Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973
%
'i
4
28 millj. kr. gengis-
tap hjá Alafossi
NÚ ligMur fyrir að gengishækkun
krónunar mun valda Aiafossi lim
28 millj. króna tjóni á þessu ári,
sem nú er að líða, að sögn Haf-
steins Baldvinssonar. stjórnarfor-
manns fyrirtækisins.
Um horfurnar á næsta ári sagði
Hafsteinn, að fyrirtækið hefði
möguleika á að selja framleiðslu-
vörur til Bandaríkjanna fyrir um
160 milljónir króna á árinu 1974,
en sagði að því miður væri verðið
á Bandaríkjamarkaði ekki nógu
hagstætt um þessar mundir og því
ekki útséð um það hvernig færi.
Mvndin var tekin í einum sölustað hjálparsveitarinnar.
Skátar selja flugelda til
styrktar hjálparsveitinni
IIJAúPARSVEIT skáta í
Reykjavík mun nú sem fyrr
efna til flugeldasölu til styrkt-
ar starfsemi sveitarinnar. Hef-
ur hjálparsveitin komið upp
sjö sölustiiðum víðs vegar um
borgina, þar sem flugeldar af
ýmsum gerðum eru á hoðstól-
Flugeldasalan hefur löngum
verið helzta tekjulind hjálpar-
sveitarinnar og öllum ágóða af
henni verið varið til reksturs-
ins á sveitinni árið eftir. Hins
vegar hafa nú fleiri félagasam-
tök tekið upp þennan háttinn
og nota ágóðann til líknarstarf-
semi. Eru þá flugeldarnir boðn-
ir til sölu við húsdyr, og finnst
skátum það heldur ósanngjarnt
og raunar óleyfilegur sölumáti,
því töluvert strangt öryggis-
eftirlit er með sölu verzlana,
sem selja flugelda vegna eld-
hættunnar sem þeim er sam-
fara.
inn í Björgvin látinn
EILIF Asbo bankastjóri, ræðis-
maður tslands í Björgvin, er ný-
látinn, 68 ára að aldri. Asbo var
lögfræðingur að mennt, en varð
bankastjóri í Larvik 1936, síðan í
Skien og loks við Vestlands-
banken í Björgvin 1955. Því starfi
gegndi hann til ársins 1972, er
hann varð formaður bankaráðs-
ins.
Asbo var maður mjög vel látinn
og kom það greinilega fram við
Hljóp fyrir bíl
Tvítugur piltur slasaðist, hlaut
m.a. beinbrot, er hann hljóp i veg
fyrir bil á Strandgötu í Hafnar-
firði á fimmtudagskvöldið. Piltur-
inn var ölvaður og hefur áður
stundað þennan leik.
Langur sáttafundur með
útgerðar- og siómönnum
jarðarför hans. Kransar bárust
m.a. frá sendiráði íslands í Oslo
og íslendingafélaginu í Björgvin.
Eilif Ásbo var mikill íslands-
vinur, og varð íslenzkur ræðis-
maður 1966. Naut hann mikils
trausts í því starfi sem öðrum.
Hornfirðingar
bíða Bjarna
Höfn, Hornafirði — 28.
desember
ÁSTANDIÐ í rafmagnsmálum
hefur verið með skásta móti í dag.
Alls staðar þar sem hús eru kynnt
með rafmagni, hefur hita verið
haldið á þeim með olíuofnum og
þau þannig vernduð gegn frost-
skemmdum. Nú bíða menn aðeins
Bjarna Sæmundssonar, sem leysa
á rafmagnsskortinn hér að ein-
hverju leyti til bráðabirgða, en
skipið er væntanlegt í nótt eða á
morgun. Var í dag unnið að því að
leggja línu frá höfninni.
-Fréttaritari
Islenzki ræðismaður-
SATTASEMJARI ríkisins, Torfi
Hjartarson hélt í gær fund með
samninganefndum útgerðar-
manna og sjömanna. Hófst fund-
urinn kl. 2 og lauk honum á
níunda tímanum í gærkvöldi.
Torfi hefur boðað nýjan fund
með fulltrúum samhandanna kl.
2 í dag.
Þetta var fyrsti sáttafundur
þessara aðila með sáttasemjara og
takist samningar ekki á næstunni,
má búast við, að sjómenn leggi
niður störf. Eins hafa útvegs-
menn ákveðið að stöðva fiski-
skipaflotann um áramót, ef
stjórnvöld hafa þá ekki gert við-
hlítandi ráðstarfanir til að hægt
verði að gera út á árinu án stór-
kostlegs tapreksturs.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að enn hefði ekkert heyrzt
frá stjórnvöldum um þá ákvörðun
LlU að stöðva fiskskipaflotann
um áramót, ef ríkisstjórnin hefur
ekki gert þær áðstafanir, sem
þarf til að hægt verði að gera út
fiskiskip á næsta ári. Hann sagði,
að enn væri útlitið svart um það,
hvort samningar milli útgerðar-
manna og sjómanna tækist á
næstunni.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands ísiands sagði, að
sjómenn færu fram á töluverða
'hækkun á kauptryggingu. Krafizt
væri 36 þús. kr. á mánuði fyrir
hásetann, fyrir mann sem hefði
IVí i hlut væri krafizt kr. 45 þús. í
grunnkaup og fyrir 1. vélstjóra
væri krafizt 54 þús. í grunnkaup.
Þá sagði Jón, að sjómenn færu
fram á 10-12% hækkun á aflahlut,
en mjög væri misjafnt hvernig sú
aflaskipting ætti að fara fram,
það færi eftir stærð báta og fjölda
skipverja.
Mjög harður
árekstur
MJÖG harður árekstur varð milli
jeppabifreiðar og stórrar malar-
flutningabifreiðar innarlega á
Kleppsvegi um kl. 17 á föstudag.
Mun jeppabifreiðin ónýt eftir.
Farþegi f henni skarst á andliti,
en ökumaður slapp með skrámur.
Malarflutningabifreiðin mun
talsvert skemmd, en ökumann
hennar sakaði ekki.
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir VOLPONE í kvöld
veiðar í landhelginni
I kvöld frumsýnir Leikfélag
Reykjavíkur jölaverkefni sitt,
gamanieikinn Volpone, sem upp-
haflega var ritaður árið 1604, en
endurritaður um 1920 af Stefáni
Zweig og upp úr því var Volpone
kallaður gleðileikur. Volpone var
áður sýndur í Iðnó 1949 og með-
al leikara þá var Brynjólfur Jó-
hannesson, sem nú leikur aftur
sama hlutverk og þá.
Leikstjóri í Volpone er Steindór
Hjörleifsson, en leikmyndir gerði
Steinþór Sigurðsson.
Leikarar eru: Helgi Skúlason,
Pétur Einarsson, Guðmundur
Pálsson, Brynjólfur Jóhannesson,
Jón Sigurbjörnsson, Valgerður
Varðúti
KRUFNING var í gær gerð á líki
Öskars Braga Björnssonar, sem
fannst látinn skammt frá húsinu
Þinghóli í Sandgerði á fimmtu-
dagsmorguninn. Grunur lék á, að
Öskar hefði lent f átökum nóttina
áður og við yfirheyrslur í gær
kom fram, að hann hafði lent í
átökum við húsráðanda í Þinghóli
í Sandgerði um nóttina og verið
kastað þar út. Hins vegar leiddi
krufningin í Ijós, að Öskar hafði
ekki látizt af vöidum áverka, sem
hann hlaut í ryskingunum, og
mun hann því hafa orðið úti.
Dan, Sigurður Karlsson, Sigríður
Hagalín, Karl Guðmundsson,
Kjartan Ragnarsson, Magnús
Rafnsson, Jóhann Steinsson og
Daníel Williamsson.
Nánar verður um sýninguna í
blaðinu á morgun.
Ný lög um
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
sjávarútvegsráðuneytinu um lög
um veiðar með botnvörpu, flot-
vörpu og dragnót í fiskveiðiland-
helginni:
Forseti Islands hefur í dag stað-
fest lög um veiðar með botn-
vörpu, flotvörpu og dragnót í fisk-
veiðilandhelginni og taka þau
gildi 1. janúar 1974. í lögum þess-
um eru tæmandi taldar allar
heimildir íslenskra skipa til notk-
unar ofangreindra veiðarfæra í
fiskveiðilandhelginni. Eins og í
eldri lögum er gert upp á milli
skipa með tilliti til stærðar þeirra
þannig að minni skip fá á vissum
svæðum að veiða nær landi en
þau, sem stærri eru. Eins og áður
er um að ræða þrjá stærðarflokka
skipa, þ.e. skip minni en 105
brúttó rúmlestir, skip minni en
350 brúttó rúmlestir og skip
stærri en 350 brúttó rúmlestir.
Skuttogarar með aflvél 1000
bremsuhestöfl eða stærri falla í
hinn síðastnefnda flokk skipa
jafnvel þótt þeir mælist minni en
350 brúttó rúmlestir.
Meðfylgjandi uppdráttur sýnir
heimildir íslenskra skipa til botn-
vörpu og flotvörpuveiða í fisk-
veiðilandhelginni samkvæmt hin-
um nýju lögum.
I hinum nýju lögum er að finna
allmörg nýmæli og breytingar frá
eldri lögum og skal sérstaklega á
það bent að viðurlög við brotum
hafa verið þyngd verulega. í
ákvæðum um sektir er nú miðað
við sömu stærðarflokka og i
ákvæðum um veiðiheimildir
þannig að sektir verða þyngri eft-
ir þvf sem skipin eru stærri.