Morgunblaðið - 29.12.1973, Side 3

Morgunblaðið - 29.12.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 3 BRJÓSTMYND af dr. Alex- ander Jóhannessyni, fyrrum rektor Háskóla tslands, var af- hjúpuð við hátíðiega afhöfn f fordyri hátíðarsalar Háskólans í gær. Brjóstmyndin er gjöf frá Happdrætti Háskóla Islands, sem f tilefni 40 ára afmælis sfns vildi heiðra minningu dr. Alexanders. Guðlaugur Þorvaldsson rekt- or setti athöfnina og minntist dr. Aiexanders og starfa hans í þágu Háskóla íslands, einkum í byggingarmálum. Minnti hann og á þátt dr. Alexanders í þvi að hugmyndin um stofnun Happdrættis Háskólans komst á rekspöl, en það hefur síðan verið sá burðarbiti er allar framkvæmdir Háskólans hafa hvílt á. Menntamálaráðherra, Magnús Torfi Ólafsson, flutti ávarp og fór hlýjum orðum um minningu dr. Alexanders. Sagði hann m.a. að það ætti vel við að Happdrætti Háskóla íslands skyldi minnast 40 ára afmælis- ins með því að minnast þess manns sem hvað ötulast hefur unnið í þágu æðri menntunar f landinu. Sagði menntamálaráð- herra, að með störfum sínum í þágu Háskólans hefði dr. Alex- ander reist sér verðugan minnisvarða og yrði minningu hans á loft haldið um ókomin ár. Eftirlifandi kona dr. Alex- anders, Heba Geirsdóttir, af- hjúpaði síðan brjóstmyndina, sem er eftir Ríkharð Jónsson. Heba Geirsdóttir afhjúpar brjóstmvndina af dr. Alexander. Til hægri eru Guðlaugur Þorvaldsson rektor og kona hans Kristfn Kristinsdóttir. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Brjóstmynd af dr. Alexander Jóhannes- syni afhjúpuð í H.Í. Vinstri stjórn ábyrg fyrir raforkuskorti Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi ályktun, sem gerð var á fundi stjórnar SUS hinn 20. des. sl. Brauzt inn í 5 verzlanir BROTIZT var inn í fimm verzl- anir í Miðbæ við Háaleitisbraut í fyrrinótt og stolið skiptimynt og fleiru. Ibúa við Fellsmúla varð litið út um glugga um nóttina og sá þá gluggatjöld í einni verzl- uninni blakta fyrir vindi. Hringdi hann þá í lögregluna og fór síðan á staðinn og stóð þar vörð þar til lögreglan kom. Er lögreglubifreið var á ferð neðar á Háaleitisbraut- inni sáu lögregluþjónarnir grun- samlegan mann á gangi. Var mál- ið kannað og reyndist hann vera skorinn og blóðugur og með alla vasa fulla af skiptimynt. Var þar kominn innbrotsþjófurinn úr Miðbæ. Var hann ölvaður og skorti fé og hafði hugkvæmzt að afla sér þess með innbrotsþjófn- aði. Innbrot í r Arbæjarskóla BROTIZT var inn í Árbæjarskóla aðfararnótt sl. föstudags og stolið nokkur þúsund krónum í reiðufé úr hirzlu á skrifstofu og úr matar og kaffisjóði kennara skólans. „Stjórn S.U.S. vekur athygli á, að þau vandamál, sem við ts- lendingar eigum við að stríða í orkumálum, eru fyrst og fremst þeim mönnum að kenna, sem nú sitja f ríkisstjórn. Ungir sjálfstæðismenn benda á, að á viðreisnartímabilinu börðust núverandi ráðherrar gegn upp- byggingu innlendra orkuvera og töldu landráð að fá erlent fjár- magn til að gera okkur kleift að ráðast í stórvirkjanir. Ungir sjálfstæðismenn minna á, að við valdatöku vinstri stjórn- arinnar var ýmsum tillögum í orkumálum, sem unnið var að á viðreisnartímanum, varpað fyrir róða, og ný stefna í orkumálum var mótuð. Afleiðingar þessa eru að koma í ljós. Fólk flýr hús sín vegna rafmagnsskorts og talið er, að Norðurland fái ekki raforku til atvinnuuppbyggingar fyrr en eft- ir 3—5 ár. Magnús Kjartansson orkumálaráðherra hendir 200 milljónum í raflfnu, sem ekkert rafmagn fer um. Orkustefna rfkisstjórnarinnar er enn eitt dæmi um, hver ðfagn- aður hlýtzt af setu þessarar ríkis- stjórnar. Þvf ber henni að segja af sér.“ Haraldur Júlíusson, kaupmaður, látinn Haraldur Júlíusson kaupmaður lézt á Sauðárkróki að morgni 27. des. Haraldur Júlíusson var fæddur þ. 14. febr. 1885 á Barði við Akur- eyri. Foreldrar hans voru Júlíus Kristjánsson á Barði og kona hans María Flóventsdóttir, er þar bjuggu lengi. Haraldur stundaði nám við gagnfræðaskólann á Akureyri, en fluttist vorið 1912 til Sauðárkróks til* Kristins P. Briem kaupmanns, sem þá var að hefja verzlunar- rekstur og vann við verzlun hans til 1919. Þá hóf hann eigin verzl- un og rak hana til dauðadags og nú síðast í félagi við son sinn. Haraldur var mjög virtur sem verzlunarmaður á Sauðárkróki og hafði ýmis trúnaðarstörf á hendi, og tók m.a. þátt í rekstri Út- gerðarfélags Sauðárkróks. Haraldur Júlíusson var kvænt- ur Guðrúnu Bjarnadóttur, sem látin er fyrir nokkrum árum. Ovæntur gestur hjá Orlofsky EINS OG getið var í Mbl. í gær fögnuðu frumsýningargestir Þjóðleikhússins á annan í jól- um mjög leiksýningunni á Leðurblökunni. Það, sem einkum vakti at- hygli, var óvæntur gestur, sem kom í veizlu Orlofskys og söng þar lag eftir höfund óperett- unnar Jóhann Strauss. Þetta er gamall siður-, að frægir listamenn komi óvænt fram í þessu atriði óperett- unnar. A hljómplötu Herberts von Karajan koma t.d. allmargir frægir listamenn fram. A frumsýningunni í Þjóð- leikhúsinu var hinn óvænti gestur Guðrún A. Simonar, en samkvæmt uppiýsingum Sveins Einarssonar þjóðleik- hússtjóra mun ætlunin, að áframhald verði á þessu og mun nýr og óvæntur gestur koma fram á hverri sýningu. Albert Guðmundsson: Þak á útgjöldin Peningur til minja um Lýst eftir vitni 1100 ára byggð gerður Á milli kl. 13 og 18 annan dag jóla var ekið á rauðleita nýja Morris-bifreið, R-36975, við Háa- leitisbraut 20 og vinstra aftur- bretti hennar dældað. í skemmd- unum var gulur litur með græn- um blæ og bendir það til þess, að bifreiðin, sem tjóninu olli, hafi verið þannig á litinn. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ákeyrsluna, eru beðnir að Iáta rannsóknarlögregluna vita. MINNISPENINGUR um 1100 ára byggð á tslandi verður gefinn út f byrjun ársins og verður hann af- hentur f febrúarmánuði n.k. Allur ágóði af sölunni rennur til lfknarmála. Peningurinn er teiknaður og grafinn í mót af Bárði Jóhannes- syni og framleiddur af honum ásamt gull- og silfursmiðjunni Ernu. Upplag minnispeningsins er takmarkað. Slegnir verða 100 peningar í 22 karata gull og er þyngdin 53 grömm. Hann kostar 37 þúsund krónur. I silfur verða slegnir 400 peningar, þyngdin er 36 grömm, verðið 4.500 krónur. 1 kopar verða slegnir 1000 pen- ingar, þyngdin er 36 grömm, verðið er 3 þúsund krónur. Minnispeningarnir verða númeraðir og afgreiddir í öskjum. Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar Reykjavíkurborgar skömmu fyrir jól gerði Albert Guðmunds- son borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins sérstaka bókun, þar sem hann lýsti þeirri skoðun sinni að setja ætti sérstakt þak á útgjaldaáætlun hverju sinni, þannig að hún rúmaðist innan ramma álagningarreglna, sem ákveðnar hefðu verið fyrirfram. Bókun Alherts Guðmundssonar er svohljóðandi: „Albert Guðmundsson vill leggja áherzlu á þá skoðun sína að stefna beri að því að breyta álagn- ingaraðferðum ríkis og sveitar- félaga á þann hátt, að álagningar- reglur séu ákveðnar áður en út- gjaldaliðir og framkvæmdaáætl- anir eru gerðar, þannig að ekki verði gerðar hærri útgjaldaáætl- anir en þær, sem rúmast innan þeirrar upphæðar, sem er þannig samþykkt hverju sinni. Stefna ber að þvi, að hver einstaklingur haldi eftir af heildartekjum sínum hærri hundraðshluta en nú er. Til þess að svo megi verða, verður smátt og smátt að draga úr framkvæmdum þess opinbera minnka það, sem kallað er sp- neyzla, og gæta ítrasta sparm öllum útgjöldum. Þess’ laUÚ verður bezt náð með ofai.&.eindri takmörkun á skattheimtu í formi ýmiss konar álagningargjalda, sem nú hvíla þungt á Reykvíking- um og raunar íbúum þessa 'Iands.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.