Morgunblaðið - 12.12.1973, Page 12

Morgunblaðið - 12.12.1973, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 MÖRG vandamál bíða úr- lausnar í heilbrigðismál- um landsmanna. Við sitj- um uppi meðmiðlungi vel skipulagt heilbrigðisþjón- ustukerfi. Meiri hlutinn, eða um 70% af framlagi til heilbrigðisþjónustu, fer til sjúkrahúsa, ^en þau eru ekki nógu vel nýtt og dreif- býlið býr við skertan hlut. Átaks er þörf í dreifbýlinu, ef við viljum ekki teljast til vanþróaðraríkja á þessu sviði. Kannanir á nýt- ingu og gæðum heilbrigð- isþjónustunnar skortir að mestu levti, enda hefur lít- ið sem ekkert fjármagn fengi/t til áætlanagerðar á þessu sviði. Þetta er megininntakið í við- talí við Ólaf Ölafsson landlækni. Hann hefur m.a. kynnt sér fram- lög ríkisins til heilbrigðismála á árunum 1968—’73 og gert könnun á aðbúnaði til heilbrigðisþjönustu i þéttbýli og í dreifbýli fyrir árin 1972—73 Skipting fjármagns. Yfirlitið um framlög rikisins til heilbrigðismála, þ.e. sjúkra- húsa. læknisbúsataða, móttaka o.fl., á árunum 1968—'73 lítur þannig út, ef tekiðer mið af hlut- fallslegri dreifingu framlaga til landshluta: Af rekstrarkostnaði fær Reykjavík i sinn hlut um 63% af heildarframlögunum, en nær- sveitir borgarinnar 12%, þannig að þéttbýliskjarninn i kringum Reykjavík hefur alls fengið um 75% af framlögum þessara ára. Sé þrihyrningurinn — ReykjáVík, Akranes, Borgarfjarðarsýsla, Sel- foss, Vestmannaeyjar (þéttbýlis- svæði) tekinn inn í þetta dæmi kemur i ljós, að svæðið hefur fengið 82,4% framlaga almenn- ings á þessum 6 árum, en aðrir landshlutar, þ.e. dreifbýlið (að Akureyri meðtaldri) fær um 17.6%. Rétt er að taka fram, að sjúkrahúsin mæta þessum kostn- aði með tvennum hætti. Þau fá 93% í formi daggjalda, sem aðal- lega koma frá sjúkrasamlögum, (ríkissjóður greiðir 90"t, af þess- um gjöldum frá 72) sjúkratrygg- ingadeild og göngusjúklingum, sem samlög greiða árlega fyrir. Af framkvæmdakostnaði, þ.e. til byggingasjúkrahúsa, læknabú- staða og móttöku, hefur þéttbýlið fengið 76,9% í sinn hut, en dreif- býlið um 23,1% á þessu tímabili. Á þéttbýlissvæðinu búa hins veg- ar tæplega 70% landsmánna, en 30% f dreifbýli. Ólafur sagði, að framlög annarra aðila, er verja fjármagni til heilbrigðisþjónustu, svo sem sjúkrasamlaga og sveitar- félaga, virtust ekki breyta þessu hlutfalli. Um 74% framlaga sjúkrasamlaga væri varið til þétt- býlis, en um 26% til dreifbýlisins. Illutur sveitarfélaga breytti held- ur ekki dæminu. Ólafur minnti á, að hafa bæri í huga, að landsbú- um hefði fjöigað um 9—10 þús- und á þessu tímabili og meirihluti i þéttbýli. Ólafur benti- á, að eflaust mætti deila um, hvort dreifing fjár- magnsins milli landshluta væri réttlát. Þó væri ýmislegt, sem benti til þess, aðsvo væri ekki. Til dæmis bentu niðurstöður fyrr- greindra kannana til eftírfarandi: 1) Almenn sjúkrarúm (sér- deildir ekki meðreiknaðar) á þéttbýlissvæðinu eru heldur fleiri hlutfallslega, en jafnframt verr nýtt (meðallegudagafjöldi þar yfirleitt lengri) en gerist meðal nágrannaþj<iða. 2) Að búnaður og atvinnuskil- yrði lækna í dreifbýli eru víða léleg og sums staðar ekki hægt að veita neyðarhjálp. Ef sjúkrarúm nýtast betur, mætti e.t.v. veita þvf fjármagni, sem sparaðist, m.a. til dreifbýlis. Dreif- __________ býlið olnbogabarn Landlæknir sagði, að þrátt fyrir allt tal stjórnmálamanna um byggðastefnu, væri það samt stað- reynd, að heildarfjárveitingar til t.d. heilbrigðismála dreifbýlisins hefðu ekki aukizt á þeim 6 árum, eryfirlitið næði til. Héraðslæknum fækkar Landlæknir vék síðan að könn- un, sem hann gerði á aðstöðu og aðbúnaði til heilbrigðisþjónustu í dreifbýlinu. Hann benti á, að sem fyrr væru úrbætur á læknaskorti í dreifbýli sérstaklega aðkallandi. „í könnuninni kom í Ijós, að hér- aðslæknum hefur farið fækkandi frá því 1963. Þó er sérstaklega alvarlegt, að árið 1963 voru um 80% allra héraðslækna skipaðir, þ.e. ætluðu sér að gegna embætt- inu til frambúðar, en í ár er tala skipaðra héraðslækna ekki nema rúmlega 50%. Og það sem verra er, árið 1963 voru um 28% skip- aðra héraðslækna 39 ára og yngri, en nú eru þeir aðeins um 12%. Nýliðum lækna í dreifbýli „fer minnkandi” og fleiri héruðum er gegnt af læknum eða læknanem- um, sem sitja f skamman tíma Hann minnti þó á, að nú hefðí ' verið fjölgað í læknadeild og væri vonazt til, að ástandið batnaði þá. Ólafur sagði ennfremur, að til að starf héraðslæknis nýttist sjúklingum sem bezt væru góð móttökuskilyrði að sjálfsögðu veigamikið atriði. En niðurstöður könnunarinnar gæfu til kynna, að skilyrði væru slæm — svo slæm, að á 60% móttaka væri ekki nema biðstofa og eitt móttökuherbergi, en ekkert aðgerðarherbergi. A slíkum móttökum væri ekki for- svaranlegt að gera aðgerðir sök- um ófuilkominnar smitgátar. — „Ef Iitið er á tækjakost héraðs- lækna, kemur í ljós, að á rúmlega 60% allra móttökustofa eru engin meiri háttar lækningatæki og um 30% vantar nauðsynlegustu tæki, eins og röntgentæki, hjartalínu- ritatæki og góð tæki til skyndi- hjálpar. Þá hafa um 55% hér- aðslækna ekki hjúkrunarkonu sér til aðstoðar, og aðeins um 25% þeirra njóta einhverrar ritara- hjálpar eða aðstoðar meinatækn- is. Stærð húsnæðis leyfir oft ekki slfkt." „Eg tel nauðsynlegt,” sagði Ólafur, „að veita meira fjármagn til að útbúa stofur héraðslækna betur. Við hér á þéttbýlissvæðinu búum við allgóða heilbrigðisþjón- ustu, þótt mörg atriði megi lag- færa, en í ýmsum b.vggðalögum, t.d. á Vestfjörðum og Austfjörð- um. skortir lækna til að veita nauðsynlegustu skyndihjálp t.d. að kippa I lið og lækna lungna- bólgu. Fjöldi fólks fær þvf vart hjálp í viðlögum. Þetta ástand í heilbrigðismálum líkist ískyggi- lega heilbrigðisþjónustu, er van- þróaðar þjóðir þriðja heimsins búa við. Að vísu má sjá sömu mynd meðal sumra nágranna- þjóða vorra, t.d. í Norður Nor- egi” Ólafur kvað auðveldara að fá lækna í héruð, þar sem sjúkrahús eða heilsugæzlustöð væru fyrir. heilbrigðis- þjónustunnar Yfirleitt væru vinnuskilyrðí lækna ekki vðunandi nema þar sem þeir hefðu aðgang að sjúkra- húsi eða heilsugæslustöð, enda ynnu þar yfirleitt 2 eða fleiri læknar ásamt hjúkrúnarliði. Erfiðast væri að fá lækna í svo- kölluð einmenningshéruð, enda aðstaða og aðstoð lítil og starfs- dagur hans slfkur, að naumast væri mannsæmandi, enda byggju þeir ekki við vökulög. „Þessar niðurstöður gefa til kynna, að rétt spor hafi verið stigið, þegar á- kveðið var að byggja heilsugæzlu- stöðvar, en læknasamtökin hófu baráttu fyrir því máli á árunum 1966—1967. Ber að þakka fyrrver- andi landlækni Sigurði Sigurðs- syni, Eggert G. Þorsteinssyni fyrrv. heilbrigðismálaráðherra og núverandi heilbrigðisráðherra fyrir góða framgöngu f því máli. Ileilsugæzlustöð hefur verið starfrækt í Vestmannaeyjum og á Húsavík f nokkur ár með góðum árangri. Ein slik heilsugæzlustöð er nú í byggingu á Egilsstöðum og langt komin, og í Borgarnesi er verið að reisa stöð, sem væntan- lega vejður tekin í notkun á næsta ári. Þá eru áætlanir um byggingu heilsugæzlustöðvar á Isafirði, Höfn í Hornafirði og á Patreksfirði.” Pólitísk ákvörðun Ólafur sagði aðýmis byggðarlög ættu það sameiginlegt.að allar leiðir í loft og á landi lokuðust í langan tfma yfir veturinn. Nefndi hann í því sambandi Reykhóla, Þingeyri, Flateyri, Bolungarvík, Hólmavík, Ólafsfjörð, Köpasker, Þórshöfn, Raufarhöfn, Vopna- fjörð, Seyðisfjörð, Djúpavog og Kirkjubæjarklaustur. Flestir væru þessir staðir fremur illa búnir tækjum og þjónustu eftir því, enda reynslan sú, að erfitt reyndist að fá lækna til starfa þar. Lagði landlæknir áherzlu á, að brýn nauðsyn væri nú þegar á að bæta aðstöðuna á þessum stöðum, enda væri skýrt tekið fram í lög- um um heiIbrigðisþjónustu gr. 35, sem tækju gildi 1. jan. 1974, að slíkir staðir skvldu sitja f f.vrirrúmi um byggingu heilsu- gæzlustöðva. 1 nokkrum þessara héraða hefði aðstaðan verið bætt á sl. ári m.t. til viðgerða á lækna- bústöðvum og útvegum tækja- kosts, í samráði við heilbrigðis- málaráðherra og ráðuneyti. Hins vegar minnti Ólafur á, að úrbætur á þessu sviði væru fyrst og fremst háðar póli- tískri ákvörðun, eins og flest annað, er varðaði heilbrigðisþjón- ustuna. Það færi því m.a. eftir ákvörðun alþingismanna um fjár- veitingar, hvort byggðarlög þessi efldust. Benda mætti á, að sveit- arstjórnir hefðu margar ekki staðið við gerðar skuldbindingar um viðhald húsa. Taldi hann mögulegt að koma á verulegum úrbótum án mikils kostnaðar. Ólafur Ólafsson landlæknir ræddi síðan nokkuð um heilbrigð- ismál í þéttbýli. Hann sagði, að á íslandi væru fleiri læknar á hverja 100 þúsund íbúa en i flestum Evrópulöndum og flestir læknar sætu á Faxa- flóasvæðinu. Hins vegar væri skipting þeirra í greinar óhag- stæð, því að mjög skorti al- menna lækna og heimilislækn- um færi fækkandi, vinnuálag þeirra væri mikið og þjónustan þvi ekki nógu góð. — „í Reykjavík eru margir heimilis- læknar með yfir 4000 manns í samlagi (sjá í Kópavogi og Sel- tjarnarnesi), en erlendis er talið hæfilegt, að sjúklingaf jöldi hvers heimilislæknis sé um 2000—2500. Stundum berast kvartanir um, að fólk bfði langan tíma í heimahús- um eftir vaktlækni. Astæða bið- tímans er mikið vinnuálag vakt- lækna og lélega skipulagt þjón- ustukerfi. Ur þessu mætti bæta með því að fá vel hæfar hjúkrun- arkonur til þess að gegna vöktum með læknum. Oft á tíðum koma vitjanabeiðn- ir frá t.d. áhyggjufullum mæðr- um sem eruórólegarvegnabárns sem er vanheilt sökum t.d. um- ferðarpestar. Reynd hjúkrunar- kona getur þá orðið að miklu liði með þvf að h'ta á barnið og í mörgum tilvikum nægir slík heimsókn til að leysa vandamálið. Reynsla af starfi héraðshjúkrun- arkvenna hefur fært okkur sann- anir fyrir því, að þessi staðhæfing er rétt. Annars er ólíklegt, að þessi þjónusta verði viðunandi fyrr en stofnaðar verða fleiri „opnar” þjónustudeildir við sjúkrahús eða læknamiðstöðvar, sem fólk getur leitað til án tafar ef veikindi ber að höndum. Eins og skipulag t.d. kvöld- og nætur- þjónustunnar er nú, þá fer mik- illhluti starfstíma kvöld- og næt- urlækna í akstur milli sjúklinga og getur það naumast talizt hag- kvæm ráðstöfun.” Léleg nýting Ólafur sagði, að hérledis væru hlutfallslega fleiri almenn sjúkra- rúm en jafnvel Svíar hefðu yfir að ráða, en þau væru eðlilega flest á þéttbýlissvæðinu. Hins vegar kvað hann okkur ekki nýta hin almennu sjúkrarúm nógu vel. Meðallegutími sjúklinga al- mennra handlæknis- og lyflæknis- rúma hér iReykjavík væri veru- lega lengri en í nágrannalöndun um. Sagði Ólafur að taka mætti flest sjúkrahús á Norðurlöndum og Bretlandi til viðmiðunar, yfir- leitt væri sjúkrarúmanýting þar 25—35% betri en t.d. í Reykjavík. Að sögn Ólafs er megin ástæð- an fyrir betri nýtingu erlendra sjúkrarúma sú, að sjúkrahús þar ráðayfirbetri rannsóknaraðstöðu fyrir sjúklinga áður en þeir eru lagðir inn og meðan þeir liggja inni. Þau búa einnig við betri dagheimila- og göngudeildarað- stöðu og hafa hlutfallslega fleiri hjúkrunardeildir fyrir langvinna líkams- og geðsjúksóma. Víða er einnig sérmenntað starfsfólk fleira en hér. Ölafur sagði, að ef hægt væri að koma upp líkri aðstöðu hér og þar með að ná fram sömu „nýtni” og erlendis, þýddi það að nýta mætti 80—100 rúm, sem þeg- ar væru fyrir hendi á þéttbýlis- svæðinu fyrir aðra sjúkdóms- hópa, svo sem geðsjúkdóma, end- urhæfingu o.fl. Hér væri víða tak- mörkuð þjónusta, m.a. vegna hús- næðisskorts fyrir röntgenþjón- ustu og ýmsar rannsóknir svo sem veiru- ogsýklarannsökniro.fl. en af þeim sökum vistuðust sjtjkling- ar á sjúkrahúsunum oft Ieng- ur en þörf væri á „Sem dæmi mætti nefna,” sagði landlæknir, „að greining veiru- farsótta, sem eru mjög al- gengir kvillar hér og valda flestum veikindadögum og vinnu- frávikum, er yfirleitt mjög tak- mörkuð. Prófessorinn f þeirri grein hefur nær enga starfsað- stoð. Hafa ber og í huga, að skipt- ing sjúkrahúsþjónustu hér í borg á 3 eða 4 sjúkrahús veldur því, að rannsóknargreiningar eru of litl- ar, svo að ekki er hægt að beita þeirri vinnuhagræðingu og sjálf- virkni, em nauðsynleg er. Það þarf að viðurkenna stóru sjúkra- húsin hér f Reykjavík og t.d. á Akureyri sem kennslusjúkrahús og skapa þannig eðlilegt samstarf milli þeirra. Samvinna milli sjúkrahúsa er ekki nægilega mik- i I, það er brýn nauðs.vn á að sjúkrahúsin starfi undir sameig- inlegri stjórn, sem fjallar t.d. um skipulag á sjúklingaflæði og skiptingu deilda milli sjúkrahús- anna. Að öðrum kosti er hætt við, að sérdeildir nýtist illa, en slfkt veldur lélegri þjónustu og óhóf- legum kostnaði.” Taldi Ólafur raunhæfara að nýta betur þá aðstöðu, sem fyrir væri áður en byggð væru fleiri dýr sjúkrahús. Verulegur munur væri einnig á meðallegudaga- f jölda hérlendra sjúkrahúsa. Tók hann sem dæmi sjúkrahús A og sjúkrahús B hér f Reykjavík árið 1972. Sjúkrahús A hefði haft yfir 20 færri rúmum að ráða en sjúkrahús B, en engu að síður hefðu 300 fleiri sjúklingar verið útskrifaðir úr sjúkrahúsi A en sjúkrahúsi B. Að vísu væru sjúkl- ingahópar þessara sjúkrahúsa ekki fyllilega sambærilegir, en við sjúkrahúsi A væri hjúkrunar- deildaraðstaða og gerði það trú- lega gæfumuninn. Ólafur sagði, að ekki væri rétt að byggja almenn sjúkrarum fyr- ir dreifbýlið á Faxaflóasvæðinu, svo að iðulega þyrfti að flytja sjúklinga til Raykjavíkur til minni háttar aðgerða — slíkt stór- yki allan kostnað, því að dagvist- un sjúklinga væri mun dýrari i Reykjavík en úti á landi og þar á Framhald ð bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.