Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGA'RDAGUR 29. DESEMBER 1973 15 Vildu ekki mótmæli Bonn, 28. desember, NTB SOVÉZKA sendiráðið í Bonn neit- aði í dag að taka við lista, sém 30 þúsund menn höfðu ritað nafn sitt á, þar sem þvi var mótmælt, að menntamenn i Sovétríkjunum, sem gagnrýna stjórnina, eru sett- ir á geðveikrahæli. Mótmælaskjal- ið var stílað á Leonid Brezhnev. Þeim, sem komu til sendiráðs- ins til að afhenda það, var höstug- lega visað frá og harðneituðu starfsmenn sendiráðsins að taka við skjalinu. Þeir sögðu það hel- ber ósannindí, að menn væru sett- ir á geðveikrahæli vegna stjórn- málaskoðana. Þar væri aðeins geðveikt fólk. Ray reynir málshöfðun Hartling er fremstur fyrir miðju en honum sitt til hvorr- ar handar eru Tove Nielsen, kennslumálaráðherra (t.v.) og Nathalie Lind, dóms- og menntamálaráðherra. sagði lögfræðirrgurinn í dag, að þessar fullyrðingar Rays ættu ekki við nein rök að styðjast. Solzhenitsyn leyfir útgáfu nýrrar bókar — Hvað gerir nýja höfundarréttarskrifstofan? París, 28. desember — AP 1 DAG kom út í París ný skáld- saga eftir sovézka Nóbelsverð- launahöfundinn og andófs- manninn Alexander Solzhenitsyn. Skáldsagan sem gefin er út á rússnesku með leyfi höfundarins, fjallar um sovézka vinnu- og fangabúða- kerfið og nefnist „Gulag Arkipelago". Að sögn útgefand- ans, YMCA-Presse í París, er verkið hókmenntaleg stækkun og útfærsla á „eigin reynslu höfundarins", „sagnfræðilegs, heimildarlegs og sjálfsævisögu- legs eðlis“ og tekur til meðferð- ar vinnubúðakerfið f Sovétríkj- unum á árunum 1918 til 1956. [7| Úgefandinn sagði í dag, að Solzhenitsyn hefði fryst handritið að „Gulag Arkipelago" f fimm ár til þess að vernda menn sem nafn- greindir eru í bókinni. ,.Kn f ágúst sfðastliðnum tóKst sovézku leynilögreglunni að ná í eitt eintak af handritinu og þvf ákvað höfundurinn að fresta útgáfunni ekki lengur.“ YMCA-Presse sagði, að snemma á næsta ári væri ráð- gert að bókin kæmi út á þýzku, ensku, sænsku og frönsku. Ukoma þessarar bókar í París er talin geta verið fyrsti próf- steinninn á vald og verksvið hinnar nýju höf-undarréttar- skrifstofu í Sovétríkunum. Yfirmaður skrifstofunnar, Boris D. Pankin, sagði einmitt frá því í gær, að stofnun hans myndi beita sér fyrir hindrun- um á því, að út kæmu erlendis bækur eftir höfunda eins os Solzhenitsyn, sem taldir væru „andsovézkir“»„Utflutningur er í okkar landi eingöngu i hönd- um ríkisins," sagði Pankin. Því gætu einstaklingar ekki upp á eindæmi t.d. selt eða keypt höfundarétt að bókum. Pankin sagði ennfremur, að höfundaréttarskrifstofan myndi höfða mál á hehdur öll- um vestrænum útgefendum, sem gerðu samninga við sovézka aðila án milligöngu hennar. Ekki náðist í Pankin í dag til að fá álit hans á útkomu bókarinnar í Paris. Verk Solzhenitsyns eru eins og kunnugt er bönnuð í heima- landi hans, og hann hefur sagt, að á meðan svo sé, muni hann halda áfram að fá þau útgefin erlendis. Ennfremur er Solzhenitsyn nú að kanna viðbrögð höfunda- réttarskrifstofunnar með því að láta dreifa tveimur óúkomnum köflum að „Fyrsta hringnum" i vélrltuðum neðanjarðarútgáf- um. Hann heldur þvi fram, að þar sem Sovétmenn hafi nú fengið höfundaréttarskrifstofu, þá eigi hann rétt á að dreifa verkum sínum i vélrituðum ,,samizdat,“-útgáfum, ' en það þýðir ,.sjálfsútgáfa“, og um leið fái hann vernd gegn óleyfilegri útgáfu verka sinna á Vestur- löndum. Hann hefur gefið i skyn, að hann muni krefjast þess að höfundaréttarskrifstof- 'an láti til skarar skríða ef „samizdat“-útgáfur, sem berast kunna til Vesturlanda, verða útgefnar þar án hans levfis Poul Hartling, hinn nýi for- sætisráðherra Danmerkur hef- ur nú gengið á fund Margrétar drottningar ásamt rikisstjórn sinni og var þessi „fjölskyldu- mynd“ tekin við það tækifæri. Manila, 28. desember-AP FLUGFARGJÖLD á alþjóðlegum flugleiðum munu almennt hækka verulega frá og með 1. janúar næstkomandi vegna hækkandi eldsneytiskostnaðar, sem stafar af deilunum í Miðausturlöndum. Talsmaður Alþjóðaflugsam- bandsins, IATA, skýrði frá þessu í dag og bætti við að á sumum flugleiðum myndi hækkunin nema 4%. Hann kvað árið hafa verið breytingaár, þar sem risa- þotur hefðu tekið við af smærri gerðum flugvéla. Þetta var gott ár, en flugfélögunum hefur engu að sfður ekki vegnað eins vel og við höfðum vænzt. „Við þorum ekki að spá fyrir árið 1974,“ sagði talsmaðurinn ennfremur, „vegna olíukrepp- unnar. Þetta er allt óljóst.“ IATA hefur orðið að grípa til ýmissa ráða til að mæta vaxandi Flytur Kína út bensín? Tokýó, 28. desember -AP. BENSlNLINDIR Kína éru verulegar um þessar mundir og mjög góðar horfur eru á, að enn frekari lindir finnist á landgrunninu. Þetta kemur fram í frétt frá hinni opinberu kínversku fréttastofu, Hsinhua, í dag og segir þar ennfremur, að landið hafi lok- ið áætluninni fyrir bensín- framleiðslu árið 1973 tíu dög- um fyrr en búizt var við. Fram- leiðsla hinna ýmsu olíuvara jókst talsvert á árinu, en engar tölur eru þó gefnar upp um aukninguna. Þessar fregnir koma hins vegar heim og sam- an við fyrri fréttir frá Kína um, að landið framleiði nú svo mikið af bensín- og olíuvörum, að nokkur útflutningur sé hugsanlegur. I frétt Hsinhua segir, að nokkrar nýjar olíulindir hafi verið teknar í notkun á þessu ári og hafi það „stórlega aukið framleiðslugetu Kínverja á olíu“. erfiðleikum og m.a. standa nú fyrir dyrum viðræður sambands- ins við helztu flugmótoraverk- smiðjurnar (Pratt & Whitney, General Electric, og Rolls Ro.vce) um hvort hugsanlegt sé að fram- leiða mótora fyrir fiugvélar, sem óháðir yrðu olíuvörum. Ferðin gekk að óskum Moskvu,27. des. NTB. GEORGI Bergevoy hershöfðingi. sem er yfirmaður sovézkageim farahópsins, sagði í dag, að ferð Soyuzar hefði gengið að óskum Hershöfðinginn, sem sjálfur fór I Soyuz geimferð 1968, sagði, að ýmis ný tæki hefðu verið reynd og hefðu þau öll starfað fullkomlega. Ymsir vestrænir vísindamenn hafa grun um, að eitthvað hafí farið úrskeiðis, þvi að í upphafi geimferðarinnar var lögð áherzla á, að reyna ætti ýmiss konar nýj- an tækjabúnað, en miðja geim- ferðina voru einu fréttirnar, sem gefnar voru, um alls konar himin- tunglarannsóknir geimfaranna, en hvorugur þeirra neina sér- menntun á því sviði. Ráðgerði Gaddafi byltingu gegn Sadat? Beirut, 28. desember -NTB. EGYPZK stjórnvöld afstýrðu í október síðastliðnum bylt- ingartilraun hersins gegn ríkisstjórn Sadats forseta, en tilraun þessi var studd af Moammar Gaddafi, forseta Líbýu. Þessu er haldið fram í dagbiaðinu Al Jarida f Beirut f dag. Byltingartilraunin var und- irbúin af herforingjum sem velvil.iaðir eru Gáddafi Líbvu- forseta, en yfirvöld komust á snoðir um ráðagerðirnar í tæka tíð, segir blaðið. A1 Jarida segir ennfremur, að Gaddafi hafi persónulega stað- ið að baki samsærinu og ber fyrir sig heimildum frá kunn- um líbanonskum stjórnmála- manni,, sem nýlega kom til Kairó. Nashville, Tennessee 28. des., -AP JAMES Earl Rey, maðurinn sem játað hefur á sig morðið á séra Martin Luther King f apríl 1968, hefur nú höfðað 500.000 dollara skaðabótamál á hendur Tennessee-ríki vegna „fangelsun- ar fyrir glæp sem ég framdi ekki“. Um leið sakfellir Ray f.vrr- verandi lögfræðing sinn fyrir að láta hjá Ifða að rannsaka mikil- væg sönnunargögn í máli sfnu. Einnig reynir hann f máli sfnu, sem hann höfðar fyrir alríkis- James Earl Ray rétti, að sporna við þvf að ríkið láti flytja hann úr fangelsinu á geðveikraspítala í Missouri. Eins og kunnugt er viðurkenndi Ray á sínum tíma að hafa framið morðið, en síðar dró hann játning- una til baka og kvaðst hafa verið handbendi annarra sem hann þó hefur ekki nefnt. Málshöfðun hans nú er aðeins ein af mörgum tilraunum hans að undanförnu til að fá dómi.sínum breytt. Asakanir Rays á hendur lög- fræðingnum eru þess efnis, að harin hafi vanrækt að láta rann- saka tvo menn, sem Ray segir viðriðna málið og kveðst hann hafa afhent lögfræðingnum nöfn þeirra og símanúmer. Sjálfur Hughes ákærður Las Vegas, 28. des., -AP HOWARD Hughes, sá hlédrægi milljónamæringur, hefur nú ver- ið ákærður af alrfkisdómstóli, ásamt þremur samstarfsmönnum sínum, fyrir hlutabréfabrask f sambandi við kaup hans á flug- félagi einu árið 1970. Eru þeir félagar sakaðir um að hafa neytt forráðamenn Air Westflugfélags- ins til að selja Hughes fyrirtækið með þvf að rýra verðmæti hluta- bréfa þess og sfðan hóta þeim lögsókn. Talsmenn milljónamæringsins vildu í dag ekki láta hafa rieitt eftir sér um mál þetta. Sjálfur er Hughes talin dvelja á hóteli einu á Bahamaeyjum. Talsverð hækkun á flugfargjöldum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.