anum, en eitt hornið orðið að
nokkru eftir. Málverkið er 200x90,
sm að stærð og sýnir stórt eikar-
tré, sem breiðir úr greinum
sínum yfir umhverfið, en við
rætur þess sitja gamall maður og
ungur drengur. Endanleg gerð
málverksins hangir i Oslóarhá-
skóla. Mjög umfangsmikil leit
stenduryfir að þjófunum.
Lyf kann að hafa valdið
dauða asmasjúklinga
Strangt eftirlit
hér á landi,
segir landlæknir
BRESKA blaðið „The
Observer" skýrir frá þvf I frétt
21. október sl., að hópur lækna
telji, að lyfið „Isoprenaline" og
önnur skyld lyf, sem gefin eru
asmasjúklingum, kunni að hafa
valdið dauða 3.500 asmasjúkl-
inga f Bretlandi á árunum 1961
til 1967. Læknunum virðast
dauðsföllin vera tengd sölu
„úða-dósa", en í þeim er lyfið í
fljótandi formi og undir loft-
þrýstingi (svipað og hárlakk),
og sjúklingurinn sprautar
úðanum upp í sig.
Þær tegundir, sem náðu 80
prósentum af markaðinum í
Bretlandi, eru „Medihaler Iso“
og „Medihaler Iso Forte“, og
mun síðarnefnda lyfið vera
sterkara. Engin nákvæm rann-
sókn hefur farið fram og því
liggja ekki fyrir neinar vísinda-
legar staðreyndir, sem sanna,
að dauðsföllin hafi orðið af
völdum þessara lyfja. Lyfið er
einnig selt í öðrum löndum, en
ekki hefur orðið vart mikillar
breytingar á dauðsfallafjölda
asmasjúklinga á þessu tímabili
nema í Bretlandi og á Nýja-Sjá-
landi. Einhver breyting varð á
Irlandi og í Astralíu, en nær
engin í Danmörku, Belgíu,
Vestur-Þýzkalandi, Japan,
Bandarikjunum, Svíþjóð og
Hollandi.
Bresku læknarnir hallast
helst að því, að ofnotkun lyfsins
hafi valdið dauðsföllunum.
Þeir benda á, máli sínu til
stuðnings, að óvenjumargir
þeirra sjúklinga, sem létust,
voru á aldrinum 10—14 ára.
Þeir hafi verið nógu gamlir til
að taka sjálfir lyfið og flestir
hafi tekið úða-dósina með sér í
skólann. Hins vegar hafi þeir
ekki verið það þroskaðir, að
þeir gerðu sér grein fyrir hætt-
unni af þvf að taka of mikið.
Þess má einnig geta, að í Bret-
landi er hægt að fá þetta lyf í
hverri lyfjabúð og án lyfseðils,
að sögn Observer.
Mjögstrangt
eftiríit
Þar sem þessi lyf eru fáanleg
i lyfjabúðum hér, sneri Morg-
unblaðið sér til Ölafs Ölafs-
sonar landlæknis. Ólafur sagði,
að asmasjúklingar notuðu
mikið þessi lyf og væru þau
notuð eins og ráð væri fyrir
gert teldust þau ekki valda
neinni hættu. Ef hins vegar
væri tekinn alltof stór
skammtur væri fræðilegur
möguleiki á að lyfir gæti valdið
dauða.
Landlæknir benti á, að svo
væri um mörg venjuleg lyf,
þau gætu valdið dauða ef of
stórir skammtar væru teknir.
Hann sagði, að þessi lyf, með-
ferð þeirra og áhrif, væru
kennd strax i læknaskóla og
læknar hérlendis fylgdust auð-
vitað með öllu nýju, sem upp
kæmi um þau. Reglur um af-
hendingu þeirra væru strangar,
þau fengjust ekki afhent nema
gegn lyfseðli og þá auðvitað
með leiðbeiningum um notkun.