Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.11.1973, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR/1. NÓVEMBER 1973 fclk í fréttum Danny Kaye brá sér upp á hljómsveitar pallinn á dögunum og stjórnaði fsraelsku filharmónluhljómsveitinni á tónleikum f Tel Aviv til ágóða fyrir styrktarsamtök hermanna. Að gera það sem ekki má! Nori litla — gerir það sem ekki má! Nori litla er aðeins fjögurra ára gömul og þess er vart að vænta, að börn á þeim aldri séu vel að sér í boðum og bönnum hirðsiðanna. Þegar foreldrar Nori litlu, Akihito krónprins Japans og Michiko prinsessa, héldu frá Tókýó I tíu daga opinbera heim- sókn til Spánar, smellti Nori litla kossi á kinn móður sinnar, fyrsta keisaralega kossinum opinber- lega. Þótt keisarafjölskyldan komi einstöku sinnum fram f sviðsljós- ið — keisaraynjunni Nagako var nýlega leyft að halda sýningu á vatnslitamyndum sínum — þá lætur fjölskyldan úrkynjaða vest- urlandasiði, eins og að kyssast á almannafæri, alveg eiga sig. En framtak Nori litlu virtist vera smitandi, því að við komuna til Madrid gekk Michiko prinsessa að spænska prinsessunni Soffiu og kyssti hana á kinnina. KEITH DÆMDUR Keith Richard, gítarleikarinn Rolling Stones, sem nú er orðinn 29 ára að aldri, var á dögunum dæmdur til greiðslu 205 sterlings- punda sektar (rúm. 41 þús. ísl. krónur) vegna meðferðar fíkni- efna og skotvopna. Þýzk vinkona hans, Anita Ðallenberg, fékk skil- orðsbundna frávísun fíkniefna- brots síns, en svissneski skemmti- krafturinn prins Jean Stanislas Klossowski, sem handtekinn var um leið og hjúin í júní sl. á heimili Keiths í London, verður látinn sæta þyngri dómi fyrir brot sitt. PABLO CASALS OG POPPIÐ Þegar poppið varð fyrst vinsælt hafði Pablo Casals þetta um það að segja: „Það gerir mig dálítið dapran. Ekki vegna tónlistar- innar, sem mun lifa, þegar allt þetta er gleymt. Heldur vegna þessa aumingja fólks, sem verður að hlusta á þennan hávaða þangað til..." Casals, sem lézt fyrir skömmu, 96 ára að aldri, æfði sig á hverjum degi: „Ég held áfram á æfa mig vegna þess að ég held, að mér sé að fara frarn." Visnasöngvarinn Burl Ives missti eitt sinn af Casals, er þeir ætluðu að hittast, elti hann að hóteli hans og söng fyrir neðan gluggann hans „Big Rocky Candy Mountain". Casals beið þar til Ives var búinn, teygði sig þá í sellóið og svaraði með því að leika kaf la úr Bach-sónötu. I Þýzkalandi lék Casals á Beethoven-hátíð í Beethoven- húsinu, þar sem aðeins voru sæti fyrir 50 áheyrendur. Pablo Casals neitaði að láta færa tón- leikana yfir í stærri sal. „Tón- leikarnir eru til heiðurs Beethoven," sagði hann, „ekki mér.“. ást er.... í BÍÓ Á BYLTINGARDAGINN átti á gerast, missti Sadat á ein- hvern hátt af undirbúningsorð- sendingunni og eyddi kvöldinu í kvikmyndahúsi. Þegar hann loks komst að því, hvað var að gerast, voru höfuðstöðvar Farúks í Kaíró þegar fallnar. Samt sem áður var Sadat valinn til að tilkynna um valdatökuna I Kaíró-útvarpið... Hann hefur löngum verið áhugasamur borðtennisleikari. Er hann var í heimsókn á Bandaríkj- unum fyrir nokkrum árum, rölti hann í gegnum fornbókasölur og keypti heildarsafn ritverka Zane Grey (sögur úr villta vestrinu!). Einn fréttamanna Time sendi fréttir frá Israel: I bráðabirgðaframvarðarstöðv- um innan landamæra Sýrlands hittum við Chaim Topol — kvik- myndastjörnuna, sem lék Tevje mjólkurpóst í myndinni Flðlaran- um á þakinu. Um leið og stríðið h ''st, flýtti Topol sér heim frá don til að bjóða sig fram til arfa. Hann var skipaður fylgd- armaður erlendra fréttamanna. Hermennirnir, sem hópuðust kringum leikarann, urðu ekki fyrir vonbrigðum. „Ég fór með nokkra fréttamenn út í Sinai um daginn," sagði hann glottandi við mennina. „Þegar við nálguðumst skothríðina, sagði einn þeirra, að hann þyrfti að fara aftur til Tel Aviv, því að hann væri að verðaof seinn að senda fréttir." Hermenn- irnir hlógu. Þegar regntíminn stendur yfir f Kólombfu, þarfnast menn eínhvers konar þægilegra farartækja — til að losna við að plampa um f forinni — og ef bfll er ekki til reiðu, koma asni og regnhlíf alveg jafnt að gagni, eins og drengirnir tveir sýna og sanna. Strfð Israelsmanna og Araba hefur að sjálfsögðu skipað hæstan sess í skrifum fréttatímarita eins og Time og Newsweek. I tengslum við frásagnir af átökunum sjálf- um og stjórnmálatogstreitunni að baki þeirra hafa tímaritin einnig fjallað nokkuð um ýmsa þá merkismenn, sem mjög eru nú i sviðsljósinu. Time segir í nýlegu tölublaði nokkuð frá ævi Sadats, forseta Egyptalands, og skulu hér tíndir til nokkrir molar úr þeirri frá- sögn: I siðari heimsstyrjöldinni var Sadat fangelsaður sem pólitískur undirróðursmaður, eftir að tvær fáránlega klaufalegar ráðagerðir um að smyglafyrrverandi egypzk- um hershöfðingja til Þjóðverja höfðu misheppnazt. Fyrst bilaði bíllinn, sem nota átti við undan- komuna, síðan hrapaði flugvél, sem nota átti við flóttann, í flug- taki. Asamt tveimur njósnurum nasista, sem voru samstarfsmenn hans í málinu, var Sadat svikinn af magadansmey og handtekinn Ásamt öðrum mynduðu Sadat og Nasser kjarnann í þvi, sem varð Nefnd frjálsra foringja, sem að lokum vék Farúk konungi frá völdum árið 1952. Þrátt fyrir ákafa andstöðu við konungdæm- ið, missti Sadat næstum því af valdaráninu. Kvöldið, sem það ...aö hlusta á frœgðar sögurnar hans úr golfinu afáhuga ITm Reg U.S. Pot OfL—All ríghit rettrved C 1973 by lot Angelet Timet HÆTTA A NÆSTA LEITI — Eftir John Saunders og Alan McWilliams A SHORT LATER TlMEj4 PHEW/ GOLDIE MARKEE DOESN'T WASTE MONEY ON FANCY OFFICES / MAYBE SHE WANTS HER PLANS TO MAKE A MOVIE KEPT secret/ I G.M. -L PwroucTioHS TEMPORARY OFFICES J WALK IN s *■ Hæ Lee Roy, hvað segirðu um að koma yfir I íþróttahúsið og spila handbolta? Ekki I dag drengur, ég á ... mjög mikil- vægt stefnumót. (2. mynd) Off, Goldie Markee eyðir ekki peningum I dýrar skrifstofur. Kannski vill hún halda kvik- myndagerðinni leyndri. (3. mynd) Sýnið þolinmæði gott fólk. Goldie Markee mun tala við ykkur öll. Eitt I einu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.