Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÖVEMBER 1973. fclk í fréttum Silfurbrúðkaupskossinn. Útvarp Reykjavík * GÓÐ HUGMYND VERÐLAUNUÐ FLUGFÉLAGIÐ SAS hefur þann háttinn á að verðlauna beztu tillögur starfsmanna sinna um hagræðingu i rekstr- inum og vonast með þessu til að hvetja alla til að reyna að koma fram með gagnlegar tillögur. I nýjasta tölublaði starfsmanna- blaðs SAS er mynd af nokkrum þeim, sem stærst peningaverð- laun höfðu hiotið fyrir tillögur sínar. Meðal þeirra er Bryndís Torfadóttir, sem starfar hjá SAS í Reykjavík. Hún fékk 10 þús. kr. danskar fyrir tiliögu um breytta tilhögun á hádegis- verði farþega, sem eru á leið til Grænlands, en verða af ein- hverjum ástæðum að bíða um stund á Keflavíkurflugvelli. I stað þess að láta útbúa og bera fram hádegismat fyrir farþeg- ana inni f flugstöðinni, sem get- ur verið erfiðleikum háð sakir skamms fyrirvara, lagði Bryn- dfs tii, að farþegamir fengju hádegismatinn úti í flugvélinni ★ MARLENE DATT í GRYFJUNA SÖNGKONAN og leikkonan Marlene Dietrich féll niður af sviðinu á miðvikudagskvöldið, er hún hafði rétt lokið við loka- atriði skemmtidagskrár sinnar það kvöldið. Marlene, sem orðin er 72 ára gömul, sagðist ekki hafa meitt sig. En hún neitaði að fara úr hljómsveitargryfjunni, þar sem hún hafði lent, fyrr en áhorf- endur væru famir heim. Hún 1 datt, er hún var að teygjasig til að þakka hljómsveitarstjóran- um með handabandi, eftir að áhorfendur höfðu hyllt hana með því að standa upp allir sem einn. Svo virðist sem kjóll hennar hafi rifnað í fallinu. Einhver varpaði yfir hana frakka, en samt neitaði hún að fara úr gryfjunni. Um stund stóð hún þarna, á vellinum, þann mat, sem þeim hafði verið ætlaður i fluginu til Grænlands. I sjálfu fluginu yrði í staðinn borið fram kaffi. borsti og veifaði i kveðjuskyni. Síðan hreytti hún út úr sér skipuninni: „Farið þið öli heim!“ Að iokum, þegar starfsliðið hafi smalað öllum úr úr hljóm- leikasalnum, kom hún upp, en þvertók fyrir að hafa meitt sig. it SILFURBRUÐKAUP RÁÐHERRANS Klukkan var sex að morgni þriðjudagsins 6. nóv. sl., er litill hornaflokkur hóf að leika lög sín fyrir utan húsið nr. 1 við Bjergborgsveg í Kaupmanna- höfn. Fyrsta lagið var eins kon- ar „Sjá roðann i austri“, þ.e. „I östen stiger Solen Op“, en sólin lét ekki á sér bæra. Hins vegar tylltu tvær manneskjur sér út í glugga á þriðju hæð hússins og virtu fyrir sér hornaflokkinn og á milli tuttugu og þrjátíu aðrar hræður, sem stóðu niðri á stétt. Anker og Ingrid sáu þarna vini og kunningja, sem komnir voru til að samgleðjast þeim á 25 ára brúðkaupsaf- mælinu, silfurbrúðkaupinu. Eftir nokkur lög, með tilheyr- andi klappi, söng og húrrahróp- um, komu gestirnir upp og þar beið þeirra kaffi og með því og sitthvað fleira. Gjafir voru færðar forsætisráðherrahjón- unum og síðan var sungið og dansað, hlegið og kætzt langt fram eftir morgni, þar til skyld- an kallaði Anker forsætisráð- herra til starfa. Og hans beið ekki neinn venjulegur vinnu- dagur. Heilmiklar hræringar urðu í dönskum stjórnmálum, sem á endanum leiddu til þess, að Anker baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt á fimmtudag. Sambúðin er ekki alltaf eins langvarandi í stjórnmálunum og f hjónabandinu! A myndinni sést Bryndis veita viðtöku verðlaununum frá SAS úr hendi svæðisstjór- ans J. Svane-Christensen. „Eg hef gengið gegnum tvær styrjaldir og verið á vígvöllun- um, og ég hef fengið heiðurs- viðurkenningu sem hetja," sagði Marlene við starfsfólk hljómleikahallarinnar. „Það þyrfti meira til en að detta i hljómsveitargryfjuna." SUNNUDAGUR 11. nóvember 8.00 Morgunandakt Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Hljómsveitin Philharmonia hin nýja leikur forleiki eftir Auber og Adam; Richard Bonynge stj. Rúmenska útvarpshljóm- sveitin leikur vinsæl lög; Iosif Conta stj. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ystugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Tveir forleikir í ítölskum stfl eftir Franz Shubert. Ríkishljómsveitin í Dresden leikur; Wolfgang Sawallisch stj. b. Oktett fyrir fjórar fiðlur, tvær lágfiðlur og tvær kné- fiðlur op. 20 eftir Felix Mendelssohn. Félagar úr hljómsveit þýzku óperunnar í Berlín leika. c. Frá norrænu organista keppninni í Stokkhólmi í f.m. Hans Fagius frá Svíþjóð, sem hlaut önnur verðlaun, leikur Tokkötu, adagio og fú^U i C- dúr eftir Johann Sebastian Bach og Kóral í E>dúr nr. 1 eftir César Franck. 11.00 Messa í Bústaðakirkju á kristniboðsdegi þjóðkirkj- unnar Séra Ólafur Skúlason þjónar fyrir altari. Benedikt Arn- kelsson cand. theol. prédikar. Organleikari: Jón G. Þórar- insson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Brotasilfur um Búdda- dóm. Sigvaldi Hjálmarsson flytur annað erindi sitt: Hjól sann- leikans. 14.00 Brezk viðhorf til land- helgisdeilunnar, séð með augum fjögurra lslendinga búsettra f Bretlandi. Páll Heiðar Jónsson ræðir við Níels P. Sigurðsson sendi- herra, og þrjá framkvæmda- stjóra: Jóhann Sigurðsson, Kjartan P. Kjartansson og Olaf Guðmundsson. A skjánum SUNNUDAGUR 11. nóvember 1973 17.00 Endurtekið efni Surtur Mynd um Surtsey og Surts- eyjargosið gerð haustið 1966 af Paul Leth Sörensen, fyrir íslenska og danska sjónvarp- ið. Þulur Eiður Guðnason. Aður á dagskrá 13. mars 1967 17.15 Janis, Drffa og Helga Janis Carol Walker, Drifa Kristjánsdóttir og Helga Steinsson syngja í sjónvarps- sal. Aður á dagskrá 14. mai 1973. 17.35 Skólahljómsveit Kópavogs. Hljómsveitin leikur lög úr ýmsum áttum. Stjórnandi Björn Guðjóns- son. Aður á dagskrá 23. september 1973. 18.00 Stundin okkar Börn úr Handlða- og mynd- listarskólanum flytja sögu með leikbrúðum, Rósa Ingólfsdóttir syngur, sýnd er mynd um Róbert bangsa og sagt frá ferðum Rikka. Loks er svo spurningakeppni á dagskrá og einnig verður farið í Sædýrasafnið og heilsað upp á mörgæsir og súlur. Umsjónarmenn Sigrið- ur Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.50 Hlé 20.00 Fréttir 15.00 Lúðurhljómar. Skólahljómsveit Kópavogs leikur ýmis þekkt lög undir stjórn Björns Guðjónssonar. 15.30 Utvarp frá trimmdægur- Iagakeppni FlH og tSf á hótel Sögu. Átján manna hljómsveit leikur undir stjórn Magnúsar Ingimars- sonar. Kynnir: Jón Múli Ámason. 16.30 Létt lög. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 17.10 Utvarpssaga barnanna: „Mamma skilur allt“ eftir Stefán Jónsson. Gísli Hall- dórsson leikari les (7). 17.30 Sunnudagslögin. Tilkynn- ingar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregn- ir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá Leikhúsið og við Helga Hjörvar og Hilde Helgason sjá um þáttinn. 19.35 „Sjaldan lætur sá betur, sem eftir hermir“ Umsjónarmaður: Jón B. Gunnlaugsson. 19.50 Sinfónfuhljómsveit !s- lands leikur f útvarpssal. Einleikarar: Gunnar Egilsson og Pétur Þorvaldsson. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a. „Látalæti" fyrir litla hljómsveit eftir Jónas Tómasson yngri. b. „Hoa-haja-nana-ia“, tónlist í fjórum þáttum eftir Hafliða M. Hallgrímsson. c. „E3egie“ op. 24 fyrir selló og hljómsveit eftir Gabriel Faure. 20.20 Gegnum brim og boða Ami Gunnarsson fréttamað- ur tekur saman dagskrárþátt um skipstjóra- og stýri- mannafélagið ölduna. 20.50 „Tóbfas Mindernickel", smásaga eftir Thomas Mann. Ingólfur Pálmason íslenzk- aði. Hjalti Rögnvaldsson les. 21.15 Tónlistarsaga Atli Heimir Sveinsson tón- skáld rekur söguna með tón- dæmum (3). 21.45 Um átrúnað Anna Sigurðardóttir talar aftur um Ásynjur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Danslög Heiðar Ástvaldsson dans- kennari velur og kynnir. 23.25 Fréttir f stuttu máli. Dag- skrárlok. * 20.20 Veður og auglýsingar 20.30 Ert þetta þú? Stuttur fræðslu- og leiðbein- ingaþáttur um akstur og um- ferð. 20.40 Strfð og friður Sovésk framhaldsmynd, byggð á sögu eftir Leo Tol- stoj. 4. þáttur. Þýðandi Hallveig Thorlacius. Efni 3. þáttar: Lísa, kona Andrei Bolkons- kís, deyr af barnsförum og hann er harmi sleginn. A nýársdansleik f Pétursborg hittir hann Natösju og þau fella hugi saman. Ándrei bið- ur hennar, er vill þó fresta brúðkaupinu um eitt ár, bæði j af tillitssemi við föður sinn, og eins til að gefa Natösju tíma til að hugleiða málið. 21.40 Einleikur í sjónvarpssal Erling Blöndal Bengtsson leikur Svítu nr. 2 fyrir selló eftir Johann Sebastian Bach. 22.00 Kvennahúsið Þáttur um miðstöð Rauð- sokkahreyfingarinnar í Kaupmannahöfn. Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt- ir. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 22.40 Að kvöldi dags Séra Guðmundur Öskar Ólafsson flytur hugvekju. 22.50 Dagskrárlok ♦ ★ KONUNGLEGT BRÚÐKAUP A PLÖTU Anna prinsessa, verðandi eiginmaður hennar Mark, erki- biskupinn af Kantaraborg og kór Westminster Abbey virðast einkennilegir flytjendur á met- söluplötu. En samt er þess vænzt, að þau velti Rolling Stones eða öðrum poppkóngum úr efsta sæti brezka vinsælda- listans innan tíðar. BBC-útvarp ið hyggst hljóðrita alla hjóna- vígsluathöfnina 14. nóv. nk., er Anna prinsessa og Mark höfuðsmaður verða gefin sam- an í Westminster Abbey. BBC býst við að framleiðaum 100 þús. eintök til að byrja með. Slfkt risaupplag er venjulega aðeins framleitt, þegar um plöt- ur stórstjamanna er að ræða, og telja má stórsölu örugga. En hljómplötudeild BBC tekur nú mið af óvæntri metsölu á stórri plötu fyrir sex árum, þegar bróðir önnu, Karl prins, var vígður sem prins af Wales við litríka og gamaldags athöfn í Caernarvon-höll í Wales. Plat- an, sem þá var hljóðrituð, seld- ist í 44 þús. eintaka upplagi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.