Morgunblaðið - 09.01.1974, Síða 32

Morgunblaðið - 09.01.1974, Síða 32
|H9t0itni»Ið2iib f^mnRGFRIDIIR 7 mnRHRflVÐnR MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1974 Frá framhaldsaðalfundi Landssambands íslenzkra útvegsmanna í gær. Tryggir ríkisstjórnin inni fast olíuverð út ÚTGERÐARMENN samþ.vkktu ineð 1.114 atkvæðum gegn 88 gruntlvöll þeirra ráðstafana, sem Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- ráðherra lagði til lausnar þeim vanda, sem að útgerðinni steðjar vegna hinna miklu hækkana á oliu. Atkvæðagreiðslan var í lok framhaldsaðalfundar Landssam- hands íslenzkra útvegsmanna, sem haldinn var í gær. Handhafar 157 atkvæða sátu hjá. Landssam- band íslenzkra útvegsmanna I ítur svo á, að með þessum ráðstöf- unum hafi ríkisstjórnin tryggt út- gerðinni fast verð á oliu til fiski- skipaflotans, 5,80 krónur á lítra. Er það sama verð og gilti í nóvem- bermánuði, en verðið nú er 7,70 krónur og bendir allt til þess, að hinn 1. marz verði það komið í 12,40 krónur hver lítri. Sjávarútvegsráðherra sendi fyrir helgi ákveðnar tillögur til LÍÚ um, að loðnuútgerðin ætti að greiða niður olíuverð til alls fiski- skipaflotans. Nefndi hann, að sett yrði 5% útflutningsgjald á fob- verðmæti loðnuafurða, en stjórn LIÚ lagði á móti fram nokkrar fyrirspurnir, m.a. um það, hvort unnt yrði að tryggja fast olíuverð allt árið 1974. i gær svaraði sjávarútvegsráðherra með því að gefa yfirlýsingu í málinu, og hljóðar hún svo: „YFIRLÝSING Verðhækkun á olíu í heiminum kemur sérstaklega hart niður á útgerðinni. Geta . hinna ýmsu greina sjávarútvegs til þess að mæta þessari hækkun er afar mis- jöfn. Til þess að greiða fyrir ákvörð- Gengisfall gagnvart dollar 2,8% á síðustu 5 dögum GENGI íslenzkrar krónu hefur verið að falla undanfarna daga gagnvart Bandaríkjadollar, en allt frá 14. september til 3. janúar hefur sölugengi Bandaríkjadoll- ars verið 84 krónur. í gær var sölugengi dollarans 86,40 krónur og hafði þá gengi krónunnar gagnvart dollar lækkað um 2,8% á 5 dögum en vegur dollarans á alþjóðagjaldeyrismörkuðum hef- ur síðustu vikur farið mjög vax- andi og er hann nú orðinn sterkasti gjaldmiðill heims. Allt frá 3. maí 1973 hefur staða krónunnar gagnvart Bandaríkja- dollar styrkzt jafnt og þétt og hefur á öllum þessum tíma verið kappkostað að skrá íslenzka krónu á sem stöðugustu útflutn- ingsgengi hennar. Áðurnefndan dag í maímánuði var sölugengi dollars 91,30 krónur, en 15. júní breyttist gengið á ný og fór í 89,30 krónur, 25. júní breyttist gengið enn í 88,80, 29. júní í 88,30, 3. júlí 87,80 krónur, 16. júlí 87,40 krón- ur, 18. júlí 87 krónur og 14. september 84 krónur. Það gengi gilti svo þar til 3. janúar síðastlið- inn. Þá tekur dollarinn aftur að hækka og hækkar þá í fyrsta um- gang um 90 aura. I gær var sölu- gengi dollarans 86,40 krónur eða hafði frá 3. janúar hækkað um 2,40 krónur. Er þessi hækkun dollarans 2,9%, en fall krónunnar gagnvart honum er 2,8%. Krónan hefur svo staðið sig gagnvart öðrum gjaldmiðlum á svipaðan hátt, en þó ber þess að gæta, að gengisbreytingar ein- Hækkun á olíuvörum virðist engan enda ætla að taka, því að það sem af er þessum mánuði hafa unnar olíur hækkað frá 40—80%. Sfðasta alþjóðaskrán- ing Corasia í Venesúela var gerð 4. janúar sl. og er tengd heims- markaðsverði. Talið er, að á árs- grundvelli hækki því olíuverð á íslandi um sem svarar 3000 milljónum kr„ en fyrir nokkrum vikum nam hækkunin ekki nema röskum 1000 milljónum. stakra mynta hafa verið mjög breytilegar, enda flestir gjald- miðlar á floti sem kallaðer. Seðla- bankinn hefur í samráði við stjórnvöld landsins kappkostað að láta krónuna fylgja meðalútflutn- ingsgengí eins og frekast hefur verið kostur. Vegna þessara miklu hækkana leitaðí Morgunblaðið í gær til Ind- riða Pálssonar forstjóra Skelj- ungs h.f. og bað hann að gera grein fyrir þessum miklu hækk- unum. Indriði sagði meðal annars: ,,Verð á þeirri olíu og bensíni, sem við kaupum frá Rússlandi, er samkvæmt samninfjum þar um, byggt á viðurkenndum skrán- ingum í Venesúela og þannig Olíuhækkunin milljörðum á Ibúðum og lóðum út- hlutað í Seljahverfi A NÆSTUNNI verða auglýstar til úthlutunar fyrstu íbúðirnar í svo- nefndu Seljahverfi í Breiðholti. Eru það 230 íbúðir I fjölbýlishús- um. Seinna í vetur verður út- hlutað lóðum undir einbýlishús, raðhús og keðjuhús í Seljahverfi. Þeir Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri og Þórður Þor- bjarnarson borgarverkfræðingur sögðu í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að fjölbýlishúsin yrðu 19 að tölu og I flestum hús- anna yrðu sex íbúðir við stiga- gang. Þessar íbúðir verða nú aug- lýstar til umsóknar þar sem þeir, sem áhuga hafa á ibúðunum, þurfa að vera búnir að sækja um framkvæmdalán fyrir 1. febrúar. útgerð- áríð? un almenns fisKverðs frá áramót- um 1973/74 og treysta rekstrar- grundvöll þorskveiða hefur ríkis- stjórnin I samráði við hagsmuna- samtök sjávarútvegsins ákveðið að beita sér fyrir þvi, að á árinu 1974 verði lagt sérstakt 5% út- flutningsgjald á f.o.b. verðmæti útflutningsframleiðslu loðnuaf- urða fiskimjölsverksmiðja og Framhald á bls. 18 Tókust samning- ar í þjónaverk- fallinuínótt? ÞJÓNAR og veitingamenn settust að samningaborði með sátta- semjara ríkisins klukkan 17 á mánudaginn og þegar við höfðum samband við Torfa Hjartarson sáttasemjara I gærkvöldi höfðu samningar ekki tekizt, en þá hafði fundurinn staðið I 30 klukkustundir. Torfi sagði, að stutt matarhlé hefði verið gefið um kl. 20, en að því loknu hefði verið tekið til við viðræðurnar á nýjan leik. Um samninga sagði Torfi, að von væri tif að þeir tækjust í nótt, en ekki vildi hann samt fullyrða neitt. Síðar á vetrinum verða auglýstar til úthlutunar lóðir undir 44 ein- býlishús við Öldusel og lóðir undir 140 raðhús við Fálkhól. Einnig verður úthlutað lóðum undir 18 einbýlishús við Sel- hrygg, en á árinu 1975 verður úthlutað 112 einbýlishúsalóðum á sama stað. Þá verður einnig úthlutað i vetur lóðum undir 46 keðjuhús. Keðjuhúsin eru með einbýlis- húsasniði, þeim fylgja litlar lóðir og þau hanga einnig saman á göfl- unum. Fiskverð hækkar um 11,5% YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins náði sam- komulagi um nýtt fiskverð á fundi í fyrrinótt. Fiskverð hækkar almennt um 11.5% frá því lágmarksverði, sem gilti til áramóta. Samkvæmt hinu nýja verði verða því gieiddar kr. 27.25 fyrir hvert kg. af 1.' flokks þorski, og er þá miðað við slægðan fisk með haus. A fundinum var einnig ákveðið lágmarksverð á loðnu til fryst- ingar og verður það kr. 13.60, hvert kfló. Yfirnefnd Verðlagsráðsins er búin að fjalla um fiskverðið síðan 17. desember og hefur haldið fjölda funda. Voru allar verðákvarðanir teknar með 5 samhljóða atkvæðum allra yfirnefndarmanna. Eins og fyrr segir, verða nú greiddar kr. 27.25 fyrir hvert kíló af stórum 1. flokks þorski. Stór ýsa verður á sama verði. Fyrir 1. flokks smáan þorsk verða greiddar kr. 18.50 pr. kg, smáýsu og lýsu kr. 18.15 hvert kíló. Verð á 1. flokks stórufsa verður kr. 17.75 hvert kg. Á 1. flokks steinbíti verður verðið kr. 17.15 hvert kg og á stórum íslands karfa er verðið ákveðið kr. 14.05 hvert kg. Fyrir hvert kíló af stórum 2. flokks þorski skal svo greiða kr. 21.80. Þess- ar verðákvarðanir eru miðaðar við slægðan fisk með haus, nema karfaverðið, þar er mið- að við óslægðan fisk. Ennfremur sagði, að verð fyrir hvert kg af loðnu til Framhald á bls. 18 nemur nú 3 ársgrundvelli tengt heimsmarkaðsverði á þessum vörum.“ Og hann sagði ennfremur: „Grunnskráningar þessar hækk- uðu verulega 4. janúar sl. eða frá 40—80%, mismunandi eftir teg- undum olíu. Til þess að menn geti gert sér nokkra hugmynd um þessar gifurlegu hækkanir og þau áhrif, sem þær hljóta að hafa hér á landi, má nefna, að útsöluverð á gasolíu, bensíni og svartolíu mun af þessum ástæðum á ársgrund- velli hækka frá því, sem það er I dag, um það bil 3000 milljónir króna.“ Við skráninguna 4. janúar sl. mun verð ásvartoliu hafa hækkað mest, eða um 81%, á gasolíu um 48% og á bensíni um 39%. Ekki er vitað, hvenær þessar i.ækkanir koma til framkvæmda á íslandi, en þær olíur, sem hérna eru seld- ar, eru langt undir heimsmark- aðsverði, eins og það er nú.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.