Morgunblaðið - 11.11.1973, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NOVEMBER 1973.
Benedikt Friðriksson
Hnífsdal — Minning
MANNI finnst það þyngra en taki
tárum, þegar náinn vinur og
samferðamaður um langa ævi er
sviplega horfinn sjónum manns,
dáinn, horfinn yfir móðuna
miklu, án þess að nokkuð verði
aðgert til bjargar. Við slfka at-
burði setur að manni hroll og
einhvem veginn á maður erfitt
með að sætta sig við orðinn hlut,
við svo sviplegan aðskilnað, sem
raunin varð á um Benedikt
Friðriksson í Hnífsdal. Hann var
allur aðfaramótt 4. nóvember, en
hann haf ði þó mætt til vinnu sinn-
ar morguninn áður, þann 3. nóv., í
hraðfrystihúsinu í Hnífsdal, þar
sem hann hafði starfað með
litlum hvfldum árum saman af
mikilli trúmennsku og sérstökum
dugnaði sem honum var svo lagið.
Þessir eðliskostir virtust honum í
blóð bornir, allt frá því að hann
komst til nokkurs þroska.
Benedikt Friðriksson var fædd-
ur í Hnífsdal 27. desember 1909.
Foreldrar hans voru hjónin
Guðrún Amadóttir, sem lézt á
Elliheimili Isafjarðar 96 ára
gömul í byrjun þessa árs, og
Friðrik Tómasson, sem var um
langt árabil formaður á vélbátum
í Hnífsdal og átti stundum þátt í
Utgerð slfkra báta frá heimabyggð
sinni.
Ungur að árum mátti Benedikt
heitinn sjá á bak föður sínum og
ungum bróður, er báðir hlutu leg
í hinni votu gröf. Faðir hans,
Friðrik, fórst með báti sínum m/b
Hvessingi, er hann var skipstjóri
á, í áhlaupsveðri úti fyrir Vest-
fjörðum þann 13. maí 1922, með
allri áhöfn, þar á meðal 15 ára
syni sfnum, Tómasi, sem var í
sinni fyrstu sjóferð.
Nærri má geta, að við þetta'
sviplega slys var mikill harmur
kveðinn að eftirlifandi konu og
tveim ungum börnum Friðriks
sáluga, er heimilisfaðirinn og
ástsæll sonur og bróðir áttu ekki
afturkvæmt.
Það kom eðlilega í hlut
ekkjunnar, Guðrúnar, móður
Benedikts, að annast uppeldi og
framfærslu eftirlifandi barna
sinna, Margrétar og Benedikts,
sem hér um ræðir.
Uppeldi bamanna tókst með
ágætum, enda Guðrún móðir
þeirra mikil þrekkona, sem gædd
var miklum dugnaði og útsjónar-
semi og lét ekkert tækifæri sér úr
greipum ganga til þess að sjá
börnum sínum farboða, enda
urðu þau myndarleg og góðir
borgarar, þegar þau urðu fulltíða.
Þegar Benedikt heitinn hafði
þroska til, reyndist hann móður
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
PÁLL BENEDIKTSSON
frá Hlfð í Lóni,
Skúlagötu 59, Rvfk.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 13. nóv. kl. 13.30.
ÁstríSur Pálsdóttir, Jón Jónsson
og börn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
ELÍSABET Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kambsveg 14,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 13. þm. kl. 3.
Guðmundur Á Magnússon, Svava S. Jónsdóttir,
Skúli Magnússon, Jean Magnússon,
Ólöf Magnúsdóttir, Hörður Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
sonar okkar og bróður,
ÞÓRÓLFS ÞORLÁKSSONAR,
Eyjarhólum.
Þorlákur Björnsson,
Ingibjörg Indriðadóttir
og systkini hins látna.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð, vinarhug og aðstoð vegna
a'ndláts og jarðarfarar konu minnar, tengdadóttur, móður, tengdamóð-
ur og ömmu
BERGÞÓRU JÓAKIMSDÓTTUR,
Laxárvirkjun.
Gfsli Dan, Sigrfður Gfsladóttir,
Páll Gíslason, Gréta Stefánsdóttir,
Bergþóra Pálsdóttir, Sigurður Pálsson.
sinni dugmikil heimilisstoð og
góður sonur. Snemma bar á því,
að Benedikt væri laginn við þau
störf, sem honum voru falin,
hvort heldur var til sjós eða lands.
Hann var því löngum eftirsóttur
til hvers konar starfa, er kröfðust
öðru fremur eftirtektar og
trúmennsku.
Árið 1935, hinn 26. október,
kvæntist Benedikt eftirlifandi
konu sinni frú Ingibjörgu
Guðmundsdóttur í Hnífsdal, mjög
velgefinni myndarkonu, sem bjó
manni sínum indælt heimili, og
hefir auk þess tekið mikinn þátt í
félagslífi Hnífsdælinga fyrr og
síðar. — Meðal annars verið for-
maður kvenfélagsins Hvatar i
Hnffsdal um nærfellt 3 áratugi.
Þá var hún og formaður Kven-
félagasambands vestfirzkra
kvenna um nokkura ára skeið.
Frú Ingibjörg og Benedikt
eignuðust eina dóttur barna,
Guðmundu, sem gift er Ólafi
Friðbjamarsyni stýrimanni í
Hnífsdal, mesta myndarmanni.
Þau Ólafur og Guðmunda hafa
eignazt 2 börn, en barnabörnin
voru augasteinar Benedikts afa
síns.
Ég, sem þessi minningarorð
skrifa, átti margar ánægjustundir
með Benedikt vini mínum, þegar
við vorum báðir yngri að árum.
Var það ekki ósjaldan, sem við
klifum fjöll saman og gerðum sitt-
hyað annað, sem hugann gladdi,
þegar tómstundir gáfust til frá
önnúm dagsins og skyldustörfum.
Þessara samverustunda minnist
ég ávallt alla tíð með sérstakri
ánægju. Naumast hefi ég kynnzt
vinnusamari manni en Benedikt,
þvf að svo mátti heita, að honum
félli aldrei verk úr hendi, þá fyrir
heimilið, ef ekki var annarri
vinnu til að dreifa. Hann var
góður heimilisfaðir og fórnaði
heimilinu öllum þeim frístundum
SKILTI Á GRAFREITI
OG KROSSA
Flosprent s.f.
Nýlendugötu 14,
sími 1 6480.
+
Þökkum innilega samúð er okkur
var sýnd við andlát og jarðarför
móður okkar
SOFFÍU HAFLIÐADÓTTUR,
Akureyri.
Börnin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður og
tengdamóður
SIGRÚNAR BERGLJÓTAR
ÞÓRARINSDÓTTUR.
Guðmundur Jónsson,
Inger Sigfúsdóttir,
Helga Sigfúsdóttir,
Dóra Sigfúsdóttir,
Jónas Jónsson,
Már Jóhannsson,
Trausti Thorberg Óskarsson.
sinum, sem gáfust frá öðrum önn-
um.
Fyrr á árum stundaði Benedikt
sjó, var þá helzt á sfldveiðum, en
einnig starfaði hann um árabil
sem landmaður á línubátum úr
Hnífsdal.
I fjölda mörg ár, seinni hiuta
ævi sinnar, var hann starfsmaður
Hraðfrystihússins h/f í Hnífsdal
og var það enn, er dauðann bar
svo skjótt að, sem raun varð á.
Er Benedikts sáluga sárt
saknað af stjórnendum og eigend-
um fyrirtækisins, sem og öllu
samstarfsfólki hans við fyrir-
tækið og þá ekki sizt verkstjóra
hans, sem kunni vel að meta
starfshæfni hans f hvfvetna.
Vandaðri mann og vammlausari
getur naumasþ því framkoma
hans og prúðmennska var einstök
og aflaði honum álits allra þeirra.
er höfðu af honum nokkur kynni.
Benedikt heitinn sinnti lítt
opinberum málum, en átti þö um
langa hríð setu i hafnamefnd
Hnífsdals. — Þá var hann og vara-
maður í hreppsnefnd Eyrar-
hrepps um nokkurt skeið. Þá átti
hann stundum sæti í stjórn
Verkalýðsfélags Hnífsdælinga og
reyndist þar nýtur og sanngjarn
maður viðskiptis vegna iheð-
fæddrar athyglisgáfu sinnar.
Benedikts sáluga mun lengi
saknað af samferðarfólki hans, en
þó er sölqiuðurinn mestur hjá
eftirlifandi konu hans og af-
komendum þeirra, sem mikið
hafa misst og aldrei verður bætt.
Að svo mæltu kveð ég góðan og
gamlan vin og bið honum Guðs
blessunar.
Einar Steindórsson
Jólaplatti Glits á markað
VERKSMIÐJAN Glit H/F f
Reykjavík hefur nú hafið fram-
leiðslu á jólaplöttum sínum og er
myndin gerð af Eggerti E. Guð-
mundssyni listmálara. Myndin
sýnir tvo engla, sem horfa mót
jólastjörnunni. Grunnliturinn er
hvítur, en aðrir Iitir blár og gulur.
Þetta er í annað sinn, sem Glit
H/F framleiðir jólaplatta og er
framleiðslan takmörkuð við 2000
tölusett eintök.
AUKIN SLÁTRUN
Á DJÚPAVOGI
Djúpavogi, 8. nóv.
SLÁTRUN er að ljúka þessa dag-
ana og verður heildarslátrunin
um 12.500 fjár, en var um 10.000
fjár í fyrra.
Framkvæmdir eru hafnar við
stækkun barnaskólans og er langt
komið uppslætti að grunninum.
Nýlega var hafizt handa um loka-
frágang nýja hafnargarðsins, sem
gerður var í fyrra. Er vonazt til,
að þessu verki verði lokið áður en
loðnuvertíðin hefst. Þá er einnig
unnið að stækkun þróarrýmis
síldarverksmiðjunnar og miklar
framkvæmdir standa yfir við end-
urnýjun véla og tækja fyrir ver-
tíðina.
Minni bátar hafa ekkert getað
róið að undanförnu, því að ekki er
hægt að taka á móti fiski frá þeim
í sláturtíðinni. Hins vegar hafa
tveir stærri bátamir verið að, en
afli verið sáratregur og ótíð mikil
undanfarið.
— Dagbjartur.
Búðahnupl
TALSVERT hefur borið á hnupli
úr verzlunum I borginni að
undanförnu og voru t.d. fyrr í
vikunni gripnir fimm unglingar í
einu við búðahnupl. Að sögn
rannsoknarlögreglumanns virðist
búðahnupl færast f vöxt, þegar
dregur nær jólum. Ekki er yfir-
leitt um mikil verðmæti að ræða,
sem hnuplað er, en safnast, þegar
saman kemur.
EKIÐ Á MANN
Á REIÐHJÓLI
EKIÐ var á mann á reiðhjóli á
mótum Háaleitisbrautar og Safa-
mýrar á nfunda tímanum á
fimmtudagskvöldið. Þetta var
maður um fimmtugt og hlaut
hann áverka á höfði, en var þó
ekki talinn alvarlega slasaður.
Söngnámskeið
á Akranesi
Akranesi 8. nóvember.
SÖNGNAMSKEIÐ fyrir al-
menning verður haldið á veg-
um Tónlistarfélags Akraness á
næstunni ef nægþátttaka fæst.
Á námskeiðunum verður kennd
raddbeiting og tónheyrn. Inn-
tökuskilyrði eru engin fyrir
byrjendur, en kennarar á nám-
skeiðunum verða Guðmunda
Elíasdóttir söngkona og Agúst
Ármann Þorláksson.
Hvert námskeið verður 6
vikur, 1 tími á viku. Þátttöku-
gjald er kr. 1500 og greiðist við
innritun. Kennsla fer fram í
húsakynnum Tónlistarskólans
og hefst þriðjudaginn 13.
nóvember kl. 20. Innritað verð-
ur á námskeiðin kl. 19.30 sama
dag. Upplýsingar um söngnám-
skeiðin eru í síma 1868 og 1843.
Júlfus.