Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 7

Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974 7 Verður 1974 ár friðarins? Með árinu 1974 hefst annar aldarfjórðungurinn frá því grátið var krókódílatárum hjá Sameinuðu þjóðunum og við- kvæmar ræður haldnar þar um þjáningar Gyðinga i Evrópu, en þeir siðan látnir um það að heyja styrjöld fyrir stofnun ísraelsrikis á kostnað Palest- ínu-Araba. Þessi auvirðilega framkoma er svo löngu liðin, að mönnum er gjarnt að gleyma því að síðan hefur vax- ið upp ný kynslóð Araba og Gyðinga. Þótt hún vilji gleymast, get- ur þessi staðreynd reynzt þýð- ingarmeiri á árinu 1974 en auðurinn og áhrifin, sem fylgja olíu Araba, eða trú ísra- ela á hernaðarmátt sinn. Rétt er að nýja kynslóðin býr enn við kenningar þeirrar eldri, en lífsgleði yngri kynslóðarinnar fylgir vonin um að flýja óhjá- kvæmileika styrjalda. ísraelar. óttast eyðileggingu ríkis síns og nýjar blóðfórnir. Palestínu-Arabarnir bera hat- ur í brjósti tii þeirra, sem hafa hertekið land þeirra. Á meðan þetta hugarfar ríkir er erfitt að fullyrða að vítahringurinn verði rofinn, en æ fleiri þeirra, sem þjást, varpa nú fram þeirri spurningu, hvort þeir verði um alla framtíð að búa i skugga dauðans. mikil áhrif á gang friðarráð- stefnunnar, því bæði ríkin vilja ryðja úr vegi hættunni á árekstrum þeirra i milli á þess- um slóðum. Ef til vill gefur þessi afstaða stórveldanna öðru fremur ástæðu til að vona að unnt reynist að ná friðar- samningum á þessu ári, en hvort sá friður verður varan- legur byggist á breyttri fram- komu ungu kynslóðarinnar hjá deiluaðilunum. Það er rétt að sum Arabaríki og öfgasamtök Palestínu- Araba verða ekki aðilar að neinum friðarsamningum. Af þeim aðilum, sem hafa beitt sér gegn Genfarráðstefnunni, er Sýrland áhrifamest, en Sýr- land getur ekkert gegn ísrael, ef Egyptaland og Jórdania halda gerða samninga. Palest- ínu-Arabar eru róstusamir, en geta ekki staðið einir og verða því að fylgja fordæmi Egypta. írak og Líbýa eru of fjarri ísra^l til að geta haft nokkur bein afskipti. Innbyrðiságrein- ingur Araba getur því aðeins haft truflandi áhrif á hugsan- lega friðarsamninga, en ekki spillt þeim. Dr. Kissinger er það full- ljóst, að deilur Araba og ísra- ela hafa öllu öðru fremur stuðl'að að auknum áhrifum Sovétríkjanna í Mið-Austur forum world features Eftir Tom Little lands fyrir árið 1974, hve slæmt efnahagsástand lands- ins er órðið. Herkostnaður er þar reiknaður nærri 500 millj- ónir sterlingspunda, en heild- arupphæð fjárlaga er fjórir milljarðar punda. Þessi her- kostnaður á einna mesta sök á því, að viðskiptajöfnuður við útlönd verður verri en nokk- urn tfma fyrr: innflutningur nemur 1.266 milljónum punda, en útflutningur 596 milljón- um. Staða ísraels er jafnvel verri. Ef bæði löndin geta dregið verulega úr herkostnað- . flyMk * 4% * Wj| 1 * 9m K- j 1. Palestfnu-Arabar við flóttamannabúðir sfnar. Þessi spurning ungu kyn- slóðarinnar getur stuðlað að málamiðlunarlausn í MiðAust- urlöndum, sem til þessa hefur verið svo erfitt að finna, en aðeins örlaði á í lok nýliðins árs. Orðstír Sadats forseta í Arabalöndunum stóð af sér þá augljósu sáttastefnu, sem fram kom í viðræðum hans við Henry Kissinger, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og í ísr- ael bentu úrslit skoðanakönn- unar til þess, að biturleikinn vegna manntjónsins í október- styrjöldinni væri aðvíkja fyrir mildari hugsunum um framtíð- ina. Merkasti fyrirboðinn var upphaf friðarviðræðnanna í Genf, þó ekki væri fyrir annað en það, að ísraelar og Arabar settust saman að samninga- borðinu, en það hefðu þeir varla gert nema vegna vonar um að einhvers staðar fram- undan væri að finna leið til friðar. Þótt framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skipaði forsæti á ráðstefnunni, og Bandaríkin og Sovétrfkin ættu þar bæði fulltrúa, breytir það ekki þeirri staðreynd, að loks- ins höfðu Arabar og Israelar tekið upp beinar viðræður. Eiginhagsmunir Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna hafa löndum. An efa stefnir hann að því draga úr þessari þróun á árinu 1974 með því að þvinga ísraela til samninga við Araba, sem fela í sér tryggingu fyrir framtíð ísraels, en gefa einnig Bandaríkjunum tækifæri til bættra samskipta við Araba- ríkin. Takist að finna leið til friðar hefjast umbótatímar i þessum heimshluta. Vegna styrjalda og styrjaldahættu hafa bæði Egyptaland og ísrael verið fjárhagslega háð öðrum rikj- um; ísrael vegna þess að það getur ekki greitt bæði fyrir styrjaldarrekstur og kostnað við að koma fyrir öllum þeim innflytjendum, sem streyma til landsins, og Egyptaland vegna þess að efnahagsþróun- in í landinu hefur hvergi nærri undan fólksfjölguninni, sem nemur nærri milljón á ári. ísrael nýtur stuðnings Gyðinga um heim allan, en byggir þó mest á fjárframlögum Banda- rikjanna. Um langt skeið var Egyptaland háð gjöfum og lán- um — aðallega lánum — frá Sovétríkjunum, eða þar til Feisal konungur veitti Egypt- um aðgang að olíuauði Saudi- Arabíu. Tíu dögum fyrir lok ársins 1973 sýndu fjárlög Egypta- inum á árinu 1974, breytist efnahagsstaða þeirra verulega, og þeirra breytinga gætir einn- ig í öðrum Arabaríkjum. Sem betur fer fyrir Arabaríkin halda fjármálaáhrif olíu- vinnsluríkjanna áfram að þró- ast á árinu 1974. Talið er, að verð á olíu hækki upp í að meðaltali 10—12 dolíara á tunnu, og að eignarhlutur við- komandi rikisstjórna hækki upp í um 50%. Meira verður um beina samninga milli ríkis- stjórna framleiðenda og neyt- enda, og mun það breyta mjög áhrifum alþjóða olíufélaganna á þessum slóðum. Olíuauður Arabaríkjanna gerir þeim kleift að kaupa sig inn í ýmis alþjóða fyrirtæki — og búa sig þannig undir þann dag, þegar að þvt kemur, að iðnaðarríkin hafa komið sér upp nýjum orkugjöfum, eða aðganga ferá birgðir framleiðsluríkjanna. Alltaf er hætta á þvi að spá- I dómar fram í tímann standist I ekki, jafnvel þegar spáð er um næstu framtíð. Fari friðarum- leitanir Araba og ísraela út um þúfur, gjörbreytast framtíðar- horfurnar. Gerist það, má vera, að árið 1974 verði skráð i söguna sem ólánsárið mikla fyrir allan umheiminn ekki síður en fyrir Mið-Austurlönd. SILKISPÆLFLAUEL 1 5 litir Hannyrðabúðin, Linnetstíg 6, Hafnarfirði, sími 51959 TILSÖLU MERCURY COMET 1973 Ekinn 6 þús km Útvarp Sn)ódekk Upplýsingar í simum 86894 og 14662 VIÐ ERUM UNGT og barnlaust par. Okkur vantar alveg tilfinnanl. 1 — 2ja herb ibúð. Vinnum bæði úti. Þeir, sem geta einhv. hjálp veitt, vinsaml hringið í s. 35709 eða 32865 18ÁRA STÚLKA í 1 . bekk i tækniteiknun óskar eftir vinnu á teiknistofu Annað kemur til greina Hef vélritunarkunnáttu Vinsamlegast hringið í sima 1 2867 í dag og næstu daga TEKAÐMÉR að prjóna barnaföt Uppl. í sima 521 60 BIFREIÐ BMW — 1800 smiðaár 1967 Ekinn 65 þús km til sölu. Upplýsingar í sima 13685 ÍBÚÐ ÓSKAST Óskum eftir 2ja til 3ja herb. ibúð strax. Fyrirframgreiðsla. Uppl. i sima 71 476 SKIPSTJÓRI Skipstjóra vantar á góðan BÁT Upplýsmgar i simum 14120 og 93-6253, Ólafsvik KEFLAVÍK — SUOURNES Nýkomin efni i samkvæmiskjóla, pilsog peysufatasett Verzlun Sigríðar Skúladóttur, Keflavik. VANTAR MÚSIK? Kaktus Trio leikur borðmúsik. gömlu dansana, nýju dansana á árshátiðum, þorrablótum eða hvers konar dansleikjum Pantið í síma 42832 TILLEIGU nýleg 3ja herb. ibúð I Norðurbæ i Hafnarfirði Tilboð er greini fjöl- skyldustærð og fyrirframgreiðslu sendist afgr Mbl. fyrir 1 5 jan merkt: „3070" ÓSKA EFTIR ÍBÚÐ Kona i góðri stöðu með stálpaðan dreng óskar eftir ibúð á leigu Einhver fyrirframgreiðsia mögu- leg. Simi 4 3 3 9 1 Til leigu 4ra herb. ibúð á 3ju hæð i Breið- holti I Laus ca 1 5 janúar Tilboð sendist þriðjudagskvöld á afgr. Mbi. merkt: „X-Y-4739." BIFREIÐAVIÐGERÐIR Getum bætt við okkur verkefnum Bíla- og búvélaverkstæði A Mich- elsen, Hveragerði Simi 99-4166 Heimasimi 4180 BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa við deildir KLEPPSSPÍTALANS að Hátúni 10, R. Vinna hluta úr starfi kemur til greina. Upp- lýsingar veitir forstöðukonan, sími 38160. BÍLSTJÓRI óskast til starfa við ÞVOTTAHÚS ríkisspítalanna nú þegar. Upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 81714. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf berað skila til skrifstofu ríkisspítalanna. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavík, 10.jan. 1974 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765 Útboð Tilboð óskast í by^gincju íþróttahússí Hveragerði, 1. áfanga. Útboðsgagna má vitja á verkfræðsstofu Sigurðar Thoroddsen s.f., Ármúla 4, Reykjavík og á aðalskrifstofu sveitarstjóra Hveragerðishrepps, Breiðamörk 18, Hvera- gerði, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð 1. febrúar á skrifstofu sveitarstjóra í Hveragerði. Bygginganefnd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.