Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 11 Kraftar í kögglum í Laugar- ásbíói 1 DAG, laugardag, verður sýnd kl. 3 í Laugarásbíói íslenzk kvik- mynd um líf, starf og krafta Reynis Arnar Leóssonar, sem við- urkenningu hefur hlotið sem sterkasti maður heimsins. Reynir er flestum Islendingum kunnur fyrir ótrúlegar aflraunir. Kvikmyndin um Reyni hefur ver- ið í smíðum undanfarin þrjú ár. I henni er m.a. sýnt, hvernig Reyn- ir brýzt út úr rammgerasta fanga- klefa landsins á Keflavíkurflug- velli undir eftirliti lögreglu- manna, hvernig hann vindur i sundur sterkustu handjárn bandarisku lögreglunnar, hvernig hann lyftir frá jörðu 10 hjóla Volvó-vörubifreið, veltir til nokkurra tonna bjargi, dregur upp sjö fíleflda menn á einum fingri o.s.frv. Einnig er brugðið upp mynd af lifi og starfi Reynis, sem er búsettur suður í Njarðvík- um, en ólst upp á Kjalarnesi og einnig víða norður i landi. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn í Laugarásbíói frá kl. 2 e.h. Börnum innan tólf ára verð- ur ekki leyfður aðgangur á fyrstu sýningu. Hækkað verð. HJALPRÆÐISHERINN: Norsk Julotrefest Norsk juletrefest lördag kl 20,30, pá Frelsesarmeen, Kirkjustrætl 2 Herr Jóhannes Sigurðsson, taler Kaptein Turid og Knut Gamst leder God bevertning, og mye mere. Alle er hjertelig velkomne. Vlðlagasióður auglýsir Útborgun 2. áfangagreiðslu bóta fyrir ónýt hús í Vestmannaeyjum hefst miðvikudaginn 2. januar 1974. Þeir, sem óska eftir að fá greiðslu sína senda til Vestmannaeyja láti vita um það á skrifstofu Viðlagasjóðs. Tollstóðvarhúsinu t Reykjavík fyrir áramót. Viðlagasjóður Húsnæðl ðskast fyrir léttan iSnað. 130 — 200 ferm. á jarðhæð (annað kemur til greina) eða í tvennu lagi c.a. 1 00 — 1 30 ferm. og 40 — 60 ferm. Uppl. í síma 26025, 81410 og 43031 ÁTT ADAGSGLEDI ' STÚDENTA verður haldin í Laugardalshöllinni 31. des. 1973 kl. 23—04. Hljómsveitin Brimkló. Forsala aðgöngumiða í anddyri Hl 28. — 31. des. kl. 14—17. Kaupið miða tímanlega, í fyrra seldust þeir upp. SiglfirÖingar — SiglfirÖingar I Reykjavík og nágrenni Nu er tækifæri til að koma á ódýran og skemmtilegan jólatrésfagnað að Hótel Sögu, laugardaginn 29. desem- ber kl. 1 4.30. Nefndin. Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 3. janúar. í drengja- flokkum, karlaflokkum og kvennaflokkum. Innritun hefst miðvikudaginn 2. janúar. Júdódeild Ánmanns Ármúla 32, Sími 83295. Þegará bragðið reynir notum við co T.d þegar við steikjum hátíðamatinn Notfærum okkur eiginleika smjörsins til að auka á bragðgæði safaríks og Ijúffengs kjöts. Smyrjum kjúklingana með smjöri, steikjum þá í ofni eða á glóð og hið fína bragð þeirra kemur einstaklega vel fram. Nautalundir steiktar í smjöri með aspargus og bernaissósu er einhver sá bezti veizlumatur, sem völ er á. Allt nautakjöt bragðast bezt steikt í smjöri. Útbeinum dilkalæri, smyrjum það að innan með smjöri, stráum 2 tsk. af salti, V2 af pipar og V2 af hvítlaukssalti yfir, vefjum lærið og steikjum það í ofni eða á teini í glóðarofni. Steikin verður sérlega Ijúffeng. Smjör í hátíðamatinn.......mmmmm............

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.