Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973
7 7> ÍT(J
í ' ' .'u <
ÍNeUrjjorkjEtmesi
ns\
'V. f
Eftir
J. Kandell
Buenos Aires —.
MÁNUDAGURINN 26. nóv.
leið og þótt allir væntu komu
Perons forseta til stjórnar-
setursins hélt hann kyrru fyrir
í húsi sínu í úthverfi höfuðborg
arinnar, þar sem hann klæddist
ekki einu sinni. Peron var að ná
sér eftir veikindi, sem í opin-
berum tilkvnningum voru köll-
uð lungnakvef. Föstudags-
kvöldið 23. nóvember flutti
Peron 90 sekúndna langt
sjónvarpsávarp frá heimili
sínu, í þeim tilgangi að
hnekkja orðrómi, sem kom-
izt hafði á kreik, um að hann
væri nær dauða en lífi. Þá sagði
hann: „Ýmsir halda, að ég sé
dauðans matur, en svo er ekki
— ekki enn.“
Peron virðist að vísu ekki
vera orðinn heilsulaus, en veik-
indi hans hafa opnað augu þjóð-
arinnar, jafnvel æstustu
stuðningsmanna forsetans, fyr-
ir því, að hann er orðinn gamall
og sjúkur, og kannski ófær um
að veita þá stjórnmálalegu for-
ystu, sem margir höfðu treyst
honum til.
Þegar eftir síðustu forseta-
kosningar tók Peron stjórnar-
taumana algjörlega í sínar eig-
in hendur, án þess að útnefna
eftirmann, sem þjóðin sætti sig
við. Þess vegna valda veikindi
hans nú sívaxandi áhyggjum í
Argentínu. Þegar Peron lætur
af embætti, eða fellur frá, blas-
ir ekkert annað en pólitískt
tómarúm við í Argentínu. Eng-
inn virðist vera fær um að taka
við af Peron og halda í skefj-
um hinum sundurleitu hags-
munahópum, — sízt af öllu frú
Isabel Peron, sem gegnir emb-
ætti varaforseta landsins, en
hefur enga reynslu í stjórnar-
störfum.
Ástandið í landinu er ömur-
legt. Hópar hægri- og vinstri-
sinnaðra öfgamanna hika ekki
við að beita ofbeldi og hafa sig
sífellt meira í frammi, jafnvel
nú þegar Peron hefur góð tök á
Er *.
Peron fœr um að
málum. Þess vegna er hætt við
að alda ofbeldisverka ríði yfir
þegar takinu sleppir.
Fyrir skömmu skutu
marxistiskir öfgamenn banda-
rískan kaupsýslumann til
bana. Peron hefur heitið því, að
ganga á milli bols og höfuðs á
skæruliðahópnum, en svo
virðist sem þeir sæki að stjórn-
inni, þar sem hún er veikust
fyrir, og fæli erlenda aðila frá
því að leggja fé í argentínsk
fyrirtæki. En stjórnvöldin vilja
ekki láta standa upp á sig. Lög-
reglumenn skutu tvo
marxistiska skæruliða til bana
fyrir skömmu og vinstri sinnað-
ur verkalýðsleiðtogi úr hópi
Peronista, sem tekinn var
höndum var látinn sæta
pyntingum áður en honum var
sleppt. Fyrir stuttu síðan gaf
fulltrúi Peronista eftirfarandi
yfirlýsingu: „Við getum ekki
falið ofbeldið, en hugsið ykkur
hve miklu meira væri um það,
ef Perons nyti ekki við.“
Peron var kosinn forseti í
veita forustu?
þriðja skipti í septembermán-
uði síðastliðnum. Hann hét að
koma á lögum og reglu í þjóð-
félaginu, en skæruliðaflokkarn-
ir, sem eru bein afleiðing hinna
mörgu herforingjastjórna, er
ráðið hafa í landinu siðan
Peron var hrakin frá völdum
árið 1955, hafa skyggt mjög á
embættisárangur hans.
Helzta afrek Perons á for-
setastóli er, hve mjög honum
hefur tekizt að hefta verðbólgu-
vöxtinn, Peron beitti í því við-
fangi hinum miklu vinsældum
sínum, og sennilega hefði eng-
um nema honum tekizt að koma
á algjörri kaup- og verð-
bindingu, sem hefur haldið
framfærsluvísitölunni stöðugri
í hálft ár. Forráðamenn ýmissa
fyrirtækja hafa lýst því yfir, að
þeir séu neyddir til að selja
vöru sína undir kostnaðarverði,
en engu að siður hefur verðlag
haldizt stöðugt og jafnframt
hefur dregið úr óánægju al-
mennings, — í bili að minnsta
kosti.
Enginn nema Peron hefði
verið fær um að stjórna hreins-
unum í hópi vinstrisinnaðra
fylgismanna hans, án þess að af
hlytist klofningur í flokknum.
'Á undanförnum vikum hafa
vinstrisinnar orðið að sætta sig
við að flokksskrám væri lokað,
samþykkt gerð, sem tryggir
hægrisinna í ýmsum stöðum, en
hrekur þá sjálfa úr áhrifastöð-
um innan verkalýðshreyfingar-
innar. Þar sem þeir hafa þótt
heldur óþægir, og loks hafa
vinstri sinnar orðið að sætta sig
við að leiðtogar þeirra yrðu fyr-
ir sífelldum árásum, jafnt hug-
myndafræðilegum sem likam-
legum.
Dardo Cabo, einn helzti tals-
maður vinstrisinnaðra Peron-
ista sagði fyrir skömmu: „I Per-
onistahreyfingunni eru bæði
lifendur og dauðir, þjóðin og
verkálýðurinn. Við eigum í
styrjöld, þar sem við höfum for-
ingja og stjórnanda. Þótt okkur
greini stundum á er það alltaf
Peron, sem gefur fyrirskipan-
ir.“
Þetta er skýr aðvörun til
hægrisinna í flokknum og
annarra íhaldsmanna. Þegar
Peron hverfur af sjónarsviðinu
er enginn, sem getur haldið
hinni sundurleitu hreyfingu
saman.
Eins og komið hefur fram hér
í þættinum var meistaramót
Sovétrikjanna nú teflt i deild-
um og fór 1. deildar keppnin
fram í Moskvu. Keppnin í 2.
deild var háð í Tibilis og var
baráttan þar ekki síður hörð og
skemmtileg, enda deildin betur
skipuð en flest alþjóðleg mót,
sem haldin hafa verið á árinu.
Keppninni í 2. deild lauk með
sigri tveggja ungra og efnilegra
meistara, en þeir eru R. Vag-
anjan, yngsti stórmeistari f
heimi og Dzindzjiasjvili. Hlutu
þeir 11V4 v af 17 mögulegum. í
3. sæti varð góðkunningi ís-
lenzkra skákunnenda, stór-
meistarinn Vasjukov með 10V4
v. og fjórði varð Furman með
10 v. Þessir fjórir unnu sér rétt
til þátttöku í 1. deild næsta ár.
Eg sagði í þætti um daginn, að
Davíð Bronstein hefði unnið
sér rétt til keppni í 1. deild,
en það var ekki rétt. Stafaði sú
missögn af vondri rússnesku-
kunnáttu minni. En Bronstein
var meðal þátttakenda f 2. deild
og aðra fræga meistara mátti
kenna þar, t.d. Gufeld og Osnos.
Að Karpov undant.eknum telja
Sovétmenn Vaganjan eitt
mesta efni sitt um þessar
mundir og við skulum nú sjá,
hvernig hann stendur að verki.
Skákin var tefld í áðursagðri
keppni.
Hvftt: Makarytjev
Svart: Vaganjan
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2 —
Rc6,
(Þetta afbrigði á nokkrum
vinsældum að fagna um þessar
mundir, enda er það ekki eins
útþvælt og t.d. 3. — Rf6 eða 3.
— c5).
4. Rgf3 — Rf6,
(Hér hefur einnig verið reynt
4. — e5 og eftir t.d. 5. dxe5 —
dxe4, 6. Rxe4 — Dxdl+, 7.
Kxdl — Bg4, 8. Bf4 — 0-0-0+,
hefur svartur allnokkra mögu-
leika fyrir peðið. 4. — e5 svarar
hvítur hins vegar bezt með 5.
Bb5).
5. e5 — Rd7, 6. Be2(?)
(Alltof hægfara. Algengast
er hér 6. Rb3 ásamt 7. Bb5).
6. — f6,
(A þessum leik byggist af-
brigðið að vissu leyti. Hvítur
má ekki fá frið á miðborðinu).
Sovétmeistaramótið
önnur deild:
7. exf6 — Dxf6, 8. Rfl — e5!,
(Svartur fórnar peði til þess
að opna taflið. Þannig getur
I ann bezt hegnt hvítum fyrir of
hægfara taflmennsku).
9. dxe5
(9. Re3 kom ef til vill ekki
síður til greina, en erfitt er að
segja um, hvor leikurinn er
betri).
9. — Rdxe5, 10. Dxd5 — Be6,
11. Db5 — a6!,
(Skemmtileg gildra. Ef nú
Dxb7 þá 12. — Ha7 og drottn-
ingin er fönguð).
12. Da4 — 0-0-0,
(Yfirburðir svarts eru nú
ljósir. Hann á aðeins eftir að
leika biskupnum á f8 út til þess
að allt sé reiðubúið til atlögu.
Hvítur þarf hins vegar að eyða
a.m.k. þremur leikjum í að
koma kóngnum í skjól og það
tekst honum ekki).
13. Rxe5 — Dxe5,14. c3
( Svartur hótaði bæði Rd4 og
Hd4).
14. — Bb4!!
(Glæsileg mannsfórn, sem er
upphafið að sókn svarts).
15. cxb4 — Bc4,16. Re3
(16. Dc2 yrði svarað með
Rxb4 og ef 16. Rg3 þá t.d. Bb5,
17. Da3 — Hd3, 18. Bf4 — De6,
19. b3 — Hxg3, 20. 0-0 —
Hxg2+, 21. Kxg2 — Bxe2 og
vinnur).
16. — Bxe2, 17. Kxe2 — Rd4+,
18. Kel — Hhe8,
(Furðulegt! Hvítur hefur
mann og peð yfir, engu að siður
er hann gjörsamlega varnar-
laus).
19. Bd2 — De4, 20. Kdl,
(Hvíti kóngurinn reynir að
flýja, en fer úr öskunni í eld-
inn. 20. Kfl var ekki betra
vegna 20. — Dd3+ og mát I 4.
leik).
20. — Dd3, 21. Hhel — Rb3!,
22. He2 — Rxal, 23. Kel.
(Svartur hótaði 23. — Dbl
mát).
23. — Hxe3!,
(Einfaldast og fljótvirkast).
24. fxe3 — Rc2+, 25. Kdl —
Rxe3+, 26. Kel — Dbl+, 27.
Kf2 — Rg4+ og hvftur gafst
upp.
Jón Þ. Þór.