Morgunblaðið - 06.12.1973, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6, DESEMBER 1973
| iMHimraiIlli MORCUNBLABSIIIS
Töp gegn Debuque
og Augustana
Frá Kristni Jörundssyni:
Eftir sex daga dvöl I Luther
College-háskólanum hélt íslenzka
körfuknattleikslandsliðið til Deb-
uque, og þar var dvalið á einka-
heimilum f fyrsta skipti í ferð-
inni. Bjuggu 2 eða 3 leikmenn á
hverjum stað.
Debuque-háskólinn er fremur
lltill, telur um 600 nemendur, og
áhorfendur leiksins voru því
óvenjulega fáir, eða um 400 tals-
ins. Leikurinn var jafn fyrstu tíu
mínúturnar, eins og fyrri leikir
okkar. Eftir 11 mínútur var stað-
an t.d. 25-2Í fyrir Dubuque-há
skólann, en eftir það fór að draga
sundur með liðunum og í hálfleik
var staðan orðin 58—37, þeim I
vil. Seinni hálfleikinn byrjuðu
Bandaríkjamennirnir síðan með
miklum krafti og náðu fljótlega
yfirburðastöðu 90—51, en síðasta
hluta leiksins hélt íslenzka liðið í
við þá, einkum vegna stórgóðs
sóknarleiks Þóris Magnússonar.
Leiknum lauk með sigri Debuque,
117—73. Stighæstir I íslenka lið
inu voru Þórir með 28 stig og
Kristinn með 16 stig.
Það var eins með þetta lið og
önnur, sem við höfum leikið við
hér, að það hafði nokkra leik-
menn, sem voru vel yfir 2 metrar
á hæð, og liðið æfir auk þess alla
daga vikunnar.
Frá Debuque fórum við siðan
til Rock Isiand, sem er 80 þúsund
manna borg á bökkum Missisippi-
fljótsins. I borg þessari er Aug-
ustana-háskólinn, en í honum eru
um 2200 nemendur. Skóli þessi er
mjög virtur sem vísindastofnun
innan Bandaríkjanna, sérstaklega
jarðfræðideild hans.
Augustana-skólinn hefur á að
skipa mjög skemmtilegu körfu-
knattleiksliði, I fyrra varð það í
þriðja sæti I keppni minni há-
skóla í Bandaríkjunum, og á
heimavelli hefur Iiðið ekki tapað
leik síðan í janúar 1971.
Iþróttahúsið, sem leikið var í,
er aðeins þriggja ára og það al-
glæsilegasta, sem við höfum hing-
Fáum ekki Norð-
urlandamótið
NORÐURLANDAMEISTARA-
MÖTIÐ í handknattleik
verður ekki háð hérlendis að
þessu sinni. Eins og fram hefur
komið, bauð HSl til móts þess,
eftir að Danir, sem áttu að sjá
um framkvæmd þess, gengu úr
skaftinu. Hins vegar er ekki
enn Ijóst, hvort mótið verður
fellt niður, eða hvort það verð-
ur haldið 1 Noregi eða Svíþjóð.
í gær hafði Einar Mathiesen,
formaður HSÍ, samband við for-
ystumenn handknattleikssam-
bandanna á Norðurlöndum.
Sagði Einar í viðtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, að Svíar
og Finnar hefðu þá gefið afsvar
um að koma hingað til keppni.
og mætti ljóst vera, að drægju
þessi lönd sig út úr mótinu gæti
ekki orðið af því. Danir vildu
ekki gefa ákveðið svar I gær, en
Norðmenn töldu sig hins vegar
reiðubúna til þess að koma, svo
og Færeyingar.
— Svörin hjá sænska sam-
bandinu voru þau, að þarna
yrði um of kostnaðarsama og
langa ferð að ræða fyrir sænska
landsliðið, og sömu ástæður
voru gefnar upp hjá Finnum.
Bæði þessi lönd eru þó fýsandi
þess, að mótið fari fram, og er
nú á umræðustigi, að það verði
haldið i Noregi. Munu þær lin-
ur væntanlega skýrast nánar í
dag.
að til leikið i. Körfuknattleiksvell-
irnir, sem eru tveir, eru með tart-
angólfi, auk þess sem í húsinu er
sundlaug og tugir sala fyrir hinar
ýmsu íþróttagreinar.
Húsið var troðfullt, þegar leikið
var, og fyrir aftan körfuna, þar
sem við hituðum upp, var stór
hljómsveit með rafmagnsgitara
og orgel og lék hún dynjandi
rokklög við miklar undirtektir
áhorfenda. Stórkostleg stemning!
Leikmenn Augustana-skólans
voru mjög leiknir og hittnir, og
skoruðu þeir flest stig sín með
langskotum, en ekki undir körf-
unni, eins og hin liðin hafa öll
gert. Þeir náðu fljótlega yfir-
burðastöðu, í hálfleik var staðan
orðin 73—39 þeim í vil. Seinni
hálfleikinn léku þeir á minni
hraða, og við náðum þá að halda
knettinum lengur, auk þess sem
leikfléttur tókust þá oft vel hjá
okkur. Lokatölur leiksins urðu
122—66. Beztir i íslenzka liðinu
voru þeir Gunnar Þorvarðsson og
Stefánarnir Bjarkason og Hall-
grímsson. Stighæstur var Krist-
inn með 16 stig, Gunnar og Þórir
með 14 stig.
Allir landsliðsmenn eru við
beztu heilsu og biðja fyrir kveðj-
ur heim.
Þórir Magnússon hefur staðið
sig vel í Bandarikjaferðinni.
Danmörk sigraði
DANIR sigruðu Belgíumenn í
landsleik i handknattleik, sem
fram fór I Belgiu á þriðjudags-
kvöldið, með 32 mörkum gegn 11.
Leikurinn var liður í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar
í handknattleik. Staðan i hálfleik
var 14-5, en siðustu 13 mínúturn-
ar voru algjörlega i eigu danska
liðsins, sem skoraði þá 11 mörk,
án þess að Belgiumönnum tækist
að svara fyrir sig. Mörk danska
liðsins skoruðu: Flemming Hans-
en 10, Irving Larsen 4, Jörgen
Frandsen 3, Jörgen Vosgaad 3,
Jörgen Heidemann 3, Boye
Steinskjær 3, Peter Mow 3, Tom
Lund 2 og Bengt Jörgensen 1.
Markahæstur í liði Belgíumanna
var Dirk Verhofstads, sem skor-
aði 6 mörk.
Staðan í liðinu er nú þessi:
Luxemborg 3 3 0 0 80-33 6
Danmörk 3 3 0 0 80-33 6
Luxemburg 2 1 0 1 29-37 2
Belgía 3 0 0 3 32-71 0
Met Guðións bætt
Brynjólfur Björnsson, A 1:19,3
Gunnar Gunnarsson, Æ 1:22,3
Daði Kristjánsson, UBK 1:23,0
50 metra bringusund telpna:
sek.
Steingrímur Davíðsson, 14 ára
piltur úr Kópavogi, vakti veru-
lega athygli á unglingasundmóti
Ægis, sem fram fór sl. sunnudag,
en þá bætti hann sveina- og
drengjametið í 200 metra bringu-
sundi og synti á mjög góðum tíma,
2:43,9 mín. Gamla drengjametið í
þessari grein átti hinn frækni
sundgarpur, Guðjón Guðmunds-
son frá Akranesi og var það 2:43,0
mín. Guðjón var 16 ára, þegar
hann setti met þetta, og má af þvi
sjá, að ástæða er til að ætla, að
Steingrímur eigi eftir að bæta sig
verulega. Haldi svo fram sem
horfir hjá þessum unga pilti, má
búast við miklum afrekum af
hans hálfu.
Góður árangur náðist i fléstum
keppnisgreinum á Ægismótinu og
sett voru samtals 6 aldursflokka-
met. Auk mets Steingríms í 200
metra bringusundi bætti hann
einnig sveinametið i 100 metra
flugsundi með því að synda á 1:1-
0,5 mín. 1 50 metra skriðsundi
telpna setti Hrefna Rúnarsdóttir
úr Ægi nýtt telpnamet með því að
synda á 33,3 sek. Kristbjörn
Guðmundsson úr Hafnarfirði
setti nýtt sveinamet i 50 metra
skriðsundi, synti á 32,3 sek.,
Þórunn Alfreðsdóttir úr Ægi setti
telpnamet í 50 metra flugsundi,
synti á 34,4 mín. og í 100 metra
flugsundi, sem hún synti á 1:13,1
mín.
Helztu úrslitin í einstökum
keppnisgreinum á mótinu urðu
annars þessi:
100 metra flugsund sveina:
mín.
Steingrímur Davíðsson,
UBK 1:10,5
Ivar Friðriksson, Æ 1:15,4
Daði Kristjánsson, UBK 1:16,6
Gunnar Gunnarsson, Æ 1:17,4
Hermann Alfreðsson, Æ 1:19,2
50 metra skriðsund telpna:
sek.
Hrefna Rúnarsdóttir, Æ 33,3
Anna Sigurjónsdóttir, UBK 36,8
Ingibjörg Jensdóttir, Æ 38,5
Helga Gunnarsdóttir, Æ 38,6
Kolbrún Ólafsdóttir, SH 39,0
Regína Ólafsdóttir, KR 39,1
50 metra skriðsund sveina:
sek.
Kristbjörn Guðmundsson, SH 32,3
Pétur Ragnarsson, Æ 32,9
Pétur Sigurðsson, A 35,3
Grétar Jóhannsson, SH 35,8
Ásmundur Asmundsson, A 36,2
200 metra bringusund drengja:
mín.
Steingrímur Davíðsson,
UBK 2:43,9
Guðmundur Rúnarsson, Æ 2:45,3
Sigmar Björnsson, IBK 2:51,0
Hreinn Jakobsson, A 3:01,5
Árni Eyþórsson, UBK 3:06,0
50 metra flugsund telpna:
sek.
Þórunn Alfreðsdóttir, Æ 34,4
Hrefna Rúnarsdóttir, Æ 37,6
Björg Halldórsdóttir, SH 42,1
Anna Sigurjónsdóttir, UBK 42,7
Ólöf Guðmundsdóttir, Æ 44,0
100 metra baksund sveina:
mín.
Hermann Alfreðsson, Æ 1:17,8
Bjarni Björnsson, Æ 1:17,8
MEISTARAFLOKKUR IR i
körfuknattleik fór austur á Firði
fyrir nokkru síðan og lék tvo leiki
við úrval UlA. Tilgangurinn með
þessari ferð var að gefa körfu-
knattleiksmönnum á Austurlandi
kost á að sjá körfuknattleik, eins
og hann gerist beztur hér á landi.
Einnig að fylgjast með dómgæzlu
eins af okkar beztu dómurum,
Kristbjörn Albertssonar, en
hann var einnig með í ferðinni.
Leiknir voru tveir leikir og fóru
þeir báðir fram á Eskifirði, úrslit
þeirra urðu þau að IR vann fyrri
leikinn 100:52 og þann síðari
127:68. Stigahæstir leikmanna IR
urðu Kolbeinn Kristinsson með
78 stig samanlagt, Jón Jörundsson
Hrefna Rúnarsdóttir, Æ 41,0
Anna Sigurjónsdóttir, UBK 42,0
Guðbjörg Hauksdóttir, UBK 43,5
Sigrún Snorradóttir, UBK 44,2
Kolbrún Ólafsdóttir, SH 44,9
50 metra flugsund sveina:
sek.
Pétur Ragnarsson, Æ 37,0
Pétur Sigurðsson, Á 42,3
Karvel Hreiðarsson, UMFN 45,0
Logi Friðriksson, Æ 45,6
Jón B. Sigurðsson, A 48,0
með 38 stig og Þorsteinn Guðna-
son með 36 stig. Af Austfirðing-
um skoraði Sigurður Hafsteins-
son mest, eða 38 stig, Björn
Birgirsson var með 31 stig og
Hjálmur Flosason með 24 stig.
Það vakti athygli, að vítahittni
Austfirðinganna var betri en IR-
inga í báðum leikjunum, í fyrri
leiknum 60% á móti 58% og í
þeim siðari 55% á móti 43%.
Dómarar I báðum leikjunum
voru þeir Kristbjörn Albertsson
og Ingólfur Hjaltason, en Krist-
björn hélt jafnframt fjölsótt og
vel heppnað dómaranámskeið á
Eskifirði.
BB.
IR á Austfjörðum
35
Félagslíf
I.O.O.F. 5= 1 551268VÍ =
I O O F 1 1 .5 1 551 268Vi =
I.O.G.T.
Stúkan Andvari nr. 265.
Fundur i kvöld kl 20 30
Templarahöllinnl, Eiríksgötu 5.
Venjuleg fundarstörf.
Æ.T.
Skyggnilýsingarfundur
Hafstemn Björnsson, miðill.
heldur skyggnilýsingarfund á veg-
um SRFÍ, miðvikudaginn 12.
desember n.k. kl 21 OO. i Austur-
bæjarbiói.
Aðgöngumiðar verða afgreiddir i
skrifstofu SRFÍ. að Garðastræti 8.
fimmtudaginn 6 desember n k á
timanum kl. 17 til 19 — Ef
eitthvað kynni að verða eftir af
aðgöngumiðum þá, verða þeir
afgreiddir mánudaginn 10 des á
sama stað og tima
Stjórnin.
Flladelfla, Reykjavik
Almenn samkoma i kvöld kl 8.30.
Ungar stúlkur vitna og syngja
EyfirSingar I Reykjavik og ná-
grenni.
Fyrirhugaðri skemmtun aflýst.
EyfirðingafélagiS.
K.F.U.M. — A.D.
Aðaldeildarfundur að Amtmanns-
stig 2b i kvöld kl. 8.30 Séra
Guðmundur Óli Ólafsson annast
þátt er nefnist „Á aðventú'. Allir
karlmenn velkomnir
Ingólfsstræti 4.
Samkoma í kvöld kl. 9. Allir vel
kommr.
Stefán Runólfsson.
Heimatrúboðið.
Almenn samkoma að Óðinsgötu
6a i kvöld kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Hér er orðsending frá Kvenna-
deild Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra
Hinn árlegi jólafundur félagsins
verður i Lindarbæ, fimmtudaginn
6. desember kl. 8.30.
Dagskrá verður sem hér segir:
Séra Halldór Gröndal, flytur jóla-
hugvekju.
Börn sýna barnafatnað frá verzlun-
inni Fataskápurinn.
Gisli og Arnþör skemmta
Að ógleymdum Ómari Ragnars-
syni.
Félagskonur eru hvattar til að fjöl-
menna, og munið að taka eigin-
mennina með.
Stjórnin.
Kvenfélag Kópavogs
Jólafundurinn verður haldinn
fimmtudagmn 6. des kl 20.30
i félagsheimilinu, uppi. Venjuleg
fundarstörf Ávarp séra Gunnar
Árnason. Söngur frá Tónlista-
skóla Kópavogs. Upplestur ofl.
Félagskonur njótið kvöldsins og
mætið vel
Sjórnin
Sunnukonur Hafnarfirði
Jólafundurinn verður haldinn
fimmtudaginn 6 des kl 8 30 í
Góðtemlarahúsinu. Fjölbreytt
skemmtiatriði. Happdrætti og
kaffi
Sjórnin
Hjálpræðisherinn.
Fimmtudag kl 20 30: Almenn
samkoma. Allir velkomnir.