Morgunblaðið - 12.12.1973, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 12.12.1973, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 5 VARÚLFUR í VÍGAHUG Fjórða bókin um Chris Cool ungnjósnara. Bandaríska leyniþjónuétan sendir tvo af sínum færustu njósnurum, Chris Cool og Geronimo Johnson, austur fyrir járntjald til þess að bjarga þaðan vinveittum manni, en þeir koma of seint. Minnstu munar að Chris sé hæfður með eiturör og margt fer öðru vísi en ætlað var. Leikurinn berst síðan til Austurlanda og svo aftur austur fyrir járntjaldið, og allan tímann eiqa þeir í höggi við harðsvíraða glæpamenn. LEYHDARDÓMUR SVARTSKEGGS SJÓRÆNIHGJA Önnur bókin um þá félaga Bob, Pete og Júpiter, sem mynda Njósnaþrenninguna, að ógleymdun Alfred Hitchcock. Hinir tápmiklu félagar í Njósnaþrenningunni eru enn við sama heygarðshornið; haldnir óseðjandi löngun til þess að vera leynilögreglumenn og leysa hverskonar leyndardóma. Ævintýralöngunin rekur þá út í margs konar hættur og ævintýri. EMMA „Elskan mín, ég er hrædd um að það geti orðið langt þangað til að við sjáumst næst. Allir eru mjög ánægðir með kvikmyndina mlna og umboðsmanni mínum þykir líklegt að þeir bjóði mér langvarandi samn- ing. Hann gæti jafnvel orðið til fimm ára". Fimm ár, orðin syrtu fyrir augum Emmu. Eftir fimm ár yrði hún sextán ára, nærri fullorðin. Barna- og unglingabœkur 1973 Örn & Örlggur, Vesturgötu 42, — Sími 25722. PADDIHGTDH KEMUR TIL HJÁLPAR Hugh Lofting Dagfinxtur dýralæktiir og sjórænlnglarnlr * • * rsSSD Al Perkins umskrifaði fyrir byrjendur í lestri Andrés Kristjánsson íslenzkádi Þriðja ævintýrið um Perúbjörninn, sem getur talað og býr með Brownfjölskyldunni. Nú eru þrjú ár liðin síðan hinn gunnreifi hrakfallabálk- ur, PADDINGTON Perúbjörn, hélt innreið sína á ís- lenzkan bókamarkað. Paddi eins og hann er venjulega kallaður, gengur um með rauðan, háan hatt, og hefur sínar eigin skoðanir á lífinu, sem fara því miður ekki alltaf í sama farvegi og annarra. Þess vegna lendir Paddi í alls konar ævintýrum og klandri, enda er hann skjótur að taka ákvarðanir og framkvæma þær, en hugsar minna um afleiðingarnar — og raunar alls ekki fyrr en það er allt of seint. Paddington kemur til hjálpar MICHAEL BOND DAGFINB8UR DYRALÆKNIR OG SJÓRÆNINGJARNKR — BYRJENDABÓK — Dagfinnur dýralæknir er á leið heim frá Afríku á skipinu sínu og með honumeru öll dýrin, en þá kemur babb í bátinn, sjóræningjar ráðast á þau. En Dágfinnur dýralæknir drepst nú aldrei ráðalaus og með aðstoð vina sinna, dýranna, finnur hann upp ráð til þess að losna við Ben Ali sjóræningja og félaga hans. Allt fer vel að lokum, sem betur fer. Myndir gerM LEYHDARDOMUR VILLA ROSA Buckingham-fjölskyldan fer í ferðalag itl Ítalíu og ætlar að dvelja á hótel Villa Rosa í miðaldabænum Orvieto. Á leiðinni lenda þau strax í erfiðleikum og ævintýrin bíða þeirra á Villa Rosa, þar sem þau flækjast í net alþjóð- legs glæpahrings. Útlitið er stundum svart, en að lokum afhjúpar hinn þrautseigi Símon le.yndardóm Villa Rosa og flettir ofan al víðtækum samtökum um stuldi á frægum listaverkum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.