Morgunblaðið - 01.11.1973, Side 12

Morgunblaðið - 01.11.1973, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1973 Magnús Finnsson skýrir frá ferð sinni til Grimsby og Hull VIÐ togaraskipstjöra frá Hull átti ég eftir að ræða, Ég hafði sérstak- an áhuga á að ræða við Richard Taylor, sem a.m.k fjórum sinnum hafði verið tekinn fyrir ólöglegar fiskveiðar við Island á liðnum árum. Ég hafði áhuga á Taylor, því að hann hafði m.a. verið dæmdur í 45 daga varðhald á Islandi. Ég gerði því ítrekaðar tilraunir til þess að ná af honum tali, en allt kom fyrir ekki. Hann er skipstjóri á nýlegum skuttog- ara, sem ber nafn skáldsins C.S. F'orester og skipið átti að sigla klukkan 12 á hádegi seinni dag- inn, sem ég dvaldist f Hull. Ég hringdi á klukkustundar fresti heim til Taylors, en ávallt var mér tjáð, að hann myndi koma innan stundar heim. Loks lágu skilaboð fyrir mér í síðasta skiptið, sem ég hringdi og mér var John C. Lilley, skipstjóri á King- stom Amber H 326. tjáð að ég gæti hitt Taylor við skipshlið um morguninn — áður en skipið léti Ur höfn. Égæddi því niður að togaranum, en þar var enginn skipstjóri og sögðu skip- verjar að hann myndi sjálfsagt ekki hoppa um borð, fyrr en rétt í því að látið yrði úr höfn. Ég beið því, en gafst að lokum upp, þegar klukkan var langt gengin í 12, þar eð ég vissi að Taylor myndi ekki gefa sér tíma til að ræða við mig. Ég fór því til vinar míns frá deg- inum áður, Tom Nielsen og sagði við hann, að hann yrði að benda mér á góðan og gegnan skipstjóra, sem nýlega hefði komið af íslandsmiðum. „Já, hér er einn alveg nýkominn í land,“ sagði sagði Nielsen og kynnti mig fyrir lágvöxnum og þreknum manni, dökkum á brún og brá. Þetta var John C. Iilley, skipstjóri á Kings- ton Amber H 326. Ég spurði Lilley, hve lengi hann myndi verða í landi og sagði hann að hann myndi fara í 14 daga frí. „Hvernig er að veiða innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar við Island í óþökk Islendinga?" spurði ég. Lilly dæsti, brosti svo ku- lítið út í annað munnvikið og sagði: „Það er mjög slæmt. I raun óttast maður stöðugt að varðskip birtist skyndilega. Þetta er andleg áreynsla og truflar mann svo sannarlega við veiðarn- ar. Og ekki veitir skipstjóranum af að hafa alla athyglina við veið- arnar. Veiðimöguleikarnir eru því allmikið skertir". „Hefurðu misst vörpuna nokkurn tíma?“ spyr ég og nú hristir þessi þrekni skipstjóri höfuðið. „Nei,“ segir hann, ég hef verið fjaska heppinn og aldrei lent í útistöðum við landhelgizgæzluna — ég hef ekki einu sinni orðið vitni að neinni áreitni," og nú brosir Lilley. Ég spyr nú skipstjöran að þvf, hvort honum hafi fundizt það rétt ákvörðun brezku stjórnarinnar, að senda brezka flotann inn á hin umdeildu svæði. „Já, það var hárrétt ákvörðun, því að ef flot- inn hefði ekki komið, er ég mjög hræddur um að til einhverra átaka hefði komið. Hefði'sú raun- in hefði allt eins getað orðið manntjón og ég held að allir geti þakkað forsjóninni fyrir að til svo alvarlegs ástands kom aldrei." En hvað finnst þá Lilley um það að ákveðið hafi verið að draga flot- ann til baka — og hann svarar: „Ég er ekki á móti því, því að ég met allt mikils, sem gert er til þess að koma á friðsamlegri lausn þessa deilumáls. Ég vona einlæg- lega, að unnt verði að ná sam- komulagi. Þessar þjóðir hafa stað- ið saman í svo mörg ár, að manni tekur sárt að svo skyldi fara, sem raun ber vitni.“ Að lokum sagði Lilley að í raun væri skipstjöri á Islandsmiðum ofkeyrður af vinnu, ef hann ætti að hafa eitthvað upp úr krafsinu. Skipstjóri getur engum treyst nema sjálfum sér og hann verður naumast að vera á vakt allan sólarhringinn — svo þrúgandi er ástandið og varðskipin kvað hann eiga sök á þessu. Og þá er lokið þessum greinar- stúfum, sem ég skrifaði eftir för mína til Grimsby og Hull, „óvina borganna“, sem mér kom mjög á óvart, hve vinsamlegar voru. Aldrei sagði neinn hnjóðsyrði um Islendinga í þessum borgum, þvert á móti heyrði ég og fann skilning á sérstöðu Islendinga. „Við gerum okkur grein fyrir því, hve íslendingar eru háðir fisk- veiðum,“ var oft sagt. En menn voru á öndverðum meiði við okk- ur íslendinga um það, á hvern hátt bæri að ná takmarkinu, fisk- vernd og fiskfriðun. Þar Iiggur hin raunverulega deila, sem allt snýst um. Kannski lýsti Austin Laing framkvæmdastjóri Sam- Frá höfninni f Hull. „Andleg áreynsla að veiða innan fisk- veiðilögsögunnar’ ’ NÍUNDA GREIN bands brezkra togaraeigenda þessu bezt er hann sagði: „Við segjum ekki í sjálfu sér, að það sé rangt af ykkur að færa fiskveiði- lögsögu ykkar út í 50 100 eða jafnvel 200 mílur. Deilan stendur aðeins um það, hvernig tslending- ar ætla að ná þessu takmarki." Athugasemd. I sjöttu grein minni, sem birtist í blaðinu á sunnudag, urðu þau mistök, að myndir víxluðust af viðmælendum mínum tveimur, sem ég ræddi við. Undir mynd af Norman Coxon stóð nafnið George Andrews og öfugt. Þetta leiðréttist hér með. -mf. Stefnir Ólafsson, Reykjaborg, sextugur HANN Stefnir í Reykjaborg við Múlaveg er sextugur í dag! Þetta hljómar eins og upphrópun og er það að vísu. En við heyrum engan lúðraþyt, þvf að þetta er ekki dagur trómeta og básúna, heldur venjulegur virkur dagur iðju- manns í áfangastað. Stefnir Ölafsson er fæddur þann 1. nóvember 1913 við Klapparstíginn hér í Reykjavík, í húsi Jóns beykis, sem einu sinni var eg hét svo. Þrem árum síðar, árið 1916, fluttist hann með for- eldrum sínum, Ölafi Grímssyni trésmið og Ingigerði Jónsdóttur, að Reykjaborg, nýbýli, sem for- eldrar hans reistu og var þá langt fjarri allri bæjarbyggð. Stefnir man margt og kann frá mörgu að segja. Hann hefur lifað tvenna tímana, tvær heimsstyrj aldÍTj influensuna mannskæðu 1918 og byltingatima í atvinnu- og þjóðlífi, sem orðið hafa á síðustu áratugum. Hann man fátækt og umkomuleysi fólks frá fyrri ár- um. Hann hefur misst tvær eiginkonur og þess vegna ekki farið varhluta af sorg og söknuði, þeim sársauka, sem svo oft hlýtur að fylgja lífinu. Stefnir er barn Rvík. sem einu sinni var lítill bær, en er nú orðin heil heimsborg. Ungur, 16 og 17 ára, var hann tvo vetur í vinnumennsku að Bústöðum, en siðar alltaf heima. Hann tók við búí af foreldrum sínum, og hefur búskapur verið ævistarf hans, líf ogyndi. Margt er forvitnilegt víðar en í ranni kóngsins. Mikil fjölbreytni er í búskaparháttum Stefnis, og margt spurult bamsaugað hefur skyggnzt þar um gáttir til að virða fyrir sér húsdýrin og háttu þeirra. Og barngóður er Stefnir og skilningsríkur á eðli þeirra og hátterni. Og hlýr er hann og um- burðarlyndur við þessa smávini sína. Að eðlisfari er hann sérstak- lega greiðvikinn og hjálpsamur, og er mér kunnugt um, að í honum eiga hinir minnstu bræður tryggan vin með örlátt hjarta, sem alltaf vill rétta hjálparhönd þeim, sem bágt eiga og um sárt að binda. Dýravinur er hann alveg sérstakur og dýralæknir af Guðs náð. Stefnir er einn af hinum dag- farsprúðu, hljóðu þegnum, sem unað hafa glaðir við hlutskipti sitt og hlutverk, óáreitinn mann- vinur, traustur borgari, sem gefið hefur meira en hann hefur þegið. Litla húsið hans Reykjaborg við Múlaveg, er í dag sem áður opið vinum hans. Sextugur vill hann sizt flýja vini sína. HUsið hans er lágreist, en það hefur verið kastali hans í 57 ár og þar eru dyrnar breiðar. Við, vinir Stefnis, óskum hon- um í dag allra heilla, gæfu og gengis á þessum tímamótum í lífi hans. Grfmur Grímsson. Veiðarfæri brunnu Á þriðjudagsmorgun kom upp eldur f gömlu útihúsi að Neðri- Brunnastöðum á Vatnsleysu- strönd. Voru geymd þar veiðar- færi og skemmdust þau talsvert, m.a. grásleppunet og þorskanet. Talið er, að kviknað hafi f út frá rafmagni. Ekið utan í bíl Á NlUNDA tímanum á þriðju- dagsmörgun varð gul Mercedes Benzfólksbifreið, R-3892, fyrir tjóni á gatnamótum Hringbrautar og Hofsvallagötu! Mun bláleit Fiat-bifreið hafa strokizt utan í hana og valdið skemmdum neðan til á vinstri hlið. ökumaður Fiat- bifreiðarinnar og vitni eru beðin að hafa samband við lögregluna vegna þessa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.