Morgunblaðið - 11.11.1973, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973.
13
var G. ekki meðal þeirra. Og það
sem meira var, G. var ekki rekinn
úr flokknum, hvað þá heldur að
hann fengi nokkra ofanígjöf fyrir
mikla iðjusemi sína við
„andsovézka starfssemi".
Hvenær sem G. hitti einhverja
úr mótmælendahópum var fyrsta
spurning hans: hver stjórnaði
útgáfum á samizdatritinu
„chrouizle of Current Events“?
Pyotr Yakir hafði ekki fengið að
vita þetta, þar sem vitað var, að
eftir 1970 var nákvæmlega fylgzt
með ferðum hans, og sfmtöl hans
voru hleruð.
Einn kunningja minna trúði því
ekki að svona nákvæmt eftirlit
væri mögulegt. Ég stakk upp á
því, að við gerðum einfalda til-
raun. „Hérna er símanúmer
Yakirs," sagði ég. „Hringdu til
hans og talaðu um stund um
eitthvað mjög alvarlegt og gerðu
að tillögu þinni að hann „hitti
vini“. Reyndu sfðan að hringja í
einhvern annan strax á eftir og
þú munt komast að raun um að
sfminn hjá þér er ekki í sam-
bandi. „Tilraunin tókst með
ágætum og sími vinar míns var
ekki í sambandi i heila klukku-
stund eftir samtal hans ví-Yakir.
Þegar hann komst i samband
aftur voru alltaf einhverjar
truflanir.
Utgáfa og dreifing á upp-
lýsingariti í samizdatútgáfu er f
sjálfu sér ekki glæpur. Til að slíkt
flokkist undir refsilöggjöf Sovét-
rfkjanna, verður að sanna að
efnið, sem þar birtist sé rógur og
þvættingur. Einfaldasta leiðin til
að byggja upp „glæpsamlegt sam-
særi“, sem mun sannfæra flesta
sóvézka blaðalesendur, er að
lauma því inn, að samband sé við
einhvern frjálslyndan hóp f
Sovétríkunum, og alveg sérstak-
lega hin ólöglegu útflytjendasam-
tök NTS. Þessi samtök, sem eiga
sér svarta fortíð — vegna sam-
starfs, sem þau höfðu við nazista á
stríðsárunum í hernumdum
svæðum í Rússl. — svo og vegna
yfirlýsinga, sem þau hafa birt í
Possev, þar sem þau réttlæta
pyndingaraðferðir til að grafa
undan Sovétskipulaginu, hafa oft
lagt KGB efnivið þann upp f
hendurnar, sem öryggislögreglan
hefur sótzt eftir. Oftsinnis hefur
þeim aðferðum verið beitt að
smygla greinum inn í Possev,
sem sfðan hafa orðið vatn á myllu
KGB og veljast í þau störf ýmsir á
borðviðG.
í janúar 1970 birtist til dæmis f
Possev fölsuð grein, sem hét
„Sannleikurinn um nútíðina“ og
var undirskrifuð af bróður mín-
um Roy Medvedev, þar sem serr-
ar voru fram frumstæðar hug-
myndir í anda Trotskyista og
Maoista. Bróðir minn mótmælti,
en enda þótt mótmælin bærust til
ritstjórnarskrifstofunnar, voru
þau ekki birt. „Við erum ekki
vissir um, hvort þetta er falsað —
greinin sem okkur barst, eða mót-
mælin sem sögð voru frá Roy
Medvedev" sagði ritstjórnarfull-
trúinn. Sakir þessa birti Roy
Medvedev mótmæli sín i New
York Times þann 26. apríl 1970.
Svarið, sem Possev birti í Le
Monde nokkru sfðar, var jafn tví-
rætt og bréfið, sem sent var til
mín.
Ég veit ekki í hve miklum mæli
játningar Yakirs og Krasins eru
sannar. En ég veit að minnsta
kosti að Possev og Grani hafa
bæði orðið hálfgerðar blóðsugur á
samizdaútgáfustarfseminni og
eru að ganga að slikri útgáfu al-
gerlega dauðri.
Réttarhöldin yfir Yakar og
Krasin hafa vissulega haft ákaf-
lega mikil og neikvæð áhrif á
starfssemi ýmsra hópa, sem berj-
ast fyrir auknum mannréttindum
í Sovétríkjunum og klippt á ýmis
sambönd landa minna við starfs-
bræður þeirra á Vesturlöndum.
Baráttan fyrir nokkrum
jákvæðum umbótum í Sovétrfkj-
unum mun nú þurfa að vera háð
af meira hugrekki en áður, meiri
einbeitni, meiri alvöru, meiri
reynslu. En það verða færri, sem
taka þátt f henni. En þeir, sem
gera það á annað borð, munu
áreiðanlega beita sér, á hverju
sem dynur.
Er hægt að þagga niður í Sak-
horov? Ég trúi þvi ekki. En hægt
væri að senda hann til einhvers
smábæjar, ekki endilega langt frá
Moskvu, þar sem erfitt væri fyrir
vini hans og erlenda fréttamenn
að ná sambandi við hann. En ekki
er hægt að kveða Solzhenitsyn í
kútinn með þeim aðferðum.
Hvað geta menn á Vesturlönd-
um gert okkur til hjálpar? Fyrst
og fremst geta þeir, — án þess að
stofna í hættu vinsamlegri sam-
búð, sem komið hefur verið á
milli austurs og vesturs fyrir til-
stuðlan stjórnmálamanna- rithöf-
undar, vísindamenn og gestir,
sem fara til Sovétríkjanna, spurt
gestgjafa sína spurninga um hvað
sé eiginlega á seyðirum þá
kúgun, sem Solzhenitsyn er beitt-
ur, um einangrunina á Sakharov,
um sérstök og tiltekin mál ein-
stakra pólitiskra fanga, sem held-
ið er í geðveikrahælum og svo
framvegis.
RENAULT R4 MOD. 1963
til sölu. Er í mjög góðu ástandi. Ný yfirfarin.
Upplýsingar í síma 821 82 í dag sunnudag frá
kl. 1—3 e.h.
Bflavarahlutaverzlun
Viljum ráða ungan og röskan rhann til afgreiðslustarfa
í bílavarahlutaverzlun nú þegar eða seinna.
Umsókn merkt „Framtíð 4999" sendist afgreiðslu
Mbl.
IbúcT óskast
til leigu fyrir bandarísk hjón með 1 barn, frá
og með næstu áramótum.
Upplýsingar í síma 84840.
Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu mig á margvís-
legan háttá sjötugsafmæli mínu.
Lifið heil og lengi.
Sigurður B. Gröndal.
Til sölu
Nokkrar góðar fasteignir til sölu í Þorlákshöfn, Hvera-
gerði, Selfossi og Stokkseyri.
Fasteigna- og bátasala Suðurlands.
Uppl. gefur Geir Egilsson.
Sími 99-4290.
btómouol
Við eigum 24" Schaub Lorenz sjónvarps-
tæki, sem styttir þér stundir í skammdeginu.
Vio rýmum fyrir
glæsilegum
jólamarkaði.
Allar pottaplöntur
á kr. 200.
S GARÐASTRÆTI 11
F S/M/ 200 80
LEIÐIST ÞÉR Á KVÖLDIN?
ALLIR VEGIR FÆRIR Á
YOKOHAMA
YOKOHAMA SNJOHJÓLBARÐAR
MEÐ EÐA ÁN NAGLA
Komiö inn úr kuldanum meö bílinn
á meöan viö skiptum um.
HJÓLBARÐAR
Höföatúni 8 Símar 16740 og 38900
SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA • VELADEILD