Morgunblaðið - 09.01.1974, Side 25

Morgunblaðið - 09.01.1974, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974 25 félk í fréttum ] Joan Kennedy fer sínar eigin götur Joan Kennedy er nú nýlega komin heim úr langri og um- deildri Evrópuför, þar sem frú- in þótti taka meiri þátt í hinu ljúfa lifi en góðu hófi gegndi. 15 ára hjónaband hennar og Edwards Kennedy er nú sagt ramba á barmi skilnaðar. í Bandaríkjunum kemur þetta ekki svo mjög á óvart, þvi að orðrómur um skilnað þeirra hefur þar lengi verið á kreiki. Ekki varð Evrópuför til að draga úr þeim sögusögnum, enda háttarlag hinnar 37 ára gömlu Joan slikt, að það hlaut fremur að ýta undir orðróminn en hitt. Frúin var sem sagt ekk- ert að tvínóna við hlutina, held- ur hellti sér út í fjörugt nætur- lifið af krafti og m.a. birtust myndir af henni í ítölskum blöðum, þar sem hún sást í inni- legum vangadansi við ítalska glaumgosann Girogio Pavone. Kannski má orða það svo, að Joan hafi átt þetta inni, því að maður hennar Edward hefur nú hin síðari ár gerzt æ um- svifameiri í samskiptum sinum við kvenfólk og hefur oft verið bendlaður við hinar og þessar fegurðardísir þar vestra. Opin berlega byrjuðu vandræði Ed- wards eftir slysið við Chappa quidiek-eyju, þegar einkaritari hans, Mary Jo Kopechne, drukknaði, en nærvera hennar í bifreið öldungadeildarþing- mannsins þótti benda til þess, að hann hefði ekki hreint mél í pokahorninu i kvennamálum. A myndinni sjáum við Kennedyhjónin meðan allt lék í lyndi. Útvarp Reykjavík ^ MIÐVIKUDAGUH 9. janúar 7.00 Morgunúlvarp VeðuTfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morg- unleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Knút- ur R. Magnússon heldur áfram lestri sögunnar „Villtur vegar“ eftir Odd- mund Ljone (4). Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kL 9.30. Létt lög milli atriða. Út játningum Ágústfnusar kirkjuföður kl. 10.25: Séra Bolli Gústafsson í Lauf- ási les-þýðingu Sigurbjörn Einarssonar biskups (8). Kirkjutónlist kl. 10.40. Morguntönleikar kl. 11.00. Þýzkt lista fólk, Einsöngvarakór og Kammer- hljómsveit Berlinar flytja „Stundir sólarhringsins", óratóríu eftir Tele- mann; Helmut Koehstj. 12:00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 Með sínu lagi: Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 14.30 Síðdegissagan: „Fjársvikararnir" eftir Valentín Katajeff Þýðandinn, Ragnar Jóhannesson cand. mag. les (3). 15.00 Miðdegistónleikar: íslenzk tónlist a. Tríó fyrir fiðlu, píanó og selló eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Ólafur Vignir Albertsson, Þorvaldur Stein- grímsson og Pétur Þorvaldsson leika. b. Formannsvísur eftir Sigurðs Þórðar- son. Einsöngvarar og Karlakór Reykja- víkur syngja. Fritz Weisshappel leikur undir á pianó. Höfundurstj. c. Smálög eftir ýmsa höfunda. Ingvar Jónasson leikur undir á víólu og Gúð- rún Kristinsdd. á pianó. d. Þorsteinn Hannesson syngur lög eft- ir Jón Laxdal og Markús Kristjánsson. Fritz Weisshappel leikur með á píanó. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornað w A skjánum MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 1974 18.00 Kötturinn Felix Tvær stuttar teiknimy ndir. Þýðandi Jóhanna Jóhanssdóttir. 18.15 Skippf Ástralskur framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.40 Svonaeru börnin — í Sambfu Fræðslumyndaflokkur frá norska sjón- varpinu. Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörns- son. 19.00 Hlé 20.00 Fréttir 20.25 Veðurog auglýsingar 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Blesi“ eftir Þorstein Matthiasson Höfundur byrjar lesturinn. 17.30 Framburðarkennsla f spænsku 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Bein lína Erlendur Einarsson forstjóri SlS svarar spurn- ingum hlustenda. Umsjónarmenn: Ámi Gunnarsson og Einar Karl Har- aldsson. 19.45 Húsnæðis- og byggingarmál Olafur Jensson tekur ákvæðisvinnutaxta til umræðu og talar við Gunnar S. Björns- son íframkv.stj Meistarasambands byggingamanna og Sigurjón Pétursson starfsmann verðskrár húsasmiða. 20.00 Kvöldvaka a. Einsöngur Stefán Islandi syngur ís- lenzk lög. b. Gamalt strand Bergsveinn Skúlason flytur fyrri hluta frásöguþáttar. c. „Oft er það gott, sem gamlir kveða“ Vísnaþáttur í samantekt Braga Jóns- sonar frá Hoftúnum. Baldur Pálmason flytur. d. Friðun hyala og sela Rósa B. Blöndai skáldkona flytur erindi. e. Haldið til haga Grimur M. Helgason forstöðumaður handritadeildar Lands- bókasafns íslands flytur þáttinn. f. Kórsöngur Karlakórinn Þrymur a Húsavík syngur íslenzk lög. 21.30 Útvarpssagan: „Foreldravanda- málið —drög að skilgreiningu“ Erling- ur Gíslason leikari les sögu Þorsteins Antonssonar (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Upphaf góðtemplarareglunnar á ís- landi Sex félagar hennar á Akureyri svara spurningum Arnfinns Arnfinnssonar um stofnun hennar, sögu og framtíðar- verkefni. 22.30 Nútfmatónlist Halldór Haraldsson kynnir hana. 23.15 Fréttir í stuttu máli. Dagskráarlok. % 20.30 Lff og fjör f læknadeild Breskur gamanmyndaflokkur. Konungleg heimsókn Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Krunkað á skjáinn Þáttur með blönduðu efni varðandi fjölskyldu og heimili. Umsjónarmaður Magnús Bjarnfreðs- son. 21.40 Valdaránið í Chile Sænsk heimildamynd um valdatöku hersins i Chile og fall stjórnar Allendes forseta. Myndin er gerð að loknu valdaráninu og fjallar einkum um rás atburða í höfuðborginni, Santiago. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 22.25 Dagskrárlok □ Hinnfull- komni glæpur Oft höfum við heyrt sögur um fólk, sem hyggst fremja hinn fullkomna glæp, en mistekst. Hér er ein slík saga frá Indiana- polis, sem gerðist skömmu fyrir jól. Beverly Landers, sem nú stendur á fertugu og starfaði sem gengilbeina á veitingahúsi, átti aðeins eitt áhugamál. Dag og nótt, þegar fri gafst frá vinnu, las hún glæpasögur, sér- staklega þær, sem fjölluðu um heimska lögreglumenn og slungna bófa, m.ö.o. þann flokk glæpabókmennta, sem lýsa, hinum fullkomna glæpi. Þessi tómstundaiðja hafði að lokum slík áhrif á sálarlíf hennar, að hún ákvað sjálf að fremja hinn fullkomnaglæp. Sem fórnarlamb ákvað hún fyrrverandi eiginmann sinn, Gino Robinson. Hún hringdi til hans og sagðist þurfa að tala við hann um eitthvert atriði varð- andi skilnaðinn. Og dagurinn, þegar Gino Robinson hitti fyrr- verandi konu sína, varð hans siðasti. Nokkru síðar fann bílstjóri nokkur handleggja- og fóta- lausan mannsbúk í skurði skammt frá þjóðveginum, sem liggur út frá Indianapolis i suð- urátt. um svipað l'eyti fékk fiskimaður tvo handleggi i net sitt og á næstu dögum fundust aðrir likamshlutar á hinum ýmsu stöðum i grennd við borg- ina. Beverly Landers las fréttirn- ar um þennan ógeðslega glæp i blöðum og það hlakkaði í henni, þegar lögreglan tilkynnti, að hún stæði með tvær hendur tómar i málinu. En að lokum komst lögreglan á sporið. Gino Robinson hafði komizt í kast við lögin á her- skylduárum sínum og þeir áttu því fingraför hans i spjald- skrám sinum. Við leit á heimili Beverly Landers fannst byssa sú, sem notuð hafði verið við morðið og auk þess glæpareif- ari sem fjallaði um mann, sem meðhöndlaður var á svipaðan hátt og Gino Robinson. Bevely Landers gengur ekki lengur um beina í Indianapolis og kemur ekki til með að gera það framar, því að nú situr hún í fangelsi, dæmd til lífstiðar. ti IK í ffjfclmiélum f s ‘, legum hætti. Síðan brá maður- inn sér á þing kommúnista- flokks Kúbu, þar sem hann var hylltur ákaflega. I kvöld kl 19.45 verður i út- varpi þátturinn Húsnæðis- og byggingamál. Stjórnandi þátt- arins er Ölafur Jensson, sem lengi starfaði hjá bygginga- þjónustu arkitekta, en hann hefur einnig staðið fyrir ráð- stefnum og námskeiðum um byggingamál, sem haldin hafa verið á vegum Húsnæðis- stofnunar ríkisins víða um land. í þættinum í kvöld verður fjallað um ákvæðisvinnutaxta. Ákvæðisvinnnutaxti er ákveð- inn af aðilum úr byggingaiðn- aðinum, en athygli vekur, að þar eiga húsbyggjendur eða neytendur engan hlut að máli. Þar sem ákvæðisvinna hefur færzt mjög í vöxt hér, og er orðin ráðandi á mörgum svið- uin að heita má, verður at- hyglisvert að heyra það, Sem fram kemur i þættinum um réttmæti þessarar viðmiðunar, en auk Ölafs koma þeir Gunnar S. Björnsson framkvæmda- stjóri Meistarasambands byggingamanna og Sigurjón Pétursson starfsmaður verða- skrár húsasmiða fram i þættin- um. Þegar við ræddum við Ölaf, bað hann um, að því yrði komið áleiðis til þeirra, sem hlut ættu að máli, að ábendingum unt efni þáttarins yrði vel tekið, svo og fyrirspurnum um bygginga- mál og reynt að leysa úr þeim eftir föngum. Ólafur Jensson. r Akvæðisvinnutaxti í byggingar- iðnaðinum I kvöld kl. 21.40 verður í sjón- varpinu sænsk heimildarkvik- mynd um valdatöku hersins i Chile og fall stjórnar Allendes forseta. Hvað veldur þvi, að for- ráðamenn sjónvarpsins hafa slikt dálæti á sænskum heimilda myndum, er ekki gott að segja, en óneitanlega er þetta val nú orðið nokkuð einhæft. í þessu tilviki má benda á það, að sænsk yfirvöld hafa komið tals- vert við sögu í sambandi við mál Chile, og geta vart talizt hlutlaus í því efni, en skammt er um liðið siðan sænskur sendiráðsmaður, Edelstam að nafni, blandaðist í innanríkis- i mál Chile með næstum óvenju-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.