Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1974
-A_
3
Friðland að Fjallabaki
og við sjó undir Jökli
náttúruverndarrað
stefnir nú að því að stofna frið-
land að Fjallabaki í tengslum
við vernd fjölsóttra ferða-
mannastaða á hálendinu og hef-
ur þá sérstaklega í huga Land-
mannalaugar. Þetta kom m.a.
fram á blaðamannafundi hjá
Náttúruverndarráði.
Mörg friðlýsingarmál eru á
döfinni hjá ráðinu, misjafnlega
langt á veg komin. Áfram er
unnið að stofnun friðlands á
Hornströndum, en það mál er
tímafrekt vegna þess hve marg-
ir rétthafar eiga i hlut.
Gerðar hafa verið tillögur um
friðland í Vatnsfirði í Barða-
strandarsýslu og er það í undir-
búningi. Þá er unnið að því að
friðlýsa Herðubreiðarlindir og
nágrenni þeirra. Þá er ofarlega
i huga ráðsmanna að næsti
þjóðgarður geti orðið undir
Jökli á Snæfeilsnesi. Sagði Ey-
steinn Jónsson, formaður ráðs-
ins að ekki væri nóg að hafa
þjóðgarða til fjalla, þeirra
þyrfti líka með við sjávarsíðuna
og væri þá æskilegt að hægt
væri að fá þjóðgarð undir Jökli,
sakir fjölbreytni í náttúru og
fuglalifi. Þetta væri þó aðeins
hugmynd enn.
Sumir þessara staða, eins og
til dæmis „að Fjallabaki" með
Landmannalaugum og sjávar-
síðan á sunnanverðu Snæfells-
nesi eru mjög eftirsóttir ferða-
mannastaðir. Landmannalaug-
ar eru t.d. meðal þeirra sex
staða, þar sem álag er mest og
sem Náttúruverndarráð og
samgönguráðuneytið ætla nú
að taka til meðferðar og bæta
hreinlætisaðstöðu o. fl. Er þar
gert ráð fyrir meiri gæzlu,
manni bætt við i 3 mánuði,
merkingum leiðbeiningar-
skilta, lagfæringu gangstíga
milli skála og lauga og við laug-
arnar, sáningu i tjaldstæði og
við skála, snyrtiherbergi í sér-
stöku húsi nálægt skála og
þurrsalerni við Brandsgil, Suð-
urnámur og Norðurnámur,
sorpgrindur og lagfæringu bila-
stæða. Mundu þær fram-
kvæmdir að sjálfsögðu koma til
góða í fyrirhuguðu friðlandi.
Göngudeild fyrir
sykursjúka opnuð
Merkur áfangi í meðferð
sjúkdómsins
1 GÆR var skráður merkur
áfangi í meðferð sykursjúkra
hér á iandi, er opnuð var innan
hinnar almennu göngudeildar
Landspitalans göngudeiid fyrir
sykursjúka. í þessu tilefni boð-
uðu Ríkisspítalarnir til fundar
með fréttamönnum ásamt for-
ystumönnum samtaka sykur-
sjúkra hér á landi, sem mjög
hafa beitt sér fyrir þvf, að
svona deild yrði sett á laggirn-
ar.
Yfirlæknir hinnar nýju
göngudeildar er Þórir Helga-
son, en ásamt honum starfa við
deildina María I. Ragnarsdóttir
hjúkrunarkona, Helga Ölafs-
dóttir meinatæknir, aukfélags-
ráðgjafa Ríkisspítalanna og
matarráðgjafa, en á miðju
næsta ári kemur til starfa sér-
menntaður ráðgjafi, sem nú er
við nám erlendis. Þá starfa við
deildina bókari og ritari. Fyrst
um sinn verður deildin opin
mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá 8—12, en gert er
ráð fyrir síðar, að sá tími verði
lengdur.
Þórir Helgason yfirlæknir
ávarpaði viðstadda með stuttri
ræðu, þar sem hann sagði m.a.
Ævilöng meðferð
„Álitið er að erfðaeiginleiki
sykursýki finnist hjá 20—30%
þjóðfélagsþegna. Sjúkdómsins
gætir þó ekki hjá öllum þeim,
sem erfðina geyma vegna þess
hve erfðaeiginleikinn er mjög
mismunandi sterkur. Víðtækar
faraldsfræðilegar rannsóknir
seinni ára gefa til kynna, að um
hér á landi
2% þjóðfélagsþegna líði af ein-
kennum sjúkdómsins, en
vægari skerðing á sykurefna-
skiptum finnist hjá 5—10%
þegna. Sykursýki er því einn af
stærstu sjúkdómaflokkum þjóð-
félagsins. Sykursýki er ólækn-
andi sjúkdómur og meðferðin
ævilöng. Sjúklingurinn verður
sjálfur að takast á hendur hið
vandasama hlutverk að stjórna
blóðsykri sínum og er líf hans,
heilsa og hamingja gersamlega
undir því komin hvernig til
tekst. Til þess að hinn sykur-
sjúki geti annað hinu nýja
stjórnunarhlutverki sínu þarf
hann mikia, margvíslega og
ævarandi uppfræðslu, en án
hennar er ekki um viðunandi
stjórn að ræða og æviskeiðið
styttist. Það er af þessum orsök-
um, að þjóðir heims hafa komið
á fót sérfræðistofnunum þar
sem sykursjúkir njóta alhliða
leiðbeininga og meðferðar sér
fróðra aðila um sjúkdóminn.
Mun óhætt að fullyrða að þess-
ar stofnanir hafi reynzt sykur-
sjúkum nauðsynleg stoð og orð-
ið þjóðarheildum til heilla.
Göngudeild sykursjúkra, sem
opnuð er hér i dag er hin fyrsta
sinnar tegundar á íslandi.
Verkefni deildarinnar er að
greina sjúkdóminn eftir ábend-
ingu lækna og veita hinum
sykursjúku alhliða og ævilanga
fræðslu um sjúkdóminn og
meðferð hans. Að þessu mark-
miði er deildin opin öllum.
Fyrsta viðtal er að venju að
tilhlutan læknis sjúklings,
sem sendir deildinni skriflega
Landmannalaugar yrðu á friðlandinu „Að Fjallabaki“.
F.v. Helgi Hannesson, formaður samtaka sykursjúkra, Þðrir Helgason yfirlæknir, Marfa t.
Ragnarsdðttir hjúkrunarkona, Helga Óiafsdðttir meinatæknir, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjðri og
Jðn Þorsteinsson yfirlæknir Landspftalans í húsakynnum nýju göngudeiidarinnar.
Ljðsmynd. Sv. Þorm.
beiðni, en þaðan fær sjúklingur
um hæl boð um viðtalstíma.
Beiðnin leiðir ætíð til síðari við-
tala, þ.e.a.s. eftirlits, þegar svo
á við, nema læknir sjuklings
og/eða sjuklingur óski annars.
Viðtöl eru ávallt röðuð og er
hinu fyrsta ætlað 45 mín., en
síðari 12 mín. Að fyrsta viðtali
loknu er heimilislækni send
skýrsla um sjúkrasögu, skoðun,
rannsóknir og meðferð, og síðar
er heimilislækni skrifað verði
umtalsverð breyting á ástandi
eða meðferð. Með þessu ætti að
verða tryggt að æskilegt og
eðlilegt samstarf komist á við
heimilislækna.
Það er einlæg von mín, að
göngudeild sykursjúkra reynist
vandanum vaxinn þannig
sykursjúkum og þjóðfélaginu í
heild til mikils gagns.“
Húsnæðisskortur tafði
Þá tók til máls Helgi Hannes-
son formaður samtaka sykur-
sjúkra hér á landi. Hann sagði,
að frá þvf, að samtökin hefðu
verið stofnuð fyrir rúmum
tveimur árum, hefði stofnun
deildar sem þessarar verið eitt
helzta baráttumálið. í febrúar
1972 gengu síðan fulltrúar sam-
takanna á fund heilbrigðisráð-
herra, til að ræða þetta mál við
hann og hefði ráðherra tekið
málaleitaninni mjög vinsam-
lega og af miklum skilningi.
Bað hann samtökin um að láta
semja greinargerð um málið og
senda sér og var Þórir Helgason
læknir fenginn til að taka það
verk að sér. Ejftir að sú greinar-
gerð lá fyrir var hafizt handa
um undirbúning að þvf að koma
deildinni á laggirnar, en óvið-
ráðanlegur húsnæðisskortur
hefði tafið fyrir opnun deildar-
innar. Sagði Helgi samtökin
fagna innilega, að þessum
áfanga hefði nú verið náð og
þakkaði ráðherra og hans
starfsmönnum svo og öllum
öðrum, sem við sögu hefði
komið.
Helgi skýrði frá þvi, að sam-
tök sykursjúkra hefðu nú
ákveðið að gefa hinni nýju
deild mjög fullkomið tæki til
greiningar á blóðsykri, sem
skilaði niðurstöðum aðeins 8
mínútum eftir að blóðsýnið
hefði verið tekið. Kvað hann
samtökin hafa aflað fjár til
þessa með ýmsu móti, en einnig
hefðu margir aðilar fært
höfðinglegar gjafir, sem hefðu
gert það kleift að panta tækið
þegar í stað. - ihj.
Lóndrangar eru sérkennileg náttúruundur „Undir
Jökli“.