Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974 Lfkan af 1. áfanga verkamannabústaða f Reykjavfk f Seljahverfi. Verkamannabústaðir í Reykjavík: 308 íbúðir á næstu tveimur árum Stjórn verkamannabústaða f Reykjavík hefur nú lokið undir- búningsstarfi að framkvæmdum við 1. áfanga í byggingum verka- mannabústaða í Reykjavík. Er ákveðið, að á árunum 1974 og 1975 verði byggðar 308 íbúðir, en hafin er undirbúningur að bygg- ingu 250 íbúða, sem stefnt er að að byggja á árunum 1975 og 1976. Byggingarsvæðið, þar sem íbúð- irnar í 1. áfartga munu rísa, er í Seljahverfi í Breiðholti II. Jarð- vinna og uppsteypa á kjöliurum hafa þegar verið boðnar út, og verða tilboð f þessi verk opnuð 19. janúar og ætti vinna því að geta hafizt innan skamms. í þessum fyrsta áfanga eru 308 íbúðir, sem eru mismunandi að stærð og gerð. íbúðirnar eru í þriggja og fjögurra hæða fjöl- býlishúsum f Seljahverfi í Breið- holti, en húsin standa á svokölluð- um Selhrygg, norðanverðum. í þessum áfanga verða 108 íbúðir með fjögur herbergi, eldhús og bað, 136 íbúðir með þrjú her- bergi, eldhús og bað, 32 íbúðir með tvö herbergi, eldhús og bað og 32 fbúðir með eitt herbergi með baði, eldunarkrók og svefn- krók. íbúðirnar standa í nokkrum halla, þannig að gengið er á sléttu úr garði inn á 1. hæð að sunnan, en að norðan er hálfur stigi upp á 1. hæð. Kjallari er um það bil undir hálfu húsinu og eru í hon- um geymslur, þvottahús, strau- stofa, leikherbergi, geymslur fyr- ir reiðhjól, barnavagna og sorp. Nýmæli er það, að allar hurðir í íbúðunum eru það breiðar, að fólk i hjólastól getur ekið um þær. Þá eru íbúðirnar á 1. hæð sérlega heppilegar fyrir hreyfifatlað fólk, þar sem hægt er að aka í hjólastól inn í þær slétt frá garðinum, en þar er annar aðalinngangur í hús- in. íbúðunum verður öllum skilað fullfrágengnum og tilbúnum til innflutnings. Þá verða garðar gerðir i stand og leiktæki sett á barnaleikvelli. Bifreiðastæði verða malbikuð og er reiknað með l‘A bifreiðastæði á íbúð. Þessi frá- gangur mun hækka nokkuð sölu- verð íbúðanna, en stjórnin taldi, að hér væri um svo mikilvægt atriði að ræða fyrir íbúa hverfis- ins, að þessi tilhögun væri sjálf- sögð. Ekki er enn fullákveðið, hvar íbúðirnar í 2. áfanga verða byggð- ar, en líklegt er, að þær rísi í Fellahverfi, og það þar verði um að ræða 4 f jögurra hæða „punkta- hús“, sem talið er, að mjög hag- kvæmt sé að byggja. Rétt til kaupa á íbúð í verka- mannabústað í Reykjavík hafa þeir einir, sem fullnægja eftirfar- andi skilyrðum: 1. Eiga lögheimili í Reykjavík. 2. Búa við ófullnægjandi hús- næðisaðstöðu. 3. Hafa árið 1973 eigi haft yfir 338.750,00 kr. árstekjur miðað við meðaltal þriggja ára, að viðbætt- um 30.750,00 kr. fyrir hvert barn innan 16 ára á framfæri. Skuld- launs eign þeirra má heldur ekki hærri vera en 629.032,00 kr. Þessi tekjumörk miðast við þann tíma, þegar íbúð er keypt, og breytast í samræmi við breyt- ingar á kaupgreiðsluvísitölu. Eigin húsaleiga og bætur frá Tryggingastofnun rikisins teljast í þessu tilliti ekki atvinnu- eða eignatekjur. Fyrstu lög um verkamannabú- staði voru sett árið 1929 og voru á grundvelli þeirra byggðar um 1500 íbúðir á öllu landinu. Um 7 - 8000 manns af tekjulægsta fólk- inu hefur komizt í eigin húsnæði með aðstoð laganna, en þau voru á tímabili orðin óvirk, m.a. vegna ónógs fjár í Byggingasjóði verka manna og af fleiri ástæðum. Með lögum nr. 30 frá 12. maí 1970 um Húsnæðismálastofnun rík- isins voru gerðar verulegar breytingar á stjórn og skipulagi bygginga verkamannabústaða og að því stefnt að auka á ný fyrir- greiðslu við byggingu verka- mannabústaða til hagsbóta fyrir tekjulægstu þegna þjóðfélagsins. í lögin voru sett ákvæði, sem tryggðu betur fjármagn til bygg- inga verkamannabústaða, og til þess að það fjármagn nýttist sem bezt, var ákveðið, að stjórnir verkamannabústaða i hverju sveitarfélagi skyldu, að undan- genginni könnun á húsnæðisþörf, semja byggingaráætlanir til fjög- urra ára í senn og leggja þær tillögur sínar fyrir hlutaðeigandi sveitarstjórn til samþykktar. Að öðru leyti kveður sá kafii laganna um Húsnæðismálastofnun ríkis- sins, sem fjallar um Byggingar- sjóð verkamanna og verkamanna- bústaði, nánar á um gerð og stærð íbúða, skilyrði, sem uppfylla þarf til kaupa á íbúð í verkamannabú- stað (s.m.b. hér að framan), láns- kjör o.fL Hlutdeild sveitarstjórna og Húsnæðismálastofnunar ríkissins að stjórnum verkamannabústaða var aukin til muna, en sveitar- stjórn og ríki útvega meginhluta þess fjár, sem stjórnir verka- mannabústaða i byggingu fá til ráðstöfunar. Ennfremur eiga verkalýðsfélög í viðkomandi sveitarfélagi aðild að stjórn verkamannabústaða. Stjórn verkamannabústaða í Reykjavik, samkvæmt lögum nr. 30, 12. mai 1970, var fullskipuð á árinu 1971. Þörfin fyrir aukið húsnæði í borginni var frá byrjun talin það augljós, að ekki þótti ástæða til að gera sérstaka rann- sókn, hvað þetta varðar, enda þótt lögin mæli svo fyrir, að tillögur um framkvæmdir skuli byggðar á slikri athugun. Stjórnin kynnti sér skipulagningu byggingafram kvæmda bæði hérlendis og er- lendis i sambandi við undirbún- ing að fyrstu fjögurra ára áætlun sinni um byggingar verkamanna- bústaða í Reykjavik samkvæmt lögunum frá 1970. Hefur undir- búningsstarf það, sem innt hefur verið af hendi, miðazt við það, að framkvæmdir við 1. áfanga gætu hafizt um það leyti, sem bygginga- framkvæmdum á vegum Fram- kvæmdanefndar byggingaráætl- unar lýkur, en gert er ráð fyrir, að það verði að mestu á þessu ári. Samningar við borgarstjórn um útvegun lóða hafa gengið greið- lega. Borgarstjórn og Húsnæðis- málastofnun ríkissins hafa fallizt á áætlunagerð nefndarinnar, en áætlanir hennar eru háðar sam- þykki þessara aðila. Hefur borg- arstjórn hækkað framlag sitt til byggingarsjóðs verkamannabú- staða úr 200,00 á ibúa árið 1971 í 300,00 kr. á ibúa árið 1972 og í 400,00 kr. á íbúa 1973. Þessar töl- ur eru grunntölur og breytast til samræmis við breytingar á vísi- tölu byggingarkostnaðar. A árinu 1974 má búast við, að framlag borgarinnar verði, að meðtöldu álagi, um 700 kr. á íbúa. Að endingu skal á það bent, sem raunar er augljóst, að hratt vaxandi dýrtíð hefur áhrif á kostnað við fyrirhugaðar bygg- ingaframkvæmdir og veldur því, að söiuverð ibúðanna hækkar. Einnig mun löggjafinn þurfa að endurskoða tekjumark það, sem kaupréttur íbúða í verkamanna- bústað er miðaður við. Formaður stjórnar verka- mannabústaða í Reykjavík er Eyj- ólfur K. Sigurjónsson, en varafor- maður Gisli Halldórsson. Skipu- lag byggingarsvæðis 1. áfanga var gert af Reykjavíkurborg, og ann- aðist Teiknisstofa Guðrúnar Jóns- dóttur arkitekts það verk. Teikn- ingar og hönnun bygginga hafa eftirtaldir aðilar annazt: Teikni- stofan s.f. Ármúla 6, Fjarhitun h.f., Ríkarður Steinbergsson, Sig- urður Halldórsson og Reynir Vil- hjálmsson. FRÉTTABRÉF af Snæf jallaströnd Bæjum 3. jan. 1974. FRÁMUNALEG óveðrátta hefur ríkt hér við Djúp allagötu síðan með byrjun nóvember sJ. Má segja, að samfeld innistaða hafi verið hér, norðan Djúps, allan þann tíma. Hafa ríkt hér samfeild- ar frosthörkur, en það hefur komist upp i 18 stig upp til dala, fannkomur og véðraharka allan þennatíma. Tvær ferðir' komast Djúpbátur- inn ekki inn að Bryggju i Vatns- firði vegna lagnaðaríss á Vatns- fjarðarvík, en braust þar upp að ferðina eftir jólin. Börn úr Snæ- fjallahreppi frá Reykjanesskóla urðu á heimleið sinní í jólafríið að fara með Djúpbátnum til ísafjarð- ar, þar eð báturinn komst ekki að bryggjunum í Bæjum og Æðey vegna bylsorta, og hvergi móaði til lands. Urðu þau að bíða þar milli ferða til að komast heim, sem reyndar var þó ekki nema einn dagur, þar sem Djúpbátur- inn var orðinn dag á eftir áætlun einnig vegna óveðurs. Mikið lífgaði það uppá fámenn- ið á Bæjunum, að börn og ungtingar komu heim úr skólum og atvinnu til að halda jólin heima hjá sér, en fulltæpt stóð það hjá sumum að komast leiðar sinnar, og þá ekki síður að komast til baka aftur einmitt vegna óveðurs. A gamlársdag var hér rok og bylur, og ekki „hundi út sigandi" á gamlárskvöld, og engin leið að kveikja í flugeldi eða brennu, og verður það að bíða þrettándans, ef þá verður bjartara yfir. Ekki hefur heldur Vatnsfjarðarklerki gefið að messa á kirkjum sínum nú um þessar hátíðar, nema heima hjá sér í Vatnsfjarðar- kirkju á jóladag. Flestír vegir eru ilifærir og víðast alófært vegna ófærðar af völdum snjóa. Einnig hér I dag fann Djúpbáturinnekki bryggjuna f Bæjum vegna byl- sorta og roks, og sneri því við aftur til ísafjarðar i brjáluðu veðri. Heilsufarið hefur verið gott hér í Djúpi það sem af er vetri, enda hér hraust fólk og heilnæmt loft. Ekki tókst að ljúka Blævardals- árvirkjun í haust, eins og vonast var eftir, og urðu það vonbrigði mörgum, þar sem segja má, að rafmagnið sé nú orðið eitt af þeim brýnustu nauðsynjum, sem lifað er á. og ekki síst að það gjörbreyti lífi fólksins í stjálbýlinu. En Mýrárvirkjun er í góðu lagi og lýsir upp alla bæi í Snæfjaila- hreppi, og fimm í Nauteyrar- hreppi, auk eldunar og annarra heimilisnota. Ekki slógu Súðvíkingar slöku við í verðmætasköpun þjóðar sinnar, er þeir strax á þriðja í jólum fjölmenntu þar í hrað- frystihús staðarins til þess að flaka og vinna upp á annað hundrað tonn af bolta þorski, sem skuttogari þeirra Bersiflutti þeim að landi rétt fyrir jólin. Einnig reru bátar hér úti í sjóþorpunum af fullum krafti milli jóla og ný- árs, og i dag voru allir á sjó í 10 vindstiga veðri sjó og byl. Hér þekkist ekki að flytja soðfisk að úr öðrum landshlutum til neyslu, en aftur á móti er mjólk og rjómi fluttur i stórum stíl frá Reykjavík með flugvélum, í kaupstaðarþorp- in með ærnum tilkostnaði, enda lítið gert til þess að ýta undir aukna mjólkurframleiðslu hér heima fyrir að mörgum finnst og þá að nokkurn tíma tekur að ala upp í skarð þeirranokkur hundr uð kúa, sem felldar voru hér á rnjólkurfélagssvæðinu á kalártim- anum, sem margan lék grá'tt. Og þótt mikið sé nú gumað af hags- æld bænda á landi hér, er þó vist, að hér um slóðir þarf margra ára góðæri til þess, að bændur komist úr þeim krappa dansi, sem harð- ærið olli þeim. Gleðilegt nýár, Jens í KsUdalóni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.