Morgunblaðið - 11.11.1973, Page 3

Morgunblaðið - 11.11.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973. 3 „Það þótti ákaflega djarft á þeim tíma” í Gamla Hreyfils-húsið við Kalkofnsveg. ÞANN 11. nóv. 1943 komu sam- an til fundar 70 bifreiðarstjór- ar f Reykjavfk, sem áttu sfnar bifreiðir sjáifir, til að stofna samvinnufélag um rekstur á bifreiðastöð. Félagið hlaut nafnið Samvinnufélagið Hreyf- ilL Á þeim tfmavoru starfrækt- ar f bænum níu bifreiðastöðvar f einkaeign, en bifreiðastjór- arnir 70 töldu sfnum málum betur borgið f eigin höndum; þannig gætu þeir betur hlúð að starfseminni, bæði hvað þeim sjálfum við kæmi og viðskipta- vinum. „Félagið var algerlega fé- vana, en við ákváðum að ráðast í það að kaupa bifreiðastöðina Geysi við Kalkofsveg. Verðið var 225 þús. kr. og við fengum 200 þús. kr. að láni f Utvegs- bankanum. Það þótti ákaflega djarft á þeim tima. En við hóf- um siðan reksturinn 1. des og innan tíðar fjölgaði bifreiða- stjórunum í Hreyfli upp i 100, síðan 200 og nú erum við um 300.“ Það er Ingjaldur Isaksson, sem svo segir frá, en hann var einn af stofnendum Hreyfils, átti sæti í fyrstu stjórn félags- ins og síðan formaður þess í 24 ár. Ingjaidur hefur stundað leigubifreiðaakstur I 43 ár eða frá Alþingishátíðarárinu 1930, og man þvf timana tvenna i starfinu. „Þegar Hreyfill hóf starfsem- Ingjaldur Isaksson. ina voru bæjartakmörkin í inn- anbæjarakstri við Tungu (við Suðurlandsbraut), Þórodds- staði (við Eskihlíð) og Vegamót (á Seltjamamesi). En við byrj- uðum siðan, með mikilli and- stöðu frá hinum stöðvunum, að færa út mörkin, eftir því sem úthverfin teygðu sig lengra, fyrst inn að Elliðaám og Foss- vogslæk og siðan teygðist svæð- ið upp að Grafarholti, Árbæjar- hverfi, Breiðholtshverfi, Kópa- vogi og Seltjarnarnesi. Og þetta gátum við af því að við fylgdum útfærslunni eftir með simapóst- um. Við vorum reyndar fyrstir með símapóst. Hann stóð við Dyngjuveg. Siðan komum við fyrstir með talstöðvarnar og það var hrein bylting. Nú erum vað með bifreiðar á 19 stöðum'á þessu svæði. En mér persónu- lega finnst nú, að svæðið eigi að ná yfir allt höfuðborgarsvæð- ið,“ segir Ingjaldur. Hreyfill var með aðalaðset ur sitt í húsinu við Kalkofsveg allt fram til ársins 1971, er öll starfsemin fluttist i ný og glæsi- leg húsakynni í eigin stórbygg- ingu við Fellsmúla. Þar eru nú skrifstofur og símstöð með 25 manna starfsliði, undir stjórn Einars Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra. I húsinu er þvottastöð, þar sem bifreiða- stjórarnir geta þrifið bifreiðar sínar hvenær sem er sólar- hringsins. í húsinu fá bifreiða- stjórarnir aðstöðu til félags- starfsemi, er 200 fermetra salur verður tekinn í notkun á næst- unni. Félagið rekur bensin- og olíusölu við Fellsmúla, það hef- ur söluumboð fyrir talstöðvar og frá 1951 hefur starfað inn- lánsdeild í tengslum við það. Formenn Hreyfils hafaverið, auk Ingjalds, þeir Bergsteinn Guðjónsson, Gestur Sigurjóns- son og nú Þórður Elíasson. Ingjaldur á margs að minnast frá 30 ára starfi Hreyfils. „Ég minnist gömlu baráttufélag- anna, sem létu ekki pólitik skyggja á baráttuna i stéttar- málum. Og þótt ekki hafi alltaf allir verið sammála um leiðir, voru menn alltaf sammála um markmiðin," segir hann. „Mig langar lika að minnast á annað. Það eru ekki allir, sem gera sér grein fyrir hversu stór þáttur leigubfllinn er í þjóðlif inu. Á öllum stundum er kallað á leigubíl, við öll hugsanleg tækifæri. Við ökum fólki á stund gleði og sorgar, við upp- haf og endi langferðar. Þegar mikið liggur á, er alltaf kallað á leigubil. Við höfum alltaf verið að reyna að auka þjónustuna við fólkvð. Við vorum fyrstir til að hafa stöðina opnaallansólar hringinn. Við komum fyrstir með talstöðvarnar. Við gerðum þetta til að auka hraðann og öryggjð og ég tel, að mikið hafi áunnizt í þessum efnum. Og á þessu afmæli vil ég nota tæki- færið og færa öllum viðskipta- vinum gegnum árin þakkir, svo og öllum gömlu baráttufélögun- um og samstjórnendum.“ — sh. Rætt við Ingjald Isaksson á 30 ára afmæli Sam vinnufélagsins Hreyfils Nýja Hreyfilshúsið við Fellsmúia. (Ljósm. Sv. Þorm.) MLÍR fABA í FERD MED ÚTSVn EHN SEM IVRR ÓDÝRAST TÍL London 8 flagar Flugfar Glstlng Morgunveruur kr. 15.900.« 19.900.- Brottför á hverjum laugardegt Glasgow 4 öagar Flugfar filstlng Morgunverflur og kvöldverffur kynnlsferfl o.fl. kr. 13.500.- Brottför annan hvern föstudag. Kaupmannahöfn UM JÓLIN: ÓDVRAR HÓPFERÐIR 20 og 21. DESEMBER. Tjæreborg ÓDÝRAR SKÍÐAFERÐIR TIL AUSTURRÍKIS —- SAFARI- FERÐIR TIL AFRÍKU DRAUMAEYJAN CEYLON OG FJARLÆG AUSTURLÖND. Kanarfeyjar Flug- farsedlar HVERT SEM FERÐINNI ER HEIT- IÐ — ALLIR FLUGFARSEÐLAR FYRIR EINSTAKLINGA, HÓPA EÐA FÉLAGASAMTÖK MEÐ BEZTU KJÖRUM OG HINNI VIÐ- URKENNDU ÚTSYNARÞJÓN- USTU Ferðaskrifstofan ÚTSÝN Austurstræti 17 (Silla og Valda) Símar 26611 —20100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.