Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973
Hver að verða síðastur!
FRESTUR til að tilkynna þátttöku í landsmótum í knattspyrnu rennur
út 1. janúar og þurfa því þeir sem ekki hafa þegar t ilkynnt þátttöku að
gera það hið snarasta. Gildir þetta fyrir alla flokka karla og kvenna,
bæði í fslandsmóti og hikarkeppni.
Meistarar
innanhúss
REYKJAVÍKURMÓTI
yngri flokkanna i innan-
hússknattspyrnu lýkur i dag
með Ieikjum í-2. fl. karla og
kvennaflokki. Stúlkna-
leikirnir hefjast klukkan 11,
en piltaleikirnir klukkan
13.30. I fyrradag var keppt í
3. og 5. flokki og sigraði KR
lið Fylkis í úrslitum i 5.
flokki og Þróttur vann KR í
3. flokki. Meðfylgjandi
mynd tók Kr. Ben. i leik
Vikings og Vals i 4. flokki,
Valspiltarnir unnu þann
leik örugglegaog síðan Þrótt
í úrslitum.
Lið Luther College.
Landsliðið gegn Luther C.
BANDARÍSKA háskölaliðið frá
Luther College leikur sinn annan
leik i íslandsferðinni gegn úrvali
KKÍ í íþróttahúsinu í Hafnarfirði
í dag og hefst leikurinn klukkan
18. Körfuknattleikslandsliðið
undirbýr .sig nú fyrir þátttöku í
Polar Cup og hafa 13 leikmenn
verið valdir til æfinga, munu þeir
allir taka þátt í leikjunum gegn
Luther C. Landsliðið Ieikur 4 leiki
gegn Bandaríkjamönnum og fær
því góða æfingu fyrir Polar Cup,
en að heimsókninni lokinni verða
valdir 10 leikmenn til fararinnar.
Leikmennirnir sem valdir hafa
verið til æfinga og leika gegn
Luther College eru þessir:
Bakverðir: Kristinn Jörundsson
ÍR, Jón Sigurðsson Ármanni, Kol-
beinn Pálsson KR, Kolbeinn
Kristinsson IR, Hilmar Viktors-
son KR.
Framherjar: Guttormur Ólafs-.
son KR, Þórir Magnússon Val, Jó-
hannes . Magnússon Val, Gunnar
Þorvarðsson UMFN.,
Hætta Pólverj-
ar við HM?
Fyrir nokkru síðan sendi Al-
þjóða Knattspyrnusambandið
beiðni til þeirra þjóða, sem
áunnið höfðu sér rétt til að taka
þátt í úrslitum HM, að þær stað-
festu þátttöku sína í úrslitunum.
Hafa nú allar þjóðirnar að Pól-
landi undanskildu sent FIFA til-
kynningu og sagst vera ákveðnar í
að mæta í úrslitin. Búlgaría og
A-Þýzkaland eru þá meðtalin, en
eins og kunnugt er hótuðu austan-
tjaldslöndin því á sínum tíma að
þau myndu draga sig til baka, yrði
Rússum ekki leyft að leika á hlut-
lausum velli gegn Chile, en þess
höfðu þeir krafist en á það var
ekki fallist.
Wednesday rekur
framkvæmdastjórann
SHEFFIELD Wednesday berst
nú i bökkum á botni annarrar
deildar í ensku knattspyrnunni
og fall niður í þriðju deild blasir
við liðinu í fyrsta skipti. Síðastlið-
inn mánudag var framkvæmdar-
stjóri félagsins, Derek Dooley,
rekinn frá félaginu, eftir að hafa
þjónað þvi lengi. Dooley var leik-
maður með Wednesday 1951—52
og skoraði þá 46 mörk, síðan fót-
brotnaði hann, en var áfram hjá
Wednesday við ýmis störf, þar til
hann var ráðinn framkvæmda-
stjóri 1971.
Miðherjar: Kristinn Stefánsson
KR, Bjarni Gunnar IS, Birgir
Guðbjörnsson KR og Torfi
Magnússon Val.
Annan janúar klukkan 14 hefst
æfing hjá liði Luther College í
KR-húsinu og er þeim sem vilja
velkomið að fylgjast með æfing-
unni. Kvöldið2. janúar hefstsvo
fjögurra liða mót í Iþróttahöllinni
I Laugardal, fyrsti leikurinn verð-
ur á milli liðs af Keflavíkurflug-
velli og landsliðsins, en- síðan
leika Luther College og lands-
lið. Kvöldið eftir verður mótinu
haldið áfram í Höllinni og leika
þá fyrst tapliðin frá kvöldinu áð-
ur og síðan sigurliðin til úrslita.
Gullknötturinn til
Johanns
Cryuffs
Ensku
marka-
kóngarnir
Alan Woodward leikmaður
Sheffield United er nú mark-
hæstur i 1. deildinni ensku,
með 14 mörk, en 10 aðrir kapp-
ar fylgja honum fast eftir. Þeir
eru Mike Channon, Southamp-
ton, með 13 mörk, Bob Latch-
ford, Birmingham, 12 mörk, og
8 menn hafa skorað 11 mörk.
Þeir eru Stan Bowles, QPR,
Derek Dougan, Ulfunum, Mick
Jones, Leeds, Francis Lee, Man.
City, Malcolm MacDonald, New-
castle, Bobby Gould, West
Ham, Frank Worthington, Leic-
ester, og John Richards, Ulf-
unum.
I 2. deild hafa tveir leik-
manna Orient skorað flest
mörk, þeir Mike Bullock (15)
og Barry. Fairbrother (14). Alf
Wood, Millwall, og Alan
Gowling, Huddersfield, hafa
einnig skorað 14 mörk.
97 atkvæði, en í öðru sæti varð
Oino Zoff, markvörður italska
liðsins Juventus, með 47 at-
kvæði.
Þriðji varð Gerd Miiller,
Bayern Munchen, með 44, t
Franz Beckenbauer, sama fé-
lagi, varð fjórði með 30 atkvæði
og Billy Bremner, Leeds, kom í
fimmta sæti með 22 atkvæði.
Deyna frá Póllandi varð 6.,
Eusebio varð sjöundi, númer 8
varð Rivera, Milan, níundi Ralf
Edström, Eindhoven og Gunter
Netzer, Real Madrid, varð í 10.
sæti.
Hollendingurinn Johann Cry-
uff var kosinn knattspyrnu-
maður ársins i Evrópu af
franska blaðinu „France Foot-
ball “.
Cryuff, sem nú leikur með
spánska liðinu Barcelona, en
var áður leikmaður Ajax, hlýt-
ur því gullknöttinn í viður-
kenningarskyni.
Þátt í kosningunni tóku
knattspyrnufréttaritarar víðs
vegar í Evrópu og hlaut Cryuff
Fjögur lið í stað
sex taka þátt í
mótinu, sem hefst í
Hafnarfirði í dag
EINS og fram hefur komið í frétt-
um átti í kvöld að hefjast sex liða
handknattleiksmót í Hafnarfirði
með þátttöku- bandaríska lands-
liðsins, unglingalandsliðs, FH,
Hauka óg tveggja Reykjavíkur-
félaga. Miklar sviptingar hafa átt
sér stað síðustu daga innan Hand-
knattleiksráðs Reykjavfkur, og
verður ekkert af þátttöku Reykja-
vfkurfélaganna í móti þessu. Þá
hefur HSl einnig verið synjað um
afnot af Laugardalshöilinni til
landsleiks 4. janúar, en þann dag
átti að fara þar fram landsleikur
við Bandaríkjamenn.
Rétt er að rekja mál þetta
nánar, en það er allt hið undar-
legasta. HSl fól HKRR og HKRH
að velja tvö lið frá hvoru umráða-
svæði til þátttöku í mótinu og var
ekki erfitt fyrir HKRH að benda
strax á Háuka og FH. Innan
Handknattleiksráðs Revkjavíkur
urðu strax miklar deilur um,
hvaða lið ættu að taka þátt í mót-
inu. Nokkrir vildu, að Fram og
Valur yrðu meðal þátttakenda
sem íslands- og Reykjavíkur-
meistarar. Aðrir vildu láta draga
um þátttökulið frá Reykjavík og
var það gert, þó aðeins úr 1. deild-
ar liðunum, og kom upp hlutur
Víkings og IR.
Við þessi málalok gátu full-
trúar Fram og Vals ekki sætt sig,
en sneru sér til IBR, sem hefur
yfirumsjón með þeim íþróttavið-
burðum, sem fram fara í Reykja-
vík. I fvrradag sendi IBR svo HSI
eftirfarandi ske.vti: „Umsóttu
leikkvöldi 4. janúar hefur þegar
verið ráðstafað að tilhlutan móta-
nefndar HSt til heimaleikja
Reykjavíkurfélaganna. Verður
þeirri ráðstöfun ekki rift einhliða
af stjórn IBR.“
Var nú svo komið, að hand-
knattleikssambandi hafði I fyrsta
skipti verið synjað um landsleik f
Reykjavík. Varð þvf að finna
annan leikstað og tíma fyrir
umsaminn landsleik við Banda-
rfkjamenn og var ákveðið, að sá
leikur færi fram í Hafnarfirði 2'.
janúar. Til að gera mótið í Hafn-
arfirði minna f sniðum ákvað HSt
þvf að sleppa Re.vkjavíkurfélög-
unúm út úr mótinu óg hafa þátt-
tökuliðin aðeins 4. I og með hefur
þessi ráðstöfun eflaust verið
hefndarráðstöfun hjá HSÍ, því
sambandinu hefði verið f lófa
lagið að hafa riðlakeppni í mót-
inu, en telja verður ákvörðun HSl
eðlilega. Innan HKRR virðist
hver höndin vera upp á móti ann-
arri og því er aðlilegt að spurt sé,
hvort HKRR sé starfhæft og
einnig hvort að það sé aðlilegt, að
handknattleiksráð innan héraðs
geti meinað sérsambandi að láta
landsleik fara fram í skjóli við-
komandi íþróttabandalags.
Ekki er ástæða til að rekja mál
þetta nánar, en víkjum að
mótinu, sem hefst í Iþróttahúsinu
í Hafnarfirði f dag. Óneitanlega
verður mótið sviplítið, en án efa
góð æfing fyrir liðin, sem taka
þátt í þvf, FH, Hauka, unglinga-
landsliðið og USA. Geir
Hallsteinsson leikur með FH í
mótinu og mætir liðið Banda-
rfkjamönnum í dag, klukkan
15.15, en á undan fer fram leikur
unglingalandsliðs og Hauka.
A morgun klukkan 14. leika
unglingalandslið og FH og að
þeim leik loknum nætast USA og
Haukar. Sfðustu leikir mótsins
fara fram á gamlársdag, klukkan
13.30 hefst leikur FH og Hauka
og sfðasti leikur mótsins verður
milli unglinganna og USA.
Fimmfaldur
japanskur
stökksigur
Á MIKLU alþjóðletu skfðamóti
sem haldið var í St. Moritz á
annan dag jóla unnu Japanir
fimmfaldán sigur í skfðastökki.
Alls tóku 66 stökkvarar þátt i
keppninni og voru þeir frá 10
þjóðum. Hiroshi Hitagaki
sigraði með 232.4 stig (87.5 og
84 m), annar varð Hisajoshi
Sawada með 224.9 stig (86 og 83
m), þriðji Takao Ito með 223.3
stig (88 og 82 m), fjórði
Kazuhiro Akimoty með 218.5
stig (83 og 85 m), fimmti
Japaninn varð svo Akitsugu
Konno með 214 stig. I sjötta
sæti kom svo Svisslendingurinn
Ernst von Gruenigen með
212.7 stig (85 og 81 m).