Morgunblaðið - 09.01.1974, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974
REYKVlKINGAR fá væntan-
lega fallegar stúlkur í heim-
sókn hinn 11. janúar n.k., en þá
kemur Lúeia frá Gautaborg I
heimsókn hingað ásamt sex
þernum sfnum og öðru fylgdar-
liði.
Svo sem kunnugt er, er
Lucíuhátíðin gamall sænskur
siður. Hann er talinn upprunn-
inn í Suðvestur-Svíþjóð. Þar
gengu ungar stúlkur um byggð-
tna um miðjan desember og
boðuðu fólki, að brátt væri
skammdegið á enda runnið og
bjartir dagar og bjartari tímar
framundan. A síðari tímum
bera ungar stúlkur, sem valdar
eru í hlutverk Lúcíu, ljósakrans
sem tákn boðskapar síns. Fyrir
utan þær Lúcíur, sem eru svo
til á hverju heimili, í hverjum
skóla og hverri stofnun á sjálf-
an Lúcíudaginn, 13. desember,
hefur dagblaðið GöteborgaPost-
en og einnig i nokkur ár Göte-
borgs Tidningen haft veg og
vanda af vali Lúcíu Gautaborg-
ar. I þvl sambandi hefur verið
efnt til skyndihappdrættis og
ágóðinn látinn renna til líknar-
og mannúðarmála.
Nú er Lúcia Gautaborgar
væntanleg í heimsókn til ís-
lands i boði tveggja fyrr-
greindra blaða og islenzku flug-
félaganna, Flugfélags íslands
og Loftleiða. Eins og-fyrr segir,
eru sex þernur með í förinni og
einnig „Lúcíupabbinn ’, eins og
hann er kallaður, en hann er
þekktur söngvari og skáld,
Lasse Dahlquist.
Hópurinn kemur hingað 11.
janúar og dvelur hér til mánu-
dagsins 14. janúar. Meðan dval-
ið er í Reykjavík mun hópurinn
m.a. heimsækja forseta íslands,
borgarstjórann f Reykjavík,
Dvalarheimili aldraða sjó-
manna og Sænsk-íslenzka
félagið í Norræna húsinu.
Á undanförnum árum hefur
Lúcía Gautaborgar farið víða
um Evrópu. ísland varð fyrir
valinu að þessu sinni, vegna
þess að eldgosinu í Eyjum lauk
farsællega og árið 1974 fagna
íslendingar 1100 ára búsetu í
landinu. Myndin er af Lúciunni
ásamt þernum sínum.
Vilja sameina Búnaðar-
bankann og Utvegsbankann
MORG.UNBLAÐINU hefur verið
sent álit bankamálanefndar sem
bankaráðherra skipaði til þess að
atliuga bankakerfið sérstaklega
með tilliti til fækkunar útlána-
stofnana. Hér í blaðinu hafa áður
verið raktar allítarlega niðurstöð-
ur nefndarinnar, en meginbreyt-
ingin í bankakerfinu, sem nefnd-
in leggur til að framkvæmd verði
er sameining Útvegsbankans og
Búnaðarbankans.
Nefndin telur ekki æskilegt, að
nein meiri háttar skipulagsbreyt-
ing verði gerð á starfsemi Seðla-
bankans, sem fyrir löngu hafi
sannað ágæti sitt, en vill að sett
verði nú löggjöf um starfsemi við-
skiptabankanna. Hefur nefndin
gert' drög að slíkri löggjöf. Enn-
Gunnar Helgason for-
maður fulltrúaráðsins
AÐALFUNDUR fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
var haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
sl. mánudag. Var Gunnar Helga-
son kjörinn formaður full-
trúaráðsins, en Magnús L. Sveins-
son, sem verið hefur formaður
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjórn voru kosnir:
Gunnar Thoroddsen, Ilörður
Sigurgestsson, Kristín Magnús-
dóttir, Kristján J. Gunnarsson,
Olafur B. Thors og Siguröur
Hafstein. Er stjórnin óbreytt að
öðru leyti en því, að Geir Hall-
grímsson gaf ekki kost á sér til
endurkjörs og kom Kristján J.
Gunnarsson í stað hans.
A fundinum voru samþykktar
reglur fyrir prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins f borgarstjórnarkosn-
íngunum í vor svo og skipulags-
breytingar, sem fela í sér, aðsjálf-
stæðisfélög verða stofnuð í hverf-
um borgarinnar. Er sagt frá þess-
Stærri inn-
flutningskvótar
Um síðustu- áramót gaf við-
skiptaráðuneytið út auglýsingu
um innflutningskvóta fyrir árið
1974, sem nær yfir sælgæti, hús-
gögn, sement, óáfengt öl, brennt
kaffi í smásöluumbúðum, bursta
og spenna. Allir kvótarnir eru
stækkaðir nokkuð og er það i sam-
ræmi við skuldbindingar okkar
við EFTA. Innflutningur flestra
framangreindra vara verður gef-
inn frjáls 1. janúar 1975.
um málum annars staðar í blað-
inu. Þá voru kosnir fulltrúar í
flokksráð og Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
flutti ávarp.
í skýrslu stjórnar, sem fráfar-
andi formaður Magnús L. Sveins-
son flutti, kom m.a. fram, að fyrir-
hugað er, að Sjálfstæðishúsið
verði fokhelt þegar í vor. Sagði
hann ennfremur, að kjallari húss-
ins yrði senn tilbúinn, þannig að
hægt yrði að vinna þar að kosn-
ingaundirbúningi fyrir borgar
stjórnai'kosningarnar.
fremur gerði nefndin drög að
nýrri löggjöf fyrir sparisjóði og
leggur til, að sparisjóðir verði
sameinaðir á landshlutagrund-
velli.
Bankamálanefnd vill koma á
gagngerri endurskoðun innláns-
deilda samvinnufélaganna og
skilja algjörlega í sundur fjárhag
innlánsdeildanna og samvinnufé-
laganna sjálfra. Þá vill nefndin og
fækka fjárfestingarsjóðum með
samruna i stærri deildir. Teiur
nefndin, að unnt sé að fækka
þeim úr 17 i 9.
í bankamálanefnd eru þessir
bankastjórar: Jóhannes Nordal,
formaður, Ármann Jakobsson,
Björgvin Vilmundarson, Guð-
mundur Hjartarson, Jóhannes
Elíasson og Magnús Jónsson.
63 kr. fyrir kg.
Skuttogarinn Dagstjarnan frá
Njarðvíkum var fyrsti íslenzki
togarinn, sem seldi í Grimsby eft-
ir áramótin. Skipið seldi í gær-
morgun 82.2 lestir fyrir 26.688
pund, eða 5.1 millj. króna. Meðal-
verðið. var kr. 63.18, sem er
nokkru lægra en menn áttu von á.
Egilsstaðaflug-
völlur forarsvað
„Við Flugfélagsmenn höfum
rætt um það, að eina leiðin til
þess að halda Egilsstaðaflugvelli
opnum allt árið sé að koma fyrir
frystitækjum undir honum og
hafa hann frosinn allt árið um
kring. Ekki má koma þíða né
dropi úr lofti, þá er völlurinn
orðinn ófær Fokker Friendship-
vélunum," sagði Sveinn Sæ-
mundsson blaðafulltrúi Flugfé-
lagsins, þegar við spurðum um
innanlandsflugið í gær.
Flug\’öllurinn á Egilsstöðum
hefur nú verið ófær Friendship-
f lugvélunum í 3 daga. Til að koma
farþegum frá Austurlandi hefur
Flugfélagið notazt við DC-3 vél,
en hún getur lent og tekið sig á
loft þar eystra. Vélin, sem tekur
28 farþega, hefur selflutt farþega
til Akureyrar, en þaðan komast
þeir suður með Friendshipvél-
unum. Þá hefur það ekkí bætt úr
skák, að annar aðalflugvöllurinn
á Austurlandi, völlurinn í Nes-
kaupstað, er ófær vegna hálku, en
vonazt er til, að hann opnist i dag.
Að sögn Sveins hefur rætzt mjög
úr innanlandsfluginu, og i gær
var t.d. hægt að fljúga til Raufar-
hafnar og Þórshafnar, en þangað
hefur ekki verið hægt að fljúga
lengi. Það gekk helzt illa að fljúga
til Vestfjarða í gær og'hafði t.d.
ekki tekizt að fljúga til Isafjarðar.
Loðnan fundin
úti af Langanesi
RANNSÓKNASKIPIÐ Árni
Friðriksson, sem nú stundar
loðnuleit, fann fyrstu loðnu
vetrarins í gærmorgun 60 mílur
réttvísandi norður af Svínalækjar
tanga á Langanesi. Þarna virtist
vera um nokkurt magn að ræða,
en loðnan virðist vera nokkuð
seinna á ferðinni en í fyrra.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur og leiðangursstjóri á
Árna Friðrikssyni sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að fyrstu
Þorri ekki
fyrr en
25. jan.
LÍKLEGA liggur einhverj-
um — kannski bara prent-
villupúkanum — á að hyrja
þorrablótið, þvf a.m.k. á
tveimur almanökum, sem
komið hafa út nú um þessi
áramót, er þorrinn talinn
byrja viku of snemma. En
þorri byrjar 25. janúar —
ekki 18., eins og stendur í
þessum almaniikum. Hefur
þetta valdið nokkrum rugl-
ingi og því snerum við okk-
ur til dr. Þorsteins Sæm-
undssonar, sem hefur um-
sjón með hinu opinbera
almanaki, islandsalman-
akinu, sem Háskóli tslands
gefur út.
Þorsteinp sagði, að þorri
gæti aldrei byrjað 18.
janúar. Þorri byrjar föstu-
daginn í 13. viku vetrar. En
13. vika vetrar byrjar
laugardaginn 19. janúar.
Þorri hefst því nú föstudag-
inn þar á eftir, sem er 25.
janúar. Þá er bóndadagur.
Bvrjun þorra getur leikið
á dögunum 19. — 26. jan., en
að bóndadagur sé 26. janúar
kemur afar sjaldan fyrir.
Opið prófkjör um framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins
A AÐALFUNDI fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
sl. mánudag var einróma sam-
þykkt að viðhafa prófkjör við
ákvörðun framboðslista Sjálf-
stæðisf lokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar í vor. Voru
jafnframt samþykktar reglur um
framkvæmd prófkjörsins, og er í
þeim gert ráð fyrir, að prófkjörið
verði opið, en í því felst, að ekki
er skilyrði fyrir þátttökurétti, að
menn séu flokksbundnir sjálf-
stæðismenn.
Er I reglunum ákveðið, að próf-
kjörið skuli standa yfir í minnst 2
daga og hefur verið ákveðið, að
það fari fram í fyrstu viku marz-
mánaðar, en eins og kunnugt er,
munu borgarstjórnarkosningarn-
ar fara fram 26. maí.
í prófkjörsreglunum segir, að
nemi þátttaka í prófkjörinu 'A
hluta eða meira af fylgi Sjáif-
stæðisflokksins við síðustu
borgarstjórnarkosningar i
Reykjavík sé kjörnefnd skylt að
gera þá tillögu til Fulltrúaráðs-
fundar um skípan framboðslista
flokksins við kosningarnar, að í
sæti listans skuli skipa þeim
frambjóðendum, sem í þau voru
kosnir, enda hafi þeir fengið,
hver fyrir sig, atkvæði a.m.k. á
helmingi allra gildra prófkjörs-
seðla.
Þá er i reglunum reynt að
stemma stigu við fjölda frambjóð-
torfurnar hefðu þeir fundið á
milli kl. 6 og 7 í gærmorgun. Þeir
dýfðu strax flottrollinu í sjóinn til
að taka sýni og kom í ljós, að
loðnan er nokkuð blönduð. Um
einn þriðji hluti hennar var ókyn-
þroska, en hinn hlutinn reyndist
vera af eðlilegri stærð.
Sagði Hjálmar, að miðað við
reynslu tveggja síðustu ára væri
nokkuð óvenjulegt, að ókyn-
þroska loðna sæist í fyrstu loðnu-
göngunni, en þær eru að öllu
jöfnu þrjár, því gæti verið, að
einhver loðna væri komin sunnar
með Austfjörðum, en varla gæti
þar verið mikið magn á ferðinni.
Hann sagði, að fyrst þegar þeir
hefðu komið að loðnunni hefði
hún haldið sig á 60 faðma dýpi, en
þegar birta tók færði hún sig nið-
ur á 160 faðma. Búizt var við, að
loðnan kæmi aftur upp með
kvöldinu.
I fyrra veiddist fyrsta loðnan
um miðjan janúar, en árin 1970
og 1971 veiddist hún ekki fyrr en
um miðjan febrúar. Ef loðnan er
ekki komin lengra núna en á
sama tima þá, er vart við því að
búast, að hún veiðist svo nokkru
nemi fyrr en í byrjun febrúar.
Akranesi, 8. janúar.
SKUTTOGARINN Krossavík AK-
300 kom úr þriðju veiðiferð sinni
um áramótin. Aflinn var 55 lestir.
Fjórir línubátar hafa hafið róðra
nú þegar. I gær var aflí þeirra frá
þrem upp í sex lestir. Togarinn
Vikingur AK-100, seldi afla sinn í
Bremerhaven i Þýzkalandi í
morgun, 147 lestir fyrir 244.727
mörk, eða kr. 7,4 millj. Meðalverð
erkr. 50,70. Júlíus.
enda, en í prófkjörinu fvrir síð-
ustu borgarstjórnarkosningar
voru þeir um 70 talsins og þótti
ýmsum það of mikið. Er gert ráð
fyrir, að nú verði þeir helzt ekki
fleiri en 48 en þó í engu falli færri
en 32. Einungis flokksmenn Sjálf-
stæðisflokksins eru kjörgengir í
prófkjörinu og mega gera tillögur
um frambjóðendur. Má hver
flokksmaður stinga upp á allt að 3
frambjóðendum, en minnst 25 og
mest 40 flokksmenn verða að bera
fram frambjóðanda til að fram-
boðið verði gilt.
Kosningin fer þannig fram, að
kjósandi krossar við minnst 8 og
ekki fleiri en 12 frambjóðendur.
Björn Bjarnason.
• •
Oryggis- og varnamál
á fundi Varðbergs
í KVÖLD KL. 20.30 ræðir Björn
Bjarnason um öryggis- og varna-
mál islands á almennum fundi,
sem Varðberg, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
efnir til í Tjarnarbúð. Einnig
mun hann svara fyrirspurnum,
sem fram kunna að koma.