Morgunblaðið - 11.11.1973, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÖVEMBER 1973.
________Lauaarásbíó
Joe Kidd
★ Segja má, að maður hafi
séð þá alla ef maður hefur séð
einn Eastwood vestra, og er
þessi að engu frábrugðinn.
Vestri, sem ætti að vera ágætis
skemmtun fyrir þá, sem ekki
hafa séð slíkan áður.
Leikstjóri: John Sturges Tón-
list: Lalo Schifrin
Leikendur: Clint Eastwood, Ro-
bert Duwall, John Saxton.
V.J.
ie ie Efnislega fremur slök,
enda málefnið aðeins notað per-
sónu Clint Eastwoods til fram-
dráttar, auk venjulegs ofbeldis
af meinlausara taginu þó. John
Sturges trúir greinilega ekki á
sóðalegt ofbeldi, og vondu
mennirnir deyja því i hæfilegri
fjarlægð, áhorfendum til
hægðarauka. Dágóð skemmti-
mynd í hefðbundnum skraut-
stfl.
SSP.
★ ★ Myndir Eastwoods lofa
fyrirfram nokkuð öruggri
skemmtun og spennu. Þessi er
prýðis/kóður afþreyjari og enn
bregður fyrir snjöllu hand-
bragði John Sturges,
(GUNFIGHT AT OK CORALL,
THE MAGNIFICENT SEVEN,
THE GREAT ESCAPE).
S.V.
NÖLDURHORNIÐ
AÐ þessu sinni ætla ég. kvik-
myndahúsgestum, (og kvik-
myndahúseigenduml) til gamans,
að rifja upp nokkrar myndir, sem
sýndar hafa verið vfða um heim á
undanförnum árum við góða að-
sókn, en hafa, einhverra hluta
vegna, aldrei staðið okkur til
boða. Eru þó marqar hverjar
ameriskar.
„Women in Love", Ken Russel
'69, „The Charge of the Light Bri
gade", Tony Richardson'68. U.A.,
„The Happy Ending", Richard
Brooks, '69., „Let it Be", síðasta
mynd The Beatles, gerð 1970,
„Sunday, Bloody Sunday", John
Schlesinger '70, Queimada, Pont-
ecorvo '69. Allar þessar myndir
eru frá United Artists, hverra um-
boð hér er Tónabíó.
Austurbæjarbió sýnir myndir frá
Warner Bros, og hér eru nokkrar
myndir frá því fyrirtæki, sem
aldrei hefur borið fyrir augu hér-
lendis: „Petulia", gerð af Richard
Lester 1968, með Julie Christie
og George C. Scott í aðalhlutverk-
um. „I love you Alice B. Toklas",
leikstjóri Paul Mazursky '69.
„The Seagull", gerð af Sidney
Lumet ‘69, byggð á leikriti
Chekovs, með úrvalsleikurum f
hverju hlutverki. „Entertaining
Mr. Sloane", gerð eftir leikriti Joe
Ortons '70. Frá Columbfa, —
Stjörnubfó —, hafa aldrei birzt á
tjaldinu myndir eins og „Luv",
með Jack Lemmon, Elaine May og
Peter Falk, stjórnað af Clive
Donner, byggð á leikriti Schisgals.
„Faces" gerð af Cassavetes. báð-
ar frá '69. „The Killing of Sister
George 1 Aldrich '70. Gamla Bió
lúrir á „The Fixer", frá '69, gerð
af Frankenheimer, og ekkert bólar
á „The Prima og Miss Jean
Broide" i Nýja biói, þrátt fyrir að
Maggie Smith hafi fengið Oscars-
verðlaunin fyrir leik sinni f mynd-
inni 1 970.
Hér er aðeins drepið á örfáar
myndir, sem valdar eru af handa-
hófi. Listi yfir myndir, sem aldrei
hafa verið sýndar hérlendis, gæti
fyllt heila sfðu, og tel ég, að kvik-
myndahúsin liggi nokkuð jafnt f
sökinni. Ætlunin mun vera að tína
þær fram á sjónarsviðið smátt og
smátt. Kvikmyndahúseigendum er
velkomið að gera grein fyrir máli
sfnu hér á síðunni, hvenær sem er
Já, og hvernig væri að Laugar
ásbíó hristi rykið af mynd Anthony
Newley frá 1969, „Can Heir-
onymus Merkin Ever Forget
Mercy Humppe, and Find True
Happiness"?
S.V.
Austurbœiarbíó
McCabe og frú Miller.
★ ★ Robert Altman,
(MASH), býr örugglega yfir
meiri hæfileikum en honum
tekst að sýna að þessu sinni.
Sama máli vona ég að gegni
með Warren Beatty, annars má
hann svo sannarlega fara að
vara sig. Julie Christie er rétt
þokkaleg, Réne Auberjonois
góður, sömuleiðis tregafull tón-
list Cohens. En það, sem sómir
sér bezt í myndinni, eru leik-
tjöldin, og þorpið, sem býr yfir
fágætum, þunglamalegum töfr-
um.
S.V.
Tónabíó
Leyndarmálið f Santa Vittoria.
★ ★ Frá því að Anthony
Quinn lék Grikkjann Zorba,
virðist hann hafa staðnað í leik-
NÝLEGA hófust sýningar I Há-
háskólabfói á ftölsku kvikmynd
inni II Conformista, Tæki-
færissinninn, eftir aðal for-
sprakka nýrrar kvikmynda-
bylgju á Italíu, Bernardo Bert
olucci. Bertolucci hefur ekki
verið á sýningarskrá kvik-
myndahúsa á Islandi til þessa,
en vísast er, að einhver hafi
heyrt mannsins getið í sam-
bandi við öll þau skrif, sem
spunnizt hafa út af nýjustu
mynd hans: Síðasti tango í
París.
Sumir segja, að Bertolucci sé
kvikmyndagerðarmaður af
guðs náð. Hvað svo sem hæft er
í því, þá er hitt víst, að mynd
hans Tækifærissinninn hrífur
mann fyrst og fremst vegna
kvikmyndalegra eiginleika
hennar. Slíkar myndir, þ.e.
raunverulegar kvikmyndir eiga
það sammerkt með tónlistinni,
að það nægir ekki að sjá þær
einu sinni eigi svo margþætt
form að njóta sfn til fullnustu.
Tækifærissinninn er annars
kvikmynd um faisma. Hér skal
ekki lagður dómur á, hversu
trúverðuga mynd B. dregur
upp af fyrirbærinu, en hinu
skal hrósað, hversu vel tekst til
með persónusköpun og upp-
byggingu myndarinnar. B.
styðst við samneínda sögu
Alberto Moravia, og notfærir
sér flash-back, sem fléttast all-
an tfmann fnn f morðatriðið,
sem gerist undir lokin. Sjálfur
segir B. um aðalpersónu sína:
„Ég fæst við svokallaðan eðli-
legan þjóðfélagsþegn, sem
smám saman kemur í ljós, að er
líkastur ófreskju. Ég takmarka
mig við sálfræðilegu hliðina."
tjáningu, karlinn vill ekki svo
glatt yfirgefa hann. Sfðan
hefur maður séð hann sem páf-
ann Zorba, Indfánann Zorba,
nú Italann Zorba, og Guð má
vita hvað fleira. Ekki þar fyrir,
karlinn heldur myndinni lengst
af uppi hress og kátur að vanda
Og hér er á ferðinni hin ágæt-
asta skemmtun f skammdeginu,
ef undan er skilið langt og
vellulegt ástarævintýri, sem
gjaman hefði mátt lenda á gólf-
inu í klippiherberginu.
S.V.
★ ★ Stanley Kramer (Guess
Who is Coming to Dinner) er
þekktur fyrir að ná vel til til-
finninga áhorfenda. Anthony
Quinn „lék sig inn í hjörtu
áhorfenda" f Zorba, eins og ein-
hver gæti orðað það, og hefur
verið þar síðan. Saman hefur
þeim tekizt að búa til ósköp
elskulega mynd, dálftið hlægi-
lega á köflum, bæði viljandi og
óviljandi, án þess þó að hafa i
frammi neina listræna tilburði.
SSP.
En ef til vill lýsir kvikmyndin
aðalpersónunni M. Clerici bezt,
þegar hann er umkringdur
dansandi fólki, sem grunlaust f
leik sínum faðmar að sér mann,
sem bruggar því banaráð. Merk
ingafull dansatriði eru í flest-
um mynda B. og skipta oft sköp-
um. Ef vel er að gáð má sjá
sitthvað fleira einkennandi
fyrir vinnubrögð þessa snjalla
kvikmyndaskálds, t.d. hvemig
hann hagnýtir sér að sviðsetja
andstæðurnar „úti“ — „inni“ á
dramatískan hátt.
Þetta sést vel í fyrrnefndu
dansatriði, en er ef til vill hvað
sterkast f morðatriðinu: Clerici
situr inni í bíl sínum á meðan
verið er að kála prófessor
Quadri, Anna, kona Quadris,
æpir á hjálp fyrir utan glugg-
ann á bíl Clericis (sbr. mynd),
en Clerici hefst ekkert að. Enn-
fremur er „klassik" kvik-
myndasögunnar hluti af stíl
Bertoluccis. Hann segir ein-
hvers staðar: „Kvikmynd á að
tjá kvikmynd." Þessa sér víða
stað í myndum hans. M.a. geng-
ur hann svo langt í Tækifæris-
sinnanum, að hann tvöfaldar
merkingu myndarinnar með
þvf að gefa prófessor
Quadri, sem Clerici er falið að
myrða, heimilisfang og síma-
númer franska kvikmyndagerð-
armannsins J.L. Godard, en
hann hefur verið einn helzti
lærifaðir B. í kvikmyndalist.
Með Tækifærissinnanum vildi
hann hins vegar losa sig undan
áhrifum Godards. Þetta skýrist
bezt í atriði, þar sem Quadri og
Clerici ræða um fasisma. Sé
ofangreind upplýsing fyrir
hendi skilst jafnframt, að þeir
Gamla bíó
No Blade of Grass.
★ ★ Þessi mynd á margt
skylt við vísindaskáldsögulegt
verk, þótt eigi sé hún grein af
sama meiði. Hún fjallar um
Lundúnabúa sem flýja til lff-
vænlegri staðar á Bretlandi,
mitt í menningarhruni verald-
arinnar. Mengunin er allt að
drepa og lffsbaráttan harðna
þar til menn grípa til hagla-
byssunnar sér til framfleytis.
Efnið er að mörgu leyti athygl-
isvert og einnig tiltektir við
klippingu, en samt sem áður er
útkoman harla bragðdauf.
V.J.
★ ★ Efni myndarinnar er að
ýmsu leyti athyglisvert, t.d.
spurningin um það, hvað yrði
um manninn, ef það kerfi, sem
hann hefur lifað í, brotnaði nið-
ur, af því að hálfur heimurinn
væri orðinn matarlaus. Meðferð
efnisins er hins vegar fremur
einhliða og lítt spennandi,
þegar einu sinni er orðið ljóst,
hvert stefnir.
SSP.
★ Það er ekki fyrir aðra en
stórsnillinga á borð við Kubrick
að reyna að lýsa þvf voveiflega
ástandi, sem mundi skapast hér
ájörð þegar við værum langt
komnir með að tortíma henni af
eigin sóðaskap. Þetta er of erf-
itt verkefni fyrir Cornel Wilde,
sem gert hefur nokkrar barna-
legar, en nokkuð athyglisverðar
myndir. Og honum tekst ná-
kvæmlega eins til nú.
S.V.
eru að tala um kvikmyndir.
Með hjálp lýsingarinnar, sem
segja má um að leiki eitt af
aðalhlutverkunum í myndinni,
gerist Plato kvikmyndafræð-
ingur. Það er að vonum, að
hreyfing eins og fasismi hafi
haft sterk áhrif á jafn þjóð-
félagslega meðvitaðan kvik-
myndahöfund og B. er. B., sem
er fæddur árið 1940, segist
muna þessa hugsjón Mussolinis
fyrir tilstilli kvikmynda frá
tímabilinu. Þess vegna hvatti
hann samstarfsmenn sfna til að
sjá sem mest af þeim áður en
tökur hæfust. Þess gætir f
flash-back atriðunum, en eftir
að þeim sleppir breytir myndin
jafnframt um síl og sést þá í
fyrsta sinn handkvikmynda-
taka og þá svo um munar.
E.S.
FRÉTTAHORNIÐ
TÍMARITIO Time birti á sínum
tfma forsíðumynd af Marlon
Brando og heilmikla grein um
Last Tango in Paris. Þetta
kostaði tfmaritið u.þ.b. 400.000
dollara auglýsingamissi, það tap-
aði 400 áskrifendum og fékk
8000 mótmælabréf. Tfmaritið var
ekki beint viðbúið þessum mót-
tökum og þvf sfður dreif ifyrirtækið
United Artists, sem dreifir Last
Tango. Hefur fyrirtækið reynt að
draga mjög úr þeim sögusögnum,
að myndin sé æði klámfengin, af
hræðslu við, að hún verði bönnuð
f einhverjum hlutum N-Amerfku. Á
sama tfma hefur annað fyrirtæki,
Transamerica Corporation, sem er
f tygjum við U.A., látið þurrka sitt
nafn út af auglýsingum og öðru
efni, sem viðkemur myndinni, trú-
lega til að halda nafni sfnu hreinu.
____________Hafnarbíó
Figures in á landscape
Leikstjóri Joseph Losey
★ ★ A flótta þeirra félaga
Mac og Ansell yfir fjöll og firn-
lindi kynnist maður mjög náið,
hve ólíkir þeir eru að skapgerð.
Sameiginlegur óvinur þeirra
beggja, þyrlan, er það eina, sem
heldur atburðarásinni gang-
andi. Söguþráðurinn er auka-
atriði og eins takmark þeirra,
frelsið. Maður fylgist með
tveim mönnum, sem eru bornir
saman og reynt að brjóta til
mergjar. v.J.
★ ★ ★ Tveir menn eru á
stöðugum flótta, þeim er ógnað
af þyrlu, en engin skýring er
gefin á málavöxtum. Myndin er
líkt og ofskynjun eða draumur,
áhorfandinn er ýmist I sporum
eftirleitarmanna eða hinna
eltu. Setningar á stangli gefa til
kynna dýpri merkingu en yfir-
borðið eitt ber með sér og trú-
lega má ráða í þjóðfélagslegar
samlíkingar. En ef til vill er
það ekki síður landslag hugans,
sem Losey er hér á gandreið
um. SSP.
★ ★ Það er nokkuð öljóst,
hvert Losey stefnir að þessu
sinni, lfkt og stundum áður. En
honum tekst oft mæta vel að
hlaða þessa langdregnu mynd
spennu, leikur Robert Shaw og
Malcolm McDowell er afburða-
góður, og Shaw, sem virðist
margt til lista lagt, hefur skrif-
að sérstaklega gott handrit.
S.V.
Senn er nú að Ijúka frágangi
myndarinnar Executive Action,
en mikil leynd hefur hvílt yfir allri
gerð hennar. Myndin er sögð fjalla
um samsæri til að myrða John F.
Kennedy, forseta. Aðalhlutverk
eru leikin af þeim Burt Lancaster,
Robert Ryan og Will Geer. leik-
stjóri er David Miller, en handritið
er eftir Dalton Trumbo. Kvikmynd-
ina á að frumsýna fyrir tfunda
dánarafmæli forsetans, sem verð-
ur 22. nóv. F ár.
Á kvikmyndahátfðinni f Locarno
I Sviss taldi brezka blaðið Film, að
þrjár myndir hefðu tekið öðrum
fram. Sú fyrsta var svissnesk,
The Red Train, eftir Peter
Ammann. Myndin fjallar um
ftalska innflytjendur F Sviss, en
þar hafa þeir ekki kosningarétt.
Þeir fara hins vegar yfir til ítalfu
og kjósa þar, þótt þeir búi þar
ekki. Fara þeir þá unnvörpum f
rauðum lestum yfir landamærin
og þar af er nafnið dregið. Einnig
blandar Ammann inn f þetta þjóð
sögunni um William Tell. Önnur
mynd, sem vakti athygli, var
American Graffiti eftir George
Lucas. Lucas hefur áður gert
mynd, sem nefnist THX 1 138,
athyglisverða mynd að sögn, sem
hlaut þvf miður litla dreifingu.
American Graffiti er gjarnan líkt
við The Last Picture Show eftir
Bogdanovich eða Summer of '42
eftir Mulligan, vegna þess að líkt
og þessar myndir sækir American
Graffiti efni sitt til æskuára höf-
undar, sem bjó í smábæ einum
utan við San Fransiskó, árið
1962. Film telur þessa mynd þó
langtum fremri hinum báðum.
Þriðja myndin, sem vakti athygii
þeirra hjá Film var IIIumination.
Mynd þessi er eftir Pólverjann
Krystof Zanussi, en hann hefur
gert nokkrar myndir (Family Life)
og er talinn einn af beztu leikstjór-
um þar í landi ásamt Wadja. Hann
fæst ekki við nein smáatriði, þvf f
umræddri mynd veltir hann fyrir
sér Iffsgátunni og viðhorfi sfnu til
IFfsins.
SSP.
Að vera normal: tækifærissinninn