Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.12.1973, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 21 Chile ræðst á Palme Santigago, 27. des. NTB. CHILESTJÓRN hefur enn sak- a5 Olof Palme, forsætisráð- herra Svíþjóðar, um afskipti af innanríkismáium landsins þar sem hann hafi gefið peninga í sjóð andspyrnu- hreyfingar sem berjist gegn henni. Utanríkisráðherra landsins, Ismael Huerta, sakar sænsku stjórnina í mjög harðorðri mót- mælaorðsendingu um skapa ástand, sem ógni friði og öryggi i heiminum með því að virða að vettugi þá reglu milli- ríkjasamskipta að skipta sér ekki af innanríkismálum. Huerta segir það engu breyta, að Palme hafi komið fram sem foringi sósíaldemó- krataflokksins — hann hafi samt skipt sér af innanríkis- málum Chile og hann sé for- sætisráðherra. Barizt um uppskeru í S - Víetnam Saigon, 27. des. AP. FJÖLMENNUR liðsauki var sendur ásamt strfðsvögnum í dag til Mekongóshólasvæðisins til þess að verja hrísgrjóna- uppskeruna eftir alvarlegan ósigur stjórnarhermanna. Um 150 stjórnarhermenn munu hafa fallið eða særzt I skyndiárás skammt frá fylkis- höfuðstaðnum Vi Thanh. Félagar þeirra flýðu óskipu- lagsbundið til höfuðstaðarins undan hermönnum Viet Cong, sem hafa reynt að ná sem mestu af uppskerunni. 1 Kambódiu var barizt fimmta daginn í röð á austur- bakka Mekong, norðaustur af Phonom Penh. Ævintýraferð til Bangkok Á 12 klukkustundum flytur SAS þotan yður frá Kaupmannahöfn aftur í alda gamla menningu, og töfra austursins. Undurfagrar musterisbyggingar, lita- skrúð, fagrir listmunir og ekki má gleyma brosmiídri þjóð, sem heillar alla gesti. Pa Haya er nafnið á einhverri beztu bað- strönd, sem um getur og hún er aðeins 1 50 km. frá Bangkok. Ef þér hugleiðið að útvega yður ný og milliliðalaus verzlunarsambönd i Austur- löndum er vel hugsanlegt að skrifstofur SAS geti aðstoðað yður. Við höfum ára- tuga reynslu í slíkri fyrirgreiðslu. Það er stutt frá Bangkok til fjölmargra heillandi borga og bæja Austurlanda. At- hugið hjá þeim ferðaskrifstofum, sem hafa söluumboð fyrir okkur, hve ótrúlega lítið ævintýraferð til Bangkok kostar nú. Það sem áður var fjarlægur draumur í þessum efnum er nú möguleiki fyrir fjölda fólks sökum mikilla verðlækkana á þess- um ferðum undanfarin ár. Spyrjið ferðaskrifstofurnar S4S Laugavtgi 3 simi 21199 og 22299 * Vélstjórafélag Islands JÓLATRÉSSKEMMTUN félagsins \erður haldin miðvikudaginn 2. jan. 1 974 kl. 1 5.00 að Hótel Loftleiðum. Aðgöngumiðar á Bárugötu 11, sími 12630. Óseldir miðar við innganginn. Skemmtinefndin. Hjálparsveitir skáta um land allt, standa nú fyrir flugeldamörkuðum. Hvergi er meira úrval! FLUGELDAR, BLYS, STJÖRNULJÖS, G0S; SÖLIR0. M. FL. UtsölustaÓir: Flugeldamarkaðir eru undirstaða reksturs Hjálparsveitanna. Við hvetjum því fólktil að verzla eingöngu við okkur. Reykjavík Kópavogur Akureyri Garðahreppur Njarðvík Blönduós ísafjörður Vestmannaeyja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.