Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 14

Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 14
 14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1974 ! m 11 ÍAFRÍTTIR MORtUIURLARSIKS | „Sovézka liðið stórkostlegt” Geir Hallsteinsson sýndi enn einn stórleikinn með liði sínu Frisch Auf Göppingen er það mætti sovézka landsliðinu 6. janúar s.l., en þann leik sigruðu Rússar 22:18. Skoraði Geir 4 glæsileg mörk í leiknum og var annar markhæsti leikmaður Göppingen; hinn útlendingurinn i liðinu, Patzer, skoraði 6 mörk. — Bezti leikmaður Göppingen, Peter Bueher, var ekki með okkur í þessum leik, sagði Geir í viðtali við Morgunblaðið í gær, — hann meiddist í landsleik gegn Sovét- mönnum sem fram fór 2. janúar s.l. Sovétmenn léku um þá helgi tvo landsleiki við Vestur-Þjóð- verja, unnu fyrri leikinn 22:17, í Bremen, en töpuðu seinni leikn- um 14:17, en sá leikur fór fram í Essen. Um sovézka landsliðið sagði Geir: — Ég er illa svikinn ef það kemst ekki langt í heimsmeistara- keppninni. Varnarleikurinn hjá liðinu er sá bezti sem ég hef nokkru sinni kynnst og mark- varzlan þannig að tæpast er unnt að lýsa henni með orðum. Hún var undraverð. Ég held, að Göpp- ingen hafi náð sínum bezta leik, í vetur gegn Sovétmönnunum, og við hefðum sennilega unnið leik- inn, hefðu jólasteikurnar ekki setið aðeins í mönnum. Varnar- leikurinn hjá okkur var mjög góð- ur í þessum leik og okkur tókst að halda tveimur sterkustu mönnum Sovétmannanna: Maximov og Klimov algjörlega niðri. Maximov skoraði aðeins 2 mörk og Klimov eitt mark. Lið Geirs leikur í dag i 1. deild- inni gegn Didzenbach, liðinu sem er á höttunum eftir Axel Axels- syni og á morgun heldur það síð- an til Freiburg þar sem það tekur þátt i móti, ásamt sovézka lands- liðinu, landsliði Sviss, og úrvals- liði frá Suður-Þýzkalandi. Blakið vinnur á Frá þvf að Blakdeild Vfkings var stofnuð nú f haust, fyrsta blakdeildin innan almennu fþróttafélaganna í Reykjavfk, hafa vinsældir íþróttarinnar aukist jafnt og þétt. Árni Árna- son formaður deildarinnar sagði f viðtali við Morgunblaðið í gær, að nú væru um 80 manns innan blak- deildarinnar, f karla- og kvenna- flokkum. Sagði Árni að eini hópurinn, sem hefði valdið vonbrigðum væru menn komnir á miðjan ald- ur , en tímat Old Boys hefðu verið tiltölulega lítið sóttir, miðað við áhugann í öðrum flokkum og gildi blaksins sem trimmíþróttar. Gætu Vikingar enn bætt í Old Boys hóp- inn, en æfingarnar fara fram í íþróttahúsi Austurbæjarskólans frá kl. 21.50 á þriðjudögum og fimmtudögum. Á miðvikudaginn í næstu viku halda Víkingar skemmti- og kynningarfund í blaki í Víkingsheimilinu við Hæðargarð. Verður ^þar sýnd blakmynd og rabbað um íþróttina. Gilbert Reinisch Hansi Schmidt — kunnur leikmaður hériendis verður með Vest- ur-Þjóðverjum. Myndin er tekin f leik V-Þýzkalands og Sovétmanna á dögunum. Þjóðverjar velja HM-lið sitt Vestur-Þjóðverjar hafa nú valið lið sitt fyrir heimsmeistara- keppnina f handknattleik f Aust- ur-Þýzkalandi, en sem kunnugt er, leika þeir þar f riðli með Ís- lendingum, Tékkum og Dönum. Allir leikmenn þýzka liðsins eru margreyndir landsliðsmenn og hafa sumir hverjir á annað hundrað landsleiki að baki. í lið- inu eru tveir af leikmönnum Göppingens, og fimm leikmenn frá Gummersbach. Lið Þjóðverj- anna verður þannig skipað: Franskur stjörnufræðingur þjálfar reykvískt skíðafólk Markverðir: Michael Dogs, (VfL Bad Schwartau) 28 ára, — 8 landsleik- ir. Klaus Kater, (Gummersbach) 25 ára — 63 landsleikir. Wilfried Meyer (Dankersen) 30 ára — 16 landsleikir. SKÍÐAFÖLK mun ef að líkum lætur fá meiri og betri þjálfun í vetur en áður. Hingað til lands er nú kominn franskur skíðaþjálf- ari, Gilbert Reinisch að nafni. Mun hann starfa á vegum Skfða- ráðs Reykjavíkur og hefur þegar hafið æfingar, auk þess mun hann svo kenna frönsku í mennta- skólunum. Reinisch er eflaust mörgu íslenzku skíðafólki að góðu kunnur, en hann kemur nú hingað í fjórða skiptið. Fyrst kom hann hingað sumarið 1971, sem ferðamaður, en ekki leið á löngu þar til hann var á leiðinni upp í Kerlingarfjöll. Sumurin 1972 og 1973 dvaldist hann svo um tíma við kennslu og keppni i Kerl- ingarfjöllum. Gilbert Reinisch er frá borginni Nice í Frakklandi, þaðan lauk hann fyrir ári síðan prófi í stjörnufræði og hefur unnið á rannsóknastofu háskólans í Nice síðan. Hingað kemur hann fyrir mílligöngu Menntamálaráðu- neytisins og franska sendrráðsins. í Nice var Reinisch formaður skíðafélags háskólans og þjálfaði það reyndar lika. Við ræddum við hann í fyrradag og spurðum fyrst, hvað hann vildi segja um skíða- fólkið eftir fyrstu kynni. — Ég hef hitt sumt af skíða- fólkinu áður, bæði I Kerlingar- fjöllum og svo vorum við Guðjón Ingi Sverrisson saman við æfing- ar í Frakklandi í haust, sagði Reinisch. Ég get ekki annað sagt en að mér lítist mjög vel á að starfa með þessu fólki og ég vona aðframfarirnar verði nokkrar. — Höfuðmunurinn á islenzku skfðafólki og frönsku er sá, að hér hafa allir áhuga á að læra meira og bæta sig. I Frakklandi heldur fólk, að það sé svo gott á skíðum, að það geti tæpast lært meira. Ég hef séð marga góða skíðamenn hér og ég er mjög bjartsýnn á samstarfið. Reinisch er byrjaður æfingar og mun hann ekki nota sömu flokka- skiptingu við æfingarnar og tiðkast hefur. Ekki verður skipt í flokka eftir aldri heldur getu. — Það er örvandi fyrir krakkana að fá að keppa við fullorðna og fyrir þá fullorðnu er leiðinlegt að tapa fyrir krökkunum, þannig að þeir beita sér meira, segir Reinisch. Bandaríkjamaðurínn James Mayor þjálfaði hjá Ármanni í fyrravetur og sagði Fransmaður- inn að það væri greinilegt að skíðafólkið hefði lært töluvert af kennslu hans. Sæmundur Óskarsson er formaður Skíðaráðs Reykjavíkur og sagði hann að Reinisch yrði hér á landi næstu tvö árin og myndi Skíðaráðið nota sér veru hans hér til hins ýtrasta. Auk beinnar þjálfunar mun hann halda fyrirlestra og hefjast þeir innan skamms. Verður þeim skipt í tvennt, annars vegar fyrirlestrar fyrir keppendur og hins vegar fyrir leiðbeinendur. Aðrir leikmenn: Wolfgang Braun (Schwartau) 28 ára — 51 landsleikur. Peter Bucher (Göppingen) 26 ára — 70 landsleikir. Joachim Deckarm (Gummersbach) 20 ára — 3 landsleikir. Armin Emrich (Göppingen) 22 ára — 9 lands- leikir. Burkhard Gröning (Well- inghofen) 28 ára — 23 landsleik- ir. Jíirgen Hahn (Leutershausen) 23 ára — 6 landsleikir. Hans Kramer (Dankersen) 25 ára — 20 landsleikir, Helmut Kosmehl (Gummersbach) 29 ára — 13 landsleikir. Heiner Möller (Well- inghofen) 25 ára — 79 landsleik- ir. Bernd Munck (Dankersen) 30 ára — 110 landsleikir. Hans- Gúnther Schmidt (Gummers- bach) 31 árs — 88 landsleikir. Horst Spengler (Húttenberg) 23 ára — 21 landsleikur. Herbert Wehnert (Dietzenbach) 26 ára — 73 landsleikir. Gerd Welz (Kiel) 29 ára — 28 landsleikir. Klaus Westebbe (Gummersbach) 24 ára — 35 landsleikir. Ógna Njarð- víkingar liði KR? FJÖRIR leikir fara fram í 1. deild Íslandsmótsins í körfu- knattleik um helgina og tveir leikir í 2. deild. Klukkan 16 í dag leika á Seltjarnarnesi Valur og UMFS og að þeim leik loknum HSK gegn ÍR. Kiukkan 17 í dag leika á Akureyri Þór og UMFG og á morgun kl. 14 mæta Grindvík- ingar liði ÍMA; báðir leikirnir fara fram i Íþróttaskemmunni. Tveir leikir fara fram í íþrótta- húsinu í Njarðvíkum á morgun, báðir í 1. deild. Fyrst leika UMFS og Armann, hefst sá leikur klukk- an 14 og að honum loknum leika heimamenn við KR. Telja verður Valsmenn nær örugga um sigur í leiknum við UMFS og þótt Njarðvíkurliðið sé óvenju gott um þessar mundir eiga KR-ingar að vinna leíkinn gegn þeim. Með góðum leik og háværa áhorfendur að baki ættu Njarðvíkingar þó að geta staðið í KR-ingum. Leikirnir I 2. deild, sem báðir fara fram á Akureyri, ættu að geta orðið spennandi, einkum leikur UMFG og ÍMA, ósennilegt er að UMFG takist að sigra Þórs- ara, sem eru iðnir við stigasöfnun þessa dagana. r IR-hlaupin að hefjast Undanfarin sex ár hafa ÍR-ingar byrjað árið með því að efna til unglinga-, barna- og trimmhlaupa, bæði í Hljómskálagarðinum og í Breiðholti. Það hyggjast þeirgeraenn á ný. Þessar hlaupakeppnir ÍR- inga hafa verið öllum opnar og mikill f jöldi hefur spreytt sig á þessum árum. Þátttak- endurnir hafa verið á öllum aldri, eða frá 5 ára til 65 ára aldurs. Meðal þeirra sem hafa tekið sín fyrstu hlaup- araskref í keppninni er margt af bezta frjálsíþrótta- fólki landsins. Má þar nefna Vilmund Vilhjálmsson, Ágúst Ásgeirsson, Gunnar Pál Jóakimsson, Ragnhildi Páisdóttur, Lilju Guðmunds- dóttur og Önnu Haraldsdótt- ur. Í vetur og í vor munu fara fram 6 hlaup í Hljómskála- garðinum og önnur 6 í Breið- holti; eru þetta tvær keppn- ir óháðar hvor annarri. Keppendum er skipt í flokka eftir fæðingarári og allir þeir sem ljúka 4 hlaupum i viðkomandi keppni fá sér- stakar viðurkenningar og verðlaun. Fyrsta hlaup vetrarins verður 1. Hljómskálahlaupið 1974 og hefst það klukkan 14 á sunnudaginn, 13. janúar. Það er eins og fyrr segir öllum opið. Væntanlegir keppendur þurfa að mæta tímanlega til skráningar og númeraúthlutunar og helzt eigi síðar en kl. 13.40 við Hljómskálann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.