Morgunblaðið - 12.12.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.12.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 23 ÁKVEÐIN STEFNA VERÐI MÖRKUÐ í RAFORKUMÁLUM „Kindin datt ofaní til lambsins TILLAGA ellefu þingmanna Sjálfstæðisflokksins til þings- ályktunar um raforkumál var til umræðu í sameinuðu þingi s.l. þriðjudag. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar, Jón Amason, mælti fyrir henni. Eins og áður hefur verið greint frá I Morgunblaðinu, þá gerir tillagan ráð fyrir, að mörkuð verði ný stefna í raforku- málum.sem feli m.a. I sér eflingu raforkuiðnaðarins, svo að tryggð verði næg og sem ódýrust og öruggust raforka til allra not- enda. Verði það m.a. gert með því að stærstu verkefnin við orku- vinnsluna verði leyst með sam- eiginlegu átaki alþjóðar, og að fólkið í byggðum landsins fái sem beinust áhrif á stjórn raforku- iðnaðarins. Stefnt verði að þvf, að orku- vinnslufyrirtæki séu sameign sveitarfélags og rfkis, eða eign sveitarfélaga, sameignarfélaga þeirra eða hlutafélaga. Stefnt verði að samtengingu orkuveraog raforkukerfa. Orkuvinnslufyrir- tæki verði sameinuð í landshluta- fvrirtæki, eftir því sem hag- kvæmt er talið. Komið verði á fót samstarfsnefndun landshluta- fyrirtækjanna varðandi orku- vinnslu og samrekstur. Við umræður um tillöguna sagði Jón Ámason m.a.: „Með þessari tillögu, sem hér er til umræðu má segja, að borin sé fram ákveðin stefnumörkun raforkumálanna, bæði að því er snertir sjálfa raforkuvinnsluna og einnig dreifiveitur og aðra þætti rafvæðingarinnar. Það er öllum löngu ljóst, að í vatnsork- unni og jarðvarmanum búa ein- hverjar mestu auðlindir okkar lands. Með sífelldri tækniþróun verða þessar auðlindir auðnýttari til hvers konar þjónustu fyrir íbú- ana og til allra framleiðslustarfa. Af þessu leiðir, ekki síst með til- liti til þeirra gífurlegu verðbreyt- inga, sem nú eiga sér stað í heim- inum á olíu og annarri orku, að eftirspurn eftir raforkunni fer sfvaxandi. Þjóðin eygir nú mögu- leika á nýjum og nýjum verk- efnum til framleiðslu, sem miklar vonir eru bundnar við og skapa munu enn breiðari grundvöll og auka alla fjölbreytni í fram- leiðslugreinum þjóðarinnar. Það segir sig þvi sjálft, að öll stærstu verkefnin við sjálfa orkuvinnsl- una verða ekki leyst nema með sameiginlegu átaki alþjóðar. Kemur m.a. til greina, að ríkið verði eignaraðili á ýmsan hátt, en engan veginn er nauðsynlegt að lögbinda fyrirfram, að hlutur ríkisins skuli vera 50% eða meira. Eðlilegast væri, að hinar ýmsu sveitarafveitur, sem koma til með að kaupa raforkuna, ættu þess kost að vera eignaraðilar og þar með þátttakendur í sjálfri upp- byggingunni á aðalorkuvinnslu- fyrirtækjunum í landinu. Varð- andi orkuvinnslufyrirtæki, sem byggð verða i hinum ýmsu lands- hlutum og eru af þeirri stærðar- gráðu, að orkuframleiðslan verði að miklu leyti hagnýtt á viðkom- andi svæði er eðlilegast, að fyrir- tækið eða orkuverið sé að sem mestu leyti í eigu heimamanna og undir þeirra eigin stjórn. I þeim efnum höfum við fyrir okkur góð fordæmi til fyrirmyndar. Þar er t.d. Ándakílsárvirkjunin, sem er sameign Akraneskaupstaðar og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Skeiðfossvirkjun, sem er eign Siglufjarðarkaupstaðar, Laxár- virkjun, sem er að meiri hluta eign Akureyrarkaupstaðar og síð- ast en ekki síst orkuverin, sem Reykjavíkurborg hefur reist, bæði hér við Elliðaárnar, Sogið, og einnig með þátttöku sinni í hinum stærri virkjunum ásamt Landsvirkjun. aiwftci Til að fullnægja orkuþörf í hinum ýmsu landshlutum ber að sjálfsögðu að meta þá valkosti, sem um er að ræða f hverju tilfelli A fundi sameinaðs þings sl. fimmtudag mælti Magnús Jóns- son (S) fyrir tillögu til þings- ályktunar, sem hann flytur ásamt Ellert B. Sehram (S) og hljóðar svo: Jón Arnason, alþm. og að sjálfsögðu að velja þá leið, sem tryggir í senn sem hagkvæm- ast verð raforkunnar og veitir einnig sem mest öryggi f rekstrin- um. Þegar um er að ræða orku- frekan iðnað eins og t.d. álfram- leiðsluna í Straumsvík, kemur að sjálfsögðu ekki annað til greina en stórvirkjanir i stærstu fall- vötnum landsins. Öðru máli gegn- ir hins vegar um þjónustu og allan almennan og algengan iðnað til heimilisnota. I þeim tilfellum ber að kanna rækilega alla þá möguleika sem fyrir hendi eiu heima i héraði og hagnýta siðan að öðru jöfnu þann valkostinn, sem veitir meira öryggi." Þá sagði Jón Ámason, að segja mætti, að raforkumálin stæðu nú á tímamótum. Bæði væru nú fyrir hendi í öllum landshlutum orku- ver, og að því er lyti að sjálfri raforkudreifingunni væri gert ráð fyrir því, aðeftir rúmlega eitt ár verði lokið við að leggja allar dreifiveitur í landinu. Öll býli í landinu, sem gert væri ráð fyrir að fengju rafmagn frá samveit- um, hefðu þá verið tengd inn á samveitukerfið. Öll efling raf- orkuiðnaðaiúns og aukning dreifi- lina yrðu hins Vegar viðvarandi verkefni framtíðarinnar. Loks fjallaði þingmaðurinn um þann verðmismun, sem væri á raf- magni úti um landsbyggðina, og sagðist telja það eðlilegt, að reynt yrði að koma á verðjöfnun á raf- orkunni, þannig að landsmenn allir sætu við sama borð í þeim efnum, hvað snerti raforku til sömu nota. Alþingi ál.vktar að skora á rfkis- stjórnina að hefja sem fyrst við- ræður við Sameinuðu þjóðirnar um samstarf tslands og hins nýja háskóla Sameinuðu þjóðanna með það í huga að ein eða fleiri deildir skólans verði staðsettar á tslandi eða að fslenskar rann- sóknarstofnanir taki upp sam- vinnu við háskólann um einstök verkefni. Magnús Jónsson rakti f upphafi ræðu sinnar aðdragandann að hugmyndinni um háskóla Sam- einuðu þjóðanna. Ilefði á síðasta allsherjarþingi verið samþykkt tillaga, sem tsland hefði m.a. stað- ið að, um að undirbúa stofnun skólans. Þannig hefði ísland þegar í upphafi verið tengt hug- myndinni. Síðan sagði Magnús: „En menn munu þá spyrja, hvað er háskóli Sameinuðu þjóð- anna, og hvaða ástæða er til þess, að ísland hafi áhuga á þessu máli. Háskóli Sameinuðu þjóðanna eða hugmyndin um hann var fyrst f því formi, að þetta yrði alþjóðleg- ur háskóli, þar sem stúdentar væru við nám i ýmsum alþjóð- legum verkefnum. Við nánari athugun á málinu og i þeirri skýrslu, sem nú f haust varlögðaf hálfu framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna f.vrirstjórnmála- nefnd allsherjarþingsins er orðin sú niðurstaða, að háskólinn verði með öðrum ha'tti, þ. e. a. s. hann' verði á hærra stigi. Þar eigi fyrst og fremst hlut að máli menn, eldri óg yngri, sem lengra eru komnir i SL. mánudag kom til framhalds- umræðu tillaga Karvels Pálma- sonar (SFV) og Hannihals Valdi- marssonar (SFV) um að rann- sóknarnefnd verði skipuð til að rannsaka framkvæmd landhelgis- gæzlunnar fyrir Vestfjörðum frá 15. okt. sl. Karvel Pálmason hélt fast við, að tillagan beindist ekki að nein- um sérstökum, heldur væri hún flutt til að leiðrétta misskilning, sem uppi virtist vera milli vest- firzkra sjómanna og landhelgis- gæzlunnar. Aðrir ræðumenn töldu tillöguna beinast gegn for- sætisráðherra, þar sem hann væri æðsti yfirmaður landhelgisgæzl- unnar og bæri ábyrgð á fram- kvæmd hennar. Pétur Sigurðsson (S) sagði til- löguna fyrst og fremst vera van- traust á æðsta yfirmann landhelg- isgæzlunnar, dómsmálaráðherra, og þess vegna kvaðst hann vilja sty'ðja málið. Þingmaðurinn kvað það rangt, sem forsætisráðherra hefði reynt að gefa í skyn í ræðu sinni við fyrri hluta umræðnanna, að stuðningsmenn tillögunnar hefðu í ræðum sínum veitzt að áhöfnum varðskipanna. Að lokum kvaðst Pétur hafa breytingartillögu fram að færa sem tæki af allan vafa um að tillagan tæki til ráðherrans. Auk þess lagði Pétur i tillögu sinni til, að rannsóknin tæki til fram- kvæmdar landhelgisgæzlunnar allt frá því landhelgin varfærðút i' 50 mflur og ekki einungis til Vestfjarða, heldur og annarra hafsvæða umhverfis landið, svo sem miðanna fyrir Austfjörðum. Karvel Pálmason kvartaði yfir seinagangi á meðferð málsins. Rúmur mánuður væri síðan það var lagt fram og nær 3 vikur síðan fyrri hluti umræðunnar fór fram. námi heldur en á sér stað um venjulega háskólastúdenta. Það verða sem sagt visindamenn og menn. sem eru við framhalds- athuganir á viðkomandi s\’iði, sem eigi sókn á þennan skóla. Og í þessu formi mun málið væntan- lega verða samþykkt á þingi Sam- einuðu þjóðanna." Þingmaðurinn gat þess sfðan, að í janúar á þessu ári hefði verið sent út bréf til allra þjóða, sem sýnt hefðu mál- inu áhuga og spurzt fyrir um, hvað þessar þjóðir vildu leggja af mörkum eða hvaða háskóladeildir eða stofnanir viðkomandi landa þær gætu hugsað sér að yrðu tengdar háskólanum.. I skýrslu, sem fastanefnd íslands hefði sam- ið og sent utanrfkisráðherra kæmi fram, að aðallega yrði um hafrannsóknir að ræða. hvað Is- land varðaði, og þá gæti Hafrann- sóknastofnunin tengzt skólanum. Þö að sendinefnd Islands hefði sent heim uppkast að svarbréfi við bréfi Sameinuðu þjóðanna, hefði því ekki verið svarað af menntamálaráðuneytinu, og kvaðst Magnús Jónsson vera sannfærður um, að utanríkisráð- herra væri þessi málsmeðferð mjög ógeðfelld. Magnús Jónsson kvaðst að lok- um vona, að ekki þyrfti að verða neinn ágreiningur um þetta mikilvæga mál, enda hefðu aðrir þingmenn, sem voru á þingi Sam- einuðu þjóðanna i haust, verið málinu hl.vnntir. Kvaðst hann vilja árétta, að með tillögunni væri enginn sakfelldur (>g enginn sýknaður. Beindist hún því ekki gegn neinum sérstökum en væri einungis flutt til að fá leiðréttan þann misskilning, sem virtist ríkja milli vestfirzkra sjó- manna annars vegar og starfs- manna landhelgisgæzlunnar hins vegar. Þá átaldi hann, að forsætisráð- herra hefði reynt að gera þetta að tilfinningamáli með því að segja að þetta væru kaldar kveðjur til varðskipsmanna, eftir langa' og stranga baráttu. Spurði þingmað- urinn, hvort forsætisráðherra hefði verið að gefa það í skyn, að hjá þessum mönnum væri brest- urinn, hafi verið um brest að ræða. Björn Pálsson (F)' sagði þá Vestfirðinga oft hafa veitt öðrum þingmönnum hina beztu skemmt- un á þingt. Þeir settu þar á svið kosningafundi, hvenær sem tæki- færi gæfizt. Flutningur þessa máls væri þannig til kominn, að f lutningsmenn væru að reyna að fiska atkvæði í kjördæmi sínu með því að hera málið upp. Þó að þeir Karvel og Matthías Bjarna- son þreyttu kapphlaup um at- kvæði vestfirzkra sjómanna, þvrftu þeir ekki að reka hnýflana i aðra menn. Kvað Björn meiri ástæðu til að þakka þeim mönn- um, sem bæru ábyrgð á fram- kvæmd landhelgisgæzlunnar, þ.e. fyrst og fremst forsætisráðherra. heldur en að vera að flytja svona vitleysu. Vera mætti, að Matthías Bjarnason hefði krækt i nokkur atkvæði gegn samningunum við Breta, en áreiðanlegt væri, að Karvel Pálmason krækti ekki i nein atkvæði með þessari tillögu. Vestfirðingar væru lifsfjörugir menn. Þeir hlypu þótt þeirþyrftu ekki að hlaupa. Bændur þekktu það. að lömbin dyttu oft ofan i holur á vorin. Þá væri hægt að finna þau á þvi að kitidin móðir þeirra stæði jarmandi yfir hol- imni. Hér væri málum svo hátt- að, að kindin hefði dottið ofan i holuna til latnbsins. Kvaðst Björn þar eiga við Hannibal. sem dottið hefði ofan i holuna til Kar- vels. Sagði Björn að lokum. að sér d.vtti ekki i hug. að þingdeildar- menn færu að samþykkja þessa vitleysu. Matthfas Bjarnason (S) sagði að nú skyti skökku við hjá Karvel Pálmasyni að segja, að tillagan beindist ekki að neinum. Auðvit- að hlyti hún að beinast að þeitn sem sekur væri. Nú segði Karvel bara. að hún væri flutt til að leiðrétta misskilning en allir væru saklausir. Ekki væri á því vafi, að tillagan beindist gegn dómsmálaráðherra, ettda væri hann æðsti yftrmaður latidhelgis- gæzlunnár og bæri ábyVgðá störf- uni hennar. Forsætirráðherra hefði minnzt á það í ræðu sinni, að varðskipin hefðu verið notuð til að flytja föðurbæti. Þetta væri nú ekki gott f stríði. Það væri eins og Churchill hefði f seintii heitns- styrjöld, kallað Montgotnéry heitn nteð allan 8. herinn úr bardögun- um við Ronunel til að taka upp kartöflur. Þingtnaðurinn sagði það vera staðreynd. að Karvel Pílmason hefði dregið i land allt frá því tillagati kotn fram. Nú væri i rauninni ekkert eftir hjá honutn netna raddstyjj>urinn. Þá hefði hann einnig tafið málið tneð mál- þófi. þó hann kvartaði utn að af- greiðsla þessu gengi seint. Væri það sennilega gert i þeim tilgangi. að tillagan kæmist ekki til nefnd- arog fengi þinglega tneðferð. Að loknutn þesstiin umræðttm var umra'ðunni enn frestað. þar sem fleiri alþingistnenn vortt á tnælendaskrá og fundartími úti. Ný þingmál Hafskipa- bryggja á Eyri Allir þingmenn Vestfjarða- kjördæmis flytja þingsálykt- unartillögu um, að samgöngu- ráðherra verði heimilað fyrir hönd ríkissjóðs að festa kaup á hafskipabryggju á Eyri f Ingólfsfirði. Gjald til Iðn- nemasambands Fyrirspurn frá Svövu Jakobs- dóttur (Ab) til menntamálaráð- herra: 1. Hvað líður innheimtu gjalds til Iðnnemasamlrands tslands skv. lögum nr. 68/1972, um breytingu á lögum nr. 68 11. maf 1966, um iðnfræðslu? 2. Ilve hárri fjárhæð nernur þetta gjald frá gildistöku lag- anna? Starfslið við stjórnsýslu Heimir Ilannesson (F) spyr forsætisráðherra: 1. Hversu stór hluti þjóðar- innar starfar við opinbera stjórnsýslu, þ.á m. banka- störf og ötinur opinber þjónustustörf á vegum rfkis og sveitarféjaga? 2. Eru á dagskrá fyrirætlanir stjórnvalda um að reyna að koma því til leiðar, að hluti þessa vinnuafls hefji bein störf hjá framleiðsluatvinnu- vegunum? Magnús Jónsson: ísland verði aðili að há- skóla Sameinuðu þjóðanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.