Morgunblaðið - 09.01.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974
7
Fiskirækt í
Sovétríkjunum:
Stöðugt vaxandi þátt-
ur í efnahagskerfínu
FISKRÆKT og fiskeldi er í dag
orðinn stór og mjög mikilvæg-
ur þáttur sovézks efnahagslífs.
Þessi þáttur hefur einkum þró-
ast í sambandi við uppbygg-
ingu þungaiðnaðar og hinna
miklu virkjana til að fullnægja
orkuþörf hans. Til marks um
hið gífurlega umfang þessarar
atvinnugreinar má banda á, að
nú eru í Sovétríkjunum um 12
milijónir hektarar af vötnum
gerðum af mannahöndum. Auk
þessa af nátturunnar hendi um
24 milljónir af vötnum og ár
þar f landi spanna yfir alls 800
þúsund kin. Það þarf ekki að
fara mörgum orðum um þá
möguleika sem slíkar aðstæður
bjóða upp á I sambandi við
fiskrækt og fiskeldi.
Sovétmenn hafa sætt mikilli
gagnrýni víða um heim fyrir að
senda úthafsflota sina til veiða
við strendur erlendra rikja, þar
sem þeim hefur verið líkt við
stórvirkar ryksugur, sem ekk-
ert skilji eftir nema skafinn
hafsbotninn. Ut I þessa gagn-
rýni skal ekki farið nánar hér,
en fremur fjallað um það
merka ræktunar- og uppbygg-
ingastarf, sem þeir vinna heima
fyrir.
í Sovétrikjunum eru 127 fisk-
eldisstöðvar, sem framleiða fisk
beint til manneldis. Auk þess
eru 12 stórar stöðvar, sem ala
fiskseiði til að sleppa í ár og
vötn í landinu, svipað og Lax-
eldisstöð ríkisins i Kollafirði
gerir. Þessar stöðvar eru mjög
stórvirkar og búnar öllum full-
komnustu tækjum, sem völ er á
og hafa útitjarnir og jafnvel
tilbúnar ár og læki til að ala
seiðin upp við sem líkastar að-
stæður og þau koma til með að
lifa við sem fullvaxta fiskar.
Langmest áherzla er lögð á
ræktun laxfiska og silungs,
enda gefa þeir fiskar mestan
arð á markaði fyrir neyzlufisk
og eftirspurnin eftir siðum
þessara fiska er einnig lang-
mest. Arið 1972 var all
sleppt um 70 milljón styrju-
seiðum I ár og vötn ISovét-
rikjunum, en úr hrognum
úr þeim fiski er hinn heims-
frægi sovézki kaviar búinn til.
Þá var samtals sleppt um 2,4
milljörðum laxaseiða, bæði
gönguseiðum og kviðpokaseið-
um, og 8,3 milljörðum silunga-
seiða. Hér er ekki um neitt smá
fyrirtæki að ræða, eins og sjá
má af þessum tölum.
Það atriði fiskræktar í Sovét-
rikjunum, sem mest hefur
snert okkur Islendinga, er
hnúðlaxinn, sem veiðzt hefur i
nokkru magni í íslenzkum ám á
undanförnum árum, en þó
aldrei eins og í sumar. Tilraun-
ir Sovétmanna með hnúðlaxinn
hafa staðið í 15 ár, en þá hófu
þeir að flytja flugleiðis hnúð-
laxahrogn frá austurströndinni
þvert yfir landið til eldisstöðva
á Kolaskaga. Þar voru hrognin
alin upp i gönguseiðastærð og
þeim þvi næst sleppt i ár, sem
renna i Hvítáhafið og Barents-
haf. Hnúðlaxaseiðin ganga til
sjávar í N-Atlantshaf og síðan
aftur i árnar til að hrygna. Það
uppgötvaðist svo ekki fyrir en
síðar, að hnúðlaxinn, sem upp-
runninn er við Kyrrahafs-
strönd gekk ekki aðeins i ár I
Sovétríkjunum til hrygningar,
heldur varð hans einnig vart í
ám í Noregi, Skotlandi, Spitz-
bergen og íslandi eins og áður
hefur verið skýrt frá. Frá þvi
að þessar fiskræktartilraunir
hófust hafa um 200 þúsund
hnúðlaxarveiðzt ísovézkum ám.
Sovétmenn hafa á undanförn-
um árum lagt æ ríkari áherzlu á
að afla hrogna og seiða frá er-
lendum þjóðum til að gera til-
raunir með að byggja upp nýja
fiskstofna í vötnum sinum og
ám. Hafa þeir m.a. fengið sil-
ungsseiði frá Bandaríkjunum i
þeim tilgangi og náð að sögn
góðum árangri með þeim til-
raunum.
í sovézkum veiðimálalögum
eru mjög ströng og skýr
ákvæði, sem kveða á um bætur
fyrir skemmdir á veiðiám og
vötnum sökum virkjana eða
annarra framkvæmda i sam-
bandi við iðnvæðingu. Einnig
hefur mikið fjármagn verið
lagt i að finna leiðir til að leyfa
fiski að ganga óhindrað upp í
gegnum stíflur við raforkuver,
til þess að hann geti hrygnt i
lóninu ofan við stifluna eða á
vatnasvæðinu þar fyrir ofan.
Eru fiskstigarnir þar auðvitað
mikilvægastir, en Sovétmenn
hafa nú einnig fundið upp al-
gerlega nýtt tæki, sem er eins
konar fisksöfnunartankur,
sem gengur fyrir eigin vélar-
afli. Fiskurinn safnast í þennan
tank fyrir neðan stífluna og síð-
an fer tankurinn upp eftir eins
konar skipastiga og sleppir
fiskinum í lónið. Þessar tilraun-
ir hafa gefizt mjög vel og fisk-
Stórfiskar drepnir gegnum is á
Balkashvatni.
ræktarmenn viða um heim tek-
ið svipuð tæki i sina þjónustu.
Við stíflugerð í sovézkum ám
er I upphafi tekið fullt tillit til
náttúrulegra aðstæðna í ánum
og allir útreikningar miðaðir
við, að sem minnst eða engin
röskun verði á hrygningarað-
stæðum I ánum. Er nú t.d. verið
að ljúka við að fullkomna út-
búnað við Volgufljót, sem á að
tryggja jafnt og öruggt vatns-
rennsli i ánni allan ársins
hring, jafnvel, þegar rennslið
er í algeru lágmarki af veður-
farsástæðum eða öðrum nátt-
úrufyrirbrigðum.
Mikil áherzla hefur og verið
lögð á að draga úr og koma i veg
fyrir mengun af völdum iðnað-
arúrgangs og skolps á þéttbýl-
um svæðum. Telja Sovétmenn
sig hafa náð mikilsverðum
árangri á þessu sviði.
Fiskrækt og fiskeldi i Sovét-
rikjunum verður mikilvægara
atriði í efnahagskerfinu með
hverju ári sem líður og til
marks um það má nefna að nú
starfa um 15000 sérfræðingar
og aðrir starfsmenn hjá
sovézku veiðimálastofnuninni
við um 600 héraðsstöðvar, sem
hafa yfir að ráða fullkomnasta
útbúnaði, sem völ er á. _jhj.
;>Xw.
'
Sovézkir fiskibátar halda til veiða á stóru vatni sem myndaðist við virkjunarframkvæmdir
mmmm
Rtó '
9 m V
BÍLAVIÐGERÐIN Bilaverkstæðið Bjarg Bjargi við Sundlaugaveg, simi 38060. Tökum að okkur allar almennar bilaviðgerðir. Bilaverkst. Bjarg Bjargi, s. 38060 BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatúni 27 simi 25891
TILLEIGU 3ja herb. íbúð á góðum stað í bænum, hentug fyrir skrifstofur. Tilboð merkt 647, sendist Mbl. KÓPAVOGSBÚAR TAKIÐ EFTIR Tek 5 og 6 ára börn í timakennslu. Simi 41 564
TILSÖLU vel með farin Cortina árg '72 ekin 18.000 km. Uppl. í síma 12756. JÖRÐ ÓSKAST til kaups. Tilboð sendist Mbl merkt „991
SUNBEAM 1250 árg. '72, brúnn að lit, er til sölu. Upplýsingar i síma 52453. 2JA HERB. ÍBÚÐ ÓSKAST hið fyrsta. Uppl í sima 40395 e kl 5 e.h.
ATVINNA ÓSKAST Ábyggileg kona óskar eftir vinnu, margt kemur til greina. Upplýs- ingar i sima 26768 VIÐGERÐIR á leðurjökkum og kápum. Skóvinnustofan, Langholsvegi 22, Sími 33343
GEYMSLUHÚSNÆÐI fyrir vefnaðarvörur óskast. Kjallari eða jarðhæð, 30—50 ferm. Uppl. í síma 83595 ATVINNA ÓSKAST Tvitug stúlka óskar eftir vinnu á teiknistofu, sem fyrst. Uppl. i sima 83563.
ATVINNA Stúlka óskast til aðstoðar i afgreiðslu okkar. Vaktavinna. Upp- lýsingar i dag milli kl. 3 og 4 Bifreiðastöð Steindórs s.f.. Hafnar- stræti 2. NEMI Reglusamur piltur óskast í málara- iðn Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir mánu- dag n.k. merkt: „Traustur — 990" 0"
GETTEKIÐ AÐ MÉR stærri og smærri verk með skurð- gröfu JCB 3 C. Slmi 19378 Hilmar Friðsteinsson. BIFREIÐAVIÐGERÐIR Getum bætt við okkur verkefnum. Bíla- og búvélaverkstæði A. Michelsen, Hveragerði Simi 99-41 66. Heimasími 41 80.
DIESELRAFSTÖÐVAR og rafalar V/i — 37 kw , 220 volt, A 6. Upplýsingar simstöð Rauðkolls- staðir, Snæfellsnesi. STÚLKUR óskast i borðsal og eldhús Hrafn- istu Upplýsingar hjá bryta. Simi 35133.
FRÍMERKJASAFNARAR Sel islenzk frímerki og FCDútgáfur á lágu verði. Einnig erlend frimerki og heil söfn Jón H. Magnússon pósthólf 337, Reykjavik. ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ til leigu strax i nýrri blokk í Breið- holti. Upplýsingar i sima 2 5922 frá kl. 1 6— 1 8 i dag.
GRINDAVÍK Til sölu 3ja og 4ra herb. íbúðir Einnig 3ja og 5 herb. einbýlishús i góðu standi. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simi 1263 og 2890. KEFLAVÍK Stór 3ja herb ibúð til leigu. Teppal innb. skáparog þvottah Einnig 2 herb. m. sér inng., snyrtingu og m. innb. skápum. Sími 25600 frá 9—5 og 30130 eftir kl . 5.
Kópavogur og nágrennl
Roskin hjón, sem hefðu aðstöðu og áhuga á að taka
ungan mann inn á heimili gegn greiðslu, óskast. Pilturinn
stundar vinnu, er þægilegur í umgengni, en þarfnast
aðhlynningar góðs heimilis. Upplýsingar gefnar á Félags-
málastofnun Kópavogskaupstaðar, Álfhólsvegi 32, sími
41570. ,, ...
Félagsmálastjon.
ÚTSALA
— BREIÐFIRÐINGABÚÐ (uppi)
Verzlun, sem er hætt rekstri, selur mikið magn af vörum
á ótrúlega lágu verði.
Karlmannaföt kr. 1 200.00 — lítil númer
Stakir iakkar kr. 500.00 — lítil númer
Kvenkjólarkr. 300.00—
Kápur kr. 800.00
Kvenskór kr. 200.00
Fjölbreytt úrval af smávöru á börn og fullorðna.
(JTSALA - BREIÐFIRÐIHGABUB (uppl)