Morgunblaðið - 11.11.1973, Qupperneq 1
40 SIÐUR OG LESBOK
255. tbl. 60. árg.
SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kissinger
í Peking
Peking, 10. nóvember, AP.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna kom til Pek-
ing f dag til fjögurra daga við-
ræðna við Choun En-lai forsætis-
ráðherra Kfna. Þetta er sjötta
Chile
greiðir
bætur
Santiago, 10. nóvember, N1B.
CHILE og Bandaríkin hafa orðið
ásátt um að semja um bætur til
bandariskra fyrirtækja, sem voru
þjóðnýtt í valdatíð Allendes for-
seta. Bandarikin hafa þó fallið frá
kröfum um bætur fyrir kopar-
námurnar Anaconda og
Kennecott.
Chile hefur þegar náð sam-
komulagi um bætur til fyrirtækja
í tólf öðrum löndum, sem einnig
biðu tjón, þegar Allende hóf þjóð-
nýtingar sínar. I staðinn fyrir að
greiða bætur hefur Chile fengið
loforð um efnahagsaðstoð til að
grynna á erlendum skuldum, sem
eru gífurlegar.
Ceausescu til
Washington
Washington, nóv., AP.
TILKYNNT hefur verið í
Washington, að forseti Rúmeníu,
Nicolae Ceausescu, sé væntanleg-
ur þangað og muni ræða við
Nixon forseta 4. desember nk.
Ceausescu kemur til Bandaríkja-
nna til að endurgjalda opinbera
heimsókn Nixons til Rúmeníu í
ágúst 1969. Leiðtogamir munu
bæði ræða sérmál, er varða sam-
skipti Rúmeníu og Bandaríkj-
anna, og helztu mál á alþjóðavett-
vangi.
heimsðkn Kissinger til Peking.
Upphaflega átti hún að hefjast f
byrjun sfðasta mánaðar, en var
frestað vegna strfðsins milli
Arabaog Israela.
Kissinger mun ræða við Chou
um ástandið fyrir botni Miðjarð-
arhafs, Indókína og aukin tengsl
Bandarikjanna og KTna á sviði
viðskipta, vísinda og menningar.
Chi Peng-fei utanríkisráðherra
Kína tók á móti Kissinger á
Pekingflugvelli ásamt öðrum
ráðamönnum og fjölda erlendum
sendimanna.
Talið er, að Kissinger muni
leggja höfuðáherzlu á að sann-
færa Chou um, að kvíði hans
vegna samstarfs Sovétríkjanna
um að koma á friði milli Araba og
Israela, sé ástæðulaus.
Mikil hersýning var á Rauða torginu I Moskvu sl. miðvikudag í tilefni byltingarafmælisins. Sést héi
risastór eldflaug af gerðinni Scarp fara framhjá mynd af Lenin.
Verður skrifað undir í dag?
Afstaða Israela er óljós
Kairó og Tel Aviv, 10. nóv., AP
— NTB.
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóð-
anna skýrði frá þvf f dag, að
vopnahléssamkomulagið milli
fsraela og Araba yrði undirritað
af fulltrúum Egypta og Israela kl.
13.00 að fslenzkum tfma á morg-
un, sunnudag. Undirritunin fer
fram við þjóðveginn milli Súez og
Kafró. Er Mbl. fór f prentun sfð-
degis f gær, hafði ekki verið stað-
fest af hálfu Israela, hvort þeir
myndu undirrita samkomulagið,
en fréttir höfðu borizt af þvf, að
þeir væru óánægðir með það og
vildu ekki undirrita það óbreytt.
Undirritunin átti, skv. upphaf-
legu áætluninni, að fara fram f
dag, en var frestað vegna and-
stöðu tsraela.
Ástæðan fyrir óánægju Israela
er fyrst og fremst sú, að í sam-
komulaginu er hvergi minnzt á
það, að Egyptar opni á ný innsigl-
inguna í Rauða hafið, ennfremur
segja Israelar, að þeir geti ekki
fallizt á ákvæðin um, að þeirflytji
herlið til þeirra staða, sem viglín-
an var 22. október, og segja þeir,
að enginn geti sagt til um, hvar sú
lína var þá. Þá eru Israelar
óánægðir með ákvæðið um, að
þeir eftirláti gæzluliði Sameinuðu
þjóðanna allar eftirlitsstöðvar
sínar við veginn frá Súez til
Kaíró. Eiga þeir aðeins að fá að
hafa herforingja við síðasta eftir-
litsstaðinn, til að hafa eftirlit
með, að þriðji herinn fái engin
hergögn.
Önnur ákvæði samningsins eru,
að báðir aðilar virði algerlega
vopnahlé það, sem Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt
til, að daglega verði fluttar vörur
og lyf til borgarinnar Súez og
særðir óbreyttir borgarar verði
fluttir burtu, að engar hindranir
verði á flutningum til austur-
bakka Súez, enda verði ekki um
hergagnaflutninga að ræða og að
hafin verði skipti á stríðsföngum
strax og S.Þ. hafa tekið við eftir-
litsstöðvum á leiðinni milli Kaíró
og Sú ez.
FRIÐARRAÐSTEFNA
IGENF
Dagblaðið An Nahar í Beirut
skýrði frá því í morgun. að fvrir-
huguð alþjóðleg friðarráðstefna
um svæðið fyrir botni Miðjarðar-
hafs, ætti að hefjast í Genf 10.
desember nk. Ráðstefna þessi á að
fjalla um stöðu Jerúsalem, Golan-
hæða, endanlega útfærslu friðar-
samnings og samkomulag um opn-
un siglingaleiða á svæðinu. Blaðið
segir, að Feisal konungur Saudi-
Arabíu hafi skýrt Kissinger utan-
rfkisráðherra Bandaríkjanna frá
því, að hann myndi ekki aflétta
banninu á olíusölu til Bandarikj-
anna fyrr en endanlegur friðar-
samningur hefði verið gerður.
Mikið verðbréfafall varð í kaup-
höllinni f New York í gær, og er
talið, að ástæðan sé sú, að Kissing-
er hafi ekki tekizt að fá Feisal til
að aflétta olíusölubanninu. Féllu
Dow Jones bréfin, sem markaður-
inn miðar við, um 25 stig, sem er
mesta fall á einum degi í 25 ár.
Þess ber að geta, að bréfin höfðu
hækkað um 26 stig tvo daga á
undan, þar eð menn höfðu verið
vongóðir um, að Kissinger gæti
haft áhrif á Feisal konung.
N-Irland:
900 hafa fallið
Belfast, 10. nóvember, AP.
ALLS HAFA nú 900 manns látið
lffið á þeim fjórum árum, sem
átök hafa verið á Norður-lrlandi.
Snemma f morgun var bifreið
ekið upp að matsölustað, sem var
fullur af fólki, og sprengju kastað
inn f hann. Maður, sem var á
leiðinni út, sparkaði sprengjunni
út um dyrnar og forðaðist skot-
hrfð tilræðismannanna með þvf
að fleygja sér niður.
Sprengjan sprakk litlu síðar og
banaði vegfaranda og særði þrjá
aðra. Talið er víst, að sprengjan
hefði valdið mun meiri usla ef
hún hefði sprungið inni í matsölu
staðnum. William Conway
kardináli hefur sakað stjórnvöld
og brezka herinn um að hafa
lítinn áhuga á að rannsaka morð á
fjölmörgum kaþólikkum á undan-
förnum árum. Kardinálinn sagði,
að mótmælendur færu í morðher-
ferðir gegn saklausum kaþólikk-
um án þess að yfirvöld aðhefðust
nokkuð. Talsmaður stjórnarinnar
hefur lýst furðu yfir þessum
ummælum kardinálans, sem hann
sagði, að hefðu ekki við nein rök
að styðjast. Lögreglan gerði allt,
sem í hennar valdi stæði, til að
upplýsa morðmál.
Repúblikanar leggja
Nixon lífsreglurnar
Nýr borgarstjóri í New York
Sl. þriðjudag fóru fram sveitarstjórnarkosningar f ýmsum fylkjum
Bandarfkjanna og var m.a. kjörinn nýr borgarstjóri f ffew York f stað
John Lindseys, sem ekki bauð sig fram. Demókratinn Abraham Beame
vann yfirburðasigur með um 56% atkvæða. 3 aðrir voru f framboði.
Beame er 65 ára að aldri og er hann fyrsti Gyðingurinn, sem verður
borgarstjóri New York, en f New York búa flestir Gyðingar á einum
stað f heiminum. Beame hefur starfað fyrir New York borg f áratugi.
Washington, 11. nóv., AP.
NIXON forseti hélt á föstudaginn
fund með ýmsum helztu leiðtog-
um repúblikana f fulltrúa- og öld-
ungadeildinni, og gáfu þeir hon-
um ráð um, hvernig hann ætti að
hegða sér til að eiga möguleika á
að endurheimta traust banda-
rfsku þjóðarinnar. Þingmenn-
irnir voru allir sammála um, að
þeir hefðu nú f fyrsta skipti von
um, að forsetinn legði öll sfn spil
á borðið til að fá Watergatemálið
endanlega upplýst.
Jafnframt hefur verið látið að
því liggja í Hvíta húsinu, að for-
setinn hyggist gera eitthvað til að
sanna sakleysi sitt. Hvað það er,
var ekki sagt. Nixon hefur kallað
„samhæfingarnefnd“ repúblik-
ana til fundar við sig á mánudag-
inn. Nefndin var sett á laggirnar
1964, þegar demókratinn Lyndon
Johnson gersigraði repúblikan-
ann Barry Goldwater í forseta-
kosningunum. Nefndin hefur
| aldrei komið saman síðan Nixon
| var kjörinn forseti 1968. Boðun
nefndarinnar til Hvítahússins nú
sýnir, að forsetinn gerir sér grein
fyrir, að hann verður að beygja
sig fyrir þrýstingi eigin flokks,
sem hefur orðið miklar áhyggjur
af því, hvaða afleiðingar Water-
gatemálið getur haft fyrir fram-
bjóðendur repúblikana i þing-
kosningunum, sem fram fara á
næsta ári.