Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1974
Athugasemd
VEGNA fréttar í Morgunblað
inu sl. fimmtudag um drukkinr
Svía, sem fluttur var fyrir mistök
til íslands með hópi farþega frá
Kanarieyjum, hafa nokkrir far-
þeganna komið að máli við blaðið
og mótmælt því, að almennur
drykkjuskapur hafi verið um
borð. Það hefði verið öðru nær,
enda hafi litlar veitingar verið að
fá í flugvélinni.
— Kissinger
Framhald af bls.l
áreiðanlegum upplýsingum, að
ísraelska stjórnin vilji einnig, að
sérstakar gæzlusveitir skipaðar
bæði Egyptum og ísraelum verði
staðsettar á öllum friðarlínum,
sem lagðar kunna verða.
Skýrt hefur verið frá því í
Washington, að Kissinger muni
halda til Jórdaníu og hugsanlega
einnig Sýrlands og Saudi-Arabíu
áður en hann leggi enn einu sinni
leið sína til Egyptalands og ísra-
els.
Samninganefnd Egypta í Genf
hefur nú verið kölluð heim til
skrafs og ráðagerða, en hún mun
fara þangað aftur jafnskjótt og
eitthvað liggur fyrir um árangur
viðræð'na Kissingers við leiðtoga
deiluaðila.
— Atvinnulausir
Framhald af bls. 32
Patreksfirði eða 38 manns, sem er
tveímur fleira en i nóvember en i
minni kauptúnunum voru lang-
samlega flestir skráðir atvinnu-
lausir á Vopnafirði eða 81, sem er
79 fleira en í nóvember. Á Stokks-
eyri voru 45 á skrá eða 9 fleiri en í
mánuðinum á undan, og 29 á Eyr-
arbakka eða 4 fleira en í nóvem-
ber. Á Djúpavogi voru 33 skráðir
atvinnulausir í árslok en þar var
enginn á skrá í nóvember.
Þórhallur Sigurðsson og Jón Júlíusson sem ræningjarnir.
„Köttur úti í mýri”
LAUGARDAGINN 19. janúar
verður frumsýning i Þjóðleik-
húsinu á nýju íslenzku barna-
leikriti, en það heitir „Köttur úti í
mýri“. Höfundur leiksins er
Andrés Indriðason, dagskrár-
maður hjá Sjónvarpinu. Andrés
hefur starfað hjá Sjónvarpinu frá
þvi að það tók til starfa og hefur
stjórnað upptöku leikrita og
þátta.
Barnaleikurinn „Köttur úti í
mýri“ er ævintýraleikur í 15
atriðum. Leikendur eru alls 15, en
með helztu hlutverkin fara Ævar
Kvaran, Anna Kristín Arngríms-
dóttir, Flosi Ólafsson, Þórhallur
Sigurðsson, Jón Júlíusson,
Sigurður Skúlason, Klemenz
Jónsson, Ingunn Jensdóttir,
Einar Sveinn Þórðarson o.fl. -
Leikmyndir eru gerðar af Jóni
Benediktssyni, myndhöggvara, en
hann hefur starfað hjá Þjóðleik-
húsinu í mörg ár við Ieikmuna-
smíði o.fl. Jón hefur einu sinni
áður gert leikmyndir hjá Þjóð-
leikhtfsinu. Jón Benediktsson er,
sem kunnugt er, einn af þekktari
myndhöggvurum hér á landi og
hefur tekið þátt i fjölda sam-
sýninga bæði hér á landi og
erlendis.
Leikstjóri er Gísli Alfreðsson,
en Magnús Ingimarsson semur
tónlistina, sem flutt er í leiknum.
Lúcía Gautaborgar kom til
landsins í gærkvöldi ásamt
fylgismeyjum sínum með
flugvél Loftleiða. Myndin
var tekin I bústað sænska
sendiherrans við komuna. 1
dag mun Lúcía og fylgis-
meyjar hennar m.a. heim-
sækja forseta íslands, borg-
arstjórann I Reykjavfk og
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, en þangað mun
Lúcía koma með sjónvarps-
tæki að gjöf. A morgun verð-
ur svo Lúcíuhátíð á vegum
Sænsk-íslenzka félagsins í
Norræna húsinu. — Ljósm.
Mbl. Brynjólfur.
RAFMAGNSMÁL VESTUR-
EYFELLINGA í ÓLESTRI
MIKIL óánægja er um þessar
mundir meðal fólks í VestunEyja-
fjallahreppi í Rangárvailasýslu
með rafmagnsmálin. 1 fréttabréfi
til blaðsins frá Helga Vigfússyni,
kennara í Seljalandsskóla, kemur
fram, að um nokkurt skeið hefur
rafmagn nær undantekningar-
laust farið af á sama tíma og
kvöldmjaltir standa yfir og
bændur mega verst við rafmagns-
leysi. Helgi segir, að þetta stafi
vafalaust af of miklu álagi.
„Hreppsbúar vilja gjarnan fá
úr þessu bætt hið allra fyrsta,"
segir Helgi. Hafa þeir hug á að fá
— Þróunar-
sýning
Framhald af bls. 32
sýningarinnar er þannig, að
menn hafa hugsað sér að
sýna uppruna islenzks þjóð-
félags, bændaþjóðfélagið með ein-
hverjum sjávarbúskap. Getur það
falizt í einum bæ, sem notaður er
sem forsenda. 1 þessum bæ er
heimilisiðnaðurinn, en út frá
honum greinast hinir ýmsu
geislar, þróunin til nútímaþjóð-
félags með sjávarútvegi, land-
búnaði, iðnaði, verzlun o.s.frv.
Ríkisvaldið og Reykjavíkurborg
eru þarna að sjálfsögðu áberandi
þættir, þegar nútimaþjóðfélagið
byrjar að þróast.
„Þetta er geysimikil sýning og
eitt af þeim mest spennandi atrið-
um í sambandi við þjóðhá-
tíðarhald ársins, ef vel tekst til.“
sagði Indriði G. Þorsteinsson.
Hann sagði jafnframt, að komið
hefði til tals, að sýna líkan af
Reykjavíkurborg á einhverju
þróunarskeíði hennar. Yrði það
líkan í talsvert mikilli stærð.
Þetta sem annað er þó enn í deigl-
unni og er sýningin að sjálfsögðu
enn í mótun.
austur rafmagnsveitustjóra rikis-
ins og raforkumálaráðherra, svo
og þingmenn kjördæmisins, til
skrafs og ráðagerða. Skruggu-
veðrið á dögunum olli einnig tölu-
verðum skemmdum í sveitinni,
svo að rafmagns- og símasam-
bandslaust varð með öllu. Engin
viðvörun eða tilkynning var út-
gefin í hljóðvarpi af hálfu við-
komandi stofnana vegna þessa
ástands, að sögn Helga. Hér fer á
eftir undirskriftalisti með nöfn-
um yfir 40 hreppsbúa, þar sem
farið er fram á úrbætur í raf-
magnsmálum:
Við undirritaðir íbúar Vestur-
Eyjafjallahrepps förumþessáleit
við viðkomandi ráðamenn raf-
orkumála, að bætt verði úr raf-
orkuþörfum sveitarinnar, en á
vissum tímum fer rafmagn af
án fyrirvara. Takmarkið
— Ahorfendur
Framhald af bls. 31
íþróttaviðburðir fara fram i Hafn-
arfirði en Reykjavík.
Ef litið er t.d. á aðsókn að leikj-
um í Reykjavíkurmóti, meistara-
flokki karla, kemur í ljós, að þar
er einnig um fækkun áhorfenda
að ræða. Árið 1972 komu að
meðaltali 320 áhorfendur á hvern
leik en í haust voru þeir aðeins
150 að meðaltali.
Ef litið er á alla íþróttaviðburði,
sem selt er inn á í Laugardalshöll-
inni, þá er meðaltalið fyrir árið
1971 777 manns, árið 1972 410
áhorfendur og á síðasta ári voru
að meðaltali 460 áhorfendur að
hverri keppni. Keppnum hefur
fjölgað mjög mikið í Laugardals-
höllinni á hverju ári, þannig voru
þær 99 1971, en 140 í fyrra.
Þannig, að aftur sannast það,
sem áður er sagt, þeim mun fleiri
íþróttaviðburðir, þeim mun færri
áhorfendur á hvern íþróttavið-
burð að meðaltali.
með undirskriftasöfnun þeirri,
er hér liggur fyrir, er
að gagnkvæm miðlun upplýs-
inga og skoðanaskipti eigi
sér stað hið allra fyrsta, t.d. með
fundi í „Heimalandi“.
Seljalandsskóla 7. jan. 1974.
Ólafur Kristjánsson,
Seljalandi,
Sigurður Jónsson, Seljalandi,
Sigriður Kristjánsdóttir,
Seljalandi,
Björn Ö. Lárusson,
Fitjarmýri,
Baldur Ólafsson, Fit,
Sigmar Sigurðsson,
Sauðhúsvelli,
Magnús Sigurjónsson. Hvammi,
Guðmundur Guðmundsson, Núpi,
Jón Einarsson, Núpi,
Guðjón Sigurðsson, Núpi,
Jóhannes Árnason, Moldnúpi,
Ragnar Guðmundsson, Núpi,
Einar Sveinbjarnarson,
Yzta-Skála,
Jón Sveinbjarnarson
Mið-Skála,
Jóna Guðmundsdóttir,
Ásólfsskála,
Bjarni Ólafsson, Skálakoti,
Anna María Tómasdóttir,
Efstu-Grund,
Einar Sigurðsson, Varmahlíð,
Ingi Einarsson, Varmahlíð,
Ingibjörg H. Jónsdóttir,
Indriðakoti,
Lárus Ágústsson, Indriðakoti,
Margrét Jónsdóttir, Holti,
María Auðunsdóttir, Efri Hól,
Katrín Auðunsdóttir,
Syðri-Hól,
Guðmundur Kristjánsson,
Syðri-Hól,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Syðri-Hól,
Jónas Pétursson, Syðri-Hól,
Mattias Guðjónsson,
Syðri Kvíhólma,
Sigurjón Guðjónsson,
Efri Holtum,
Leifur Einarsson, Nýjabæ,
Kolbrún Valdemarsdóttir,
Nýjabæ,
Jón H. Magnússon,
Fornu-Söndum,
Helgi Friðþjófsson,
Seljalandsseli,
Kristjana Kristófersdóttir,
Stóra Dal,
Anna Högnadóttir, Stóra Dal,
Kjartan Ólafsson,
Eyvindarholti,
Guðjón Ólafsson, Syðstu-Mörk,
Ólafía Guðjónsdóttir,
Stóru-Mörk,
Úlfar Bryjólfsson,
Stóru-Mörk,
Brynjólfur Úlfarsson,
Stóru-Mörk,
Árni Sæmundsson, Stóru-Mörk,
Ólafur Sveinsson, Stóru-Mörk,
Helgi Vigfússon, Seljalandsskóla.
£e\KKúsV(\a\\amu.
OPIO í KVÖLD.
KVÖLDVERÐUR frá kl. 18.
LEIKHÚSTRÍÓIÐ ásamt söngkonunni
Hjördísi Geirsdóttur.
Sími 19636