Morgunblaðið - 01.11.1973, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1973
19
Frá fyrstu ráðstefnu F.t. S., sem haldin var árið 1969.
Félag íslenzkra stórkaupmanna held-
ur ráðstefnu á morgun og laugardag
FÉLAG íslenzkra stórkaupmanna
gengst á morgun, föstudag, og á
laugardag fyrir ráðstefnu fyrir
félagsmenn sína um ýmsar hliðar
heildverzlunar og stöðu þessarar
atvinnugreinar á tslandi f dag. Er
þetta þriðja ráðstefna félagsins af
þessu tagi, og sagði Ami Gests-
son, formaður F.l.S. f samtali við
blaðið, að tilgangurinn væri, að
þjappa mönnum saman um
sameiginieg hagsmunamál þeirra
og að þeir gerðu sér grein fyrir
stöðunni í hinum ýmsu
viðfangsefnum. Fyrri ráð-
stefnurnar, sem haldnar voru
árin 1969 og 1971, voru ákaflega
vel sóttar, — um 70-100
manns tóku þátt f þeim, en fé-
lagsmenn eru nú um 200. Sögðust
þeir Ami Gestsson og Júlfus S.
Ólafsson, framkvæmdastjóri
félagsins, vonast eftir jafngóðri
þátttöku nú. Ráðstefnan er haldin
[ Kristalssal Hótel Loftleiða.
Ráðstefnan hefst föstudaginn 2.
nóvember kl. 9 f.h. með ávarpi
formanns F.Í.S., Arna Gestssonar.
Síðar um daginn verða flutt fjög-
ur erindi, og munu síðan umræðu-
hópar fjalla um og ræða nánar
þau atriði, sem Jón Sigurðsson
hagrannsóknarstjóri mun flytja
erindi um ath. á afkomu heild-
verzlunar 1971 og 1972. Þetta
mun vera fyrsta rannsókn af
þessu tagi um hagi verzlunarinn-
ar, en verzlun hefur orðið nokkuð
útundan í slíkum könnunum
hingað til, og sagði Árni Gestsson,
að vonir stæðu til að mikill fengur
yrði að þeim upplýsingum, sem
athugun þessi leiddi í ljós, er
ákvarðanir yrðu teknar um lausn-
ir og leiðir í þessum efnum.
Þá munu Júlíus S. Ólafsson og
Jónas Þör Steinarsson, skrifstofu-
stjóri, flytja erindi um gagnasöfn-
un og upplýsingaöflun innan
heildverzlunar, og er í þvi sam-
bandi gerð grein fyrir stöðu
þeirra mála á hinum Norður-
löndunum, en Jónas Þór hefur
kynnt sér hana.
Gunnar Snorrason formaður
Kaupmannasamtakanna og Gísli
V. Einarsson framkvæmdastjóri
flytja erindi um samskipti heild-
sala og kaupmanna, en vöru-
dreifingin og þau samskipti sem
hún byggir á eru að sjálfsögðu
mikilvægt atriði í málefnum
verzlunar.
Síðar á föstudag er svo kynning
á starfsemi Heildar h.f. sem
Jóhann J. Ólafsson og Guðmund-
ur Þórðarson annast. Heild h.f. er
félag 20 heildverzlana, sem staðið
hefur að byggingu sameiginlegra
húsakynna fvrir þær. Hefur þetta
í för með sér mikla hagkvæmni
við samræmingu ýmissa rekstrar-
liða slíkrar starfsemi. Þegar
hefur um helmingur þessara
heildverzlana flutzt inn í hina
nýju byggingu, Sundaborg — og
að lokinni þessari kynningu fara
ráðstefnugestir í heimsókn
þangað.
Síðari dagur ráðstefnunnar,
laugardagur, hefst á því að fjallað
verður um niðurstöður umræðu-
hópanna, en kl. 10.15 flytur Adolf
Sonne, forstöðumaður Mono-
poltilsynet í Danmörku, erindi
um verð- og einokunarstefnuna,
sem tæki i efnahagsmálum, en
Sonne átti mikinn þátt i mótun
frumvarps til laga um einokun,
hringamyndanir og eftirlit með
verðlagi, sem Iagt var fram á
Alþingi árið 1969. 1 erindi sínu
mun Sonne m.a. ræða mis-
munandi skipulag þessara mála á
Norðurlöndunum og viðar.
1 þessu sambandi sagði Ami
Gestsson í samtali við Morgun-
blaðið, að stórkaupmenn teldu
það verðlagskerfi, sem Islend-
ingar hefðu búið við á undanförn-
um árum, algerlega hafa gengið
sér til húðar, og væri til skaða
fyrir innflytjendur og landsmenn
alla, þar eð það byði ekki upp á
verðsamkeppni. „Það er sann-
færing okkar,“ sagði Ámi, ,,að
væri leyfð’ frjáls verðmyndun á
innfluttri vöru með heilbrigðri
samkeppni, þá hefði það áhrif á
vöruverð til lækkunar." Hann
sagði, að eins og málum væri nú
háttað þá væri t.d. verðlagsnefnd
ekki fagleg heldur pólitísk. „Það
verðlagskerfi, sem við höfum nú,
var stríðsfyrirbrigði í öðrum lönd-
um, og flest lönd hafa losað sig
við það og tekið upp frjálsa verð-
myndun.“
Að loknu erindi Adolf Sonne
verða svo umræður og fyrirspurn-
ir, en ráðstefnunni lýkur með
hádegisverði.
Stefnt er að þvf að Félag
íslenzkra stórkaupmanna haldi
slíkar ráðstefnur annað hvert ár.
— Leitin að
sprengju . . .
Framhald af bls. 16.
talin henta til viðvarandi her-
ferðar. Belfast er svo „gegn-
sýrð“ ofbeldi, að jafnvel stór-
felldar sprengingar hafa ekki
áhrif. Aftur á móti er Provisi-
onalarmurinn hæstánægður
með áhrif sprenginganna í
London. Einn þeirra sagði:
„Þetta er bezta auglýsingin,
sem Provisionalarmurinn
hefur fengið í tvö ár.“
Tilgangur herferðarinnar er
fjórþættur. 1 fyrsta lagi, aðjie-
yðæbrezku stjórnina til beinna
viðræðna við Provisional-IRA. I
öðru lagi, að koma af stað póli-
tískum þrýstingi innan Bret-
lands í þá átt, að neyða brezka
herinn til þess að taka upp
miklu harðneskjulegri aðgerðir
á Norður-Irlandi, aðferðir sem
mundu auka aftur fylgi IRA
meðal kaþólskra. I þriðja lagi,
að neyða brezku stjórnina til
þess að grípa til ráðstafana sem
eru fjandsamlegar Irum, til
dæmis ferðatakmarkana og út-
gáfu skilríkja, og stofna þar
með í hættu batnandi samskipt-
um ríkisstjórnanna í Lundún-
um og Dyflinni. I fjórða lagi, að
styðja við bakið á sakborn-
ingum, sem eru ákærðir fyrir
að hafa staðið að sprengingum í
London í marz.
Edward Heath forsætisráð-
herra hefur lýst því yfir, að
„þeirra, sem beri ábyrgðina á
ofbeldisverkum, verði misk-
unnarlaust leitað f hverjum
krók og kima Bretlands".
Spurningin væri sú, hvort hópi
manna ætti að takast að ná
fram með ofbeldi því, sem þeir
hefðu ekki getað náð fram í
frjálsum kosningum.
Sprengingarnar hafa borizt
út fyrir Bretland. Á fyrstu vik-
um herferðarinnar voru
sprengjur sendar til sendiráða
Bretlands í Paris og Washing-
ton, þar sem kvenritari særðist
alvarlega. Síðar voru bré'f-
sprengjur sendar sendiráðum
Breta í Lissabon, Gíbraltar og
Zaire. Tengsl kunna að vera á
milli sprengjuherferðarinnar
og sprenginga hjá brezka setu-
liðinu í Þýzkalandi. Vitað er, að
IRA hefur samband við þær
sellur Baader-Meinhof-hóps-
ins, sem enn eru eftir. Sam-
eiginlegur fundur var haldinn í
Dyflinni i maí 1972 með þátt-
töku fleiri hryðjuverkasam-
taka. Tæpan hálfum mánuði ef-
tir þann fund varð sprenging í
vestur-þýzka sendiráðinu í
Dyflinni, og var talið að Baad
er-Meinhoff-hópurinn hefði
verið þar að verki.
I ágúst bárust þær fréttir, að
belgíska lögreglan hefði undir
höndum sannanir um, að sam-
tök marxista í Belgíu kynnu að
hafa skotið skjólshúsi yfir fé-
laga úr IRA. Fjórða alþjóða-
sambandið, sem hefur aðal-
stöðvar í Brússel, er talið hafa
falið þá í Liege í austurhluta
Belgíu og á Brússel-svæðinu. Á
það er einnig bent, að IRA
hefur nána samvinnu og sam-
band við AI Fatah og Svarta
september. Þannig hefur IRA
meðal annars aðstöðu til æfinga
í Arabalöndum.
I Englandi hefur verið um
það rætt, vegna upplýsinga
brezka hersins í Belfast, að
sprengjuherferðin geti haldið
áfram í tvo til þrjá mánuði, þótt
hlé virðist hafa orðið á henni í
bili. Fólk hefur særzt, bæði af
völdum bréfsprengja og
sprengja, sem hefur verið
komið fyrir á járnbrauta-
stöðvum. Þannig getur herferð-
in kostað mannslíf. Sérstakar
öryggisráðstafanir hafa verið
gerðar vegna konungsfjölskyld-
unnar og stjórnmálamanna. En
hryðjuverkamenn geta alltaf
fundið einhverja smugu. Þeir
hafa um mörg skotmörk að
velja. Erfitt verður að koma við
vörnum.
BLAÐBURÐARFÓLKÓSKAST
Upplýsingar í síma 1 6801.
ÚTHVERFI
Nökkvavogur — Bugðulækur
hluta af Blesugróf.
AUSTURBÆR
Sjafnargata — Freyjugata 1—25,
Ingólfsstræti
Hraunteigur — Hverfisgata 63—125
Freyjugata 28—49
Bergstaðastræti — Miðtún.
Laufásveg 2 — 57.
Laugavegur frá 101 —171
Skipholt frá 54—70
Hjálmholt og Vatnsholt
GARÐAHREPPUR
Börn vantartil að bera út Morgunblaðið
á Flatirnar
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 52252.
GARÐUR
Umboðsmaður óskast í Garði. — Uppl. hjá
umboðsmanni, sími 7164, og í síma 10100.
Óskum eftir að ráða sendil á ritstjórn blaðs-
ins vinnutími 1—6
Buglýslng
um skomm bifrelffa I lögsagnarumdæmi
Reykjavlkur
Fimmtudagur 1. nóv R-28601 — R-28600
Föstudagur 2. nóv 2. nóv R-28801 — R-29000
Mánudagur 5. nóv. R-29001 — R-29200
Þriðjudagur 6 nóv R-29201 — R-29400
Miðvikudagur 7. nóv R-29401 — R-29600
Fimmtudagur 8. nóv. R-29601 — R-29800
Föstudagur 9. nóv R-29801 — R-30000
Mánudagur 1 2. nóv. R-30001 — R-30200
Þriðjudagur 1 3. nóv. R-30201 — R-30400
Miðvikudagur 1 4. nóv R-30401 — R-30600
Fimmtudagur 1 5. nóv R-30601 R-30800
Föstudagur 1 6 nóv. R-30801 — R-31000
Mánudagur 1 9. nóv R-31001 — R-31 200
Þriðjudagur 20. nóv. R-31201 — R-31400
Miðvikudagur 21 nóv R-31401 R-31600
Fimmtudagur 22. nóv R-31601 — R-31800
Föstudagur 23. nóv. R-31801 — R-32000
Mánudagur 26. nóv. R-32001 — R-32200
Þriðjudagur 27. nóv. R-32201 — R-32400
Miðvikudagur 28 nóv R-32401 ' R-32600
Fimmtudagur 29 nóv R-32601 — R-32800
Bifreiðar sem bera hærra skráningarnúmer en R-32800, og ekki
hafa mætt til aðalskoðunar, skulu einnig koma þennan dag.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins
Borgartúni 7, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl
8.45 til 16 30.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til
skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild
ökuskirteini. Sýna ber skilríki fyrir þvl, að bifreiðaskattur og vátrygging
fyrir hverja bifreið sé i gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki i
bifreiðum sínum, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda ríkisút-
varpsins fyrir árið 1973
Athygli skal vakin á þvi, að skráninqarnúmer skulu vera vel læsileg.
Vanræki einhver a8 koma bifreið sinni til skoðunar á
auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr um-
ferð hvar sem til hennar næst.
Til athugunar fyrir bifreiðaeigendur:
Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna Ijósastillingar-
vottorð.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavík, 26 október 1973
Sigurjón Sigurðsson