Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973. 7 Kvikmyndir Eftír Björtt Vígní Sígurpálsson Gatsby mikli í þriðja sinn í kvikmyndabúning THE Great Gatsby er vafalaust sú kvikmynd, sem beðið er með hvað mestri eftirvæntingu frá bandarfska kvikmyndaiðnaðin- um um þessar mundir. Eins og heitið gefur til kynna er mynd- in gerð eftir samnefndri sögu Scott Fitzgerald. Það er Para- mount kvikmyndafélagið sem kostar gerð myndarinnar og hefur kostnaðurinn verið áætlaður um 6 milljónir dollara eða röskar 500 milljónir ísl. króna. Þetta er þriðja kvik- myndaútgáfan eftir þessari þekktustu skáldsögu Fitzger- ald, og þegar ljóst að hún tekur hinum fyrri langt fram uni íburð og umfang. Svo sem kostnaðurinn gefur til kynna hafa aðstandendur myndarinnar kappkostað að vanda til hennar sem mest má. Þannig er allt gert til þess að ná auðstéttarandrúmi bandarísks samfélags á þriðju áratugnum. I því skyni hefur kvikmynda- takan að verulegu leyti farið fram á Rhode Island, þar sem kvikmyndagerðarmennirnir fundu sumarhallir auðkýfinga á borð við þær, sem Fitzgerald lýsir á Long Island. Sumar- hallirnar á Löngueyju standa að vísu enn, en umhverfið hef- ur tekið slíkum stakkaskiptum frá því að Fitzgerald reit sögu sína, að hún reyndist ekki henta myndinni. Að öðru leyti fer takan fram í Englandi, þar sem forráðamenn kvikmynda- félagsins telja sig geta haldið kostnaði niðri með því móti. Annar veigamikill þáttur fyrir ytri ramma myndarinnar er tízka þessa tíma. Ekkert hefur verið sparað í þeim efn- um. Láta mun nærri að um 1900 alklæðnaðir séu til brúks f myndinni, og fjöldinn allur af hárgreiðslumeisturum kemur einnig við sögu. Telja tízku- frömuðir ekki ósennilegt, að myndin eigi eftir að hafa tals- verð áhrif á mótun tízkunnar á vorum dögum. En inniviðir myndarinnar eru þó þyngri á metunum, og við fyrstu sýn virðist Para- mount hafa tekizt allvel upp í þeim efnum. Það hefur ráðið brezka leikstjórann Jay Clayton til að leikstýra myndinni, en Clayton þessi nýt- ur mikillar virðingar í kvik- myndaheiminum, enda hefur hann á löngum starfsferli verið viðriðinn alla þætti kvikmynda- gerðar. Hann státar líka af ýms- um athyglisverðum kvikmynd- um, svo sem Room at the Top, Pumpkin Eater og My mother's house, og sérlega trúrri og anrifaríkri kvikmyndaútgáfu af hinni annáluðu sögu Henry James — „The Turn og the Screw“, sem hlaut titilinn „The Innocent's". Þessi afrakst ur gefur manni alltént vonir um, að það sé á færi Claytons að koma þeim skötuhjúum Catsby og Daisy þannig til skila, að úr verði annað og meira en skart á ytra borði. Þegar hugmyndin að The Greath Gatsby var I fæðingu, fékk einhver snillingurinn hjá Paramount þá hugdettu að skipa algjörlega óþekktan leik- ara í hlutverk Gatsby — og átti þessi ráðstöfun að undirstrika leyndardómshjúpinn, sem um- lykur þennan bruggara, er fest- 1917: Daisy Fay frð Lousiville stfgur dans við Jay Gatsby, liðs- foringja... neðri mynd: en sfðan vfkur sögunni til sumarhalla auðmanna á Long Island, þar sem auðstéttin dansar villtan Charleston f goshrunni. ir kaup á sumarhöll á Long Island til að brúa stéttagjána, sem aðskilur hann og auðsfétt- arstúlkuna Daisy. Þannig telur hann sig geta unnið ástir henn- ar aftur. Fljótlega var þó horfið frá þessu ráði, aðallega vegna .þess að þeim Paramount-niönn um þótti það of djarft fjár- hættuspil að tefla fram óþekkt- um leikara í þetta lykilhlutverk myndarinnar. Clayton fékk þvf sjálfur að ráða, og hann valdi Robert Redford f hlutverkið. Redford hefur hlotið skjótan frama innan kvikmyndanna, en hlutverk hans til þessa hafa flest verið af því tagi að þau hafa naumast krafizt mikilla átaka. Verður því fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar í þessu margslungna hlutverki. Clayton hefur tröllatrú á Red- ford. „Hann er kjörinn maður I þetta hlutverk, “ segir Clayton, „hefur öll hin réttu persónuein- kenni.“ Hitt lykilhlutverkið er f höndum Miu Farrow. Hún var valin að undangenginni til- raunaupptöku, og er það eins- dæmi að jafnviðurkennd leik- kona hafi áður verið fengin til slíks eða látið sér það vel llka, Upphaflega átti Ali McGraw að fá hlutverk Daisy vegna hjóna- bandstengsla sinna við Paramount, en er hjónaband hennar eins forstjóra Para- mount fór út um þúfur, hætti hún við allt saman. Þá var í fyrstu leitað á náðir Barböru Streisand og Candice Bergen. Síðan varð Fay Dunaway fyrir valinu, og segir sagan að hún hafi mætt til tilraunaupptöku með eigin förðunarmann og hárgreiðslumeistara, og undir- búið sig í fjóra klukkustundir fyrir einnar mínútu töku. öll- um, sem séð hafa hin ýmsu til- raunaeintök, ber saman um að Farrow hafi borið þar af. Þó eru ekki allir á eitt sáttir um það, hvernig hún samræmdist þeim hugmyndum, sem gerðar eru um Daisy, Lois Wilson, sem fór með hlutverk Daisy I fyrstu kvikmyndinni árið 1926, finnst hún of stráksleg. Clayton held- ur fram hinu gagnstæða; Farrow sé einkar lagið að tjá særanlega og brothætta sál. Kvikmyndahandritið er einn þátturinn enn, sem valdið hefur Paramount heilmiklum heilabrotum og þó nokkru angri. Félagið réð upphaflega Truman Capote til að skrifa handritið, en hafnaði því óðar og hann hafði lagt það fram. Copote fór harla frjálslega með efnið, að því er sögusagnir herma því að hann gerði sögu- manni bókarinnar Nick upp kynvillu og annarri helztu kvenpersónu lesbískar til- hneigingar. Capote brást reiður við, þegar ritsmfði hans var hafnað og fór í mál. Tókust sættir á þann veg, að Para- mount greiddi honum 100 þúsund fyrir vikið. Á endanum var það Francis Ford Coppola (handritshöfundur og leik- stjóri Godfather), sem skrifaði nothæft handrit og fékk fyrir það aðeins 50 þúsund dollurum meir en Gapote fyrir rusla- körfuhandritið. Handrit Coppola er sagt I alla staði mjög sannferðugt og trútt Fitzgerald, og það haft til marks, að í myndinni verði ekki nema eitt rúmatriði. Þannig er bandarískur kvik- myndaiðnaður samur við sig. Nú er að sjá hvort Clayton tekst að koma viti í öngþveitið og hvernig stéttaskipting bandarfsks samfélags á þriðja áratugnum ásamt villtu garð- teiti og gosbrunnadansi auð- stéttar koma brezkum Ieik- stjóra af millistétt fyrir sjónir. ÖNNUMST ÝMISS KONAR viðgerðir, glerisetningar, hrein- gerningar, málningu og flísalagn- ir. Útvegum húsdýraáburð í lóðir og leggjum stéttir. Sími 40083. MIÐALDRA KONA óskar eftir 1—2ja herb. íbúð. Húshjálp kæmi til greina. Upplýsingar I sima 71452. ATVINNA ÓSKAST Kona óskar eftir léttri vinnu t.d. við afgreiðslu, símavörzlu spjaldskrá eða öðru álíka. Sími 71503 sunnudag og mánudag milli kl. 1—3. VOLGAÁRG. 1971 Mjög góður bill til sölu, má borg- ast með 3ja til 5 ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Simi 16289. SÖLUTURN Óska að taka á leigu eða kaupa söluturn. Tlb. með uppl. leggist inn á afgr Mbl. fyrir 15. þm. merkt: Góður staður 4565. CITROEN GS árg. 1971, sportbill með svefn- stólum o.fl. Ekinn 22 þús. km. til sölu. Má borgast með 3ja til 5 ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Simi 16289 LÍTIL2JA HERB. íbúð til leigu með eða án hús- gagna. Tilboð óskast sent Mbl. merkt: „Snorrabraut 1355” Barngóð kona óskast helzt í Breiðholti 1 til að gæta tveggja drengja, 5 ára og 1 'h árs frá 8—1 5.30, 5 daga vikunnar Upplýsingar i sima 85496. STOFUORGEL (orgel — harmonium) óskast til kaups Uppl. I síma 52949. GOTT STARF. Ung stúlka með stúdentspróf úr máladeild, öskar eftir góðu starfi. Uppl. í sima 35532. TILSÖLU Electrolux kæliskápur og Philips kæliskápur. Uppl. í símum 86952 og 15649. Get tekið ungabörn 1 gæzlu nú þegar eða síðar. Slmi 86952. KEFLAVÍK Koria óskast til að gæta 2ja ára telpu 2—4 virka daga I viku. Uppl. í síma 92-1031 eða 91- 1890. KEFLAVÍK Til sölu vel með farin 2ja herb rishæð við Hátún. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík. Slmi 1420. AUSTIN 1300 '68 til sölu. Uppl. í síma 1 2643. ' KEFLAVIK-NJAROVfK Til sölu nokkrar 3ja herb. Ibúðir. Hagstætt verð og skilmálar. Lausar strax. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík. Slmi 1420. BRONCO 1972 Til sölu er Bronco '72 8 cyl.. klæddur, með útvarpi. Til greina kemur greiðsla með skuldabréfi Uppl i sima: 301 50. JÓLATRÉSDÚKAR og jólavörur, nýkomið mikið úrval, bæði áteiknað og úttalið. Póst- sendum. Hannyrðabúðin, Linnetstíg 6, Hf. Sími 51314. VOLKSWAGEN FASTBACK Til sölu Volkswagen Fastback TL 1 600árgerð '72. Upplýsingar 1 sima 81265. GRÓFAR KROSSSAUMS- MOTTUR og góbelinteppi I úrvali. Áteiknaðir kaffidúkar og Ijósadúkar, úttalin puntuhandklæði og margt margt fleira nýtt. Hannyrðabúðin, Linnetstíg 6, Hf S. 51314. OPEL REKORD FASTBACK 1700 L '68 til sölu. Ný nagladekk, Sumardekk á felg- um. Stereo kasetttutæki. Skipti möguleg. Uppl. I síma 92- 2020 kl. 13 — 15 1 dag HEIMAVÉLRITUN Tek að mér vélritun fyrir einstak- linga og fyrirtæki Hef góða raf- magnsritvél. Uppl í sima 84913. Geymið auglýsinguna. EIGNIZT VINI UM ALLAN HEIM Gangið i stærsta pennavinaklúbb Evrópu. Uppl. á ensku eða þýzku og 1 50 myndir ókeypis HERMES Berlin 1 1, Box 1 7, Germany. VOLVO AMAZON árg 1965. Sérlega góður bíll til sölu. Má borgast með 3ja til 5 ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Slmi 1 6289. ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svínasulta. Úrvals- hákarl, sild og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, simi 35020. ULLARJAFADÚKAR löberar, púðar og strengir, nýjar gerðir Antikmyndirnar úttöldu, allar gerðir komnar aftur. Hannyrðabúðin, Linnetstig 6, Hafnarfirði S. 51314 HAFNARFJÖRÐUR 2ja eða 3ja herb ibúð óskast strax. 2 fullorðnir I heimili. Tlb. sendist Mbl. fyrir 14. þm. merkt: ..ibúð 4564". BÍLAVIÐGERÐIR Tökum að okkur allar almennar bllaviðgerðir. Bilaverkstæðið Bjargi, við Sundlaugaveg, sími 38060 HÚSMÆÐRASKÓLAR Handavinnuunnendur, við bjóðum dúkadralon og harðangursjafa i 20 litum Margir litir og gerðir af kongress efnum og hör. Allar gerðir af garni og úrval af dúka- munstrum. Hannyrðabúðin, Linnetstíg 6, Hf. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.