Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1973 John Miles Set: Tón- list hreyfí- gleðinnar BREZKA tríóið John Miles Set kom til landsins í gær og mun leika í fyrsta sinn fyrir íslenzka áheyrendur á hljóm- leikum í Austurbæjarbíói f kvöld, ásamt annarri brezkri hljómsveit, Capricorn, og Júdasi frá Keflavík. — John Miles Set mun dveljast hér á landi í 17 daga og er ætlunin, að trfóið ferðist um landið og leiki tónlist sína á ýmsum stöð- um. John Miles Set hefur starfað í hálft þriðja ár. Liðsmenn þess eru frá Sunderland og nágrenni, en hafa leikið á skemmtistöðum og hljómleik- um um allt Bretland. Þá hafa þeir einnig leikið í útvarpi og komið fram í sjónvarpi og gefið út sex litlar plötur með tónlist sinni. Liðsmenn tríósins kváðu erfitt að lýsa tónlistinni; hún væri „funky“, sem táknar tón- list, sem kemur áheyrandanum öllum á ið af dans- og hreyfi- gleði. — Hljómsveitin er á samningi hjá Orangeplötufyrir- tækinu og kemur hingað fyrir milligöngu Magnúsar Kjartans- sonar, sem hefur átt samvinnu við fyrirtækið. Myndin var tekin þegar liðs- menn John Miles Set og að- stoðarmaður þeirra litu inn í Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur hf. f Vesturveri í gær til að kanna hvernig for- sala aðgöngumiða að hljómleik- unum gengi. Ljósm. Mbl, Br. Ahugamenn ræða nýja fiskveiðilaga- frumvarpið FELAG áhugamanna um sjávar- útvegsmál er nú að hefja vetrar- starf sitt og verður, sem fyrr á fundum félagsins f vetur leitazt við að taka til umræðu ýmsa þætti og vandamál sjávarútvegsins á liðandi stund. Fyrsti fundur þessa vetrar verður í Kristarsal Hótel Loftleiðaf kvöld kl. 20.30. A þessum fundi mun Gils Guð- mundsson formaður fiskveiði- laganefndar reifa málin og tala um frumvarp fiskveiðilaganefnd- ar. Þetta er frumvarp til laga um veiðar með botnvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni, sem lagt var fram á siðasta þingi, en af- greiðslu þess frestað til þessa þings. Sjávarútvegsráðherra mun koma á fundinn og svara fyrir- spurnum um þessi mál. Elinnig er búizt við, að ýmsir athafna-menn í sjávarútvegi mæti á fundinn og má því vænta mikilla umræðna um málið. R-24133 stolið AÐFARARNÓTT s.l. sunnudags, milli kl. 2 og 15, var bifreiðinni R-24133 stolið frá Fornhaga 17. Þetta er Moskovits, árgerð 1970, hvít að lit. Leit að bifreiðinni hefur ekki borið árangur, en þeir, sem kynnu að hafa orðið hennar varir, eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Reykjavik. 1 stjórn félagsins nú eru: dr. Jakob Magnússon, formaður, dr. Jónas Bjarnason, ritari og Þór- oddur Th. Sigurðsson, gjaldkeri, en í varastjórn eiga sæti Loftur Júlíusson, Eyjólfur Marteinsson og Þorsteinn Arnalds. Kjarvalsstaðir: UÓS73 1 DAG opna 6 ungir ljósmynd- arar stóra ljósmyndasýningu á Kjarvalsstöðum þar sem þeir sýna um 120 myndir f vestur- salnum. Allar myndimar eru svart-hvftar og sumar mjög mikið stækkaðar, en Gunnar Hannesson, hinn góðkunni lit- myndaljósmyndari, tekur þátt I sýningunni sem gestur og sýnir litskuggamyndir í Kjarvalssalnum. Þar munu 6 sýningarvélar ganga samfellt á sýningartímanum. Sýningin, sem heitir LJÓS 73, opin þriðjudaga og föstu- daga frá kl. 16—22 og laugar- daga og sunnudaga kl. 14—22. Sýningartími er til 13. nóv. Þeir félagar í LJÓS 73 sýndu síðast 1971, og hét sú sýning LJÓS 71. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu, en efniviðurinn er sóttur vítt og breitt í hversdagslífið á Is- Mótmæla harðlega afekiptum ASÍ af launakjörum annarra MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Bandalagi háskólamanna: „1 kröfum Alþýðusambands ís- lands við væntanlega kjarasamn- inga, sem stjórn Bandalags há- skólamanna getur i ýmsum atrið- um tekið undir, er þó eitt atriði, sem vara verður sérstaklega við. Er það krafan um, að verðlags- uppbót verði skert á öllum mánaðarlaunum yfir kr. 50.000.-. Stjórn BHM telur þessa kröfu af- ar rangláta, þar eð hún mun fyrst og fremst bitna á fámennum hópi Aðalfundur Sjálfstæðis- félags Kópavogs AÐALFUNDUR Sjálfstæðis- félags Kópavogs verður haldinn n.k. mánudag í Sjálfstæðishúsinu, Borgarholtsbraut 6, og hefst kl. 8,30 e.h. Auk venjulegra aðalfundar- starfa flytur Oddur Ólafsson alþm. (mynd) ræðu á fundinum. launþega, þar sem eru háskóla- menn, ekki slzt þeir, sem eru í ríkisþjónustu. Beinir hún þeim eindregnu tilmælum til ríkis- stjórnarinnar, að hún beiti sér gegn slíkri skerðingu. Vill stjórn BHM í þessu sambandi vekja at- hygli á eftirfarandi atriðum: I. Mótmæla verður harðlega af- skiptum ASl af launakjörum ann- arra launþega en þeirra, sem þeir hafa umboð fyrir. Samkvæmt nú- gildandi samningum myndu engir launataxtar ASl verða fyrir barð- inu á vísitöluskerðingu, og ein- ungis örfáir hæstu taxtamir, ef gengið yrði að öllum launakröfum þeirra f væntanlegum samning- um. Auk þess er málum svo haganlega fyrir komið, að ákvæðisvinnutaxtar og uppmæl- ingataxtar myndu sleppa við skerðingarákvæðið. Kröfunni er því augljóslega stefnt gegn öðrum launþegum. Því verður ekki trúað að óreyndu, að ASl, í krafti stærð- ar og pólitísks valds, haldist uppi að hafa á þennan hátt frekleg afskipti af kjaramálum annarra stétta. II. Verðlagsuppbót á laun er til þess ætluð að viðhalda kaupmætti launa, þótt verðlag breytist. Ljóst er, að skerðing á slíkri uppbót minnkar verðgildi launa þeirra launþega, sem fyrir henni verða. Það er einnig einkenni skerðing- ar af þessu tagi á verðbólgutim- um, að hún fer sívaxandi, kaup- máttur minnkar meir og meir eft- ir því, sem tímar líða, og launa- stigar þjappast saman. Óhætt er að fullyrða, að kjarasamningar yrðu af þessum sökum markleysa ástuttum tíma. III. Glöggt dæmi um áhrif vísi- töluskerðingar má finna á ár- unum 1968 og 1969. Hinn 1. apríl 1968 gekk í gildi dómur kjara- dóms ríkisstarfsmanna um vísi- tölubætur. Helztu atriði hans voru að greiða skyldi að fullu verðlagsuppbót á grunnlaun upp að kr. 10.000,- á mánuði. Sfðan skyldi uppbótin haldast óbreytt að krónutölu á kr. 16.000.-, en lækka úr því. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Á 20 mánuðum frá gildis- töku dómsins hækkaði kaup- gjaldsvísitala úr 103 stigum f 128.87 stig. Þá var vísitöluskerð- ing í 23. launaflokki, en í honum voru ýmsir háskólamenn, svo sem dómarafulltrúar, náttúrufræð- ingar og verkfræðingar, kr. 3.981.- á mánuði, eða 16.7% af launum 1. des. 1969 (miðað er við hámarks- laun). Þetta samsvaraði þálauna- lækkun um nær 4 launaflokka. Eins og meðfylgjandi tafla sýnir, jókst skerðingin enn í 24. — 28. launaflokki. Skerðing mánaðarlauna 1. ap. 1968 —l.des. 1969. 23. launafl. kr. 3.981,- 16.7% 24. — kr. 4.434.- 17.9% 25. — kr. 4.917.- 18.9% 26. — kr. 5.423,- 20.0% 27. — kr. 5.948.- 20.9% 28. — kr. 6.373,- 21.3% Verulegur hluti þeirrar launa- hækkunar, sem samið var um í síðustu samningum ríkisstarfs- manna í desember 1970, var óum- flýjanleg leiðrétting kjara, vegna þeirrar langvarandi og sívaxandi vísitöluskerðingar, sem á undan fór, og hér hef ur verið lýst. IV. Stjórn BHM mun meðöllum tiltækum ráðum berjast gegn vfsi- töluskerðingu. Hún er ranglát, þar eð hún leggst með síauknum þunga á launþegana eftir þvi sem Framhald á bls. 18 Framhald á bls. 18 Lýst eftir vitni SUNNUDAGINN 30. septem- ber sl. varð kona fyrir óhappi, er hún var að fara út úr strætis vagni á biðstöðinni við Lauga- veg 13, laust eftir kl. 14. Vagn- inn fór af stað áður en hún var komin úr tröppunum og féll hún við það á gang- stéttina og meiddist á fæti. Maður kom henni til aðstoðar, en ekki er vitað, hver hann er. Óskar rannsóknarlögreglan eft- ir að ná tali af honum vegna þessa atviks. Tíminn sakar átta miðstjórnar- menn um „soralegan róg” 1 GÆR dró til tfðinda í átök- um þeim sem verið hafa milli vinstri og hægri arms Fram- sóknarflokksins. I forystugrein Tímans f gær, sem rituð er af Tómasi Karlssyni ritstjóra, er ráðizt harkalega að 8miðstjórn- armönnum í Framsóknar- flokknum, sem skipa fram- kvæmdanefnd svokallaðrar „Möðruvallahreyfingar", og þeir sakaðir um að svívirða „í einni kippu“ formann Fram- sóknarflokksins „og aðra í æðstu stjórn hans og trúnaðar- stöðum, framkvæmdastjórn, þingflokk og ráðherra, svo og ritstjóra Tfmans“. Tilefni forystugreinar þess- arar er stefnuávarp Möðru- vallahreyfingarinnar, sem, að því er segir í fréttatilkynningu frá hreyfingunni, hefur verið sent til 300 trúnaðarmanna Framsóknarflokksins. Segir Tfminn, að stefnuávarp þetta sé „soralegur rógur um forystu- menn Framsóknarflokksins". I fréttatilkynningu Möðru- vallahreyfingarinnar segir hins vegar, að hreyfingin sé samtök félagshyggju fólks innan Fram- sóknarflokksins. Hún hafi að markmiði „að halda á loft innan flokksins þeim hugsjón- um, sem eru grundvöllur til- veru hans, og efla tengslin við þau stjórnmálaöfl önnur, sem eiga mesta samleið með slíkri stjórnmálabaráttu". I stefnuávarpi Möðruvalla- hreyfingarinnar er Fram- sóknarflokknum m.a. lýst með svofelldum orðum: „A undan- förnum árum hefur jafnt og þétt ef lzt að völdum í flokknum fámennur hópur manna, sem skeytir lftt um grundvallar- stefnu og sýnist f verki vera sumum þáttum hennar bein- línis andstæður. Þessir nýju herrar eru í dag hin raunveru- lega forysta f lokksins. Þeir eiga lykilmenn í æðstu stöðum og þeir ráða málgagni flokksins, húseignum hans og skrifstofu- liði f Reykjavík ásamt ýmiss konar aðstöðu, sem reynist áhrifamikil við stjórnarstörf." I stefnuávarpi Möðruvalla- hreyfingarinnar kemur fram, að þeir framsóknarmenn, sem f henni eru, aðhyllast í raun ná- kvæmlega sömu stefnu og kommúnistar i utanríkis- og Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.