Morgunblaðið - 09.01.1974, Page 3

Morgunblaðið - 09.01.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974 3 A meðfylgjandi mynd eru Guð- laugur Þorvaldsson rektor, for- maður Happdrættis Háskóla ís- lands, (lengst til vinstri) og Páll II. Pálsson forstjóri (fyrir miðju) ásamt stórvinningshöf- um úr Vestmannaeyjum, Jónu Dóru Kristinsdóttur, Aka Heinz Haraldssyni og Þorkeli Guð- finnssyni — svo og umboðs- manni happdrættisins i Vest- mannaeyjum, Snæbirni Hjálm- arssyni, og konu hans, Ernu Jóhannesdóttur (til hægri). Happdrætti Háskóla r Islands 40 ára: 605 millj. kr. greiddar í vinninga á þessu ári „Og sem ég stóð þarna og horfði á stjörnuhrapið flaug mér i hug sú hjátrú, að maður gæti óskað sér einhvers — og ég kallaði upp yfir mig, að svo sannarlega óskaði ég þess að vinna milljón i happdrætti, áð- ur en árið væri úti." Þannig fórust orð ungum Vestmannaeyingi, Áka Heinz 'i—-Ucsvni. sem í hófi Happ- drættis Háskóla Islands i fyrra- kvöld skýrði frá tildrögum þess, að vinningsnúmerið, sem færði honum og vini hans, Þor- keli Guðfinnssyni „stóra vinn- inginn", komst í þeirra eigu. Þeir félagar voru meðal heið- ursgesta happdrættisins, þéirra, sem hlotið höfðu tvær milljónir króna i desember. Annar vinningshafi Margrét Sturlaugsdóttir, frá Stokkseyri, kvaðst hafa heitið á lítinn frænda sinn, að hann skyldi fá 5 þúsund krónur ef þau hjónin ynnu stóra vinninginn og reyndist snáðinn sannarlega ákjósanlegur til áheits. Hún sagði, að maðurinn sinn, Hörð- ur Pálsson, væri að hugsa um að nota peningana til að kaupa bát. Meðal gesta voru einnig nokkrir umboðsmenn happ- drættisins úti á landi, þar á meðal Marta B. Guðmundsdótt- ir á Stokkseyri, en þetta var annað árið i röð, sem stærsti vinningur lenti á númeri við- skiptavina hennar. Happdrætti Háskólans hefur nú starfað í fjörutíu ár. Háskól- inn fékk einkaleyfi til happ- drættisrekstrar 1. jan. 1934 og var dregið i fyrsta sinn 10. marz það ár. Á þessu timabili hefur happdrættið greitt á fimmta hundrað milljóna króna til framkvæmda í þágu Háskölans og rannsóknarstofnana ríkis- ins, en til þeirra rennur 20% einkaleyfisgjald» sem happ- drættið greiðir í ríkissjóð. Jafn- gildir þessi upphæð, að sögn forráðamanna happdrættisins, 1100 — 1200 milljónum króna á núvirði, miðað við breytingar á byggingarvísitölu eða hátt í 30 milljónir króna á ári að meðal- tali. Mikil þörf aukinna framkvæmda Þeir sögðu, áð miklar fram- kvæmdir hefðu verið á vegum Háskólans undanfarin ár og ætla mætti, að þær færu vax- andi á næstu árum, væri við þarfir skólans miðað. Nú er í gangi bygging 2. áfanga húss fyrir verkfræði-og raunvísinda- deild og í undirbúningi miklar framkvæmdir í þágu lækna- deildar og tannlæknadeildir á Landspítalalóðinni, einkum sunnan Hringbrautar, en þær verða að einhverju leyti kostað- ar af framkvæmdafé Háskól- ans. Mikill skortur er einnig að verða á almennu kennsluhús- næði fyrir aðrar deildir, þar sem nemendum hefur fjölgað mikið m.a. í viðskiptadeild og heimspekideild. Þá var upplýst, að viðhaldsskotnaður húsa og lóða, tækjakaup og ýmiss konar býnaður i skólahúsnæði, sem fyrir væri, tæki nú til sín æ stærri hluta af framkvæmda- fénu. Páll H. Pálsson, forstjóri happdrættisins, skýrði í stórum dráttum frá þeim breytingum, sem orðið hefðu á fjölda og upphæð vinninga frá upp: hafi svo og verðbreytingum og gat hann þess, að þeg- ar happdrættið hóf starf- Framhald á bls. 18 Stórvinningshafarnir frá Stokkseyri: Hörður Pálsson og kona hans, Margrét Sturlaugsdóttir, og systkinin Viktor Tómasson og Kristín Tómasdóttir. Mynd vantar af vinningshöfum frá Isafirði, Hermanni Sigurðssy ni og eiginkonu hans, Grétu Jónsdóttur. 11 FÉLOG SJÁLFSTÆÐISMANNA STOFNUÐ í HVERFUM BORGARINNAR w w Jón Gunnar Zoega og Gunnar Helgason UNDANFARIÐ misseri hefur staðið yfir allveruleg breyting á skipulagi félagsstarfs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Hún er fólgin í, að stofnuð verða 11 hverfafélög sjálfstæð- ismanna í hverfum borgarinn- ar, sem verða í skipulagslegum tengslum við landsmálafélagið Vörð. 1 tilefni af þessum breyting- um sneri Morgunblaðið sér til nýkjörins formanns fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík, Gunnars Helgason- ar, og framkvæmdastjóra full- trúaráðsins, Jóns Gunnars Zoéga, og innti þá nánari fregna. Þeir sögðu, að miöað við stærð borgarinnar og hin dreifðu borgarhverfi hefði reynzt nauðsynlegt að hafa skipulögð samtök sjálfstæðis- manna í hinum einstöku hverf- um. Það hefði sýnt sig, að íbúar hverfanna hefðu haft mikinn áhuga á, að stofna sérstök félög, m.a. til að fjalla um sameigin- leg áhuga- og hagsmunamál við- komandi borgarhverfis. Mætti m.a. benda á, að sum hverfi borgarinnar, svo sem Breið- holts- og Árbæjarhverfi, hefðu fleiri ibúa en nokkur kaupstað- ur á landinu. Þá lýstu þeir undirbúningi þeirra skipulagsbreytinga, sem nú eru gerðar til að mæta þess- um sjónarmiðum. Á aðalfundi Varðar í des. sl. var Varðarfé- laginu breytt, þannig að aðild að Verði eiga nú hverfafélögin, svo og einstakir félagsmenn. Verður stjórn félagsins saman- sett af fulltrúum kosnum af að- alfundi og að auki einum full- trúa frá hverri stjórn hverfafé- laga. Þannig verður mjög náið samband milli Varðar og hverfafélaganna og geta félags- menn hverfafélaganna tekið þátt í allri starfsemi Varðar, þ.á m. sótt aðalfundi með fullum réttindum. Með stofnun sjálfstæðra hverfafélaga, sem koma í stað hverfasamtakanna, fjölgar í stjórn fulltrúaráðsins, því að skv. reglum þess eiga formenn allra sjálfstæðisfélaga í Reykja- vík sæti í stjórninni. Framan- greindar skipulagsbreytingar voru staðfestar á aðalfundi full- trúaráðsins sl. mánudag. Hefur í framhaldi af þessum breyting- um verið boðað til stofnfunda 11 hverfafélaga n.k. mánudag. Gunnar og Jón sögðu: „Með stofnun þessara félaga sjálf- stæðisfólks í öllum borgar- hverfum er hrint í framkvæmd viðtækustu og þýðingarmestu breytingu í starfi og skipulagi Sjálfstæðisflokksins hér í borg- inni, sem lengi hefur verið gerð. Það verður verkefni hvers fé- lags að standa fyrir ýmiss konar félagsstarfi meðal sjálfstæðis- fólks í hverfinu, kvenna og karla, yngri sem eldri, treysta tengsl fólksins og kjörinna full- trúa þess á Alþingi og i borgar- stjórn, að berjast fyrir fram- faramálum hverfisins á sviði borgarmála og loks að vinna að sem mestu kjörfylgi Sjálf- stæðisflokksins i hverfinu. Það er von stjórnar Fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og þeirra áhuga; manna í hverfunum, sem með henni hafa unnið að undirbún- ingi að stofnun félaganna, að sjálfstæðisfólk í hverfunum fjölmenni á stofnfundina og gerist þegar i upphafi virkir þátttakendur í starfi félaganna. Á þeim mun m.a. mjög mæða kosningabarátta sjálfstæðis- manna fyrir borgarstjórnar- kosningar að vori, svo að á miklu ríður, að starfsemi þeirra fari sem bezt af stað."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.