Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 291. tbl. 60. árg. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 Prontsmiðja Morgunblaðsins Noregur: Nægar sannanir gegn njósnurunum Fulltrúar Norðurlanda komu saman f Stokkhólmi f dag til aS ræða samræmdar aðgerðir Norðurlanda f olfumálum. A myndinni eru frá v. Guðmundur I. Guðmundsson sendiherra, Loe Neuvo, frá Finnlandi, H. Christiansen, frá Danmörku, Jens Evensen, frá Noregi, Kjell Olof Feldt, frá Svfþjóð, Ingvald Ulvensen, frá Noregi, og Rune Jóhannsson, sem einnig er frá Svíþjóð. Bergen, 28. des. NTB. LÖGREGLAN f Bergen hefur nægar sannanir undir höndum til að höfða töluvert umfangsmikið njósnamál á hendur Pólverjan- um WojzekGulgowskisemhefur verið handtekinn í Bergen, og í athugun er. hvort vísa skuli sendiráðsritara pólska sendiráðs- ins í Osló úr landi, en hann var sá, sem Gulgowski afhenti upp- lýsingar þær, er hann safnaði. Lögreglan upplýsti í dag að Gul- gowski, senj verið hefur starfs- maður við háskólann í Bergen, hefði fyrir nokkru sótt um stöðu við tölumiðstöð norska rikisins, í Osló, en lögreglan hafi varað við því, að honum yrði veitt staðan. Gulgowski virðist einkum hafa njósnað um landa sína, sem bú- settir eru í Noregi, en hann hefur einnia stundað njósnir á öðrum sviðum, sem lögreglan vill ekki skilgreina-að svo komnu máli. Lögreglustjórinn í Bergen sagði fréttamönnum i dag, að þótt málið væri nokkuð umfangsmikið. kæmu þar ekki mjög margir við sögu. Ekki lægju fyrir neinar þær upplýsingar, sem bentu til þess, að Pólverjinn væri hlekktur í njósnarahring. Ekkert benti til þess að sendiráðsritarinn pólski hefði aðra menn á sínum snærum hefði aðra menn á sínum snærum en Gulgowski, og engir norskir ríkisborgarar væru viðriðnir mál- ið. Ekki hefur enn verið tekín ákvörðun um, hvað gera skyldi við Gulgowski eða sendiráðsritar- ann. Bretland: Aðeins meiri líkur á samn- ingum við námaverkamenn Yfir 400 þúsund hafa þegar misst atvinnu í Bretlandi yfirÞessaprðsenttöiu.Meðaiann- London, 28. desember, AP. NTB. TÆKNIMENN við raforkuver í Bretlandi ákváðu óvænt f dag að ganga að launatilboði rfkisstjórn- arinnarog hefja aftur fulla vinnu og námaverkamenn féllust á að halda aukafund í dag og er því aðeins bjartara útlit en verið hef- ur undanfarna daga. Astandið er þó enn mjög alvarlegt. Rúmlega 400 þúsund manns hafa þegar misst atvinnuna og búist er við að sú tala fari yfir eina milljón fljót- lega eftir áramót. Jafnvel þótt samningar takist við námaverkamenn um eða strax eftir áramótin verður ekki komist hjá því að stytta vinnuvikuna nið- ur í þrjá daga um nokkurt skeið að minnsta kosti og það mun leiða til þess að fjölmörg fyrirtæki og verksmiðjur verða að draga mjög úr starfsemi sinni eða jafnvel leggja hana alveg niður. Það leið- ir svo aftur til þess að hundruð þúsunda missa vinnuna. Námaverkamenn hafa sett fram launakröfur, sem eru tölu- vert hærri en þau 13 prósent sem er mögulegt að veita samkvæmt áætlunum stjórnarinnar um að draga úr verðbólgu í landinu. A fundinum í dag var einkum rætt um, hvernig hægt væri að bæta kjör námamanna án þess að fara ars hefur komið til umræðu að þeir fái greitt kaup fyrir þann Framhald á bls. 18 Þjóðhátíðarárið hefst með bœn og þakkargjörð Biskup íslands beinir þeim tilmælum til presta. að þess verði minnst við guðsþjónust- ur á nýjársdag, að afmælisár byggðar á tslandi er runnið upp. Óskar hann þess, að þjóð- hátfðarárið 1974 hefjist með bæn og þakkargjörð í kirkjum landsins. (Frá brskupi tslands) Óbreyttur borgari for- sætisráðherra Spánar? Madrid, 28. desember, NTB. ÞAÐ eru nú töluverðar Ifkur til þess, að óbreyttur borgari verði forsætisráðherra Spánar í fyrsta skipti á 34 ára valdatímabili Franco- stjórnarinnar. Rfkisráðið hefur að undanfiirnu setið á fund- um til að ræða, hver skuli verða eftirmaður Carrero Blanco, sem var myrtur fyrir átta dögum og Minnkandi verðbólga í Ameríku Washington, 28. desember, AP YFIRMAÐUR efnahagsráðgjafa- nefndar Nixons forseta sagði í dag, að verðbólga yrði áfram mik- il á fyrrihluta ársins 1974, en að á síðari hluta ársins ætti hún að minnka niður i um 4,5 prósent. Hann viðurkenndi, að ýmsir ófyr- irsjáanlegir atburðir gætu auðvit- að breytt þessu, en taldi þetta mjög nærri lagi miðað við þróun- ina eins og hún er nú. hefur orðið sammála um að til- nefna þrjá menn. Efstur á þeim lista er Torcuato Fernandez Miranda aðstoðarfor- sætisráðherra, sem hefur gegnt störfum Blancos síðan hann beið bana. Ríkisráðið var að sögn sammála um, að Miranda væri langheppi- legasti eftirmaðurinn, jafnvel áður en það kom saman til að ræða málið. Hann nýtur einnig stuðnings margra annarra vold- ugra stjórnmálamanna. Miranda er 59 ára gamall, prófessor i lögfræði og fyrrver- andi kennari Juan Carlos, prins, sem Franco hefur skipað eftir- mann sinn. Samkvæmt stjórnarskránni hef- ur Franco frest til sunnudags til að skipa einhvern af þeim þrem- ur, sem ríkisráðið tilnefndi sem eftirmann Blancos. Hinir tveir, sem til greina koma, eru að sögn Juan Castanon de Mena, hershöfðingi og fyrrver- andi hermálaráðherra, og Pedro Nieto Antunez, fyrrverandi flota- málaráðherra. Hlutverk ríkisráðsins spánska er að „vera Ieiðtoganum (Franco) til aðstoðar í sérlega mikilvægum Genf, 28. des., AP—NTB. FULLTRÚAR samningamanna tsraela og Egypta í Genf til- kynntu f dag, að náðst hefði sam- komulag um ýmis atriði, er varða heimköllun herja aðilanna frá Suezskurði. Ekki var skýrt nánar hvað þetta þýddi, enda gerðu Egyptar og ísraelar með sér samning strax í upphafi um að skýra ekki jafnóðum frá þvf í smáatriðum, sem gerðist á fund- unum. Næsti fundur verður haldinn 2. janúar næstkomandi að afloknum kosningunum í ísrael, sem haldnar verða tveim dögum áður. Moshe Dayan, varnarmálaráð- herra ísraels, sagði í dag, að ef samkomulag næðist um, að báðir aðilar kölluðu heri sína heim frá Suezsvæðinu, gæti það verið skref í friðarátt, en þó yrði að fara að öllu með gát. Ráðherrann sag.ði þetta á fundi með samtökum ísraelskra verk- fræðinga og sagði ennfremur, að heimköllun herja myndi óhjá- kvæmilega lækka spennuna á um- ræddu svæði, þar sem vopnahlés- brot væru daglegur viðburður. Hann lagði þó áherzlu á, að Israel mætti á engan hátt fá verri víg- stöðu. Dayan sagði, aðstjórninni hefði verið kunnugt um það fyrirfram, að Arabar hefðu yfir að ráða nýjum eldflaugum, en viður- kenndi, að hann hefði persónu- lega ekki metið „getu" þeirra rétt. Hann viðurkenndi einnig, að hann hefði ekki talið mögulegt, að Egyptar gætu lagt flotbrýr yfir Suezskurð á fjórum tímum, eins og þeir gerðu í upphaf i stríðsins. Henry Kissinger situr fundina í Genf og gefur hér V-merkið (sigur- tákn Churchills), þegar hann kemur til hallarinnar. Miðar í samkomulags- átt á Genfarráðstefnu málefnum ríkisins". I því eiga sæti fulltrúar úr þjóðþinginu, hernum, verkalýðshreyfingunni, réttarkerfinu og frá borgaraleg- um yfirvöldum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.