Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 22
& 2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1973 t | '•ginkona mín, móðir og tengdamóðir SIGRÚN BERGLJÓT ÞÓRARINSDÓTTIR, lezt að Hrafnistu að morgni 3 1. október sl. Guðmundur Jónsson, Helga Sigfúsdóttir, Már Jóhannsson, Dóra Sigfúsdóttir, Trausti Thorberg Óskarsson, Inger Sigfúsdóttir. Jónas Jónsson. t L ginmaður minn og faðir okkar JÓN JÓHANNESSON, frá Klettstíu, sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 26. október, verður ■ rrrðsunginn frá Hvammskirkju i Norðurárdal, laugardaginn 3. nóvem- bor kl 2, Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 10 sama dag Sæunn E. Klemensdóttir og synir. t F.ginmaður minn GUÐNI JÓNSSON, skósmiður ' rður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. nóv. kl. 1.30 e.h. Margrét Lýðsdóttir t 1 jartkær eiginkona mín, móðir og amma okkar BIRNA GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR, Heiðmörk 48, Hveragerði er andaðist að heimili sinu, mánudaginn 29 okt, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju, laugardaginn 3 nóv kl. 1 4 00 ætaferð verður frá BSÍ k! 1 2 45. Sigurður Auðunsson, Auður Agnes Sigurðardóttir og barnabörn. r i ■i | '!->kkum innilega samúð og vinsemd við andlát og útför systur okkar SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR. Jóna Jónsdóttir, Sigurður Jónsson, Gunnar Jónsson. H «c: itkkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar, . gdamóður og ömmu FRÚ JÓHÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR Hátúni 4, Reykjavík. Ragnhildur Helgadóttir, Bolli B. Thoroddsen, Helgi Bollason. t ö*l-im, sem hafa auðsýnt okkur vinarþel og samúð við fráfall eigin- n. ^ins míns, föður, tengdaföður og afa, EINARS PÁLSSONAR, skrifstofustjóra, Lynghaga 1 5, '• Jkkum við af heilum hug og biðjum ykkur Guðsblessunar. Guðlaug Á. Valdimars Valdimar Einarsson Þórdís Richter Einar Páll Einarsson Edda S. Erlendsdóttir Hildur Einarsdóttir Örn Kjærnested og barnaborn Minning: Jens E. Nikulás- son, Svefneyjum F. 21.mal 1899 hafa haft gaman af sjóferðum og D.18okt. 1973 UTI á Breiðafirði er lítil byggð, sem á breiðfirzku máli er nefnd Vestureyjar. Þar verða vornætur fegurri en ég hef séð annars staðar, fuglakliður vorsins ómþýðari, og hann þagnar jafnvel ekki alveg að vetrinum, því að tjaldurinn og hávellan halda vit- und manna um vorið vakandi i hverri hláku vetrarins. Þar er grasið grænna en annars staðar, sólin vermir öðruvísi, og jafnvel skýin á loftinu hafa annansvip en á öðrum stöðum frá mínum bæjardyrum séð. Sem sagt i einni setningu: Þetta eru æskustöðv- arnar. Þessi orð, sem ég skrifaði einu sinni, er ég minntist æskustöðv- anna, koma mér í hug, er ég minn- ist Jens E. Nikulássonar í Svefn- eyjum, og ber þar tvennt til. 1 fyrsta lagi hef ég fáum mönnum kynnzt, sem bundnir eru átt- högum sinum traustari böndum en hann, og í öðru lagi var Jens einn af þeim mönnum, sem sett hafa svo mikinn svip á umhverfi sitt um margra áratuga skeið, að unglingum, sem vaxa upp í ná- grenni slíkra manna, finnst þeir vera svo tengdir minningum um átthagana, að það verður allt ein órofa heild. Þegar slíkir menn falla í valinn, eru því höggvin skörð, sem aldrei er hægt að fylla aftur í hugum okkar. Þess vegna drúpir eyja- byggðin okkar fagra höfði í dag með þökk og virðingu. Jens Elías Nikulásson er fædd- ur í Hvallátrum á Breiðafirði 21. maí 1899. Hann var einkabarn hjónanna Klásínu Guðfinnsdóttur og Nikulásar Jenssonar. Hann ólst upp á heimili foreldra sinna í Sviðnum á Breiðafirði við leik og störf, sem til falla í eyjum, bæði á sjó og landi. Hann mun snemma t Elskulegur eiginmaður, faðir, sonur og bróðir SVANUR EYLAND AÐALSTEINSSON, Ferjubakka 1 6 verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni, föstudaginn 2. nóv. kl. 13.30. Hjördís Jónasdóttir, Þráinn Ómar Svansson, Berglind Svansdóttir, Brynjar Svansson, Óðinn Svansson, Anna Guðjónsdóttir, systkini og aðrir aðstandendur. t JÓN HALLUR SIGURBJÖRNSSON Fyrrv. framkvæmdastjóri verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 15 Kristín Karlsdóttir Dómhildur Jónsdóttir Pétur Ingjaldsson Karl Ómar Jónsson Ólöf Stefánsdóttir og barnabörn t Sonur okkar, ÞÓRÓLFURÞORLÁKSSON Eyjahólum, verður jarðsunginn frá Skeiðflatakirkju laugardaginn 3. nóvember kl 2 slðdegis, ingibjörg Indriðadóttir Þorlákur Björnsson tekið vel eftir, hvar hann fór, því að síðar varð hann einn með leiðarglöggari mönnum á Breiða- firði, og var oft til hans leitað, þegar leiðbeina þurfti bátum á I ferðum þeirra um norðanverðan fjörðinn, þar sem skerjótt er og vandratað. Avallt leysti hann þau störf vel af hendi. Framan af ævi hans voru ára- bátar einu farartækin í eyjunum, en þegar vélar fóru að koma, mun Jens hafa verið fyrstur bænda i Vestureyjum til að láta vél í bát sinn. Jens tók við búi í Sviðnum árið 1931 að föður sfnum Iátnum og bjó þar til ársins 1956, en þá brann bærinní Sviðnum til kaldra kola. Þetta gerðist í ágúst, og var heimilisfólkið allt við heyskap í úteyjum. Þetta var mikið áfall fyrir Jens og Nikulás, son hans og fjölskyldur þeirra, en Nikulás var þá farinn að búa í Sviðnum ásamt föður sinum. Fólkið dvaldi í Reykjavík vetur- inn eftir. Ekki varð að ráði að byggja upp aftur f Sviðnum, og hafa Sviðnur ekki verið í byggð síðan. Vorið 1957 keypti Jens jörðina Svefneyjar, sem þá var til sölu, og árið eftir hófu þeir feðgar búskap f Svefneyjum og nytjuðu einnig Sviðnur og Bjarneyjar. Þar bjó Jens síðan til dauðadags. Arið 1935 kom Dagbjört Andrésdóttir á heimili Jens, og hefur hún verið lífsförunautur hans síðan. Þau eignuðust einn son, Nikulás, sem áður er getið og býr nú í Svefneyjum. Dagbjört átti tvo syni áður: Ragnar bónda í Hraunhálsi í Helgafellssveit og Magnús bónda á Kljá í sömu sveit. Dagbjört hefur verið Jens góð kona og, nærgætin. Það þekki ég vel. Og traust mun hún hafa reynzt í veikindastríði hans síð- ustu mánuðina, þegar mest á reyndi, er hann lá á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Hafi hún þökk og virðingu fyrir það. Jens andaðist á spítalanum í Stykkishólmi 18. október. Þessi fátæklegu orð mín verða ekki nein tæmandi frásögn á ævi- ferli og störfum Jens Nikulás- sonar, aðeins fáein kveðjuorð. Eins og nærri má geta, hefur hann tekið þátt f félagsmálum sveitar sinnar á sinni löngu ævi. Hefur hann meðal annars setið löngum í hreppsnefnd og sómt sér þar vel. Jens var greindur vel og hafði gaman af lestri góðrá bóka. Hann var sérlega ræðinn og skemmti- legur í viðræðum. Glaðlegur var hann í viðmóti og barngóður. Hann var bjartsýnismaður, en skapfastur og ákveðinn í skoð- unum og hélt á málum af festu, ef því var að skipta. Hann var sér- lega góður nágranni, bóngóður og t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐJÓNS GÍSLASONAR Girnli I GarSi. Valdis Jónsdóttir, systkini hins látna og aSrir vandamenn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur minnar og móður- systur RAGNHILDAR MAGNÚSDÓTTUR Fyrir hönd aðstandenda Marin Magnúsdóttir, Júliana Mathiesen. hjálpsamur. Hann var höfðingi heim að sækja og gleðimaður í góðra vina fagnaði eins og sagt er. Að lokum ætla ég að ávarpa Jens nokkrum orðum í kveðju- skyni og minnast örfárra atvika af svo ótal mörgum, sem í hugann koma. Góði vinur. Margs er að minnast að leiðarlokum frá liðnum dögum. Ég minnist þín, er þú komst sem gestur á heimili okkar hjónanna og heimili foreldra minna. Þá skildir þú alltaf eftir þig hlýju og ánægju, og handtakið þitt var þannig, að manni leið alltaf vel eftir það. Ég minnist þín, er ég kom gestur á heimili ykkar Dag- bjartar. Þar ríkti einlæg gestrisni og höfðingsskapur, og umræðu- efnin voru óþrjótandi, svo að við- staðan varð oft lengri en ætlað var í byrjun. Ég minnist þess, er þú stýrðir báti þínum milli eyjanna í dimm- viðri og náttmyrkrum af þinni alkunnu glöggskyggni og ratvísi. Ég minnist þess, er við reyndum að koma til hjálpar, er heimili þitt í Sviðnum stóð í ljósum logum. Það vissi ég, að var þér þung raun. En ég gleymi því aldrei, hvernig þú tókst á móti okkur, þegar við komum, með sömu hlýj- unni og glettninni og þú varst vanur. Ég verð þér alltaf þakk- látur fyrir þann tíma, sem þú dvaldir á heimili foreldra minna eftir brunann. Þá var oft glatt á hjalla, því að þú hafðir svo gott lag á að ýta erfiðleikunum til hlið- ar af og til, þó ekki væri nú létt fyrir fæti þá dagana. Ég minnist þess, er þú varst beðinn bónar, svo sem að fara ferðir eða annað, hvað þú varst alltaf boðinn og búinn til hjálpar. Það var alltaf gert af fúsum vilja, en aldrei með tregðu. Eg mun minnast þín sem góðs nágranna og vinar, sem setti svip á umhverfið og flutti með sér góðvild og hlýju milli manna. Blessuð sé minning þín. Eg sendi Dagbjörtu og Nikulási og öllu þeirra fólki hjartanlegar samúðarkveðjur og vona, að minningin um góðan dreng verði þeim styrkur i framtíðinni. Danfel Jónsson, Dröngum. Leiðrétting I FYRIRSÖGN á minningargrein um Önnu Margréti Halldórs- dóttur urðu þau mistök hér 1 hlaðinu í gær, að Margrét var sögð Stefánsdóttir. Þessi leiðu mistök leiðréttast hér með. JflorStmMiilíiiía margfnldor markað uðar «zné

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.