Morgunblaðið - 06.12.1973, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1973
11
Frá furulundinum á Þingvöllum
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar.
Axels Einarssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð.
Þ€IR RUKR
UlflSKIPTin SEH1
IVSR I
RUGL\
íbúð vlð smáragðtu
Stór íbúð á hæð, ásamt herbergjum í kjallara (íbúð) og
bílskúr, ertil sölu. íbúðin ervið Smáragötu.
Upplýsingar i síma 10271 i allan dag og eftir kl. 19
næstu daga.
Sigurður Árnason
MATVÖRUMARKAÐUR VESTURRÆJAR
hreppurinn Skógrækt ríkisins
báðar þessar jarðir. Þar hafa litl-
ar framkvæmdir orðið enn vegna
fjárskorts. Túngirðingum hefur
þó verið haldið við og nokkur
hundruð plöntur verið gróður-
settar innan túns í Sarpi.
Næsta sumar stendur til að gera
samning við ábúanda Efra-
Hrepps og ætlunin er að girða þar
væna spildu til skógræktar.
Agúst Árnason skógarvörður er
sá, sem mestan veg og vanda
hefur af starfi skóræktarinnar í
Skorradal, og við innum hann
frétta:
„Ég hóf starf hjá skógræktinni
hér í Skorradal árið 1959 og
framan af höfðum við 10—12
manna vinnuflokk á sumrin, en
síðari árin um 8 manns.
Starfið fer aðallega fram á
sumrin og er fólgið í plöntun á
vorin, uppsetningu girðinga og
viðhaldi á þeim eldri, áburðar-
dreifingu og hirðingu. A veturna
vinna tveir menn úr sveitinni i
akkorði við grisjun. Og núna
liggur fyrir að fara í jólatréshögg.
Til jólatréssölu fellum við um
1000 stk. af rauðgreni í ár, sem
eru frá 0,70—3 m á hæð. Þau fara
flest f Borgarnes og sveitir Borg-
arfjarðar. Auk þess er höggvið
um 1 tonn af stafafurugreinum,
sem fólk setur i stóra vasa og
notar sem jólaskraut og stundum
sem jólatré. Stafafurugreinarnar
njóta vaxandi v'insælda, enda eru
þær bæði ódýrari og standa miklu
lengur en aðrar. Brúttótekjur af
jólatréssölunni eru um 400 þús-
und krónur.
Hvaða tegundir sýnast ykkur
beztartil nytja?
Til nytja má segja, að stafafura
og sitkagreni frá Alaska og rauð-
greni frá Nóregi lofi mestu. Rauð-
grenið og stafafuran vaxa jafnt á
hverju ári og þær tegundir eru
lausar við áföll og hafa náð hér
4—5 m hæð. Sitkagrenið vex líka
vel, hefur náð rúmlega 6 metrum,
en því er heldur hættara við áföll-
um. öspin er þó hæst trjáa hér,
eða hátt á sjöunda metra.
Auk þessa eru gerðar tilraunir
með fjölda tegunda í tilrauna-
reitum — margar af þeim upp á
von og óvon. En segja má, að þær
tegundir, sem til einhvers er
ætlazt af, séu 7—8 og þeim því
plantað í töluverðum mæli.
Reynslan af skógrækt hér í
Skorradal hefur verið góð og hún
sýnir, að skilyrði í Borgarfirði
standast fyllilega samanburð t.d.
við skilyrði á Hallormsstað, þótt
þar sé skógrækt lengra á veg kom-
in, enda hófst hún þar nákvæm-
Iega 50 árum fyrr. Síberíulerkið
virðist þó una sér betur á Austur-
landi en í þessum landshluta.
Fræ til sáninga hefur verið
fengið að mestu frá Alaska, en
öflun þess var þó nokkuð erfið
framan af. Upphafið að fræöflun
stafafurunnar var það, að Einar
G. E. Sæmundsen kom með svo
sem 1 matskeið af stafafurufræi
frá Skagway í Alaska árið 1950.
Síðan hefur töluvert af fræi verið
keypt þaðan, en það er oft dýrt,
eins og sést á þvi, að 1 kg af fræi
hefur kostað allt upp i 40 þúsund
krónur. Fræið, sem við fáum frá
Alaska, er tekið á stöðum, sem
hafa svipað veðurfar og ísland.
En senn kemur að því, að við
getum ræktað fræ hér heima.“
—x—
Eftir ánægjulega gönguferð um
skógivaxnar hlíðarnar á Skorra-
dalshálsi, þar sem tilkomumikil
trén teygja sig stolt til himins, er
numið staðar stundarkorn við
stein, sem reistur var til minning-
ar um hina veglegu gjöf þeirra
hjóna, Soffíu og Hauks Thors:
I steininn er höggvið gullfallegt
ljóð eftir Hannes Hafstein og er
bezt að láta það fylgja hér með:
Sú kemur tíð, er sárin foldar
gróa
sveitirnar fyllast, akrar
hylja móa
brauð veitir sonum móðurmoldin
frjóa
menningin vex I lundi nýrra
skóga.
Við steininn tekur Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri sér
stöðu og mælir nokkur fróðleiks-
og hvatningarorð til viðstaddra
við góðar undirtektir.
Síðan er ferðinni haldið áfram
yfir Hestháls og um Lundareykja-
dal og Uxahryggi til Þingvalla, en
þar er ætlunin að skoða furulund-
inn gamla austan við Almanna-
gjá, þar sem segja má að standi
vagga skógræktar á Islandi.
Það var árið 1899, sem fyrstu
trjáplöntur voru settar niður á
þessum stað og var það fyrir
frumkvæði Carls Ryders, sem var
skipstjóri á skipum Sameinaða
gufuskipafélagsins og sigldi hing-
að um árabil. Var til þessara
framkvæmda notað samskotafé
frá Danmörku og íslandi, en Al-
þingi gaf samþýkki sitt til þess, að
staðurinn væri valinn á Þingvöll-
um.
Árið 1900 fékk Ryder tvo
danska skógfræðinga í lið með
sér, þá C.V. Prytz og C. E. Flens-
borg, og kom það i hlut C.E.
Flensborgs að sjá um skógræktar-
framkvæmdir hér á landi næstu 7
sumur.
Alíka reitur var girtur við
Grund í Eyjafirði aldamótaárið og
sams konar plöntur settar þar
niður til að fá samanburð á gróð-
urskilyrðum og brátt tók Alþingi
að styrkja þessar tilraunir að öllu
leyti.
Erfiðleikar voru þó miklir I
byrjun. Menn þekktu ekki veður
og gróðurskilyrði og nærri var
ógerningur að afla fræs og
plantna frá þeim stöðum, sem
ætla mátti, að hefðu svipað veður-
far og ísland. Því urðu mönnum á
mikil mistök. Þó lifðu nokkrar
harðgerar trjátegundir af og af
vexti þeirra má draga margs
konar ályktanir.
1 furulundinum á Þingvöllum
eru það bergfura og fjallafura úr
háfjöllum Mið-Evrópu, sem hafa
náð mestum þroska og svo lindi-
furan frá Síberíu. Þessar teg-
undir uxu hægt framan af, en
juku vöxtinn síðan ört. Lindi-
furan óx að vísu lítið sem ekkert
fyrr en hún fékk skjól af fjalla-
furunni. Hæsta lindifuran á Þing-
völlum er nú orðin röskir 8 metr-
ar á hæð og bergfururnar margar
7—8 metrar. Þetta er því hægur
vöxtur miðað t.d. við sitkagrenið,
sem sums staðar hefur náð 8
metrum á 22 árum.
Furulundurinn á Þingvöllum er
1 ha að stærð og í honum eru nú 7
trjátegundir. Varla dettur nokkr-
um ttianni það í hug núna að fella
þessi góðu gömlu tré, því segja
má, að þessi lundur sé n<'l^urs
konar safngripur I sögu skíg.vlkt-
ar á Islandi.
Höfum breytt verzluninni Hagakjör i matvörumarkað. Reynið
viðskiptin. Verzlið ódýrt.
MATVÖRUMARKAÐUR VESTURRÆJAR
Hagamel 67.
Hrœrivél-
og meira til
Kenwood Cheffette er meðalstór hrærivél, sem
býður upp á marga möguleika. Það er hægt að losa
hana frá skálinni og hræra í pottunum. Sé hún
látin standa upp á endann, knýr hún þeytikvörn,
sem blandar og mylur.
Vél sem hentar venjulegu eldhúsi og kostar aðeins
kl. 4.495,00 og skál og standur kr. 1600,00.
J, /fenwood
HEKLA hf.
Laugavegi 170-172. Sími 21240 og 11687.