Morgunblaðið - 29.12.1973, Síða 4

Morgunblaðið - 29.12.1973, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 Kjl nii.ii.y.mw WAIAJR" 22*0*22- RAUOARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL C 21190 21188 TEL 14444 • 25555 m BlLALEIGA CAR RENTAL /pi BÍLALEIGAN 'felEYSIR CAR RENTAL V24460 í HVERJUM BÍL PIO NEER ÚTVARP OG 5TEREO KASETTUTÆKI AI •WHTAi.. Hverf isgötu 18 f 86060 “SKODA EYÐIR MINNA. Shod fl ' LfíGM AUÐBREKKU 44-46. SlMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bilaleiga. — Sími 81260. Fímm manna Citroen G S stat- ion Fimm manna Citroen G S g—22 manna Mercedes Benz hópferðabilar (m bílstjórum) ffxn 8VI$ririi STAKSTEINAR Atorkusami ráðherrann Vinstri stjórnin hefur nú fengið sín þriðju fjárlög sam- þykkt á Alþingi. Ótrúlegar staðreyndir blasa við. Fjárlögin fyrir árið 1971, þegar stjórnin tók við, hljóðuðu á 11,3 milljarða króna. Fjárlögin, sem nú voru afgreidd fyrir jólin, hljóðuðu á nær 30 milljarða. Að vísu er um smávægilega kerfisbreytingu á lögunum að ræða, sem hækkar þau um nokkur hundruð milljónir frá sambærilegri niðurstöðutölu 1971. Það er engu að síður ljóst, að niðurstöðutölur fjárlaganna hafa hækkað um yfir 150% á þeim þremur árum, sem þessi ríkisstjórn hefur setið að völd- um. Til samanburðar má taka hækkunina á þremur síðustu árum viðreisnarstjórnarinnar. Arið 1968 hljóðuðu fjárlögin á 6,2 milljarða króna. Eins og áð- ur segir var niðurstöðutálan 11,3 milljarðar 1971, sfðasta ár viðreisnarstjórnarinnar, þann- ig að hækkunin á þessum þrem- ur síðustu valdaárum hennar nam lauslega 80%. Vaxtar- hraðinn hefur því nær tvöfald- azt í tíð vinstri stjórnarinnar. Hvað kemur svo frá stjórnar- herrunum á opinberum vett- vangi, þegar þeir eru spurðir um aðgerðir sínar til að sporna við verðbólgunni í landinu? Helzt er á þeim að skilja, að alll sé í himnalagi með ástandið. tslendingar hafi ávallt átt við verðbólguvanda að stríðaog því sé þetta ekkert nýtt. Halldór f jármálaráðherra segist jú basla við verðbólguna. Senni lega baslar hann við að auka hana, því að ekki eru sýnilegar neinar aðgerðir í hina áttina. Halldór spáði því í umræðum um fjárlagafrumvarp 1969, að með sama áframhaldi yrðu fjárlögin komin upp í 19!ó Milliarð árið 1975. Flestir skildu þingmanninn þannig að hann væri að spá hinum verslu óförum og þetta bæri vott um óstjórn á efnahagsmálunum f tíð viðreisnarstjórnarinnar. Nú hefur það á hinn búginn komið í ljós, að Halidóri hefur ekki þótt bólgan nógu ör. Enda hef- ur hann sýnt, að hann færi létt með að keyra fjárlögin upp í 40 milljarða fyrir árið 1975 og yrðu þau meiraen tvöfalt hærri en hann hafði spáð, að viðreisn- arstjórninni tækist að koma þeim. Það væri leiðinlegt fyrir þennan atorkusama ráðherra að fá ekki tækifæri til að sýna betur, hvað í honum býr, og það bara vegna þess, að einhverjir óþekkir strákar vilja gera land- ið varnarlaust. En kannski hef- ur Halldór fengið að sýna nóg af snilli sinni. Liðið undirbúið Yfirlýsing Magnúsar Kjartanssonar í Þjóðviljanum laugardaginn 22. des. sl. var hin merkilegasta. Þar sagði hann, að ríkisstjórnin ætti að fhuga, hvort ekki væri óhjá- kvæmilegt að rjúja þing og efna til nýrra kosninga. Ekki verður þetta skilið þannig, að Magnús telji stjórnarmeiri- hlutann á Alþingi of lítinn, endahefði Ragnar Arnalds for- maður Alþýðubandalagsins maður Alþýðubandalagsins lýst afstöðu flokks þeirra félaga til þess vandamáls í viölali í útvarpinu daginn áður, þegar hann sagði, að næg ráð væru til að „skáskjóta" málum ríkis- stjórnarinnar f gegnum þingiö. Yfirlýsing Magnúsar táknar allt annað. Hann er farinn að undirbúa lið sitl undir, að ríkis- stjórnin falli á varnarmálunum og þá e.t.v. innan mjög skamms tíma. Hann veit sem er, að ekki er fyrir því neinn meirihluti á Alþingi, að tsland verði varnar- laust og svo beizkum bita vill hann ekki kyngja, þótt mörgu hafi hann kyngt að undan- förnu. Ráða efnahags- sjónarmið einhverju um afstöðu Sjálfs- stæðisflokksins til varnarliðsins? MEGINGILDI veru varnarliðs- ins í landinu felst ekki í því að verja landið fyrir öflugri árás fjandsamlegs stórveldis, heldur hinu að koma í veg fyrir árás á það. Hver sá, sem ræðst á Is- land meðan bandarískt varnar- lið er í landinu, er um leið að ráðast á Bandaríkin, og hann mætir hinum mikla hernaðar- mætti þeirra. Dvöl varnarliðsins kemur einnig í veg fyrir það, að á íslandi geti skapazt það ástand, að landið verði fyrirvaralaust hertekið. Stæðu Atlantshafs- bandalagslöndin frammi fyrir slíkri hertöku, án þess að þau hefðu hér nokkurt lið á sínum vegum, er ástæða til að efast um, að þau gripi til róttækra aðgerða til að leysa landið úr herkvínni. Tilraunir til þess gætu haft í för með sér stór- kostleg hernaðarátök, sem þau væru ekki reiðubúin að takast á hendur. Því er stundum haidið fram, að lítið gagn sé að varnarliði á flugskeytaöld. Eldflaugum verði skotið heimshorna á milli og því-séu venjulegir hermenn til lítils gagns. Flestir herfræð- ingar eru þeirrar skoðunar, að kæmi til hernaðarátaka á Atl antshafi, yrði þau með venju- legum vopnum en ekki kjarn- orkuvopnum. Svæðisbundin á- tök haf víðaorðið í heiminum siðan heimsstyrjöldinni lauk, en aldrei hefur kjarnorkuvopn- um verið beitt. Ýmsir halda þvi fram aðþeim verði aldreibeitt því að það yrði endalok verald- arinnar, — þess vegna séu þau næsta gagnslaus. En hvað sem öllum slíkum hugleiðing- um líður, er ljóst, að kæmi til eldflaugastyrjaldar milli stór- veldanna er ekki við því að búast, að Islandi yrði hlíft frekar en nokkru öðru landi, hvort sem hér er varnarlið eða ekki. Þótt varnarliðið sé fyrst og fremst hér á landi vegna okkar — annars teldum við varla ástæðu til að hafa það — má ekki gleyma þvi, að dvöl þess er eins konar framlag okkar til sameiginlegravarna bandalags landa okkar við Atlantshaf. Þeir eru vissulega til í hópi íslendinga, sem vilja veg þess- ara þjóða sem minnstan, og andúð þeirra á dvöl varnarliðs- ins er skiijanleg, en hinir eru þó fleiri, sem vilja vinsamleg samskipti við þessi lönd og eru reiðubúnir til að leggja nokkuð á sig í því efni. Getur varnarliðið varið Island? Þegar þessari spurningu er svarað, ber fyrst að gera þá athugasemd, að ekki er með rökum unnt að saka Sjálf- stæðisflokkinn um það, að hann vilji hafa öryggi landsins að fé- þúfu. Flokkurinn hefur t.d. aldrei tekið undir sjónarmið þeirra, sem vilja leggja tolla á innflutning til varnarliðsins. En sú álagning væri greinilegt skref í þá átt að hagnast á veru varnarliðsins. Þvert á móti hef- ur flokkurinn verið þeirrar skoðunar, að fjárhagslegur hagnaður af dvöl liðsins ætti að vera sem minnstur, því að ann- að gæti leitt til þess, að fjár- hagsleg afkoma landsins yrði of háð varnarliðinu. Það hefði aft- ur á móti í för með sér, að erfiðara yrði að losna við varn- arliðið úr landi, ef aðstæður til þess sköpuðust. Þótt efnahagssjónarmið komi að sjálfsögðu til álita, þegar lit- ið er á dvöi varnarliðsins í land- inu, ráða þau engum úrslitum um það, hvort liðið skuli vera hér eða ekki. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur ætíð haft þá skoð- un að meta skuli veru varnar- liðsins í landinu með tilliti til þess öryggis, sem landinu þarf að tryggja. Um 700 Islendingar vinná nú á vegum varnarliðsins, og þeir gætu vafalítið fengið störf við almennan rekstur Keflavíkur- flugvallar, ef liðið færi úr land- inu. Nettótekjur af varnarlið- inu samkvæmt greiðslujafnað- aryfirliti Seðlabankans námu 1125 milljónum króna 1970 og bráðabirgðatölur fyrir árið 1971 eru um 1300 milljónir króna. Frá 1968 hafa tekjur af varnarliðinu numið nálægt 3% af þjóðarframleiðslu landsins. Höggmynd afhjúpuð af prófessor Einari Ólafi Sveinssyni MIÐVIKUDAGINN 12. desem- ber síðastliðinn var afhjúpuð í Arnastofnun höggmynd af dr. Einari Öl. Sveinssyni prófessor, en hann var, eins og kunnugt er, fyrsti forstöðumaður stofn- unarinnar, sem í þá daga nefnd- ist Handritastofnun Islands. Myndina hefur gert hinn kunni norski listamaður Stále ' Kyll- ingstad, og hefur henni verið valinn staður í lestrarsal Arna- stofnunar. Sonardóttir prófessors Einars Ólafs, Asta Kristjana Sveins- dóttir, afhjúpaði myndina, en hún er aðeins fjögurra ára göm- ul. Núverandi forstöðumaður, prófessor Jónas Kristjánsson, afhenti síðan myndina, sem er gjöf frá nokkrum vinum Einars Ótefs. Sagði Jónas nokkur deili á listamanninum og minnti síð- an á þann mikla þátt sem Einar Ólafur Svetnsson átti í bygg- ingu handritahússins Arna- garðs. Að lokum sagði Jónas: „Einar Ólafur Sveinsson er gamall bókavörður, og auk þess er hann viðlesnari en flestir aðrir menn. Hann hefur löng- um kunnað best við sig ef hann hefur bækur allt í kringum sig. Hér mun mynd hans um ókom- in ár horfa yfir bókahillurnar og yfir hóp af ungu fólki, sem sýslar við þau fræði sem átt hafa hug hans aílan: rannsókn- ir íslenskra bókmennta." Stále Kyllingstad, Asta Kristj- ana Sveinsdóttir og Einar Ólaf- ur Sveinsson fyrir franian höggmvndina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.