Morgunblaðið - 11.11.1973, Side 2

Morgunblaðið - 11.11.1973, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973. Bætti aðferð Niels Bohr ARI Brynjólfsson varði 25. október doktorsritgerð við Hafnarháskóla, þar sem hann m.a. breytti að nokkru og endur- bætti útreikningaaðferð á kenn- ingum Niels Bohr um stöðvun á hröðum, hlöðnum rafeindum. Nefndist ritgerðin á ensku „Some Aspects of Interactions of Fast Ari er Akureyringur, útskrifað- ist 1948 úr MA og fór til náms við Hafnarháskóla, þar sem hann lauk lokaprófi í eðlisfræði 1954. Þá vann hann við rannsóknir f Þýzkalandi 1955—1957, en 1957—1965 var hann yfirmaður geislunardeildar á Risö í Dan- mörku. Eftir það fór Ari til Bandaríkjanna og var fyrst yfir geislunartæknideild rannsókna- stofnunar í Boston, sem fékkst við geislun á matvælum og er núna forstjóri bandarfskra rannsókna á matvælageislun, sem er liður f rannsóknum til friðsamlegrar notkunar kjamorkunnar. Er unn- ið i nánu sambandi við Samein- uðu þjóðirnar og þróunarlöndin, þar sem lenging á geymsluþoli matvæla með geislun er talin munu koma að mestum notum. Dr. Ari Brynjólfsson Charged Particles with Matter“, en þetta er grundvallar verkefni í eðlisfræðinni. Andmælendur voru próf. C. Möller, sem mikið hefur unnið með afstæðiskenningu Einsteins og prófessor Peter Sigmund frá Hafnarháskóla. 99 Grafskrift eftir njósnara” ALMENNA bókarféiagið hefur gefið út bókina „Grafskrift eftir njósnara“ eftir Eric Ambler. Bók- in var þýdd af Páli heitnum Skúlasyni, ritstjóra, og er þetta sfðasta bókin, sem hann þýddi.. 1 umsögn AB á kápusíðu segir, að höfundurinn Eric Ambler, hafi verið nefndur öndvegismeistari allra tíma í sérgrein sinni spennandi njósnasögum. „Gpafskrift eftir njósnara" er 222 blaðsíður að stærð með eftir- mála höfundar. Bókin er prentuð í Víkingsprenti og bundin inn hjá Bókfelli. Kápan er teiknuð hjá Auglýsingaskrifstofu Torfa Jóns- sonar. V erzlunarbankinn: 233% hækk un hlutafjár A SlÐASTA aðalfundi Verzlunar- bankans hinn 7. aprfl s.I. var sam- þykkt að heimila útboð á hækkun á hlutafé bankans um allt að 70 millj kr„ þannig að það yrði aukið úr 30 millj. kr. f allt að 100 millj. kr. Var hluthöfum bankans veittur forkaupsréttur að hinu nýja hlutafé til 1. nóvember þ.á. Með bréfi til hluthafa f júní- mánuði var þeim tilkynnt um hið nýja hlutafjárútboð og hafa þeir í samræmi við það á undanförnum mánuðum sent til bankans óskir sínar varðandi hið nýja hlutafé. Nú liggur fyrir, að hluthafar hafa skráð sig fyrir 62 millj. kr. af hinum nýja hlutafjárauka eða 88.5% útboðsins. Bankaráð mun síðar taka ákvörðun um sölu þeirra 8 millj. kr., sem eftir eru af hinu nýja útboði. Líðan eftir atvikum LÍÐAN Friðriks Sveinssonar hér- aðslæknis f Mosfellssveit, sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi í Mosfellssveit á fimmtudag, var í gærmorgun nokkuð góð eftir at- vikum, að sögn læknis á Borgar- spítalanum, og er Friðrik kominn til meðvitundar. Halldóra Eggertsdóttir og Björg Rafnar við brjóstmyndina af Aðalbjörgu. Br jóstmynd af Aðalbjörgu Sigurðardóttur afhjúpuð SL. föstudagskvöld lauk aðal- fundi Bandalags kvenna f Reykja- vfk. I bandalagiiiu eru flest kven félög borgarinnar, eða 28 félög með um 10.000 félagskonum. Á aðfundinum nú áttu sæti 84 fulltrúar. Á föstudagskvöld var afhjúpuð við hátíðlega athöfn brjóstmynd af Aðalbjörgu Sigurðardóttur en hún var formaður banda- Iagsins í 23 ár samfleytt. Gestur Þorgrímsson gerði myndina, en' bandalagið lét síðan gera af- steypu af henni í eir. Styttunni hefur verið valinn staður f sam- komusal að Hallveigarstöðum. Athöfnina voru viðstödd skyld- menni Aðalbjargar, en styttuna afhjúpaði dótturdóttir hennar, Björg Rafnar. „Að horfa og hugsa 99 ný bók Sigvalda Hjálmarssonar SKUGGSJA hefur sent á markað- inn bókina „Að horfa og hugsa“ blaðamann og ritstjóra. Bókin hefur að geyma sýnis- horn af blaðagreinum Sigvalda og fjalla þær um margvíslegustu efni, m.a. lífsspeki, pólitík, um- hverfisvernd, dýr og dýravernd og ný lífsviðhorf vegna vísinda- uppgötvana. Sigvaldi Hjálmarsson segir m.a. í formála slnum fyrir bókinni: „Greinamar eru flestar sýnis- horn úr föstum dálkum, sem ég hef annazt eða átt hlut að. Þær eru þvf margar fastlega bundnar stund og stað og án útskýringa rætt um efni, sem umræðu vakti f blöðum þann daginn.“ Síðar segir Sigvaldi: „Blaðamennska er ekki einungis starf, blaðamennska er lífsviðhorf. Sá, sem fær þá bakteríu ungur, er þegar orðinn öðruvísi maður, ég held yfirleitt betri maður. Honum verður eigin- legt að taka eftir, sjá atburði ger- ast og horfa á hlutina eins og þeir eru.“ Skuggsjá prentaði bókina, sem er 174 blaðsíður að stærð. Halldóra Eggertsdóttir, varafor- maður bandalagsins, sem gegnir formennsku i fjarveru formanns, Geirþrúðar H. Bemhöft, sagði m.a. i ræðu sinni við afhjúpunina: „Við Islendingar stærum okkur af fornum menningararfi. Við viljum vera sjálfstæð menningar- þjóð og geta staðið jafnfætis öðr- um menningarþjóðum, þótt fá- mennirnir séum. En I fá- mennu þjóðfélagi er sér- hver einstaklingur mikilsverð- uF' hlekkur, sem þarf að vera sterkur, og gengt fjölþættu hlutverki. Aðalbjörg Sigurðar- dóttir hefur einmitt verið sá per- sónuleiki, sem vegna gáfna, menntunar og vfðsýni var sem kjörin til að gegna f jölþættu hlut- verki í þjóðfélaginu. Allt hennar lif og starf hefur mótazt af þeim fjölþættu menningarmálum, sem hún hefur unnið að um ævina.“ Halldóra Eggertsdóttir og Björg Rafnar við brjóstmyndina af Aðalbjörgu. Jennifer Vyvyan Brezk söngkona með Sinfóníunni FJÓRÐU reglulegu tónleikar Sinfónfuhljómsveitarinnar verða haldnir fimmtudaginn 15. nóvem- ber n.k. A þessum hljómlcikum verða flutt tvö verk: Les Illum- inations, sem ber á fslenzku nafn- ið Ljómanir, eftir Benjamfn Britten og Sinfónfa nr. 4. eftir Mahler, en hvorugt þessara verka hefur verið flutt hérlendis áður. Stjórnandi verður aðalhljóm- sveitarstjóri hljómsveitarinnar Karsten Andersen, og einsöngv- ari brezka sópransöngkonan Jennifer Vyvyan. Jennifer Vyvyan á að baki glæsilegan söngferil, sem spannar yfir vítt svið en hún hefur mest sungið í óperum og óratorfum. Hún hefur m.a. frumflutt hlut- verk i óperum eftir Benjamín Britten og Malcolm Williamsson og einnig tekið þátt f Bachlista- hátíðum f Bandarfkjunum, svo og ýmsum listahátíðum f Evrópu. Vyvyan hefur sungið víða um heim, meðal annars undir stjórn Leonard Bemsteins, og ennfrem- ur hefur hún sungið inn á fjöl- margar hljómplötur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.