Morgunblaðið - 01.11.1973, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR l. NÖVEMBER 1973
31
ImttafrEitir uonmflsms
Nýbakaðir Reykjavfkurmeistarar KR f körfuknattleik, ásamt þjálfara sfnum, Einari Boilasyni og Einari Sæmundssyni, formanni KR. KRing-
ar verða örugglega í baráttu um Islandsmeistaratitilinn f vetur, eins og undanfarin ár.
Metþátttaka í körfuknattleik
— 29 lið keppa 1 meistaraflokki
ISLANDSMÖTIÐ í körfuknatt-
leik hefst n.k. laugardag. Um al-
gjöra metþátttöku er að ræða f
mótinu að þessu sinni, 30 félög
senda alls 85 lið til keppni, og við
bætist svo Minni-bolta-mót sem
haldið verður eftir áramót. Tala
keppenda í Islandsmótinu mun
þvf verðanær 1000, og hafa aldrei
fleiri keppt í körfuboltamóti hér-
lendis. Mót þetta verður mjög
umfangsmikið í framkvæmd, þvf
leikið verður á mörgum stöðum.
Leikstaðir eru: Seltjarnarnes,
Njarðvík, Hafnarfjörður, Akur-
eyri, Eskif jörður og Isafjörður.
Danir
1 atvinnu-
mennsku
DANSKA 1. deildar keppnin í
knattspyrnu hefur verið
óvenjulega fjörug og góð í
sumar, og árangur danska
landsliðsins hefur einnigverið
með ágætum. Er skemmst að
minnast þess, að Danir gerðu
jafntefli við Ungverja í leik á
Idrætsparken, sem fram fór
nýlega.
Danir þakka framfarir
knattspyrnumannanna þvf, að
f sumar hefur verið óvenju-
lega mikið um peninga-
greiðslur til Icikmannanna, og
má raunar segja, að flestir
danskir knattspyrnumenn,
sem leika með 1. deildar
liðum, séu orðnir háfgildingí
atvinnumenn.
Sá böggull hefur fylgt
skainmrifi að erlend knatt-
spyrnufélög kaupa nú hvern
knattspyrnumanninn af
öðrum frá Dönum. Þannig
hefur bezti bakvörður Dana,
Viggo Jensen, nú gert samning
við Bayern Múnchen og einn
bezti sóknarleikmaðurinn,
Tommy Hansen, sem er á
förum til Frakklands, þar sem
hann mun leika með knatt-
spyrnuliði Metzborgar. Fékk
sá sfðarnefndi 250 þúsund
danskar krónur við undirritun
samningsins, en sá fyrrnefndi
snöggtum hærri upphæð.
Að vonum beinist athygli
flestra að keppninni í 1. deild, en
i henni leika 8 lið. íslandsmeistar-
arnir ÍR, KR, Armann, ÍS, Valur,
UMFN, HSK, og nýliðarnir
UMFS, sem sigruðu í 2. deild í
fyrra eftir ársdvöl þar. Leikið
verður á Seltjarnarnesi og f
Njarðvík, en þar leika UMFN sina
heimaleiki í nýju glæsilegu
íþróttahúsi, og einnig munu Borg-
nesingarnir leika sína heimaleiki
þar.
2. deild.
Keppnin í 2. deild fer nú fram
með öðrum hætti en áður. Vegna
stofnunar 3. deildar leika nú að-
eins 6 lið í 2. deild í stað 10 í fyrra.
Liðin leika í einum riðli, og Ieikið
verður heima og heiman. Þátt-
tökulið eru: Haukar, Grindavík,
Þór, Í.M.A, Snæfell og Breiðablik.
Leikstaðir eru Seltjamarnes,
Hafnarfjörður, Akureyri, Njarð-
vík, og e.t.v. Stykkishólmur.
3. deild.
Nú er í fyrsta skipti leikið í 3.
deild, og sýnir fjöldi þátttökulið-
Gagnstætt þvi, sem verið hefur
með Olympíuleika, munu vetrar-
leikarnir í Innsbruch árið 1976
ekki verða mjög kostnaðarsamir.
Framkvæmdanefnd leikanna.und
ir forystu borgarstjóra Vinar,
Alois Luggers, hélt nýlega blaða-
mannafund, þar ser.i skýrt var
frá áformum nefndarinnar.
Sagði Lugger, að áætlaður
kostnaður við leikana yrði um
2500 millj. króna. Hann
sagði, að framkvæmda-
nefndin hefði ákveðið að
reyna að stilla öllum íburði við
leikana mjög í hóf og kanna,
hvernig það mæltist fyrir. Stöðva
yrði þá þróun, að aðeins auðug
lönd gætu haldið leikana, og
kapphlaupið, sem rikt hefði um
að gera betur en næsti fram-
kvæmdaaðili á undan hefði gert.
Við munum kalla þetta „einföldu
01ympíuleikana“, sagði Lugger —
„og leggja áherzlu á íþróttirnar,
en ekki iburðinn. Þetta þýðir þó
ekki það, að við munum ekki
anna að ekki var vanþörf á að
stofna til keppni þar. Alls taka 15
lið þátt í keppninni, og er það
mun meira en reiknað hafði verið
með. Leikiðer i öllum landsfjórð-
ungum, og í fyrsta skipti leika lið
frá Austfjörðum með. Það er
ánægjuleg þróun, að fleiri félög
senda lið til keppni i m.fl. enda
körfuknattleikur iðkaður mjög
viða á landinu. Liðin Ieika í fjór-
um riðlum, og er riðlaskipting
þessi:
Austurlandsriðill: Leiknir
(Fáskrúðsfirði), Eiðaskóli, Hug-
inn (Seyðisfirði), Spyrnir (Egils-
stöðum), Þróttur (Neskaupstað),
Austri (Eskifirði). Leikir í þess-
um riðli fara fram á Eskifirði, og
hefur Austri umsjón með fram-
kvæmd leikjanna.
Norðurlandsriðill: K.A.
(Akureyri), Tindastóll (Sauðár-
krókur), Ungmennasamband
Vestur-Hunvetninga.
Vestfjarðariðill: Hörður
(Patreksiirði), Körfuknattleiks-
félag ísafjarðar. Leikið verður á
Isafirði.
bjóða íþróttafólki og áhörfendum
upp á fullkomna aðstöðu, á meðan
á leikunum stendur.“
Það fer ekki á milli mála að
blakfþróttin er f miklum vexti
hér á Iandi og er þegar orðin
vinsæl skólafþrótt. Vfkingur
gengst fyrir hraðmóti í blaki um
helgina og verða þátttakcndur f
mótinu frá tíu félögum, en það er
mun meiri þátttaka en búist var
við.
Á móti þessu verður i fyrsta
skipti keppt eftir nýju keppnis-
fyrirkomulagi hér á landi. Keppt
verður eftir tíma, hver leikur
2x10 mfnútur. Verði loturnar
jafnar, ráða stig í hverri lotu úr-
slitum. Þá er keppnin ekki út-
sláttarkeppni, heldur verður
Suðurlandsriðill: Grótta, Fram,
F.H., I.K. (Keflavík).
Leikið verður í Hafnarfirði,
Njarðvík og á Seltjarnamesi.
Um helgina verður leikið í öll-
um deildunum, og einnig hefst
keppnin í öðrum flokkum. Hlé
verður gert á keppninni í 1. deild
11. nóv. vegna U.S.A. ferðar
landsliðsins, en keppnin hefst aft-
ur 5. jan. Ekki verður samt um
„dauðan" tíma að ræða á meðan,
því leikið verður af fullum krafti
í ölium öðrum flokkum og deild-
um.
M. fl. kvenna. Mótanefnd K.K.Í.
hefur ákveðið að keppnin í m.fl.
kvenna fari fram á Akureyri um
páskana. Þátttökuliðunum átta
verður þá væntanlega skipt í tvo
riðla og mótinu lokið af yfir
bænadagana. Islandsmótinu lýk-
ur skömmu eftir miðjan apríl.
gk.
Námskeið
r • r 1 r
i judo
JÚDÖFÉLAG Reykjavíkur hefur
ákveðið að gangast fyrir nám-
skeiði í júdó fyrir byrjendur og
verða kennarar þeir Michal
Vachun, 4. dan og Sigurður Jó-
hanr.sson, 1. dan. Námskeiðið
hefst 7. nóvember og stendur til 5.
desember. Kennt verður i eina
klukkustund í senn, frá kl. 19—20
á miðvikudögum og 13—14 á
laugardögum. Tékkinn, sem er
bæði menntaður júdómaður og
lærður kennari, leiðbeinir á mið-
vikudögum og Sigurður á laugar-
dögum. Júdófélag Reykjavíkur
hefur aðsetur í Skipholti 21, Nóa-
túnsmegin.
keppt eftir Monrad-kerfi, þannig
að þeir, sem flesta vinningana
hafa, leika saman.
Liðin, sem leika saman í 1. um-
ferð, verða:
íþróttafélag M.H. —
IS (b)
Víkingur (b) —
Iþróttakennarask. Laugarvatni
Hvanneyri —
UMF Laugdæla (ML)
Víkingur (a) —
Breiðablik
IS (a) — KR
Mótið hefst á laugardaginn
klukkan 19.00 I íþróttahúsinu I
Hafnarfirði og verður fram haldið
þar ásunnudaginn kl. 16.
ítalir
halda
uppi
vörn
Dómur I kærumáli lslend-
inga á hendur Itölum vegna
HM leiksins í handknattleik,
sem aldrei fór fram, er ekki
fallinn ennþá. HSl hefur gert
þá kröfu, að Italir verði
dæmdir út úr keppninni og
leikir íslands og Frakklands
verði einir látnir gilda, en Ital-
ir munu halda uppi vörnum I
málinu og krefjast þess, að
leikurinn, sem fara átti fram á
ltalíu, verði dæmdir lslend-
ingum tapaður og ltalía fái þar
með tvö stig í keppninni.
Að sögn Einars Mathiesen,
formanns HSl, lagði sam-
bandið fram með kæru sinni
ítarlega greinargerð um máls-
atvik. Oskaði HSÍ eftir, að
tekin yrði skjót ákvörðun i
málinu, helzt áður en leikur
Islands og Frakklands í undan-
keppninni fer fram í Laugar-
dalshöllinni á sunnudaginn.
Varla er við þvf að búast, að
dómurinn verði fallinn þá. Mál
þetta hefur vakið töluverða at-
hygli, og erlend blöð hafa um
það fjallað. Virðast þau flest á
einu máli um, að leikurinn
verði dæmdur Islendingum
tapaður, enda virðist þeim
málsatvik ókunn.
Aðalforsenda fyrir málsvörn
Italanna er sú, að júgó-
slavneski dómarinn, sem
mætti til leiksins, hafi fengið
undanþágu til þess að dæma
leikinn einn. I nýjustu útgáfu
alþjóðareglnanna er hvergi að
finna ákvæði um, að slika
undanþágu megi veita, og auk
þess liggur það fyrir, að
undanþáguheimild dómarans
var aðeins munnleg.
Einar Mathiesen sagði, að í
samtali sínu við Wadmark, for-
mann skipulagsnefndar al-
þjóða handknattleikssam-
bandsins, hefði komið fram, að
um þrjá möguleika væri að
ræða um málalok. Sá fyrsti
væri, að ítalia yrði dæmd úr
keppninni, annar væri að leik-
urinn yrði leikinn á Italíu og
yrðu þá Italir að greiða allan
kostnað af leiknum og i' þriðja
lagi kæmi einnig til greina að
láta leiki Isiands og Frakk-
lands, sem þegar hafa verið
leiknir við ítalíu gilda, en
hvorugt landið léki aftur við
Italina. Að mati Wadmarks
kom það ekki til greina, að
Italíu yrði dæmdur sigur í
leiknum, enda lagði hann á
ráðin með, að íslendingar
neituðu að leika á ítalíu og
fóru heim.
Sem kunnugt er, var seinni
leik Italíu og Frakklands, sem
fram átti að fara um síðustu
helgi, a.m.k. frestað, en leikur
Islands og Frakklands á
sunnudaginn fer hins vegar
fram. Er slæmt fyrir báðar
þjóðirnar, að ekki skuli vera
fallinn dómur i málinu, áður
en sá leikur hefst, en úrslit
hans skipta sköpum um, hvort
þjóðin kemst i lokakeppnina i
Austur-Þýzkalandi. Verði
ítalía dæmd úr leik ættu
möguleikar Islands að vera
miklir, en verði ítalía hins
vegar áfram með í spilinu,
hafa Frakkarnir þegar gott
forskot á okkur.
„Einfaldir
01ympíuleikar,,
Tíu lið 1 blakmóti