Morgunblaðið - 12.12.1973, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 15
J3NS OGI
TEIKMMYND”
HARALDUR og Þórhallur
Sigurðssynir heita tveir ungir
menn, sem vakið hafa mikla
athygli að undanförnu fyrir
sprell og öimur skemmtilegheit í
sjónvarpinu. Raunar ætti að vera
óþarfi að kynna þá nánar, svo
mikið þykjast menn þekkja þá af
skerminum. En ekki er þó víst, að
allir hafi vitað, að þeir eru bræð-
ur og hafa um nokkurt skeið
starfað við sjónvarpið sem
leikmunaverðir og leikmynda-
smiðir eða þá að raddir þeirra
Gláms og Skráms f „Stundinni
okkar“ má rekja til þeirra. Hitt er
þó staðreynd, að þeir bræður hafa
vakið mikið umtal og eiga nú orð-
ið ófáa aðdáendur vegna óvenju-
legrar kfmnigáfu og skemmti-
legrar túlkunar í grfnþáttum
sjónvarpsins. Kveður svo rammt
að þessu, að því hefur verið
fleygt, að hór séu á ferðinni ein-
hverjir mestu háðfuglar, sem
fram hafa koinið hér á landi f
lengri tíma. Ekki verður lagður
neinn dómur á það hér, en engu
að sfður fannst SLAGSÍÐUNNI
fyllilega tfmabært að birta viðtal
við þá bræður.
Til nánari skýringar má geta
þess, að Halli er sá minni, dökk-
hærði, en Laddi sá hái, ljóshærði.
,,Það versta við svona viðtöl er
hættan á, að maður mismæli sig“,
segir Ilalli um Ieið og hann kemur
sér þægilega fyrir í stólnum á
móti mér. ,,Já, eins og kerlingin,
sem ætlaði að kaupa sér farmiða
til Reykjavíkur fram og tilbaka
en sagði: Eg ætla að fá einn miða
til Reykjavíkur afturábak og
áfram," og Laddi rekur upp hlát-
ur, sem minnir á rakara nokkurn
ekki ófrægan. Ég sé að þeir bræð-
ur eru að komast í stuð og þar sem
ég hafði hugsað mér að fá eitt-
hvað meira út úr viðtalinu en
brandara þá vind ég mér i fyrstu
spurninguna þess efnis, hvernig
þetta hafi allt saman byrjað:
Laddi: Það byrjaði eiginlega
með Glámi og Skrámi. Það
vantaði einhverjar raddir og við
slógum til. Annars hef ég verið að
prófa mig áfram með þessa rödd
(Skrámur) síðan ég man eftir
mér og hún hefur verið að þróast
með árunum.
Halli: Já, mikil ósköp, þetta er
háþróuð rödd. Annars kom þetta
mikið af sjálfu sér. Við unnum
báðir við sjónvarpið og þeir
þekktu fíflalætin í okkur. Andrés
(Indriðason) samdi Glám og
Skrám og svo þegar hann byrjaði
með Krossgátuna prófaði hann
okkur og líkaði vel. Eftir það fór
hann aðsemja með okkur í huga.
Laddi: Það gerði náttúrulega
mikið, að við vorum á staðnum og
auðvelt að grípa til okkar. (Hann
hallar sér aftur í stólnum, grípur
höndum um hnakkann og horfir
hugsandi út í loftið, siðan bætir
hann við:) Það má vel komafram,
að Andrés er alveg frábær og sér-
lega gott að vinna með honum.
Hann þekkir okkur svo vel og veit
upp á hár, hverju hægt er að ná út
úr okkur.
Halli: Já, hann sér þetta með
sömu augum og við.
★
Nú varð þögn um stund og
menn hugsuðu hljóðir um ágæti
Andrésar Indriðasonar. Síðan
kom næsta spurning um það,
hvort þeir hefðu einhverjar fyrir-
myndir að gervunum sem þeir
túlka.
Halli: Nei, ekki svo ég viti.
Laddi er fæddur spilagosi. Hann
hefur verið svona skrítinn, síðan
ég man eftir honum fyrst. Aldrei
nokkur leið að tala við hann af
viti. Nei, við höfum fíflast svona
síðan við vorum pollar. Fólk, sem
kom heim, hélt að við værum
fávitar og flfl.. .
Laddi: ... sem við erum. Ein-
hver lýsti okkur bræðrunum
þannig, að við sæjum hvern
annann eins og í teiknimyndum,
og þegar ég fer að hugsa um það,
er ég ekkert frá þvi, að lífið sé
eins og ein stór teiknimynd.
Halli: ( klórar sér i kollinum og
dregur auga í pung): Já, það er
nokkuð til f þvi.
Síðan berst talið að frægðinni
og þeim hliðarverkunum og
óþægindum, sem henni geta fylgt.
Halli: Þetta er svolítið skritinn
tilfinning, til dæmis þegar maður
reynir að vera alvarlegur, en
enginn tekur mann alvarlega. Það
kernur iðulega fyrir, að fólk snýr
sér við á götu og stingur saman
nefjum, sérstaklega þegar við er-
um tveir saman.
Laddi: Mér finnst verst, þegar
fólk snýr sér við á götu og fer að
glotta eða jafnvel skellihlæja, —
ég veit aldrei, hvernig ég á að
taka þvf. Maður reynir að leiða
það hjá sér og taka ekki eftir því,
en samt er ekki hægt að komast
hjá því að taka eftir því.
Halli: Þetta er sérstaklega
áberandi í bfó. Ég treysti mér
varla einn í bíó nú orðið. Annars
er ekki um annað að ræða en að
taka þessu með kristilegu
langlundargeði.
En hvernig er þetta á skemmti-
stöðunum?
Laddi: I Klúbbnum er þetta allt
f lagi. Þar er maður bara einn af
hópnum. Eldra fólkiðer erfiðara.
Halli: Við fórum saman á Hótel
Sögu ekki alls fyrir löngu, og þá
var töluvert um það, að fólk sveif
á okkur og vildi ræða málin. Sér-
staklega voru það konur komnar
af léttasta skeiði.
En þið hafið nú samt lúmskt
gaman af, er þaðekki?
Halli: Það má vera, að við séum
svolítið drjúgir inni við beinið, en
eíns og ég segi, þá líður mér samt
hálf illa og veit ekki alltaf,
hvernig ég á að bregðast við.
★
Eg minnist á viðkomu þeirra
bræðra á tónlistarsviðinu, en þeir
voru í eina tið liðsmenn FAXA
sálugu. Laddi horfir á mig eins og
naut á nývirki, og það færist
undurfurðulegt bros yfir andlit
hans. Ilalli hverfur hins vegar
undir borðið svo ég ákveð að
hætta við spurninguna, en fer
þess í stað að tala um, að þeir eru
handverksmenn ágætir, en þeir
bræður áttu stærstan þáttinn í,
hversu vel tókst til með útlits-
skreytingu verzlunarinnar
Kastalans eins og frægt erorðið.
Halli: Hvort við höfum lært
smíðar? ekki nema það, að fimm
ára reynsla hjá sjónvarpinu hefur
kennt mér sitt af hverju og Laddi
lærði húsgagnasmiði í þrjú ár, —
það er allt og sumt.
Bræðurnir eru tregir til að tala
meírá um hnadlagna, og við
förum að rabba um leiklist.
Laddi: Þegar ég var lítill gutti
setti ég oft á svið leikrit og lék
fyrir mömmu. Þá sögðu margir,
að ég ætti að verða leikari. Ég hef
nú samt aldrei hugsað alvarlega
um að læra leiklist. En ég gæti þó
vel hugsað mér að reyna mig á
sviði.
Halli: Það er tvennt ólíkt, að
leika í stuttum sjónvarpsþáttum
eða á leiksviði. Eg mundi gjarnan
vilja kynnast vinnubrögðum í
leikhúsi án þess þó að ég sé beint
á því aðgerast leikari að atvinnu,
enda skortiHmig bæði þekkingu
Einhverra liluta vegna barst
talið að trúmálum og kom þá í
ljós, að Halli trúir á lifið og fram-
tíðina, en Laddi kvaðst vera svo
vantrúaður að hann tryði ekki
einu sinni sjálfum sér. Urðu
umræður nú svo háfleygar, að við
ákváðum að venda okkar kvæði i
kross og fórum að tala um sjón-
varpsþáttinn „Ugla sat á kvisti '.
Laddi: Þaðer alveg sérstaklega
gaman að vinna að þessum þátt-
um. Mórallinn er eins og bezt
verður á kosið, enda er þarna
saman komið alveg einstaklega
gott og skemmtilegt fólk-
Hver semur efnið?
Halli: Það er mjög misjafnt.
Það er töluvert um það, að fólk
sendir okkur efni. Margt er samið
af hópum i sameiningu, enda
erum við undir áhrifum hvert frá
öðru, og oft verður það til í upp-
tökunni, þegar við erum að leika,
— þá fæðist oft eitthvað nýtt.
Annars er Laddi nokkuð lunkinn
með að koma með hugmyndir.
Það má vel koma fram, að hann
ásamt kunningja sínum samdi
mikið fyrir Kvöldstundina í fvrra
t.d. af því sem Kaffibrúsakarlarn-
ir voru með.
Á þessu stigi málsins get ég
ekki stillt mig um að spyrja, hver
hafi átt hugmyndina að atriðinu,
þegar Iæknirinn söng „Why me“ i
símann, atriði sem er eitthvað það
skemmtilegasta, sem ég minnist
að hafa séð i íslenzka sjón-
varpinu.
Laddi: Það var eiginlega ég sem
átti hugmyndina. Það var hlé á
milli atriða og Jón Þór
(Ilannesson) setti þetta lag á
fóninn. Ég var óvart við símann.
greip tólið af einhverri rælni og
fór að tralla lagið, og allir
hrópuðu: „Þetta tökum við í þátt-
inn“.
Halli: Svona gerist oft i upptök-
um og það má segja, að flest
skemmtilegustu atriðin verði til á
þennan hátt, þ.e.a.s. fæðast á
staðnum, í upptökunum.
★
Eg minnist eitthvað á, að þeir
séu ólikir af bræðrum að vera, en
Halli kann skýringar á því:
„Eg er fæddur á strfðsárunum
og er elstur okkar bræðra og
minnstur. Samanrekið mikil-
menni og hver sentimetri af mér
er nýttur til fulls. Siðan fer þetta
að þynnast út.. . líttu á Ladda til
dærnis. Það rná vel sjá, að hann er
yngstur, enda sjást ‘gloppurnar
víða á Iikamanum... “
Eg sé, að Ladda liggur eitthvað
á hjarta, og aðspurður kveðst
hann vilja segja mér brandara,
sem hann heyrði nýlega hjá
rakaranum sinum. Halli skynjar
óðara, að hér er Laddi að undir-
búa aðför að mannorði hans og
setur hnefann í borðið. Ilann
minnir Ladda góðfúslega á það,
að þeir séu að verða of seinir í
upþtöku, og þar með missir Laddi
tækifærið til að svara fyrir
„gloppurnar" og viðtalið varð
ekki lengra.
Sv.G.
„SLAGSÍÐAN”
MORGUNBLAÐIÐ
PÓSTHÓLF 200
REYKJAVÍK
SLAGSÍÐUNNI hafa borizt nokk-
ur bréf til viðbótar með spurning-
um um poppmálefni og verður
leitazt við að svara þeint á næst-
unni. Erfitt getur þó reynzt og
seinlegt að finna svör við sumum
spurningunum, því að umsjónar-
menn Slagsíðunnar hafa ekki
tölvuminni (þótt litlu muni), en
með tið og tíma kemur þetta aJlt
saman. En við viljum taka það
fram, að nafn og heimilisfang
bréfritarans verður að fylgja
hverju bréfi hér eftir; annars
verður svara ekki leitað. Ilins
vegar er hægt aðbirta bréfin und-
ir dulnefni, ef bréfriturum þykir
slíkt betra, en nafn og heimilis-
fang verður eigi að síður að fylgja
nteð.
Tveir Kræklingar spyrja: Er
nýja lagið hans Donny Osmond á
stórri plötu? Hvað heitir hún og
hver samdi lagið?
Svar: Lagið „Are you lonesome
tonight ' er á stóru plötunni „A
time for us '. Ilöfundar þess eru
R. Turk og L. Handman. Lagiðer
gamalt Presley-lag, var afar vin-
sælt fyrir 12—14 árum og seldist
þá í nokkrum milljónum eintaka.
Mótmæli
ÓMAR Þ. Halldórzzon hafði sam-
band \ ið Slagsíðuna og bað okkur
um að koma á framfæri mótmæl-
um gegn athugasemd ísafoldar-
prentsmiðju við viðtalið um bók
hans „Ilversdagsleik" hér á síð-
unni á dögunum. Sagði Ómar. að í
athugasemd þessari væru svo
margar rangfærslur. að það væri
að æra óstöðugan að svara þeim
öllum, hverri fyrirsig.
John Rostill látinn
Brezki gítarleikarinn John
Roslill fannst látinn á heimili
sínu fyrir nokkru; var talið. að
hann hafi látizt af raflosti. Hann
var í upptökuherbergi sínu að
kvöldi dags. er þetta gerðist. Kona
hans var ekki heima. en ganiall
félagi hans í Shadows, Bruce
Welch, kom í húsið og kom þá að
John látnum. Lögreglan tók sniir-
ur og leiðslur úr upptökuherberg-
inu til athugunar við rannsókn
málsins.
John Rostill gerðist bassaleikari
Shadows fyrir nær 10 árumogvar
með hljómsveitinni þar til hún
hætti störfum. Gerðist hann þá
aðalgftarleikari hjá Tom Jones og
fylgdi honum víða um heirn. Voru
þeir nýkomnir frá Bandaríkjun-
um og áttu innan tíðar að hefja
hljómleikahald í London. er John
lézt. John var 31 árs að aldri og
lætur eftir sig konu og litla dótt-
ur.
og lærdóm á því sviði.
★
Eg er samanrekið mikilmenni. .. Sjá viðtal